Fréttablaðið - 17.11.2007, Page 24
24 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
MERKISATBURÐIR
1558 Elísabet I hlýtur krúnuna
við fráfall Maríu Englands-
drottningar.
1913 Panamaskurðurinn tekinn
í gagnið.
1940 Akureyrarkirkja vígð, þá
stærsta kirkja landins.
1962 Samvinnubankinn stofn-
aður.
1970 Breska dagblaðið Sun
birtir fyrstu fáklæddu
stúlkuna á síðu 3.
1973 Nixon Bandaríkjaforseti
segir AP-fréttastofunni að
hann sé ekki krimmi.
1980 John Lennon gefur út
Double Fantasy.
1983 Stærsta verslun lands-
ins, Mikligarður, opnuð í
Reykjavík.
1984 Jón Baldvin Hannibalsson
kosinn formaður Alþýðu-
flokksins.
Þennan dag fyrir nítján árum var hin íðilfagra
Linda Pétursdóttir frá Vopnafirði kjörin ung-
frú heimur í samnefndri keppni sem haldin var í
Lundúnum.
Linda, sem árið 1988 var átján ára gömul,
hafði einnig verið kjörin ungfrú Ísland í maí sama
ár.
Ekki voru liðin nema þrjú ár frá því Hólmfríður
Karlsdóttir var einnig valin fegurst kvenna í heimi
hér og vann hug og hjörtu heimsbyggðarinnar í
hlutverki sínu sem ungfrú heimur, en Linda fet-
aði óhikað í spor Hófíar og varð ekki síður mikils
metin og vinsæl í hlutverki sínu um allan heim.
Á úrslitakvöldinu þegar Linda var krýnd al-
heimsfegurðardrottning vakti mikla eftirtekt að
hún felldi ekki stakt tár þegar úrslitin voru kunn-
gjörð, en vaninn var að tár sæust á fögrum
hvörmum vegna spennufalls og geðshræringar,
og sumir töluðu um listgrein fegurðardrottninga
að gráta af undrun þegar þær hlutu kórónur fyrir
ómótstæðilega fegurð sína.
Við sama tækifæri var Linda Pétursdóttir kjörin
ungfrú Evrópa.
ÞETTA GERÐIST: 17. NÓVEMBER 1988
Linda Pé kjörin Ungfrú heimur
LINDA PÉTURSDÓTTIR MISS WORLD 1988
KVIKMYNDALEIKSTJÓRINN
MARTIN SCORSESE ER 65 ÁRA
Í DAG
„Fólk verður taugaveiklað
í kringum mig vegna mynd-
anna sem ég geri, og telur
mig illan og erfiðan viður-
eignar. Ég er illur og erfiður
viðureignar, en fólk reikn-
ar ekki með kímnigáfunni.
Gamansemi og spaug er
það.“
Martin Scorsese er meðal
virtustu leikstjóra samtím-
ans, og er þekktastur fyrir
ofbeldisfullar mafíumyndir.
„Línan varð til á togaraárunum þegar
ísfirski togarinn Júlíus Geirmunds-
son var í smíðum í Flekkefjord í Nor-
egi og konur fylgdu mönnum sínum
utan vegna smíðinnar,“ segir Ragna
Arnaldsdóttir í kvennadeild Slysa-
varnarfélagsins á Ísafirði, sem hefur
verið í föndurnefnd Línunnar síðast-
liðinn áratug.
„Í Flekkefjord tók Anna Helgadóttir
eftir því að þarlendar hvítasunnukon-
ur komu vikulega saman til að vinna
handverk sem þær seldu til fjáröflunar
með því að selja fólki línur, og Anna
kom með þennan sið til Ísafjarðar,“
segir Ragna, en með línum á hún við
nafnalínu í sérstaka bók sem seinna er
klippt niður, miðarnir brotnir saman
og settir með öðrum nafnalínum í jóla-
happdrættispott Línunnar.
„Þar til í hittifyrra gengum við Línu-
konur í hús og seldum línur, en nú eru
margar farnar að eldast og bærinn
okkar að stækka, svo góðir kaupmenn
á Ísafirði leyfa bókum okkar að liggja
hjá sér og svo seljum við sjálfar línur
í tveimur verslanamiðstöðvum hér
fyrir jólin,“ segir Ragna, en ein lína
kostar 400 krónur og kaupa margir
línur fyrir sjálfa sig og alla fjölskyld-
una í von um fallegt handverk ísfirsku
slysavarnakvennana í desember.
„Þetta eru allt veglegir og fallegir
vinningar sem við drögum um á hátíð-
legum jólafundum sem nú verður 12.
desember. Sýnishornum af handverk-
inu er stillt upp í ákveðnum glugga
bæjarins og hefð fyrir því hjá bæj-
arbúum að skoða í gluggann og fara
svo í línukaup. Því er jólahappdrættið
orðinn stór hluti af aðventunni hér,“
segir Ragna brosmild um þetta góða
málefni sem leggur nauðsynlegu mál-
efni lið í bland við jólaskap Vestfirð-
inga.
„Þetta er langstærsta fjáröflun
okkar og árið um kring hittumst við
í Guðmundarbúð á þriðjudagskvöld-
um og föndrum fram eftir kvöldi. Það
er synd hvað ungu konurnar skila sér
illa í starfið því þetta er svo virkilega
skemmtilegur og gefandi félagsskap-
ur, og beinlínis hollt að standa upp frá
sjónvarpinu og leyfa sköpunargáfunni
að fá útrás,“ segir Ragna sem gekk í
Slysavarnafélagið árið 1977.
„Stór liður í okkar starfi eru slysa-
varnir, en einnig fáum við óskalista
frá Björgunarfélagi Ísafjarðar og
veitum því styrki til tækjakaupa, og
erum alltaf tilbúnar að standa við
hlið þeirra þegar á þarf að halda, elda
fyrir þá og nesta fyrir útköll,“ segir
Ragna sem í dag heldur opið hús með
Línukonum í Björgunarsveitarhús-
inu að Sindragötu 6 frá klukkan 14
til 16.30, þar sem kynnt verður starf
deildarinnar og línuvinningar sýndir
í tilefni af 35 ára afmælinu.
„Vinningarnir eru allt frá púðum
og prjónuðum ungbarnateppum yfir
í útsaumaða dúka og póstpoka, jóla-
skraut, engla, pottaleppa, steinafólk
og allt þar á milli. Hér er ekkert drasl;
bara hvert öðru fegurra handverk-
ið,“ segir Ragna sem mun föndra og
bjóða gestum upp á ilmandi kaffi og
nýbakaðar vöfflur í tilefni dagsins.
Þeir sem ekki komast á Ísafjörð en
langar að kaupa sér línu geta hringt í
Guðmundarbúð á þriðjudagskvöldum
í síma 456-5990, eða í gjaldkera í 897-
6782. thordis@frettabladid.is
JÓLAHAPPDRÆTTI LÍNUNNAR Á ÍSAFIRÐI 35 ÁRA: OPIÐ HÚS OG VÖFFLUR Í DAG
Nauðsyn með jólaskapinu
AFMÆLI
DANNY
DEVITO,
LEIKSTJÓRI OG
LEIKARI, ER 63
ÁRA Í DAG.
KRISTÍN
JÓHANNESDÓTT-
IR KVIKMYNDA-
GERÐARMAÐUR
ER 59 ÁRA Í DAG.
Norrænu bókasafnsvikunni
lýkur formlega í Bókasafni
Vestmannaeyja í dag. Af því
tilefni verður efnt til ráð-
stefnu klukkan tvö þar sem
Róbert H. Haraldsson, dós-
ent í heimspeki við HÍ, og
Ingunn Ásdísardóttir þjóð-
fræðingur flytja fyrirlestra
í Safnahúsinu, þar sem
mikið verður um dýrðir.
Tema Norrænu bókasafns-
vikunnar er Konan í norðri.
Fyrirlestur Róberts verður
um Nóru eftir Henrik Ibsen
en Ingunn, sem gaf fyrr á
árinu út bókina Frigg og
Freyja, fjallar um gyðjuna
í norðri.
Eftir fyrirlestra þeirra
Róberts og Ingunnar munu
8. bekkingar Grunnskóla
Vestmannaeyja lesa upp úr
nýjum verkum kvenna, og í
anddyri Safnahússins verða
til sýnis verk í eigu safnsins
eftir kvenkyns höfunda sem
hlotið hafa Nóbelsverð-
laun og Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs.
Til gamans má geta þess
að Bókasafn Vestmanna-
eyja, til heiðurs konum,
útbjó þrjátíu poka sem inni-
héldu tvær bækur kvenkyns
höfunda og buðu karlkyns
notendum bókasafnsins að
taka með sér heim í nor-
rænu bókasafnsvikunni.
Reyndust karlarnir spenntir
fyrir pokunum, sem ruku út
úr safninu.
Boðið verður upp á pipar-
kökur og jólalega stemmn-
ingu í Safnahúsinu í dag og
verður líf í tuskunum; bóka-
safnið opið með nýútgefnum
jólabókum landsmanna í
hillum, og vitaskuld verða
líflegar umræður eftir
fyrirlestrana og upplestur
unglinganna. - þlg
Bókasafnsvika
kvödd í Eyjum
VESTMANNAEYJAR
DÁSEMDIR JÓLANNA Hér situr frú Ragna Arnaldsdóttir við föndur Línukvenna, sem allt eru
töfrandi og jólaleg handverk sem enda sem stuðningur við þarft málefni.
MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför,
Gests Sigurðssonar
Bústaðavegi 75, Reykjavík
áður til heimilis á Dalvík,
Guðrún Jónína Sigurpálsdóttir
Hanney Árnadóttir Helgi Jónsson
Snorri Gestsson Auður Ingvarsdóttir
Signý Gestsdóttir Hákon Aðalsteinsson
Sigurpáll Gestsson
barnabörn og barnabarnabörn.
80 ára afmæli
Þorsteinn Einarsson
(Steini frá Sólheimum)
(Steini Rock)
Ég verð 80 ára þann 17. nóvember og af
því tilefni tek ég á móti gestum á Hótel
Lunda í Vík í Mýrdal frá kl. 18.00 í kvöld.
Vonast til að sjá sem fl esta,
Steini
Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Elsa Halldórsdóttir
áður til heimilis að Lindasíðu 2, Akureyri,
lést að dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri þriðjudaginn
13. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 26. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Starfsfólki
Hlíðar eru færðar hjartans þakkir fyrir góða alúð og
umönnun.
Birgir Pálmason Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Elísabet Pálmadóttir Ketill Tryggvason
Ásta Pálmadóttir
Hjördís Pálmadóttir Pétur Haraldsson
Elsa Pálmadóttir Valmundur Einarsson
Hreinn Pálmason Þórunn Sigurðardóttir
Jón Karl Pálmason Kolbrún Jónasdóttir
Viðar Pálmason Kamilla Hansen
stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn.