Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2007, Qupperneq 84

Fréttablaðið - 16.11.2007, Qupperneq 84
48 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 10 12 7 7 12 10 12 12 16 12 14 WEDDING DAZE kl. 6 - 8 - 10 ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 6 BALLS OF FURY kl. 6 ROGUE ASSASSIN kl. 8 - 10 10 7 16 12 16 14 12 14 LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40 LIONS FOR LAMBS kl.6 - 8 - 10 THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10 SUPERBAD kl.5.30 - 8 GOOD LUCK CHUCK kl. 10.30 WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 WEDDING DAZE LÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 LIONS FOR LAMBS kl. 8 - 10.15 BALLS OF FURY kl. 4 - 6 - 8 - 10 ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 3.45 - 6 DARK IS RISING kl. 3.45 THE HEARTBREAK KID kl. 5.30 - 8 - 10.30 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu WEDDING DAZE kl. 6 - 8 -10 MR. WOODCOCK kl. 6 - 10.30 ELIZABETH: THE GOLDEN AGE kl. 8 EASTERN PROMISES kl. 8 - 10.20 SYNDIR FEÐRANNA kl. 6 - 10.20 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU BRÚÐKAUPSBILUN LÍF RÓSARINNAR BORÐTENNISBULL ELÍSABET ÁSTARSORG MYRKRIÐ RÍS LOFORÐ ÚR AUSTRI ROGUE LEIGUMORÐINGI ÞETTA ER ENGLAND HR. WOODCOCK LJÓN FYRIR LÖMB Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd með Jason Biggs úr American Pie og Isla Fisher úr Wedding Crashers! - bara lúxus Sími: 553 2075 AMERICAN GANGSTER kl. 4, 7 og 10 16 MR. WOODCOCK kl. 6, 8 og 10 L ROGUE ASSASSIN kl. 8 og 10.10 16 ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 4 og 6 - 600 kr. L HÁKARLABEITA kl. 4 - 600 kr. L LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á Tónlistarmennirnir Jón Ólafsson og Sigurður Bjóla eru önnum kafn- ir þessa dagana við að semja kvik- myndatónlist við næstu mynd Baltasars Kormáks, Brúðguminn, sem verður frumsýnd á næsta ári. „Þetta gengur eins og í sögu,“ segir Jón, sem reiknar með því að vinnan standi yfir fram í miðjan desember. Stefna þeir að því að taka eitthvað upp um þessa helgi. Þetta verður í fyrsta sinn sem Jón gerir tónlist við kvikmynd en hann hefur áður samið tónlist við stutt- myndir og fyrir sjónvarp. „Þetta er skemmtileg tilbreyt- ing fyrir mig,“ segir Jón, sem fékk upphringingu frá Sigurði um að taka þátt í verkefninu og var hann ekki lengi að stökkva á það. „Þetta hefur gengið mjög vel. Ég hitti reyndar leikstjórann á eftir og kannski þurfum við bara að henda öllu og byrja upp á nýtt,“ segir hann og hlær. Jón og Sigurður munu þar með feta í fótspor Mugison sem samdi tónlistina við síðustu tvær myndir Baltasars, Mýrin og A Little Trip to Heaven, við góðar undirtektir. Brúðguminn var tekin upp í Flatey í sumar og með helstu hlut- verk fara Hilmir Snær Guðnason, Margrét Vilhjálmsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafur Darri Ólafsson og Ólafía Hrönn Jóns- dóttir. Auk þess að leikstýra mynd- inni skrifar Baltasar handritið ásamt Ólafi Agli Egilssyni. - fb Semja tónlist við Brúðgumann JÓN ÓLAFSSON Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson er að semja kvikmyndatónlist við Brúðgumann, sem verður frumsýnd á næsta ári. Þrjár af vinsælustu popp sveitum Íslendinga, Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys, blása til poppveislu á NASA í kvöld. Tilefni tónleikanna er að fagna breyttum tímum í íslenskri popptónlist. Fyrrnefndar hljómsveitir hafa allar hlotið töluverða spilun á vin- sælustu útvarpsstöðvunum en myndu þó seint flokkast með sveitaballaböndunum sem undan- farin ár hafa tröllriðið því umhverfi. Bergur Ebbi Benediktsson, gítar leikari og annar tveggja söngvara í Sprengjuhöllinni, vill þó ekki meina að hinir nýju straumar í poppinu vilji ryðja hinum frá. Ólíkar stefnur eigi heldur að sameina krafta sína og bjóða upp á fjölbreyttari tónlistar- markað. „Áður var þetta svo tví- skipt,“ segir Bergur Ebbi. „Ann- ars vegar tónlist sem var mikið spiluð en naut ekki hylli gagnrýn- enda og hins vegar tónlist sem hlaut lof gagnrýnenda og þótti vönduð en vakti ekki athygli mark- aðarins. Eftirsóknarvert þótti að ná þessum jaðarstimpli. En í dag eru þessar stefnur að renna saman,“ segir Bergur. Bergur Ebbi fagnar þessari við- horfsbreytingu, „því það er svo leiðinleg pæling að góð tónlist geti ekki verið vinsæl og öfugt,“ segir hann og telur þessa þróun afar jákvæða. „Góð tónlist sem áður fór lítið fyrir nær nú fleiri eyrum í gegnum miðla sem tónlistarmenn á jaðrinum litu jafnvel niður á. Áður hefði mörgum hljómsveitum ekki dottið í hug að hafa samband við vinsælustu útvarpsrásirnar og óska eftir spilun þar,“ segir Bergur Ebbi og nefnir hljómsveitirnar Ampop og Jeff Who? sem braut- ryðjendur þessarar þróunar, en lagið Barfly hlaut mikla spilun á öllum útvarpsstöðvum. „Þetta jaðar snobb má ekki ganga of langt,“ segir Bergur Ebbi. „Fólk er svo upptekið af því að greina tónlist og flokka hana, og gleymir hreinu gildi tónlistarinnar. Leyfum tónlistinni að standa!“ Vonast er eftir fjölbreyttum hópi tónlistarunnenda á tónleik- ana í kvöld. Húsið er opnað klukk- an 23 og miða má nálgast á midi.is eygloa@frettabladid.is Íslensk popptónlist þróast SPRENGJUHÖLLIN Gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Tímarnir okkar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Á netinu er að finna heimasíðu hóps sem kallar sig Eve, eða Eve Online. Víðfrægur tölvuleikur íslenska fyrirtækisins CCP heitir, eins og mörgum er kunnugt, sama nafni, en síðurnar eru þó óskyldar með öllu. Sú Eve Online-síða sem ekki til- heyrir tölvuleiknum er vefsvæði hóps eco-femínista, eða umhverfis- femínista. Sú tiltekna grein femín- ismans helgast að ákveðnu leyti af þeirri hugsun að konur standi nátt- úrunni nær en karlar, og á síðunni má kynna sér skoðanir hópsins á umræðuefnum á borð við karl- menn, tíðablæðingar og náttúruna sem kvenveru. Hilmar Veigar Pétursson, fram- kvæmdastjóri CCP, segist hafa vitað af vefsíðunni í lengri tíma. Hún varð Eve Online-mönn- um þó ekki innblástur hvað nafngiftina varðar. „Við fundum þetta eftir á, og höfum fundið alls konar hluti sem heita Eve, enda er það algengt nafn. Dóttir mín heitir til dæmis Eva,“ bendir Hilmar á og hlær við. Hann segir tilvist síðunnar ekki heldur trufla rekstur Eve Online, og kveðst ekki vita til þess að hún hafi ruglað neinn í ríminu. „Við erum með okkar vörumerki varið í þeim flokkum sem okkur skipta máli og leggjum áherslu á það. Eins og staðan er í dag höfum við engin áform um að fara í umhverfis- femínisma,“ segir hann glett- inn. Eve Online-leikinn má finna á www.eve-online.com, en umhverfisfemínisma er hægt að kynna sér á eve. enviroweb.org. - sun Femínismi á Eve Online ENGINN RUGLINGUR Hilmar Veigar Pétursson segir tilvist femínistasíð- unnar Eve online ekki hafa valdið neinum mis- skilningi hjá leikmönnum Eve Online.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.