Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2007, Qupperneq 77

Fréttablaðið - 16.11.2007, Qupperneq 77
FÖSTUDAGUR 16. nóvember 2007 41 RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Ráðhúsið er vettvangur tónleika á morgun. Lúðrasveit verkalýðsins blæs til tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun kl. 14. Á tónleikunum verður eingöngu leikin tónlist sem tengist hinni einkar líflegu klezmer-stefnu. Klezmer-tónlist á rætur sínar að rekja til tónlistar gyðinga í kringum fimmtándu öld. Áður fyrr vísaði klezmer til hljóðfæra og seinna til hljóðfæraleikaranna, en það var ekki fyrr en á seinni hluta 20. aldar sem orðið klezmer var notað til þess að skilgreina tónlistarstefnuna sem slíka. Haukur Gröndal hefur verið sveitinni innan handar við að útsetja klezmer-lög fyrir tónleik- ana. Stjórnandi sveitarinnar er Snorri Heimisson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. - vþ Lífleg tónlist í Ráðhúsinu FIM. 15. NÓV. KL. 20 - FRESTAÐ TÓNLEIKAR MANNAKORNA LAUG. 17. NÓV. KL. 17 TÍBRÁ: FÍFILBREKKA GRÓIN GRUND JÓNAS 100 ÁRA Miðaverð 2000/1600 kr. SUN. 18. NÓV. KL. 20 LEONE TINGANELLI ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Miðaverð 2000 kr. MIÐV. 21. NÓV. KL. 20 TÍBRÁ: LIENE CIRCENE PÍANÓTÓNLEIKAR Miðaverð 2000/1600 kr. NÁNARI UPPLÝSINGAR NASA OG VÍFILFELL KYNNA: LAU. 17. NÓV. 2007 KRAKKABALL ÞEYTIR SKÍFUM OG TREÐUR UPP VEGNA NÝJU DANSPLÖTUNNAR ALLIR KRAKKAR OG UNGLINGAR VELKOMNIR FRÁ KL. 16 – 18 FULLORÐNIR LÍKA, Í FYLGD MEÐ KRÖKKUM. PS. ÚTGÁFUPARTÍ FYRIR FULLORÐNA ER SVO UM KVÖLDIÐ ALDURSTAKMARK 20 ÁRA FORSALA Á NASA FÖS 16. NÓV MILLI KL. 13-16 MIÐAVERÐ KR. 1500.- PÁLL ÓSKAR SPILAR FRÁ KL. 23.00 – 5.30 WWW.PALLOSKAR.IS ÓKEYPIS AÐGANGUR Bob Dylan er þekktur tónlistar- maður, en færri vita að hann er einnig liðtækur á sviði myndlistar. Nýverið var opnuð fyrsta einka- sýning hans og það á óvæntum stað: í litlum sýningarsal í Chemnitz í Þýskalandi. Fyrir nokkrum árum rakst stjórnandi sýningarsalarins, Ingrid Mössinger, á bók sem inni- hélt teikningar Dylans. Hún hreifst af myndunum og fékk út frá þeim hugmyndina að spyrja söngvarann hvort hann hefði áhuga á að sýna í salnum hennar. Hún játar þó að hafa orðið hissa þegar henni barst jákvætt svar frá Dylan. „Ég trúi því varla enn að hann hafi samþykkt að sýna hjá mér. En ég held að hann hafi í raun bara verið að bíða eftir því að einhver bæði hann um að sýna myndlist sína og fram að þessu hafði engum hugkvæmst það,“ segir Ingrid. Dylan byrjaði að teikna og mála á sjöunda áratugnum þegar hann var að ná sér eftir mótorhjóla- slys. Hann hefur lagt stund á myndlist jafnt og þétt síðan og meðal annars myndskreytt sín eigin plötuumslög. Ingrid átti von á því að Dylan myndi senda henni eldri verk, en hann fór fram á að fá að skapa ný verk sérstaklega fyrir sýninguna. Á átta mánaða tímabili málaði hann 320 myndir, en eðlilega verður aðeins hluti þeirra til sýnis enda sýningarrýmið takmarkað. Sýningin hefur hlotið ágæta dóma og góða aðsókn. Ingrid hefur orðið vör við að gesti drífi að frá fjarlægum heimshornum til þess eins að berja sýninguna augum. Þó lætur einn gestur sig vanta: listamaðurinn sjálfur. „Ég sendi honum boðskort en hef ekk- ert svar fengið. Það má vel vera að hann komi hér einn daginn í dulargervi og það fari alveg fram- hjá mér. Það væri frekar fyndið og í takt við þetta ævintýri,“ segir Ingrid. - vþ Dylan sýnir á sér nýja hlið VEÐURFAR Verk eftir Sari Maarit Cedergren. Nú um helgina lýkur sýningum þeirra Sari Maarit Cedergren og JBK Ransu í Listasafni ASÍ. Sýning Sari heitir Hviða. Sari hefur undandarin ár verið að vinna verk sem endurspegla mismunandi hliðar á íslensku veðri með lágmyndum úr gifsi og steypu sem ganga út frá rými sem og samspili ljóss og skugga. Sýning JBK Ransu kallast Xgeo III. Á henni má sjá málverk sem listamaðurinn hefur verið að þróa síðan árið 2000 og eru tilraun til að setja athafnarmálverk og strangflatarmálverk í eina skynheild út frá öfgum hvors myndmáls fyrir sig. Listasafn ASÍ er á Freyjugötu 41 og er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 17. Aðgangur að báðum sýningum er ókeypis og öllum opinn. - vþ Síðasta sýning- arhelgi í ASÍ BOB DYLAN Hann hóf að eiga við mynd- list á sjöunda áratugnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.