Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 16. nóvember 2007 3
Koníakskryddlögur á lambafilé
Koníaki hrært út í „Bezt á lambið“-
kryddblönduna. Fyrst þarf að skera
raufar í fituna með beittum hníf.
Svo er þurrkryddað með „Bezt á
lambið“ á kjöthliðinni og koníaks-
kryddleginum síðan makað á fitu-
hlið filéstykkjanna. Gott er að láta
kjötstykkin marinerast í koníaks-
kryddleginum í hálfan til einn sól-
arhring áður en kjötið er steikt.
BERNAISESÓSA
5 eggjarauður
500 g brætt smjör
1 msk Bezt á kalkúninn
nokkrir dropar Tabasco-sósa (rauð)
1 tsk bernaise-essens
estragon
nokkrir dropar af sítrónusafa
Aðferð:
Setjið eggjarauðurnar í stál/keram-
ikskál og hafið skálina í vatnsbaði,
en sósan er löguð í vatnsbaðinu
(ca. 37-40°C). Fyrst eru eggjarauð-
urnar stífþeyttar með handþeytara
þar til þær eru nánast hvítar. Þá
er bræddu smjörinu hellt varlega
í smáskömmtum og handþeytar-
inn látinn ganga á hægum hraða
á meðan. Þá er tabascosósa, ess-
ens, krydd og sítrónusafi sett út í
og hrært í augnablik. Athugið að
ekki má setja lok á skálina eða
hita sósuna upp aftur því þá skil-
ur hún sig. Sósan er ekki síður góð
þótt hún kólni eitthvað.
Uppskrift Stefáns
Koníaksfilé
og bernaise
Jól í hjarta
Ólafsvíkur
Jólahlaðborð
17. nóv, 24.nóv, 1.des og 8. des
Foréttir
Aðalréttir
Meðlæti
Eftirréttir
Hótel Eldhestar á Völlum í
Ölfusi býður upp á jólahlað-
borð fyrir fyrirtæki og hópa.
Algengt er að fólk gisti á hótel-
inu eftir jólahlaðborðin.
„Við erum með
kalda og heita
rétti á hlaðborð-
inu auk meðlætis
og ábætisrétta,“
segir Fríða Rut
Stefánsdóttir, sem
heldur utan um
bókanir á hlað-
borðin. Hún nefn-
ir sem dæmi reykt
svínakjöt, hangi-
kjöt, heilsteikt
lambalæri og rifjasteik, reyktan
lax, ýmis paté og síld.
„Yfirleitt er miðað við að hlað-
borðið hefjist klukkan sjö en ann-
ars reynum við að sníða þetta eftir
hverjum hópi fyrir sig og byrjum
þá þegar hópnum hentar,“ segir
Fríða en salur hótelsins tekur um
sjötíu manns í sæti. „Síðan erum
við með 26 herbergi þannig að
miðað við að tveir séu saman í her-
bergi getum við tekið allt að 52
manns í gistingu. Það er nokkuð
mikið um að fólk gisti eftir jóla-
hlaðborðið en það á helst við um
hópa sem koma lengra að. Þeir
sem búa í nágrenninu eins og á
Selfossi eða í Hveragerði fara nú
yfirleitt bara heim að hlaðborðinu
loknu,“ bætir hún við og bendir á
að þeir sem séu í gistingu geti
yfirleitt komið um hádegið og
slakað á fram að hlaðborðinu um
kvöldið.
„Hlaðborðið hjá okkur hefur
verið rosalega vinsælt og við erum
búin að fylla allar dagsetningar
fyrir utan tvær og fáum enn mjög
mikið af fyrirspurnum svo það
verður örugglega bráðum allt
orðið fullt hjá okkur,“ segir Fríða
Rut hjá Eldhestum.
sigridurh@frettabladid.is
Jólahlaðborð og gisting í Ölfusi
Fríða Rut segir það mjög algengt að fólk sem komi lengra að í jólahlaðborðið gisti á
hótelinu nóttina eftir.
Eftirréttirnir eru einstaklega girnilegir og auk þess að bragðast vel þá eru þeir mikið
fyrir augað.
Girnilegir kjötréttir tilbúnir til framreiðslu í eldhúsi Hótels Eldhesta.
Fríða Rut
Stefánsdóttir