Fréttablaðið - 16.11.2007, Síða 90
54 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
HANDBOLTI Stjarnan sigraði Hauka
nokkuð örugglega 34-30 í leik sem
var nokkuð spennandi framan af
en slakur kafli hjá Haukum í
seinni hálfleik gerði útslagið.
Gestirnir í Haukum, sem urðu
bikarmeistarar á síðasta tímabili,
byrjuðu leikinn af krafti og virt-
ust ætla að selja sig dýrt. Stjörnu-
stúlkur voru einnig í fínu formi og
jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik þar sem liðin skiptust á að
leiða leikinn. Það voru hins vegar
Stjörnustúlkur sem enduðu hálf-
leikinn betur og leiddu 16-15 þegar
flautað var til leikhlés.
Í síðari hálfleik réðust úrslitin
hins vegar snemma, en í stöðunni
22-19 gerðu Stjörnustúlkur út um
leikinn með því að skora sjö mörk
í röð og breyta stöðunni í 29-19.
Á þessum kafla munaði mikið
um markvörslu Florentinu Stanciu
í marki Stjörnunnar, en hún var í
frábæru formi í leiknum og varði
29 skot og skartaði nýju eftirnafni
í þokkabót, en hún hét áður Grecu.
Díana Guðjónsdóttir, þjálfari
Hauka, var því að vonum ósátt í
leikslok. „Mínir leikmenn voru á
hælunum og byrjuðu ekki leikinn
fyrr en allt of seint. Við vorum
greinilega ekki tilbúnar í leikinn
og því fór sem fór og ég held að
leikmenn mínir verði að fara
hysja upp um sig buxurnar,“ sagði
Díana.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar, var eðlilega öllu sátt-
ari í leikslok.
„Þetta fór að ganga betur eftir
að við náðum að stilla upp í okkar
3-2-1 vörn og markvarslan fylgdi
með, sem hjálpaði okkar að klára
þetta erfiða verkefni. Ég er náttúr-
lega himinlifandi að við séum
komin áfram eftir sigur gegn
mjög reynslumiklu liði Hauka
sem vann okkur í þessari sömu
keppni í fyrra,“ sagði Aðalsteinn.
- óþ
Stjarnan vann Hauka, 34-30, í 8-liða úrslitum Eimskipsbikars kvenna í gærkvöld:
Bikarmeistaranir eru úr leik
FRÁBÆR Florentina Stanciu (áður
Grecu) fór á kostum í marki Stjörnunnar
og varði 29 skot. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar eru enn
ósigraðir á toppi Iceland Express-
deildarinnar í körfubolta eftir
öruggan sigur á Stjörnunni í gær,
80-101. Keflavík bauð upp á frá-
bæran körfubolta í fyrri hálfleik
og tók því rólega í síðari hálfleik
er liðið landaði auðveldum sigri.
Fyrri hálfleikur í Ásgarði var
frábær skemmtun. Stjarnan byrj-
aði ágætlega þar sem Karadzovski
var heitur. B.A. Walker tók þá öll
völd á vellinum, bauð upp á skot-
sýningu og endaði fyrsta leikhluta
með 20 stig, þar af 4 þriggja stiga
körfur.
Hann skoraði tveim stigum
meira en allt Stjörnuliðið í leik-
hlutanum enda staðan 18-32 og allt
stefndi í niðurlægingu.
Keflvíkingar virtust sjá aumur
á Stjörnumönnum, sem voru eins
og litlir skólastrákar í höndunum
á frábæru Keflavíkurliði, því þeir
settu Walker í kælingu í upphafi
annars leikhluta. Hann einkennd-
ist af þriggja stiga skotkeppni á
báðum endum vallarins en alls
voru skoraðar 16 þriggja stiga
körfur í fyrri hálfleik.
Keflavík leiddi með 16 stigum í
leikhléi, 42-58, og munaði mikið
um að Maurice Ingram var ekkert
að gera hjá Stjörnunni en hann
skoraði ekki körfu utan af velli í
hálfleiknum. Satt best að segja
virtist hann úrvinda eftir KR-leik-
inn um daginn og var langt frá því
að vera eins ferskur og í þeim leik,
þar sem allur vindur var reyndar
úr honum í leikhléi.
Síðari hálfleikur var í raun
formsatriði. Liðin hættu þriggja
stiga keppninni og fóru að spila
meira. Stjarnan fær þó plús fyrir
að sýna karakter og gefast ekki
upp. Liðið vildi greinilega ekki
láta niðurlægja sig. Keflavík var
einfaldlega betri á öllum sviðum
körfuboltans í gær. Þegar liðið lék
af fullum krafti var sóknarleikur-
inn magnaður og vörnin ekki síðri.
Stjörnumenn vissu vart á köflum
hvort þeir voru að koma eða fara.
„Við byrjuðum vel en drápum
þá aldrei þó svo að við hefðum
gert nóg til að hrista þá af okkur í
fyrsta leikhluta,“ sagði Einar Ein-
arsson, sem stýrði Keflavíkurlið-
inu í fjarveru Sigurðar Ingimund-
arsonar sem var staddur í Boston
að fylgjast með öðru taplausu liði,
Boston Celtics. „Ég hefði viljað
sjá okkur grimmari að klára
dæmið en á meðan við vinnum er
ég sáttur.“
Bragi Magnússon, þjálfari
Stjörnunnar, var brosmildur þrátt
fyrir tapið. „Þeir voru einfaldlega
númeri of stórir. Það er einfalt
mál. Við gerðum eins og við gátum
en Keflavíkurliðið er bara mun
betra en við,“ sagði Bragi.
henry@frettabladid.is
Kennslustund í körfubolta
Keflvíkingar rúlluðu auðveldlega yfir nýliða Stjörnunnar í Ásgarði í gær og
unnu 21 stigs sigur, 80-101. Gestirnir kláruðu leikinn í fyrri hálfleik þegar þeir
tóku Stjörnuna hreinlega í kennslustund í körfubolta og var unun á að horfa.
ÞREYTTUR Bandaríkjamaðurinn Maurice Ingram hjá Stjörnunni var augljóslega ekki
búinn að jafna sig eftir leikinn í gær því hann var algjörlega heillum horfinn frá upp-
hafi gegn Keflavík í gær. Hann komst ekkert áleiðis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar unnu
sinn sjötta leik í röð þegar þeir
unnu 84-90 sigur á Fjölni í Grafar-
vogi.
Fjölnismenn byrjuðu og end-
uðu vel gegn Grindavík í Iceland
Express-deild karla í gær en
Grindvíkingar gerðu hins vegar
nánast úr um leikinn í millitíð-
inni. Grindavík vann 2. og 3. leik-
hluta með 21 stigs mun, 50-29.
Grindavík skoraði 33 stig úr
hraðaupphlaupum í leiknum og
fengu hvað eftir annað ódýrar
körfur gegn sofandi heimamönn-
um sem dugði ekki að skora 14
þriggja stiga körfur í leiknum.
Fjölnir tefldi fram tveimur
nýjum erlendum leikmönnum í
gær en þeir voru báðir nýlentir á
landinu og verða ekki dæmdir á
fyrsta leik.
Anthony Drejaj var með 6 stig
og 3 stoðsendingar á 24 mínútum
en klikkaði á 9 af 12 skotum
sínum og Terrance Herbert var
með 6 stig og 7 fráköst á 20 mín-
útum.
Fjölnismenn þurfa kannski að
hafa meiri áhyggjur af Banda-
ríkjamanninum Karlton Mims
sem bjargaði andlitinu sínu með
því að skora 17 af 21 stigi sínum í
fjórða leikhluta eftir að Fjölnis-
liðið var komið meira en 20 stig-
um undir. Skotnýting hans kom
Grafarvogsliðinu aftur inn í leik-
inn en það var ekki nóg.
Níels Páll Dungal var bestur
hjá Fjölni og Helgi Hrafn Þor-
láksson og Hjalti Þór Vilhjálms-
son komu með mikinn kraft og
stemningu inn af bekknum.
Þorleifur Ólafsson og Páll Axel
Vilbergsson voru góðir hjá
Grindavík og þeir Jonathan Griff-
in og Adama Darboe skiluðu sínu.
Eftir áfallið í fyrsta leik er liðið
farið að sýna af hverju því var
spáð í titlabaráttuna í vetur.
- óój
Nýir erlendir menn dugðu ekki fyrir Fjölnismenn á heimavelli í gær:
Sjötti sigur Grindavíkur í röð
Iceland Express-deild karla:
Stjarnan-Keflavík 80-101
Stig Stjörnunnar: Dimitar Karadzovski 20,
Sigurjón Örn Lárusson 12, Fannar Helgason 10,
Kjartan Atli Kjartansson 9, Eiríkur Sigurðsson 8,
Maurice Ingram 6, Sævar Haraldsson 6, Sveinn
Ómar Sveinsson 4, Birkir Guðlaugsson 4, Guðjón
Hrafn Lárusson 1.
Stig Keflavíkur: B.A. Walker 32 (5 þriggja stiga),
Tommy Johnson 21, Jón Nordal Hafsteinsson 11,
Gunnar Einarsson 9, Anthony Susnjara 9, Magnús
Gunnarsson 8, Þröstur Leó Jóhannsson 4, Arnar
Freyr Jónsson 4, Sigurður Þorsteinsson 3.
Fjölnir-Grindavík 84-90
Stig Fjölnis: Karlton Mims 21, Níels P. Dungal
21, Helgi H. Þorláksson 9, Terrence Herber 6,
Hjalti P. Vilhjálmsson 6, Anthony Drejaj 6, Árni Þ.
Jónsson 6, Tryggvi Pálsson 5, Kristinn Jónsson 4
(7 fráköst).
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 20,
Jonathan Griffin 19, Þorleifur Ólafsson 13, Adam
Darboe 13, Igor Beljanski 10 (7 fráköst) Páll
Kristins-son 8 (8 fráköst), Davíð P. Hermannsson
4, Ármann Ö. Vilbergsson 3.
Hamar-Njarðvík 68-75
Stig Hamars: George Byrd 18 (17 frák.), Bojan
Bojovic 17, Friðrik Hreinsson 14, Lárus Jónsson
8, Raed Mostafa 5, Frosti Sigurðsson 4, Viðar
Hafsteinsson 2.
Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 19, Egill
Jónasson 12, Hjörtur Hrafn Einarsson 10, Friðrik
Stefánsson 9, Jóhann Árni Ólafsson 9, Sverrir Þór
Sverrisson 7, Guðmundur Jónsson 3.
Tindastóll-Þór 106-107
Stig Tindastóls: Samir Shaptahovic 31 (8 frák.,
8 stoðs, 9 þristar), Donald Brown 23, Svavar Birg-
isson 16, Ísak Einarsson 15, Marcin Konarzewski
11, Sergei Poppe 7.
Stig Þórs: Cedric Issom 36 (12 stoðs.), Óðinn
Ásgeirsson 27, Magnús Helgason 18, Luka
Marolt 16, Þorsteinn Gunnlaugsson 6, Hrafn
Jóhannesson 4.
STAÐAN:
1. Keflavík 7 7 0 703:571 14
2. Grindavík 7 6 1 626:584 12
3. KR 7 5 2 622:602 10
4. Njarðvík 7 4 3 565:521 8
5. Snæfell 6 3 3 532:511 6
6. Þór Ak. 7 3 4 613:650 6
7. Stjarnan 8 3 5 641:677 6
8. Tindastóll 7 3 4 609:648 6
9. Skallagrímur 6 2 4 473:492 4
10. ÍR 6 2 4 484:513 4
11. Fjölnir 7 2 5 550:604 4
12. Hamar 7 1 6 502:547 2
Eimskipsbikar kvenna:
Stjarnan-Haukar 34-30
Mörk Stjörnunnar (skot): Sólveig Lára Kjærne-
sted 8 (11), Rakel Dögg Bragadóttir 7/4 (10/4),
Birgit Engl 6 (8), Ásdís Sigurðardóttir 3 (5), Ásta
Agnarsdóttir 3 (6), Alina Petrache 3 (8), Elísabet
Gunnarsdóttir 2 (2), Harpa Sif Eyjólfsdóttir 1 (4),
Björk Gunnarsdóttir 1 (4).
Varin skot: Florentina Stanciu 29/1 (50/2) 58%,
Helga Vala Jónsdóttir 2 (11) 18%.
Hraðaupphlaup: 6 (Sólveig 3, Birgit 2, Ásdís).
Fiskuð víti: 4 (Ásta 2, Birgit, Elísabet).
Utan vallar: 2 mínútur
Mörk Hauka (skot): Erna Þráinsdóttir 9 (9),
Ramune Pekarskyte 7 (14), Hind Hannesdóttir
4 (5), Hanna Guðrún Stefánsdóttir 3/1 (5/2),
Harpa Melsted 3 (7/1), Sandra Stojkovic 2 (5),
Inga Fríða Tryggvadóttir 2 (5/1), Nína Kristín
Björndóttir 1 (4/1).
Varin skot: Laima Miliauskaite 23 (49/2) 47%,
Helga Torfadóttir 2 (10/2) 20%.
Hraðaupphlaup: 5 (Ramune 2, Harpa, Hind,
Nína).
Fiskuð víti: 5 (Harpa 2, Sandra, Ramune, Inga).
Utan vallar: 2 mínútur
Meistaradeildin í körfu:
Lottomatica Roma-Brose Baskets 81-57
Jón Arnór Stefánsson var með 14 stig, 4 stoð-
sendingar og 2 stolna bolta á 27 mínútum. Hann
nýtti 3 af 7 þriggja stiga skotum sínum.