Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 36
BLS. 2 | sirkus | 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNMATURINN: Heima. SKYNDIBITINN: Hádegismatur á Garðinum. UPPÁHALDSVERSLUN: Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Sjoppan í Valsheimilinu kemur líka sterk inn. LÍKAMSRÆKTIN: Ganga upp og niður Bankastrætið og Skólavörðustíginn. RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Gleymérei-borgarinn á Vitabarnum er ávallt rómantískur. BEST VIÐ BORGINA: Hraðinn er svakalegur og hér er alltaf allt að gerast. ■ Heyrst hefur Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@frettabladid.is Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Reykjavík, sími 512 5000 Sölustjóri Bergur Hjaltested 512 5466 bergurh@365.is Benni Hemm Hemm, tónlistarmaður REYKJAVÍK U m fátt hefur verið rætt meira síðustu vikurnar en brúðkaup aldarinnar þegar Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Stefanía Pálma- dóttir ganga í það heilaga. Í til- efni af brúðkaupinu hafa þau afþakkað allar brúðargjafir en biðja fólk í stað þess að gefa í Sólarsjóðinn sem er góðgerða- sjóður. Tilgangur sjóðsins er að styrkja börn sem eiga um sárt að binda vegna langvarandi veik- inda og aðstandendur þeirra. Í bréfinu sem barst til veislugesta segir: „Í þeim efnum hefur okkur meðal annars dottið í hug að kaupa mætti íbúðir í Reykjavík eða London, þar sem fjölskylda barnsins getur búið saman á meðan meðferð þess stendur.“ Jón Ásgeir og Ingibjörg Stefanía munu sjálf leggja sitt af mörkum inn í sjóðinn sem er ætlað að styrkja langveik börn og munu þau sjálf leggja fram stofnfram- lag. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem verðandi brúðhjón leggja þeim sem minna mega sín lið en um árin hefur Jón Ásgeir verið duglegur að styrkja bágstadda á Íslandi. Tilkoma Sólarsjóðsins mun þó ekki bara styðja við bakið á langveikum börnum heldur mun þetta létta þungu fargi af veislugestum sem hafa margir hverjir misst svefn út af brúðargjafakaupum. martamaria@365.is JÓN ÁSGEIR OG INGIBJÖRG STEFANÍA PÁLMADÓTTIR AFÞAKKA BRÚÐARGJAFIR: Stofnuðu góðgerðasjóð til að styðja við bakið á langveikum börnum GERA GÓÐVERK Jón Ásgeir og Ingibjörg Stefanía afþakka hefðbundnar brúðargjafir. Heyrst hefur að Telma Tómasson, fyrrverandi fréttakona Stöðvar 2, muni sjá um lifandi fréttaflutning á fréttavefn- um MBL.is. Telma sagði skilið við fjölmiðlaheiminn fyrir þónokkrum árum og hefur gegnt starfi fjölmiðlafulltrúa Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands síðan 2004. En auk þess hefur sinnt Telma hestamennskunni af mikilli ástríðu en hún er mikil hestakona. Telmu hefur verið sárt saknað af skjánum og ættu fréttahaukar að taka endurkomu hennar í fréttirnar af mikilli gleði. Telma Tómasson aftur í fréttirnar Í fantaformi Líkamsræktarstöðin World Class hefur verið þéttsetin síðustu vikuna og hafa veislugestir í brúðkaupi Jóns Ásgeirs og Ingibjargar Stefaníu verið sérlega áberandi. Það ætlar enginn að láta hanka sig á úthaldsleysi fyrir brúðkaup aldarinnar. Á miðvikudaginn sást til þeirra Ara Edwald og Þórðar Más Jóhannessonar þar sem þeir spörkuðu af öllu afli í boxpúða með þeim afleiðingum að svitinn lak af þeim. Þeir ættu því að vera nýuppgerðir og sprækir á laugardaginn enda búnir að taka vel á því. V ið erum að taka við rekstri veit-ingastaðarins Salts,“ segir Guð- varður Gíslason veitingamaðurinn ástæli betur þekktur sem Guffi. Guffi og eiginkona hans Guðlaug Hall- dórsdóttir textílhönnuður eða Gulla eins og hún er kölluð hafa verið öflug í veitingarekstri á höfuðborg- arsvæðinu, en þau hjónin ráku meðal annars skemmtistaðinn Gauk á Stöng og veitingastaðinn Apótekið. Nýi staðurinn sem þau eru að opna hefur hlotið nafnið Gullfoss Rest- aurant Lounge og skírskotar þar með til hússins sem að það er stað- sett í, gamla Eimskipahússins. „Stað- urinn er afar kaldur í dag og við ætlum að gera hann hlýlegri og notalegri þar sem Íslendingar þurfa meiri hlýju í kaldan veruleikann. Við hefjum framkvæmdir við húsnæðið á sunnudaginn en miklar breytingar eru á döfinni. Veitingastaðurinn verður færður yfir þar sem barinn er í dag. Lounge bar verður opnaður þar sem veitingastaðurinn er núna, þar sem áherslan verður á kokteila, mikinn og góðan vínbar og seinna meir er stefnan að bjóða upp á fjöl- breyttan rommbar,“ segir Guffi um fyrirhugaðar breyt- ingar á húsnæðinu. Gull- foss Resturant Lounge mun sérhæfa sig í svoköll- uðum „New style tapas“ og mun bjóða upp á fjöl- breyttan matseðil smárétta sem verður ólíkur því tapasúrvali sem hefur verið á boðstólum á Íslandi. „Við ætlum okkur að framreiða tapas eins og það gerist hvað best í Barcelona og Madrid og leggjum mikla áherslu á að hráefnið sem við notum sé fyrsta flokks.“ Guffi mun halda áfram að njóta fulltingis Frakkans og stjörnukokksins Nicolas Verg- naut sem fylgir Guffa af Apótekinu og verður yfirkokkur á nýja staðn- um. Gullfoss Resturant Lounge á án efa eftir að setja skemmtilegan blæ á veitingahúsalífið og skemmtana- lífið á höfuðborgarsvæðinu og mun ylja barflugum, fagurkerum og mat- gæðingum um hjartarætur. Bergthora@frettabladid.is GUFFI OG GULLA KEYPTU VEITINGASTAÐINN SALT Tileinka sér „New style tapas“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.