Fréttablaðið - 16.11.2007, Qupperneq 94
58 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT 2. lampi 6. í röð 8. mánuður
9. óhreinka 11. mun 12. japla 14.
bragðbætir 16. tónlistarmaður 17.
rotnun 18. umfram 20. 49 21. fimur.
LÓÐRÉTT 1. íþróttafélag 3. kringum
4. páfagaukur 5. tugur 7. yfirhöfn 10.
for 13. meðal 15. krydd 16. kóf 19.
bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lukt, 6. rs, 8. maí, 9. ata,
11. ku, 12. maula, 14. krydd, 16. kk,
17. fúi, 18. auk, 20. il, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. fram, 3. um, 4. kakadúi,
5. tíu, 7. stakkur, 10. aur, 13. lyf, 15.
dill, 16. kaf, 19. ká.
„Það er fátt sem mér þykir
leiðin legt, nema að þurfa að
fara frá börnunum mínum.“
Ruth Reginalds söngkona, í viðtali við
DV 1991.
„Ég er nú umvafin börnum núna, ég
á fjórar dætur og tvö barnabörn og
fósturdóttur úti í Ameríku. Þessi setning
stendur alveg og alltaf,“ segir Ruth nú.
Framleidd hefur verið smækkuð
bangsaútgáfa af Masa, aðalpers-
ónunni á mynddiskunum feiki-
vinsælu Söngvaborg, og er hún á
leiðinni í verslanir. Allur ágóði af
sölunni rennur til Barnaspítala
Hringsins.
„Masi ætlar að búa til leik-
herbergi handa börnunum á
Barnaspítala Hringsins og líka
leikbiðstofu. Við byrjum á því að
panta fimm þúsund eintök af
Masa og viljum klára þau og helst
panta ennþá meira,“ segir María
Björk Sverrisdóttir, sem hefur
gefið út Söngvaborg ásamt Sigríði
Beinteinsdóttur. Auk þess hefur
Helga Braga leikstýrt verkefninu
og farið með hlutverk Lóu
ókurteisu.
„Þegar við vorum að gera
Söngva borg langaði okkur að vera
með fígúru sem væri sambland af
ýmsum dýrategundum,“ segir hún
um Masa, sem er blanda af bangsa,
eðlu og ljóni. „Hann hefur verið
rosalega vinsæll og allir krakk-
arnir þekkja til hans. Hann stendur
fyrir hið góða og vináttuna því
allir eiga að vera vinir.“
Sigga Beinteins segir að Söngva-
borgarmyndirnar hafi
verið söluhæsta
barnaefnið á Íslandi
síðastliðin fjögur
ár og því byggi
verkefnið á
góðum grunni.
„Við tókum
þann pól í hæð-
ina að gefa
ekki út disk í
ár og fara í
þetta í stað-
inn. Ég hef
spilað á
Barnaspít-
alanum og
séð hvernig
ástandið er.
Það vantar
að búa til
leikherbergi
og bæta
aðstöðuna,“
segir Sigga.
Björgvin Franz Gíslason, sem
hefur leikið Masa í gegnum árin,
er ánægður með bangsann. „Mér
finnst hann miklu líkari mér en
Birgittu-dúkkan var lík Birg-
ittu,“ segir hann og hlær.
„Þetta er örugglega sveittasta
hlutverkið mitt hingað til.
Maður þarf ekki að vera
nema fimm mínútur í bún-
ingnum þegar maður er
byrjaður að svitna. En
það er búið að vera
rosagaman að vinna
með Siggu Beinteins,
Maríu og Helgu
Brögu og það er æðis-
legt að allur ágóðinn
renni óskiptur til
Barnaspítala Hrings-
ins.“ - fb
Sigga Beinteins selur dúkkur
MEÐ MASA Sigga Beinteins
og María Björk á góðri
stundu með Masa.
„Ég er miklu meira en spenntur,“ segir Aron
Pálmi Ágústsson um þá staðreynd að ný bók
um ævi hans, Enginn má sjá mig gráta – Aron
Pálmi – Barn í fangelsi, kemur út á morgun.
Jón Trausti Reynisson skráði söguna. „Þetta
er viss áfangi í mínu lífi.“ Í tilefni af útgáf-
unni heldur Aron Pálmi útgáfuteiti á
skemmtistaðnum Rex. Þar segist hann bæði
munu lesa upp úr bókinni og lesa ljóð sem
hann hefur ort. „Ég geri mikið af því að yrkja
og hef gert það allt frá því ég var lokaður
inni. Þetta er besta leið sem fáanleg er til
þess að létta á hjarta sínu,“ segir Aron Pálmi
en þetta verður í fyrsta skipti sem hann les
ljóð sín opinberlega hérlendis. Bandaríkja-
menn hafa fengið að heyra þau áður enda
vann Aron oftar en einu sinni til verðlauna
fyrir kveðskap sinn þegar hann stundaði nám
við Lamar University þar ytra.
Móðir Arons Pálma, Hulda Thomas, er
komin hingað til lands alla leið frá Houston í
Texas til þess að samgleðjast syninum. „Hún
verður hérna þangað til á mánudag til þess
að sýna mér stuðning og vera til staðar þegar
bókin kemur út. Við erum búin að vera
önnum kafin við að njóta samvistanna frá því
hún kom og höfum verið að gera hversdags-
lega hluti sem við höfum ekki getað gert í tíu
ár. Fara í bíó, út að borða, hitta fjölskyldu-
meðlimi og bara einfaldlega að eyða tíma
saman.“ Aron Pálmi er að öðru leyti önnum
kafinn við að njóta lífsins en hann starfar
með fötluðum á hæfingarstöð í Kópavogi og á
íslenska kærustu. „Kærastan mín er í
Háskóla Íslands en hefur beðið mig að gefa
ekki upp nafn sitt.“ - sók
Aron Pálmi les ljóðin sín í fyrsta sinn
GEFUR ÚT BÓK Í DAG Bók Arons
Pálma um ævi hans kemur út í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Aðalpartíið um helgina virðist ætla
að vera árlegt kynningarpartí Senu
sem haldið verður á Apótekinu
annað kvöld. 400 útvaldir gestir
hafa fengið boðskort og
nóg er eflaust að gera í
tískuverslunum landsins
því gerð er krafa um að
gestir mæti í svörtum,
hvítum og rauðum
klæðnaði. Meðal
þeirra sem hafa feng-
ið boðskort eru Logi
Bergmann Eiðsson,
Auðunn Blöndal,
Pétur Jóhann Sigfússon, Unnur
Birna Vilhjálmsdóttir, Birgitta
Haukdal og Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir.
Annað áhugavert partí verður
haldið í kvöld klukkan 21 þegar rit-
höfundarnir Eyvindur Karlsson og
Valur Gunnarsson fagna útgáfu
fyrstu bóka sinna á Ljóta andarung-
anum í Lækjargötu. Auk þess að
lesa úr bókum sínum við undirleik
hljómsveita má líklegt
telja að þeir taki sjálfir
lagið. Til að tryggja
viðeigandi stemn-
ingu bjóða höfund-
arnir veitingar sem
passa við bækur
þeirra; Eyvindur
býður viskí og
hnetur en Valur finnskar veitingar
og rússneskan vodka.
Jón Yngvi Jóhannsson, bókarýnir
Íslands í dag, var í góðu skapi í
þættinum á dögunum. Þá tók
hann skýrt fram að safnrit þýðinga
á verkum Astrid Lindgren væri
skyldueign á hverju heimili. Jón
Yngvi ætti að vita hvað
hann er að tala um því
móðir þeirrar útgáfu
er barnabókastjóri
Forlagsins, Sigþrúður
Karlsdóttir, en þannig
vill til að hún er eigin-
kona Jóns Yngva. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Framleiðslufyrirtækið Zik Zak hefur keypt
kvikmyndaréttinn að fyrstu glæpasögu Óttars M.
Norðfjörð, „Hnífur Abrahams“, sem hefur verið
líkt við Da Vinci lykilinn. Sögusvið bókarinnar er
New York og því ljóst að myndin verður að
stærstum hluta tekin upp á erlendri grundu auk
þess sem hún verður að líkindum á ensku.
„Við höfum fulla trú á því að kvikmyndin verði
einn af sumarsmellum kvikmyndahúsanna innan
nokkurra ára,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson,
framleiðandi hjá Zik Zak. „Ein af burðarpersónum
hennar á ættir að rekja til Íslands, sem er aldrei
leiðinleg landkynning.“ Ottó Geir Borg hjá Zik
Zak segir að framleiðslan verði af „annarri
stærðargráðu en við eigum að venjast hér á landi“.
„Við erum ekki farnir að leita að leikstjóra og þess
háttar enn þá. Fyrst er að skrifa handritið og við
erum í viðræðum við nokkra aðila. Það er eigin-
lega lúxusvandamál enda er efniviðurinn frábær.
Útgangspunktarnir eru margir og það er að miklu
leyti undir handritinu komið hvernig mynd þetta
verður.“
Ottó segist ekki tilbúinn að nefna tölur þegar
kemur að kostnaði við myndina. „Fyrst þarf að sjá
drög að handritinu, hversu margir tökustaðirnir
eru og þess háttar. Ég myndi skjóta á að kostnaður
yrði vel yfir meðallagi og í ætt við það sem
gengur og gerist í Hollywood.“ Hann segir vel
koma til greina að erlend fyrirtæki komi að
framleiðslunni enda sé myndin fyrst og fremst
ætluð fyrir erlendan markað. „Við erum með
menn bæði í Bandaríkjunum og Danmörku sem
þekkja vel til í bransanum. Kvikmyndaframleið-
endur líta hins vegar einnig til þess hversu gott
handritið er og því of snemmt að fara í viðræður
núna.“ Hvað verðmiðann á kvikmyndaréttinum
varðar segir Ottó það vera trúnaðarmál. „Við
viljum ekki ræða þá upphæð eins og er, en Óttar
er örugglega brosandi út að eyrum.“
Óttar M. Norðfjörð er búsettur í Barcelona en
var á heimleið þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. „Ég er í skýjunum yfir þessu,“ segir hann.
Velgengni bókarinnar hefur verið með ólíkindum
frá því hún kom út í byrjun mánaðarins en hún
situr í öðru sæti metsölulistans á eftir bók
Arnaldar Indriðasonar. „Þetta hefur allt gerst
mjög hratt og maður er í mestu vandræðum með
að halda báðum fótum á jörðinni.“ Hann segir að
þar sem söguhetjunni sé líkt við Pierce Brosnan í
bókinni væri ekki leiðinlegt að sjá hann í hlutverk-
inu. „En ég ætla nú ekki að taka íslenska stílinn á
þetta og þykjast vera að sigra heiminn. Það er
kannski fullsnemmt.“ sigrunosk@frettabladid.is
ÓTTAR M. NORÐFJÖRÐ: SELDI KVIKMYNDARÉTTINN AÐ HNÍFI ABRAHAMS
Íslensk skáldsaga kvikmynd-
uð fyrir erlendan markað
Í SKÝJUNUM Rithöfundurinn ungi Óttar M. Norðfjörð segist
vera í skýjunum með að hafa selt kvikmyndaréttinn að Hnífi
Abrahams sem er hans fyrsta glæpasaga. „Maður er í mestu
vandræðum með að halda báðum fótum á jörðinni.“
Vika er nú í að ævisaga Guðna
Ágústssonar, formanns Fram sóknar-
flokksins, komi í verslanir. Eins og
fram hefur komið í fjöl miðlum gerir
Guðni í bókinni upp mörg viðkvæm
deilumál innan Framsóknarflokksins
sem og ríkisstjórnar Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks undir
forsæti Davíðs Oddssonar. Sagt
er að bókin um Guðna sé eins og
tifandi tímasprengja í hugum margra
á vettvangi stjórnmálanna. Að
minnsta kosti eru margir svo spennt-
ir að þeir hafa sett sig í samband við
Veröld, sem gefur bókina út, til að
fá að lesa handritið yfir. Það hefur
þó engan árangur borið og persónur
í bókinni verða því að bíða eins og
aðrir eftir útgáfudeginum. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.
Þú færð aðeins það besta hjá okkur
STÓR HUMAR, HÖRPUSKEL, LÚÐA
RISARÆKJUR, SKÖTUSELUR, LAX
NÝLÖGUÐ SJÁVARRÉTTASÚPA.
Auglýsingasími
– Mest lesið