Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 86
Sænska deildin er talsvert sterkari en sú íslenska
Jón Halldór Eðvalds-
son, þjálfari Keflavíkur, getur
verið ánægður með sínar stelpur
sem eru með fullt hús á toppi Ice-
land Express-deildar kvenna. Það
hefur ekki verið án fórna því auk
þess að missa þrjá landsliðskonur
fyrir tímabilið hefur Keflavík
þurft að horfa á eftir tveimur
bestu leikmönnum sínum, Bryn-
dísi Guðmundsdóttur og Keshu
Watson, í meiðsli á síðustu
dögum.
„Þetta var ekki rosalega þægi-
leg tilfinning. Bryndís slítur kross-
bönd á mánudegi og á miðviku-
degi meiðir útlendingurinn sig,“
segir Jón Halldór en bandaríski
bakvörðurinn Kesha Watson hefur
spilað frábærlega í vetur.
„Hún fékk högg á hnéð í KR-
leiknum og skaddaði liðbandið í
hægra hnénu en sleit það ekki,“
sagði Jón Halldór og bætir við:
„Hún fór strax í myndatöku á
föstudeginum því við héldum að
hún væri með rifið krossband.
Hún gat ekkert gengið. Þá kom í
ljós að það var ekkert annað að
hrjá hana en það að hún tognaði á
liðbandi,“ segir Jón Halldór, sem
er með meira en hálft liðið hjá
sjúkraþjálfara. „Þetta er bara
algjör óheppni og álag kemur
þessu ekkert við. Ég hef aldrei
upplifað svona. Í síðustu viku voru
átta leikmenn hjá mér í sjúkra-
þjálfun,“ lýsir Jón.
Það er ekki víst hvenær Watson
getur snúið aftur eftir meiðslin.
„Ég geri ekki ráð fyrir henni í
næsta leik. Þetta er leikmaður
sem við ætlum að hafa í allan
vetur og ef það þýðir að ég þurfi
að hvíla hana til 1. desember þá
geri ég það. Ég hef engar áhyggj-
ur af þessu miðað við hvernig
mannskapurinn minn er að spila.
Þær mæta í leiki með það eitt að
leiðarljósi að vinna. Það er að
ganga og meðan það er að ganga
þá örvæntum við ekki,“ sagði Jón
Halldór að lokum.
Slapp betur en á horfðist með Keshu
Það er lítil stemning í
herbúðum Framara þessa dagana.
Liðinu hefur lítið gengið á leik-
mannamarkaðnum, er búið að
missa sinn markahæsta mann frá
síðasta tímabili, Jónas Grana
Garðarsson, og nú er ljóst að Sví-
inn skemmtilegi Alexander Steen,
sem var í lykilhlutverki hjá liðinu
síðasta sumar, snýr ekki aftur.
Framarar hafa gengið mjög hart
að honum að koma aftur en eftir
langa yfirlegu hefur hann ákveðið
að vera áfram í Svíþjóð.
„Ég var einn á Íslandi síðasta
sumar þar sem unnustan mín gat
því miður ekki komið með mér.
Það var mjög erfitt fyrir mig.
Sama staða yrði uppi á teningnum
næsta sumar og við höfum því
ákveðið að ég verði áfram hér í
Svíþjóð. Ég tjáði Frömurum
ákvörðun mína í síðustu viku og
þeir voru eðlilega ekki sáttir við
hana, sem ég skil fullvel,“ sagði
hinn 23 ára gamli Steen í samtali
við Fréttablaðið í gær en hann sér
ekki eftir því að hafa komið til
Íslands.
„Ég naut mín vel á Íslandi síð-
asta sumar, var sáttur við mína
frammistöðu og fannst ég eiga
gott sumar. Ég var mjög hrifinn af
félaginu en við vorum klaufar í
ákveðnum leikjum, sem gerði
okkur erfitt fyrir. Það var mjög
jákvæð og skemmtileg reynsla að
spila á Íslandi sem ég sé ekki
eftir.“
Aðstæður hjá Steen og unnustu
hans eru talsvert breyttar en hún
er búin með sitt nám og er komin á
fullt í vinnu sem hún fær sig ekki
lausa frá yfir sumartímann.
Sjálfur var Steen að fá réttindi
sem fasteignasali og hann mun
byrja að selja fasteignir í Svíþjóð
eftir áramót.
„Næsta ár býður einfaldlega
ekki upp á slíka ævintýramennsku
fyrir okkur. Það hafði vissulega
mikið að segja með ákvörðun mína
að konan gæti ekki komið en ég er
einnig að fara að hefja minn feril á
atvinnumarkaðnum. Það hentar
einfaldlega ekki að koma aftur til
Íslands eins og staðan er í dag. Við
vorum líka að kaupa okkur hund,“
sagði Steen léttur en hann var einn
besti leikmaður Landsbanka-
deildarinnar síðasta sumar. Þrátt
fyrir það hafði ekkert annað
íslenskt lið samband og reyndi að
semja við hann. Steen segist þó
ekki vera hættur í fótbolta þó svo
að hann sé farinn frá Fram og hafi
ákveðið að hefja starfsferil sem
fasteignasali.
„Ég hætti aldrei í fótbolta og
ætla að fara til reynslu hjá ein-
hverjum félögum á svæðinu en
aðaláherslan hjá mér er vinnan og
fótboltinn verður núna númer tvö
hjá mér.“
Svíinn Alexander Steen mun ekki spila með Fram næsta sumar. Hann hefur
tekið ákvörðun um að vera áfram í Svíþjóð og starfa sem fasteignasali. Fram
hefur þar með misst tvo af sterkustu leikmönnum sínum síðasta sumar.
Stuðningsmenn Chelsea
geisluðu ekki beint af gleði í gær
þegar fram kom að hinn tékk-
neski markvörður félagsins, Petr
Cech, lýsti yfir áhuga á því að
ganga í raðir spænska stórliðs-
ins Barcelona.
„Get ég hugsað mér að vera
áfram á Englandi? Því get ég
ekki svarað. Ég hef aftur á móti
verið mjög hamingjusamur hjá
Chelsea og er mjög hrifinn af því
að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Ég er orðinn vanur lífinu í
London og okkur hjónunum líkar
vel að búa þar,“ sagði Cech í sam-
tali við tékkneskan vefmiðil.
Hann segir að það yrði aftur á
móti erfitt að horfa framhjá því
ef lið á borð við Barcelona sýndi
sér áhuga.
„Ef Barcelona sýndi mér
áhuga væri það svo sannarlega
þess virði að skoða,“ sagði
Cech og spurning hvort Barca
bregðist við þessum ummælum.
Cech spenntur fyrir Barca