Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 50
● tíska&fegurð8
„Fyrsti barnaskartgripurinn sem ég
smíðaði var eftir hönnun sonar míns,
Nökkva. Hann var alltaf að teikna svo
skemmtilega karla þegar hann var um
fimm ára gamall og þá datt mér í hug
að prófa smíða eftir einni teikningunni.
Síðan þá hef ég smíðað ótal prinsessur,
karla, kerlingar, dýr og geimverur eftir
teikningum barna,“ segir Sif Ægisdóttir,
gullsmiður hjá Hún og Hún á Skólavörðu-
stíg.
Í dag er sonurinn orðinn níu ára og auk
hans á Sif dóttur sem er sextán ára. Sif
er enn að smíða eftir hugmyndum barna
sinna og segist meðal annars taka gamlar
teikningar frá þeim sem hún hefur geymt.
Síðan verða þær hugmyndir af fallegu
skarti sem nýtur mikilla vinsælda bæði
meðal Íslendinga og ferðamanna.
„Ég smíða bæði eftir teikningum
minna krakka og síðan er fólk mjög dug-
legt að koma með ýmsar teikningar barna
sinna til að fá smíðaðan grip eftir þeim.
Þetta er náttúrulega mjög persónulegur
skartgripur en það er aðallega fullorðið
fólk sem er að fá sér svona gripi og er að
skreyta sig með hugmyndum barna sinna,“
útskýrir Sif sem segir krakkana vera
hrifnari af bleikum gripum og perlum.
Þó eru margir krakkar að sögn Sifjar
sem koma og vilja fá fígúrur á borð við
prinsessur og geimverur. En Sif segist
einnig smíða mikið af merkjum fyrir
ýmsa aðila, bæði vörumerki og merki
félagasamtaka og stofnana.
Í kjölfarið af fyrstu barnagripunum
tók Sif upp á því að auglýsa samkeppni í
tengslum við menningarnótt þar sem hún
síðan smíðaði eftir teikningu vinnings-
hafa. „Síðastliðin fjögur ár hef ég tekið
á móti teikningum á menningarnótt og
efnt til samkeppni. Síðan hef ég smíðað
grip eftir þeirri hönnun sem vinnur og
krökkunum finnst þetta alltaf mjög spenn-
andi að fá smíðaðan skartgrip eftir sinni
eigin teikningu,“ segir Sif og lofar nýrri
keppni næstu menningarnótt.
- rh
Úr hugarheimi barna
● Prinsessur, karlar, kerlingar og dýr renna úr smiðju Sifjar Ægisdóttur
gullsmiðs sem fékk innblástur frá teikningu sonar síns.
Sif Ægisdóttir gullsmiður smíðar ýmiss
konar fígúrur og segir foreldra duglega
að koma og fá sér gripi eftir teikningum
barna sinna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUM
nám
fjölbreytt
við allra hæfi
I ‹ N S K Ó L I N N Í R E Y K J A V Í K
Almennar bóklegar greinar eru hluti af námi
á öllum brautum skólans. Allt almenna námið
er matshæft á milli skóla eftir því sem við á.
Einnig er hægt að stunda nám í almennum
greinum í eina til fjórar annir. Þeir nemendur sem
lokið hafa eða stunda nám á starfsmenntabrautum
geta bætt við sig námi sem leiðir til stúdentsprófs af
starfsmenntabrautum/ tæknistúdentspróf.
Á rafiðnasviði eru eftirtaldar brautir:
Grunnnám rafiðna • Rafvirkjun • Rafeinda-
virkjun Rafvélavirkjun • Rafveituvirkjun
Símsmíði. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á byggingasviði eru fimm iðnbrautir í framhaldi
af grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina:
Húsasmíði • Húsgagnasmíði • Múrsmíði
• Málun • Veggfóðrun og dúklagningar.
Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á tölvusviði er ein braut: Tölvubraut sem býður
upp á sérhæfingu í forritun og netkerfum.
Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á sérdeildarsviði eru tvær brautir:
Starfsdeild • Nýbúabraut. Auk þess er
endurhæfingarnám Janusar (rekið í tengslum
við skólann).
Á hönnunarsviði eru fjórar brautir: Listnámsbraut
(almenn hönnun og keramik) • Hársnyrting
Ekki er tekið inn á Fataiðnabraut og Gull- og
silfursmíði á vorönn. Stúdentspróf af list- og
starfsnámsbraut.
Á upplýsinga- og margmiðlunarsviði eru
þrjár brautir: Upplýsinga- og fjölmiðla-
braut • Tækniteiknun • Margmiðlunar-
skólinn – en ekki er tekið inn í hann á 1. önn.
Fjarnám er áhugaverður kostur fyrir þá sem ekki
geta nýtt sér staðbundið nám, t.d. vegna vinnu
eða búsetu. Í fjarnáminu er boðið upp á fjölbreytt
námsúrval í bóklegum og fagbóklegum
greinum ásamt ýmsum greinum meistaranámsins.
Skólavörðuholti I 101 Reykjavík
Sími 522 6500 I Fax 522 6501
www.ir.is I ir@ir.is
alm
ennt svið
h
önnunarsv
ið
rafiðnasvi
ð
fjarnám
sérdeildasvið
by
ggingasvið
tö
lvusviðu
pp
lý
si
n
ga
- o
g
m
ar
g
m
ið
lun
arsvið
Innritun stendur yfir og lýkur
25. nóvember nk.
Innritun er rafræn og eru
allar upplýsingar á vef skólans
www.ir.is og á skólavef
menntamálararáðuneytisins
www.menntagatt.is
Aðstoð við innritun verður í skólanum
20. og 21. nóvember frá kl. 12:30–16:00.
Rafræn innritun í fjarnám og kvöldskólann
hefst 20. nóvember og eru allar nánari
upplýsingar á vef skólans www.ir.is
og á skrifstofu í síma 522 6500.
16. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR