Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 42
BLS. 8 | sirkus | 16. NÓVEMBER 2007
Þ ulur Ríkissjónvarpsins hafa verið mikið í umræðunni upp á síðkast-
ið en í síðustu viku voru fjórar nýjar
þulur ráðnar til starfa. Katrín Brynja
Hermannsdóttir hefur verið þula í sjö
ár og er langt frá því að vera á förum.
Hún hefur þó ekki sést mikið á skján-
um upp á síðkastið því hún eignaðist
son 28. september síðastliðinn.
„Ég sótti um í upphafi í þeim til-
gangi að reyna að finna þefinn af fjöl-
miðlum og átta mig betur á starfs-
umhverfinu. Pabbi hafði alla sína tíð
unnið við fjölmiðla, sem blaðamaður,
ritstjóri og fréttamaður á RÚV. Það var
eitthvað sem heillaði. Að sjálfsögðu
bað ég hann um að reyna að greiða
leið mína að starfinu og reyndi að fá
hann til að tala við yfirmann þulanna.
Fannst það þjóðráð að hann stykki
bara á hann á göngunum og legði inn
gott orð fyrir mig, en allt kom fyrir
ekki. Pabbi horfði á mig og sagði stutt
og laggott: „Nei. Katrín – ef þú átt eitt-
hvað í þetta starf, þá færðu það á eigin
forsendum,“ og þar með var það útrætt.
Ég hins vegar veit að einhverjir vildu
tengja tilveru pabba á fréttastofunni
við að ég var ráðin á sínum tíma. Ég
skil það vel enda gerði ég heiðarlega
tilraun til að notfæra mér tengslin,“
segir hún og brosir.
„Það er auðvitað gott og kannski
fyrst og fremst þægilegt ef einhver
hefur tækifæri til að greiða leið manns
að því sem mann langar í en það er
töluvert mikið skemmtilegra að ná
markmiðum sínum einn og óstuddur.
Það er góð tilfinning,“ segir hún og
hlær og rifjar upp þuluprófið sem hún
þurfti að þreyta til að hnjóta um
starfið.
„Þegar við Ellý byrjuðum var held ég
unnið úr bunka umsókna og við boðuð
í próf sem gekk út á að semja eigin
texta og lesa hann af textavélinni.
Þetta var tekið upp og hefur eflaust
vakið kátínu þeirra sem fengu að sjá –
við stukkum ekkert fullskapaðar í
djobbið og maður var dágóðan tíma
að finna sig, eða ég allavega. En það
kom á óvart hversu margir sóttu um
þetta núna – eins umdeilt og starfið
virðist oft vera og skiptar skoðanir um
ágæti þulustarfsins. Á meðan ein-
hverjir geta ekki hugsað sér Ríkissjón-
varpið án okkar þá eru aðrir sem vildu
helst henda starfinu út í hafsauga og
hugsa ekki um það söguna meir. Þetta
höfum við alltaf vitað og lendum reglu-
lega í því að ræða við fólk um starfið,
sem allir virðast hafa skoðun á.“
Í síðustu viku var greint frá því að
fjórar nýjar þulu hefðu verið ráðnar.
Katrínu Brynju líst vel á sínar nýju
samstarfskonur.
„Við hittumst einmitt í vikunni og ég
gat ekki betur séð en að þetta væru
stelpur sem eiga eftir að pluma sig frá-
bærlega – flottar að öllu leyti. Ég þekki
Önnu Rún, en hún hefur málað mig
niðri í Sjónvarpi fyrir kynningar. Ef
hinar stelpurnar eru eitthvað líkar
henni þá getur fólk leyft sér að hlakka
til að fylgjast með þeim á skjánum,“
segir Katrín Brynja en bætir því við að
þulurnar hittist nú ekki mikið þar sem
það sé alltaf bara ein á vakt hverju
sinni. „En starfið er skemmtilegt og
ekki síst vinnuumhverfið og fólkið hjá
Sjónvarpinu. Þar eru gullmolarnir
hver um annan þveran. Í starfinu sjálfu
þarf maður svo stöðugt að vera
tilbúinn til að gera betur og það er
skemmtilegt í sjálfu sér.“ Þegar hún er
spurð að því hvort hana langi til að
vera með sinn eigin sjónvarpsþátt
hugsar hún sig um í smá stund áður en
hún svarar.
„Kannski í fyllingu tímans eða vera
hluti af stærra teymi. Ég er samt ekki
að hugsa um það núna,“ segir hún.
Með þulustarfinu hefur Katrín
Brynja verið í meistaranámi í blaða-og
fréttamennsku í Háskólanum. Hún
hefur líka verið flugfreyja, kennari og
unnið sem blaðamaður. „Að setjast á
skólabekk aftur var frábært og þvílíkt
endurnýjandi. Tilhlökkunin var
nákvæmlega eins og þegar maður
labbaði í skólann fyrsta daginn í
grunnskóla. Í óléttunni kláraði ég svo
lokaritgerðina en á eftir tvö fög sem ég
stefni á að klára næsta haust. Ég ætlaði
að vera ofurkona og klára núna um
jólin en áttaði mig sem betur fer á því
að láta aðra og mikilvægari hluti hafa
forgang.“
Upptekin í móðurhlutverkinu
Í haust eignaðist Katrín Brynja annan
son sem er orðinn sex vikna og segir
hún fæðinguna hafa gengið ótrúlega
vel. „Ég var í frábærum höndum Önnu
Eðvaldsdóttur ljósmóður, fílaði hana
vel um leið og við hittumst, enda
rómaður snillingur í sínu fagi. Ég var
mjög heppin með hana. Pilturinn
hefur ekki hlotið nafn og ekki verið
nefndur, ætli ég sé ekki eitthvað pínu-
lítið gamaldags í þessum málum.
Hann gengur því undir nöfnunum Litli
eða Moli í bili,“ segir hún og hlær. Fyrir
á hún soninn Mána Frey sem er fimm
ára og er stoltur stóri bróðir. Hún segir
að það sé heilmikil breyting að vera
heima með tvö börn en það sé vel þess
virði. „Næturbröltið og baugarnir eru
vel þess virði,“ segir hún brosandi.
Fæðingarorlofið leggst vel í hana þótt
hún stelist til að taka eina og eina
þuluvakt. „Það eru þvílík forréttindi að
geta verið heima og sinnt nýfæddu
barni. Þetta eru stundir sem koma
aldrei aftur og eins gott að njóta þeirra.
Oft vildi ég óska að ég gæti ýtt á ein-
hvern takka og fryst mómentið svo ég
geti notið þess lengur. Þetta er svo
ótrúlegt undur, meðganga og fæðing
barns. Að þetta skuli vera hægt finnst
mér stórmerkilegt.“ Katrín Brynja er á
bólakafi inni í sápukúlu móður-
hlutverksins.
„Um leið og barnið fæddist var eins
og heimurinn minnkaði og hlutir sem
maður var upptekinn af, kannski alveg
fram að fæðingu, skiptu ekki máli
lengur eða færðust langt aftur í for-
gangsröðinni. Svo hefur mér tekist
mun betur að lifa í núinu og þá fer
maður ósjálfrátt í naflaskoðun og hún
er holl.“ Hún segist ekki hafa neinn sér-
stakan metnað í að byrja að vinna sem
fyrst og ætlar bara að láta það ráðast
hvað hún verður í löngu orlofi. Síðast
tók hún sér 15 mánaða fæðingarorlof
og segir að það hafi verið mjög ánægju-
legt. „Þegar ég hef tekið þuluvakt hef
ég haft soninn með mér og það hefur
gengið ótrúlega vel.“ Í nýliðinni viku
voru ekki bara fjórar nýjar þulur
ráðnar til starfa. Björgólfur Guð-
mundsson færði Ríkissjónvarpinu
styrk upp á 150 milljónir.
„Ég sé fulla ástæðu til að gleðjast yfir
þessum samningi og sé ekki að það
skipti máli hvaðan gott kemur. Þetta
snýst um fjármögnun á leiknu sjón-
varpsefni og að efla íslenska leiklist –
af því munum við hin svo njóta góðs.
Öll umræða um mál af þessum toga er
hins vegar af hinu góða því af henni
hlýst meiri skilningur í allar áttir. Ég
hef litlar áhyggjur af því að þetta veiti
Björgólfi einhvern óljósan valdasprota
innan RÚV – ég treysti stjórnendunum
bara miklu betur en það, og þar fyrir
utan hef ég enga trú á að það sé
tilgangurinn,“ segir Katrín Brynja.
Katrín Brynja er mjög skipulögð.
Þegar hún er spurð út í jóla-
undirbúninginn fer hún að hlæja og
segist hafa byrjað að undirbúa hátíð
ljóss og friðar í júlí.
„Við mamma fórum til Boston og
fengum þá frábæru hugmynd að kaupa
nokkrar jólagjafir. Þá var ég komin 34
vikur á leið og þar af leiðandi komin
með stóra kúlu. Flugið, steikjandi sól
og hiti var ekkert rosalega óléttuvænt.
Skórnir mínir öðluðust sjálfstætt líf og
minnkuðu eftir því sem líða tók á
daginn. Ég held ég hafi prófað hvern
einasta bekk sem á vegi okkar varð,“
segir hún og skellihlær og bætir því við
að fólki hafi fundist þær stórskrítnar
að vera að huga að jólunum svona
snemma.
„Fyrir mér var þetta eðlilegasti
hlutur í heimi því þegar ég vann sem
sumarflugfreyja sankaði ég að mér
jólagjöfum á ferðum mínum erlendis.
Mér finnst þetta miklu skemmtilegra
heldur en að vera í einhverju stressi í
KATRÍN BRYNJA HERMANNSDÓTTIR ER FARIN AÐ TAKA EINA OG
EINA ÞULUVAKT ÞÓTT HÚN SÉ Í FÆÐINGARORLOFI. HÚN ER
SPENNT AÐ KYNNAST NÝJU ÞULUNUM OG SEGIR STARFIÐ
SKEMMTILEGT ÞÓTT SUMIR ELSKI AÐ HATA ÞULURNAR.
Næturbröltið
og baugarnir
eru þess virði
Uppáhaldsmaturinn: Rósmarínkryddaðar
lambalundir að hætti mannsins míns eru
ólýsanlega bragðgóðar. Vel heppnaður
humar er líka ómótstæðilegur.
Besti veitingastaðurinn: Hornið stendur
alltaf fyrir sínu og missir aldrei sjarmann –
pitsurnar þar eru snilld. En ég bíð spennt
eftir að einhver opni California Pitza Citchen
hérna heima – þann mat gæti ég snætt
daglega.
Tónlistin: Það eru langar í mér tónlistar-
leiðslurnar... nú er James Blunt, gamli
diskurinn í uppáhaldi og svo var ég að panta
mér þann nýja á Amazon. Ég get hlustað á
þetta daginn út og inn.
Bíllinn minn er ... silfurgrár eðalkaggi með
skynjurum í stuðurunum – þvílíkur lúxus!
Ef ekki sjónvarpþula hvað þá? Skíðakenn-
ari í svissnesku ölpunum, sól og skemmti-
legheitum.
Uppáhaldsflíkin: Lopapeysa sem frænka
mín prjónaði handa mér – nú er komið gat á
olnbogann svo mig bráðvantar nýja...
MÓÐIR AÐ STÖRFUM Katrín Brynja og
Máni Freyr sonur hennar á góðri
stundu heima. MYNDIR/VALLI