Fréttablaðið - 16.11.2007, Síða 78
42 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Fyrir tæpum tveimur mánuðum hóf Amazon.com að selja MP3-skrár til
niðurhals. Fyrir eru margir aðilar að selja MP3 þannig að einn í viðbót
hljómar kannski ekki eins og einhver stórfrétt, en innkoma Amazon inn
á MP3-markaðinn gæti samt haft mjög mikil áhrif.
Fram að þessu hefur i-Tunes verið langstærsti aðilinn í sölu tónlistar
á MP3-skrám. Vandamálið við i-Tunes hefur samt alltaf verið að
skrárnar eru læstar, þ.e.a.s. það er aðeins hægt að spila þær í einni
tölvu og á einum i-Pod. Þetta hefur mörgum tónlistarunnendum þótt
ansi gróft og menn hafa beðið vongóðir eftir því að fallið verði frá
þessum höftum. Það mundi enginn láta bjóða sér að
kaupa disk sem aðeins væri hægt að spila í einum
geislaspilara.
Smám saman hefur þeim söluaðilum á Netinu
sem selja ólæstar MP3 skrár fjölgað, en þeir eru
flestir peð við hlið risans, i-Tunes. Tónlist.is seldi
upphaflega læstar skrár, en selur nú lögin ólæst.
Það sama á við um tónlistarsíðuna Grapewire.
com sem m.a. Einar Örn og Mugison
standa að, en plötur Mugisons og
útgáfutónleikarnir hans á Ísafirði í
síðustu viku eru seldir í gegnum þá síðu
og líka þær plötur sem Smekkleysa
gefur út og dreifir.
Fram til þessa hefur i-Tunes þráast
við en þegar Amazon.com opnaði sinn
MP3-vef 25. september sl. með 2
milljón ólæst lög var það nógu öflugur
aðili til þess að ýta við þursinum.
Þegar brambolt tónlistariðnaðarins
síðustu ár er skoðað má kannski segja að sú
krafa stóru útgáfufyrirtækjanna að læsa
öllum MP3-skrám hafi verið einn stærsti
feillinn og komið þeim sem kjósa að hafa
tónlistina sína í formi stafræns niðurhals
endanlega yfir á hin vafasömu skráarsk-
iptiforrit.
Enn eru það bara Bandaríkjamenn sem
geta keypt MP3-skrár í gegnum Amazon.
com. Eins og áður segir er úrvalið þar
ansi gott. Til dæmis eru þar 723 lög með
David Bowie, 666 lög með Miles Davis,
382 lög með Dylan, tæplega 100 lög með
Björk og 77 lög með Mugison...
Amazon.com og þursinn i-Tunes
BOWIE Á NETINU 723 ólæst
Bowie-lög eru á Amazon.
com.
> Í SPILARANUM
Kylie Minogue - X
Duran Duran - Red Carpet Massacre
Amy Winehouse - Frank
Hjálmar - Ferðasót
Birgitta Haukdal - Ein
BIRGITTAKYLIE
> Plata vikunnar
Beirut - The Flying Club Cup
★★★★
„Zach Condon heldur áfram
að færa unaðslega nostalgíu-
tóna frá Evrópuferðalagi sínu.
Nú enn betri en áður.“ SHA
Íslensku rokksveitirnar Gavin Portland og
We Made God fá fjögur K af fimm möguleg-
um hjá breska tónlistartímaritinu Kerrang!
fyrir frammistöðu sína á Kerrang!-kvöldi
Airwaves-hátíðarinnar í október.
„Fjórmenningarnir frá Reykjavík taka
allt það besta frá Shellac, Drive Like Jehu
og Fugazi og flytja það á kröftugan og
ákafan hátt. Þeir eru líklega ein besta nýja
hljómsveitin sem þú getur séð á þessu ári.
Bókaðu flug núna,“ segir í umsögn blaða-
manns Kerrang! um Gavin Portland.
Hann segir að hin hafnfirska We Made
God blandi saman áhrifum frá Sigur Rós og
Deftones á áhrifaríkan hátt. „Hinn myndar-
legi söngvari Maggi, sem lítur út eins og
blanda af Simon Neil úr hljómsveitinni
Biffy Clyro og Dave Grohl úr Foo Fighters,
keyrir rödd sína upp í hæðir norðurljós-
anna.“
Hljómsveitirnar Momentum, Brain
Police, Changer og Sign fá hver um sig þrjú
K fyrir sína frammistöðu. Bandaríska
hljómsveitin The Bronx fær aftur á móti
bestu dómana, eða fullt hús stiga.
Gavin í uppáhaldi
GAVIN PORTLAND Rokksveitin Gavin Portland fékk
mjög góða dóma í Kerrang! fyrir frammistöðu sína
á Airwaves.
Rokksveitin Benny Crespo´s Gang hefur gefið út
sína fyrstu plötu, sem er samnefnd sveitinni. Sveitin
þykir með þeim áhugaverðari í íslensku rokki og
hefur plötunnar því verið beðið með nokkurri
eftirvæntingu.
„Hún er búin að vera í maganum á okkur lengi.
Við byrjuðum að taka upp plötu fyrir þremur árum
en vorum búin að henda henni þremur til fjórum
sinnum þangað til við kláruðum þessa,“ segir
söngvarinn Helgi Rúnar Gunnarsson. „Við vorum
tiltölulega ung hljómsveit þegar við byrjuðum. Við
gerðum þetta allt sjálf og maður lærði heilmikið á
þeim tíma. Síðan varð maður miklu klárari að gera
hlutina.“
Benny Crespo´s Gang var upphaflega boðinn
samningur hjá plötufyrirtækinu Cod Music sem er
undirfyrirtæki Senu en sveitin hafnaði honum og
gerði í staðinn samning um þessa einu plötu. Rokkið
er í fyrirrúmi á plötunni þó svo að inni á milli leynist
popplög. Eitt þeirra syngur Lovísa Elísabet Sigrúnar-
dóttir, betur þekkt sem Lay Low, sem var í hljóm-
sveitinni áður en hún hóf sólóferil sinn. „Það er
alveg popp í þessu líka. Við hlustum á alls konar
tónlist og höfum ekki fordóma gagnvart neinni
tónlistarstefnu,“ segir Helgi. Hann bætir því við að
hljómsveitin hafi lítið spilað á tónleikum undanfarið
ár, eftir að hafa spilað mjög stíft þar á undan. „Við
höfum verið að einbeita okkur að því að klára
plötuna og síðan þurfti Lovísa að kynna Lay Low-
verkefnið. Það var gott fyrir okkur en hefur líka
tafið okkar dæmi.“
Hvað varðar frama erlendis viðurkennir Helgi að
stefnan sé sett á það. „Það er samt ekki neitt sem er
í einhverri bígerð en kannski verður eitthvað eftir
áramót.“ - fb
Áhugaverðir ungir rokkarar
Nýjar plötur með Páli Ósk-
ari, Siggu Beinteins, Ragga
Bjarna og Einari Ágústi,
sem gefa öll út plöturnar
sínar sjálf, hafa tafist í
framleiðslu í Danmörku og
Austurríki. Kemur þetta
sér vitaskuld illa fyrir þau
þegar jólagjafakaup lands-
manna eru í þann mund að
hefjast.
„Prentsmiðjan í Austurríki brást.
Þeir ætluðu að skila af sér fyrsta
upplagi 5. nóvember en höfðu
síðan samband við mig á föstudag-
inn fyrir viku og sögðu að þetta
myndi tefjast um tíu daga og kæmi
ekki fyrr en 15. nóvember. Við
urðum í neyð að vinna fyrstu 1.700
eintökin á Íslandi,“ segir Páll
Óskar um plötu sína Allt fyrir ást-
ina.
Bretti upp ermarnar
Páll hafði samband við Mynd-
bandavinnsluna, sem prentaði
fyrir hann plötuna og síðan sá
Prentmet um að búa til plötuums-
lögin. „Við náðum fyrstu þúsund
eintökunum rétt fyrir morguninn
síðasta föstudag og þau kláruðust
strax,“ segir Páll, sem setti afgang-
inn í búðir í gærmorgun. „Maður
getur reiknað með smá töfum en
ekki svona miklum. Þetta setur
auðvitað strik í reikninginn svona
stuttu fyrir jólin en sem betur fer
bjargaðist þetta með því að bretta
upp ermarnar. Ég hef mjög góða
reynslu bæði af Danmörku og
Austurríki og þetta er í fyrsta sinn
í fimmtán ár sem ég upplifi eitt-
hvað svona.“
Í bölvuðum vand-
ræðum
Sigga Beinteins,
Raggi Bjarna og
Einar Ágúst
hafa sömu
sögu að segja
með sínar
plötur. „Þetta
kemur sér auðvitað mjög illa en ég
vonast til að hún komist um helg-
ina á markað,“ segir Sigga um
plötu sína Til eru fræ.
Raggi Bjarna er á sama máli
varðandi plötu sína Gleðileg jól
með Ragga Bjarna þar sem hann
syngur glæný íslensk jólalög, flest
eftir Gunnar Þórðarson. „Ég er í
bölvuðum vandræðum. Hún átti
að vera komin fyrir tíu dögum.
Þetta er vont fyrir mig en ég held
að þetta hljóti að fara að gerast á
næstu dögum,“ segir Raggi, sem
framleiðir plötuna í Danmörku.
Fékk ráð frá Páli Óskari
Plata Einars Ágústs, Það er ekkert
víst að það klikki, er reyndar
nýkomin út og það á réttum tíma.
Þar með er ekki öll sagan sögð því
flest eintökin eru enn í framleiðslu
í Austurríki.
„Ég brá á það ráð að framleiða
fyrstu eintökin heima. Maður brá
undir sig betri fætinum
og spurði Pál Óskar út í
þetta því ég heyrði að
platan hans hefði tafist.
Það var seinagangur í
mér sem gerði það að
verk-
um
að hún tafðist en hún á að koma í
næstu viku. Þeir eru að hanna
fjórar milljónir eintaka af Britney
Spears þarna úti í Austurríki og
síðan eru Íslendingar bara með
nokkur eintök þarna,“ segir hann í
léttum dúr.
Tekur tíu daga
Jónatan Garðarsson, formaður
Félags hljómplötuframleiðenda,
segir að venjulega taki það tíu
daga að framleiða plötur erlendis.
Þegar nær dragi jólum verði dag-
arnir þó stundum fimmtán og jafn-
vel fleiri. „Það kemur alltaf fyrir
öðru hvoru þegar það er gríðar-
legt álag að plötum seinki en ég
man ekki eftir því undanfarin ár
að þetta hafi verið átakanlegt
nema menn hafi verið allt of seinir
sjálfir,“ segir Jónatan.
Austurríki vinsælast
Að sögn Jónatans hafa langflestir
skipt við Austurríki undanfarin ár
þar sem Sony er með stóra verk-
smiðju. Einnig hefur Danmörk
verið stór í þessum bransa síðustu
ár. Einhverjir hafa jafnframt
brugðið á það ráð að framleiða
plötur í Póllandi og Tékklandi
vegna þess hversu ódýrt það er.
Jónatan segir hægt að framleiða
nokkrar plötur hérna heima en
afganginn þurfi að búa til úti því
engin verksmiðja sé fyrir hendi á
Íslandi. freyr@frettabladid.is
Plötutafir koma sér illa
EINAR
ÁGÚST Einar Ágúst
Víðisson fékk góð
ráð frá Páli Óskari.
BENNY CRESPO´S GANG Hljóm-
sveitin Benny Crespo´s Gang
hefur gefið út sína fyrstu plötu.
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝS-
SON Páll Óskar þurfti að
vinna fyrstu 1.700 eintökin
af plötunni sinni á Íslandi..
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Grýla og jólasveinar ganga um
gólf á safninu á Stokkseyri
Álfa, trölla og Norðurljósasafnið
(Icelandic Wonders)
Hafnargötu 9, 825 Stokkseyri • www.icelandicwonders.com
Pantanir og uppl. í info@icelandicwonders.com
eða s. 483 1600/895 0020
G. Tyrfingsson ehf. á Selfossi gerir hópum
tilboð í rútuferðir s. 482 1210
Grýludagar hefjast í Álfa-, trölla og norðurljósasafninu laugardaginn
17. nóvember og standa fram á þrettándann 6. janúar.
Jólasveinarnir koma einn af öðrum í hellinn til Grýlumömmu. Sá fyrsti,
Stekkjastaur, mætir kátur 12. desember og sá síðasti hverfur á
þrettándanum. • Jólamarkaður, kaffi og vöfflur,
Opnunartími : 13.00 – 20.30 um helgar og 18.00 – 20.30 virka daga,
en hópar geta einnig pantað safnaheimsókn á öðrum tímum.
Skólahópar, starfsmannahópar, ferðamenn, fjölskyldur, vinahópar o.fl.