Fréttablaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 2
2 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
Ólafur, hvernig ætlið þið að
fylla í þessar Eiður?
„Það eru engar eyður, maður kemur
í manns stað.“
Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði
tekur ekki þátt í landsleik Íslendinga
gegn Dönum næsta miðvikudag. Hann
dró sig úr landsliðshópnum í fyrradag af
persónulegum ástæðum. Jóhannes Karl
Guðjónsson hefur einnig boðað forföll í
leiknum.
VIÐSKIPTI „Kauphöllin leggur til að
skráningu Skiptis verði frestað
fram á fyrsta ársfjórðung næsta
árs. Það sé ekki hægt að uppfylla
upplýsingaskylduna undir þessum
kringumstæðum. Það eru for-
sendurnar fyrir ákvörðuninni,“
segir Árni M. Mathiesen fjármála-
ráðherra.
Hann hefur fyrir hönd íslenska
ríkisins heimilað Skipti, sem keypti
Landssíma Íslands af ríkinu í ágúst
2005, að fresta skráningu félagsins
í Kauphöll Íslands fram yfir ára-
mót. Samkvæmt kaupsamningi átti
að selja þrjátíu prósent í félaginu
til almennings og annarra fjárfesta
fyrir árslok 2007 og skrá félagið í
kjölfarið. Var þetta
ákvæði sett í samninginn
meðal annars vegna gagn-
rýni sem kom fram um að
almenningur fengi ekki að
taka þátt í einkavæðingu
ríkisfyrirtækja.
Skipti hefur boðið í
slóvenska símafyrirtækið
Telekom Slovenije. Ekki
verður ljóst fyrr en um
áramótin hvort af kaupun-
um verður, en allt að 75
prósent af félaginu eru til
sölu. Kauphöllin hefur gert athuga-
semdir við að mikil óvissa ríki um
rekstur og framtíðarhorfur Skiptis
á meðan á þessu ferli standi. Upp-
lýsingagjöf sé takmörkuð
og erfitt fyrir fjárfesta að
verðleggja hlutabréfin.
Stjórnendur Skiptis hafa
haft tíma frá haustinu
2005 til að skrá félagið og
selja almenningi. Árni
Mathiesen gerir ekki
mikið úr þeim vanga-
veltum hvort ekki hefði
átt að selja félagið fyrr, og
áður en ákveðið var að
taka þátt í söluferli
slóvenska símans.
„Ég efast ekkert um það að þeir
hafi ætlað sér að standa við skuld-
bindingar kaupsamningsins,“ segir
fjármálaráðherra. - bg
Fjármálaráðherra tekur tillit til óvissu í rekstri Skipta vegna tilboðs í símafyrirtæki:
Símasalan frestast yfir áramót
ÁRNI MATHIESEN
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
690,-
Hátíðarmatur
Íslendinga
Hangikjöt með kartöflum, uppstúf,
rauðkáli og grænum baunum
MENNING Háskóla Íslands hefur verið boðið að taka
til rannsóknar safn teikninga, vatnslitamynda og
olíuverka sem komin eru í ljós frá dvöl Þorvaldar
Skúlasonar í París og Tours á stríðsárunum. Í
safninu, sem telur um 120 verk, eru meðal annars
skissur sem eru sýnilega þreifingar með abstrakt-
list. Þorvaldur hélt því fram eftir að hann sneri til
Íslands að hann hefði þá verið byrjaður að vinna
abstrakt. Sökum þess að verkin frá þessu tímabili
hafa alltaf verið talin glötuð er eyða í þroskasögu
Þorvaldar sem listamanns og um leið framgangi
óhlutbundinnar listar hér á landi, sem Svavar
Guðnason er talinn hafa lagt stund á fyrstur
manna.
Samkvæmt heimildum hefur finnandi verkanna,
Jónas Freydal Þorsteinsson, í hyggju að gefa hluta
verkanna sem fundust í Frakklandi til Listasafns
Háskóla Íslands en þar er stærsta safn mynda
Þorvaldar varðveitt.
Nánar er fjallað um fundinn og einnig birtar
myndir af verkum úr þessari óvæntu viðbót við
feril Þorvaldar Skúlasonar í Menningu, fylgiriti
Fréttablaðsins, á morgun. - pbb
Nýfundin verk eftir Þorvald Skúlason fylla í eyðu í þroskasögu hans:
Jónas hyggst gefa hluta af
verkunum til Háskóla Íslands
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu óskar eftir
liðsinni almennings vegna
nauðgunarmáls sem hún hefur til
rannsóknar.
Rúmlega tvítug kona kærði
nauðgun til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu í fyrradag.
Ofbeldið átti sér stað aðfara-
nótt laugardags á Grófarsvæðinu
í Reykjavík. Lögreglan vill vita
hvort einhver þekki manninn á
meðfylgjandi mynd en hann er
talinn tengjast málinu. Maðurinn
er 165 til 170 cm á hæð, grannur,
dökkhærður, stuttklipptur með
þunnt yfirvaraskegg og pinna í
tungunni. Hann er talinn af
erlendu bergi brotinn. Þeir sem
geta gefið upplýsingar um
manninn eru vinsamlega beðnir
um að hringja í lögregluna í síma
444-1000. -jss
EFTIRLÝSTUR Þessi maður er eftirlýstur
vegna nauðgunarmáls. Myndin er úr
eftirlitsmyndavél í borginni.
Nauðgunarmálið í Grófinni:
Lögregla lýsir
eftir manni
SJÁLFSMYND Ein af
nýfundnum myndum eftir
Þorvald Skúlason. Meðal
verkanna voru margar
sjálfsmyndir listamannsins.
VINNUMARKAÐUR BSRB krefst þess
að kjör fólks í almannaþjónustu
verði stórbætt og því ekki búin
lakari kjör en þau sem best gerast
á vinnumarkaði. BSRB krefst þess
einnig að kynbundið launamisrétti
verði upprætt og að kjör vakta-
vinnufólks verði bætt verulega
með hækkun launa og styttri
vinnuskyldu.
Í ályktun aðalfundar BSRB segir
að gera þurfi stórátak til að efla
velferðarþjónustuna. „Mjög
alvarlegar blikur eru nú á lofti.
Sums staðar er manneklan slík að
horfir beinlínis til landauðnar,“
segir í álytkun aðalfundarinns sem
haldinn var í gær. - ghs
Aðalfundur BSRB:
Kjörin verði
stórbætt
DANMÖRK, AP Naser Khader,
formaður Nýs
bandalags sem
hlaut fimm
þingmenn kjörna
í kosningunum á
þriðjudag, sagðist
í gær mundu
draga flokkinn út
úr viðræðum um
stuðning hans við
ríkisstjórn Anders Fogh Rasmus-
sen ef ekki yrði tekið tillit til
krafna hans í innflytjendamálum í
stefnuskrá stjórnarinnar.
Fogh Rasmussen er þar með í
klemmu, þar sem Pia Kjærsgaard,
formaður Danska þjóðarflokksins
sem síðan árið 2001 hefur séð
stjórn Foghs fyrir meirihluta á
þingi, er alls ekki á þeim buxunum
að samþykkja neinar kröfur Nýs
bandalags. - aa
Stjórnarmyndun í Danmörku:
Khader hótar að
slíta viðræðum
NASER KHADER
ORKUMÁL „Við ætlum okkur að vera
í útrás en það verður að vera á
nýjum forsendum“, segir Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri en eftir
eigendafund í Orkuveitu Reykja-
víkur í gær er ljóst að Reykjavík
Energy Invest (REI) og Geysir
Green Energy (GGE) verða ekki
sameinuð. Bryndís Hlöðversdóttir,
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur (OR), telur góðar
líkur að samkomulag um málið geti
náðst á milli allra aðila og ekki
verði af málshöfðun GGE vegna
niðurstöðunnar.
Borgarráð ákvað á fundi í gær að
samþykkja ekki samruna REI og
GGE í samræmi við vilja stjórnar
OR og starfshóps borgarfulltrúa
sem Svandís Svavarsdóttir,
borgarfulltrúi VG, leiddi. Borgar-
ráð komst jafnframt að þeirri
niðurstöðu að leita sátta í dóms-
máli sem Svandís höfðaði gegn OR
vegna lögmætis eigendafundarins
þar sem sameining fyrirtækjanna
var upphaflega ákveðin. Ekki er
talið að málsaðilar hafi hagsmuni
af því að málið verði rekið til enda
og dæmt verði um lögmæti fundar-
ins. Hjörleifi B. Kvaran, forstjóra
OR, var á eigendafundinum í gær-
kvöldi falið að leiða sáttaferlið.
Forsvarsmenn GGE hafa sagt
ítrekað að samningarnir skuli
standa. Þeir hafa ekki útilokað að
skorið verði úr um það fyrir dóm-
stólum hvort hægt sé að rifta þeim
einhliða. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hefur sú afstaða
ekki breyst. Dagur sagði í viðtali
við Fréttablaðið eftir eigenda-
fundinn í gærkvöldi að búið væri
að fara yfir allar lagalegar hliðar
málsins og hann bæri ekki
sérstakan kvíðboga fyrir því ef
GGE höfðaði mál gegn OR. „Hins
vegar liggja leiðir það víða saman
að það er ekki gott að vera með mál
í uppnámi. Ég tel því að menn
setjist niður og fari yfir þá stöðu
sem komin er upp núna.“
Borgarráð fól Bryndísi Hlöð-
versdóttur í síðustu viku að ræða
við aðra hluthafa REI og stjórn OR
um málið og vinna að tillögum um
lausnir. Hún er bjartsýn á að sam-
komulag náist á milli OR og GGE.
„Við erum í samstarfi í verkefnum
sem eru eldri en samrunahug-
myndirnar, þannig að fyrirtækin
eiga mikilla sameiginlegra hags-
muna að gæta.“ Aðspurð um hugs-
anlega málshöfðun GGE gegn OR
segir Bryndís að vissulega sé skoð-
anamunur um lögfræðilega stöðu
málsins. „Við viljum vissulega
lenda málinu með samkomulagi en
ekki í málaferlum.“
svavar@frettabladid.is
Útrás Orkuveitunnar
á nýjum forsendum
Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy verða ekki sameinuð í þeirri
mynd sem áætlað var. Þetta var staðfest á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur
í gær. Leitað verður sátta í máli Svandísar Svavarsdóttur gegn Orkuveitunni.
FRÁ EIGENDAFUNDI Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Bryndís Hlöðversdóttir,
stjórnarformaður OR, eru sammála um mikilvægi þess að sáttir náist á milli OR og
GGE. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Við viljum vissulega lenda
málinu með samkomu-
lagi en ekki í málaferlum.
BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR
STJÓRNARFORMAÐUR ORKUVEITU
REYKJAVÍKUR
FÓLK Sigurbjörn Einarsson biskup
tók í gær við verðlaunum Jónasar
Hallgrímssonar úr hendi Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráð-
herra.
Verðlaunin eru
veitt árlega á
degi íslenskrar
tungu. Þau hlýtur
fólk sem hefur
með sérstökum
hætti unnið
íslenskri tungu
gagn og stuðlað
að eflingu hennar, framgangi og
miðlun til nýrrar kynslóðar.
Ráðgjafanefnd dags íslenskrar
tungu gerir tillögu til menntamála-
ráðherra um verðlaunin sem
afhendir þau við hátíðlega athöfn.
Að þessu sinni fór hún fram í
Þjóðleikhúsinu. - sgj
Sigurbjörn Einarsson heiðraður:
Biskup fékk
Jónasarverðlaun
SIGURBJÖRN
EINARSSON
SPURNING DAGSINS