Fréttablaðið - 16.11.2007, Page 67
FÖSTUDAGUR 16. nóvember 2007 31
AF BLOGGI
UMRÆÐAN
Hitaveita Suður-
nesja
Á ársfundi Sambands sveitarfélaga á
Suður nesjum sem hald-
inn var sl. laugardag
afhenti Hannes Frið-
riksson, íbúi í Reykja-
nesbæ, undirskriftir
þúsunda íbúa hér á
svæðinu. Með undir-
skrift sinni voru íbúar að hvetja
sveitarstjórnarmenn til þess að
standa vörð um Hitaveitu Suður-
nesja og leggja áherslu á mikilvægi
þess að hún yrði í meirihlutaeigu
sveitarfélaga. Umsjónaraðili undir-
skriftarsöfnunarinnar óskaði eftir
að fá að koma á ársfundinn og
afhenda undirskriftirnar þar vegna
þess að á ársfundinum voru nánast
allir sveitarstjórnarmenn Suður-
nesja samankomnir og því mikið
vald falið í slíkum fundi. Það er
skemmst frá því að segja að tekið
var á móti þessum undirskriftum
af algjöru virðingarleysi. Sveitar-
stjórnarmönnum var smalað inn í
rútu og keyrðir burtu í vettvangs-
ferð á meðan afhendingin fór fram
og urðu því ekkert varir við hana.
Fráfarandi stjórn tók við undir-
skriftunum í litlu bakherbergi og
tókst með því að gera þennan
atburð að engu.
Það var ekki fyrr en undir liðn-
um önnur mál sem hægt var að taka
málið á dagskrá og þá var það gert
að undirlagi undirritaðs sem lagði
fram eftirfarandi tillögu: Aðal-
fundur SSS samþykkir að kjörin
verði nefnd tveggja fulltrúa frá
hverju sveitarfélagi sem hlut eiga í
HS, einn fulltrúa frá meirihluta og
einn fulltrúa frá minnihluta. Nefnd-
inni verði falið það verkefni að leita
leiða til þess að koma til móts við
óskir íbúa sem birtast í þessari
undir skriftarsöfnun sé þess nokk-
ur kostur.
Umræður um þessa tillögu urðu
engar, heldur lagði
bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, sem er
klókur maður, það til
að tillögunni yrði vísað
til stjórnar. Hann vissi
mæta vel að með því
var hann að ónýta til-
löguna, þar sem stjórn
SSS hefur ekkert um
málið að segja, en aðal-
fundurinn með þátt-
töku 95% sveitar-
stjórnarmanna hafði
töluvert með málið að gera. Einnig
var hægt að forða sveitarstjórnar-
mönnum á Suðurnesjum frá óþægi-
legri umræðu um mál sem þeir
hafa gjörsamlega klúðrað og fékk
því tillaga bæjarstjórans rúss-
neskan stuðning.
Vegna þessa atburðar og vegna
þess að sveitarstjórnarmenn eru
ekki tilbúnir til að ræða sameigin-
lega málefni Hitaveitu Suðurnesja
vil ég leggja fram eftirfarandi
spurningar, sem ég hefði kosið að
ræddar hefðu verið í hópi sveitar-
stjórnarmanna á Suðurnesjum en á
því reyndist ekki nokkur áhugi.
1. Hvers vegna nýttu önnur
sveitar félög en Reykjanesbær og
Hafnarfjörður sér ekki forkaups-
rétt við sölu á hlut ríkisins í Hita-
veitu Suðurnesja?
2. Hvaða ástæður lágu að baki
þeirri ákvörðun að selja nánast
allan hlut sinn í HS?
Voru þessar ástæður fjárhags-
legs eðlis eða lágu einhverjar aðrar
ástæður þar að baki?
3. Hvers vegna töldu Grindvík-
ingar nauðsynlegt að kalla saman
bæjarráð sveitarfélaganna á Suður-
nesjum til að ræða málefni Kölku,
en sáu ekki ástæðu til þess að óska
eftir sams konar fundi þegar
ákveðið var að selja Hitaveitu
Suðurnesja?
4. Eru bæjarfulltrúar í öðrum
sveitarfélögum en Reykjanesbæ
enn þeirrar skoðunar að rétt hafi
verið að selja eignarhluti sveitar-
félaga sinna í HS í ljósi þeirrar
atburðarásar sem átt hefur sér stað
frá því í júlí sl. og telja þeir hags-
muni íbúa sinna byggðarlaga
tryggða með því eignarhaldi sem
nú er á HS?
5. Hvernig telja bæjarfulltrúar
að því yrði tekið, ef sú staða kæmi
upp að sveitarfélögunum gæfist
kostur á því að auka við hlut sinn í
HS með það að markmiði að Hita-
veitu Suðurnesja yrði aftur komið í
meirihlutaeigu sveitarfélaganna?
Sveitarstjórnarmenn á Suður-
nesjum þurfa ekki að svara mér, til
þess hafa þeir engar skyldur, en ég
hvet íbúa á Suðurnesjum til þess að
spyrja kjörna fulltrúa sína þessara
spurninga.
Að standa að móttöku undir-
skrifta með þessum hætti og forð-
ast umræðu um málið er algjör
niður læging fyrir sveitarstjórnar-
menn á Suðurnesjum og gerir það
að verkum að ég mun algjörlega
endurmeta hugmyndir mínar um
gildi og hlutverk samstarfs sveitar-
félaga á Suðurnesjum.
Höfundur er bæjarfulltrúi í
Reykjanesbæ.
Kjarklitlir sveitarstjórnarmenn
GUÐBRANDUR
EINARSSON
Afturhald
Nú eru þeir farnir að ræða jarðasöfnun
auðmanna. Flest getur orðið til að
drepa tímann á Alþingi. Fjöldi bænda
hefur getað brugðið búi með seðla í
vasanum, í flestum tilvikum nægileg
eftirlaun. Þeir, sem keyptu jarðirnar,
gerðu þetta kleift. Í stað þess að jarðir
legðust sjálfkrafa í eyði, engum að
gagni. Afturhald Jóns Bjarnasonar og
Bjarna Harðarsonar þingmanna hefði
skaðað fólk. Hindrað það í að beita
markaðsbúskap og hafa gott fyrir sinn
snúð. Svonefndir auðmenn flikka svo
upp á hús og girðingar. Þeir koma
sér upp stóði, sumir rækta skóg, einn
ræktaði hör. Allt er þetta af hinu góða.
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Sakleysið uppmálað
Það er ekki lítið sem ég hef hneyksl-
ast á neyslu og bruðli þjóðarinnar að
undanförnu. Mér hefur þó lítið dottið
í hug að líta í eigin barm - enda er ég
ekkert að bruðla. Svona fyrir utan að
skreppa með fjölskylduna út að borða,
setja upp nýja skápa og hillur, plana
sumarleyfi til útlanda, kaupa smotterí
af fötum - allt auðvitað miklar nauð-
synjavörur - eða myndi fólk kannski
vilja hafa mig hlaupandi um berrass-
aða? ha?
Steinunn Þóra Árnadóttir
kaninka.net/steinunn
Pínlegt
Það er eiginlega orðið pínlegt hvað
andstæðingar Sjálfstæðisflokksins
ganga langt til að koma höggi á borgar-
fulltrúa flokksins, sem voru þó þeir
sem sögðu hingað og ekki lengra með
það ótrúlega samkrull opinbers fyrir-
tækis og einkahagsmuna sem fram fór
í Reykjavík Energy Invest.
En Vilhjálmur, nú segist þú hafa gert
mistök og ekki haft eðlilegt samráð
við eigin flokksmenn, en varstu ekki
örugglega svikinn af eigin flokks-
mönnum?
Vefþjóðviljinn
andriki.is
Einnig fáanleg
söluhæsta plata
ársins!
Öll vinsælustu jólalögin ásamt nýja
jólalaginu með Eiríki Fjalar
HVER ER SINNAR KÆFU SMIÐUR
VINSÆLUSTU LÖGIN Á 2 GEISLAPLÖTUM