Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.11.2007, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 17.11.2007, Qupperneq 30
30 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR Þ egar stríð braust út milli Asera og Armena árið 1992 lögðu Aserarnir í Nagorno-Karabakh og nágrannasveitum á flótta til Aserbaídsjan. Þeir settust að í yfirgefnum skólum og verksmiðjum, strákofum og gömlum lestarvögnum. Hvar sem skjól mátti finna. Þar bjuggu þeir bláfátæk- ir með fjölskyldum sínum í fjölda ára og gera jafnvel enn þann dag í dag. Flóttamenn eru alls hátt í ein milljón talsins í Aserbaídsjan og því um eða yfir tíu prósent af mannfjöldanum. Sumir drukknuðu í ánni Alesgerov Yagub Allahverdi er flóttamaður og barnakennari í Imishli, einum af bæjarhlutunum sem ríkisstjórn Ilham Alijevs, forseta Aserbaídsjan, hafa byggt fyrir flóttamenn frá Nagorno-Karabakh og nágrannasveitum. Hann á fimm börn sem öll eru fullorðin, þar af gegnir tvítugur sonur hans her- skyldu um þessar mundir, og svo á hann nokkur barnabörn. Allahverdi er barnakennari að menntun og atvinnu, kenndi í barnaskóla áður en fjölskyldan lagði á flótta. Fjölskylda Allahverdis er ein af þeim fjöldamörgu sem lögðu á flótta frá heimabæ sínum, í þessu tilviki í Jebrayil, í stríðinu sem geisaði milli Armena og Asera árin 1992 til 1994. Allahverdi rifjar upp flóttann frá Jebrayil. Hann segir að allir úr héraðinu, íbúar í níutíu þorpum, hafi lagt á flótta á sama tíma. Hann hafi farið með fjölskyldu sína yfir Araz-ána til Íran. Sumir hafi drukknað í ánni en aðrir hafi komist á bátum yfir með aðstoð Írana. Þau hafi verið svo heppin að komast yfir. Heima er ferskt loft Frá flóttanum hafði Allahverdi búið með fjölskyldu sinni í gömlum lestarvagni í nágrenni Imishli í suðurhluta Aserbaídsjan þegar hann var svo heppinn að fá úthlutað húsi í flóttamannahverfi milli Imishli og borgarinnar Sabirabad sem var reist fyrir flóttamennina fyrir nokkrum árum. Fjöldinn allur af flóttamönnum býr í þessu hverfi en það er liður í áætlun Ilham Alijevs, forseta Aserbaídsjan, að gera átak í húsnæðismálum flóttamannanna og laga félagslegar aðstæður þeirra. Allahverdi rifjar upp búsetuna í lestarvagninum og segir að það hafi verið skelfilegt, kalt og hvorki hægt að kynda upp né elda. Þegar þeim hafi boðist nýtt hús haustið 2003 hafi þau ekki hikað við að taka því boði og nú búi átta manns í húsinu hjá þeim. „Þetta er ágætt húsnæði en við viljum flytja aftur heim í héraðið okkar. Við komum úr fjallahéraði þar sem er ferskt loft en hér niðri á sléttunni er mjög heitt. Ég vona að við getum flutt heim sem fyrst,“ segir hann. Byggir heilu hverfin Ríkisstjórn Ilham Alijevs hefur nú beitt sér í nokkur ár fyrir því að reisa bæi og þorp fyrir flóttamenn- ina, nokkurs konar flóttamannahverfi, og hafa marg- ir þeirra þegar fengið þak yfir höfuðið, garð fyrir búsmalann sinn og skóla og heilbrigðisþjónustu fyrir sjálfa sig og börnin sín. Tæp tuttugu prósent flóttamanna í Aserbaídsjan eru þegar fluttir í slíkt hverfi og stefnt er að því að helmingurinn verði kominn í slíkt áður en árið er liðið. Flóttamennirnir í Aserbaídsjan hafa nú beðið í fimmtán ár eftir því að komast heim og er engan bilbug á þeim að finna. Hagur þeirra fer batnandi en þó er fjarri því hægt að segja að þetta fólk búi við allsnægtir, það lifir á jörðinni og dregur fram lífið á stuðningi frá ríkinu og sölu af afurðum, til dæmis ávöxtum og grænmeti og mjólkinni úr kúnni í bakgarðinum. Það er ekkert afgangs og margir geta ekki einu sinni keypt skólabækur eða skólabúninga fyrir börnin í skólann. Mörg börn sitja því heima og missa af skólagöngu. Armenar eru óvinir okkar Allahverdi verður ákveðinn þegar Armenar koma til umræðu. „Þeir eru óvinir okkar,“ segir hann, „og eiga að skila landinu okkar. Við erum friðsöm þjóð og okkar markmið er að snúa heim aftur.“ Allahverdi telur að sonur sinn, sem nú gegnir herskyldu, sé tilbúinn til að deyja fyrir föðurlandið. Það sama gildi um hann sjálfan. „Við viljum leysa þetta friðsamlega en ef það gengur ekki þá erum við tilbúnir til að fara í stríð,“ segir hann og telur engin mörk á því hversu langan tíma forsetinn hafi til að leysa deiluna um Nagorno-Karabakh og nærsveitir. „Þegar kallið kemur þá förum við í stríð.“ Þrátt fyrir það sem á undan er gengið telur Allahverdi að hann og fjölskylda hans geti átt í vinsamlegum samskiptum við armenska nágranna sína þegar og ef þau snúa aftur. Við komum úr fjallahéraði þar sem er ferskt loft en hér niðri á sléttunni er mjög heitt. Ég vona að við getum flutt heim sem fyrst Reiðubúnir að fara í stríð Í Aserbaídsjan er hátt í ein milljón flóttamanna frá Nagorno-Karabakh og nágrannasveitum og segjast Aserar hafa hæsta hlut- fall flóttamanna í heiminum. Stefnt er að því að helmingur þeirra verði kominn með þak yfir höfuðið í lok árs. Guðrún Helga Sigurðardóttir hitti Allahverdi-fjölskylduna sem bjó í gömlum lestarvagni í rúm tíu ár en býr nú í húsi í flóttamannahverfi. FENGU GOTT HÚSNÆÐI Sadagat Balayeva og Alesgerov Yagub Allahverdi með barnabarn sitt í kjöltunni. Allahverdi-fjölskyldan dregur fram lífið með mjólkinni úr kúnni í bakgarðinum, grænmetisræktun og svo sinnir Alesgerov barnakennslu í flóttamannahverfinu. Samt má segja að þau séu heppin. Fjölskyldan er ein af þeim sem hafa fengið gott húsnæði frá ríkisstjórninni. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐRÚN HELGA SIGURÐARDÓTTIR Í VOSBÚÐ OG KULDA Flóttamennirnir búa enn í vosbúð og kulda í strákofum og gömlum lestarvögnum. Þessi heimilisfaðir er hjartveikur og atvinnulaus. Hvorki hefur gengið né rekið í samningavið- ræðum í deilu Asera og Armena um Nagorno- Karabakh, sem Aserar telja hafa verið hersetið af Armenum frá árinu 1994. Lítið sem ekkert miðar í samkomulagsátt þrátt fyrir viðleitni Minsk-hópsins svokallaða til að miðla málum en hann var stofnaður árið 1992. Í Minsk-hópn- um eru Rússar, Frakkar og Bandaríkjamenn. Aserar vilja fá stuðning þjóða heims; opinbera yfirlýsingu þess efnis að Armenar séu árásarað- ilinn, þeir hafi ráðist inn í Aserbaídsjan. Aðeins þá verði forsenda til friðar og sátta. Stríðsástand á árunum 1992-1994 Mikið gekk á milli þjóðanna tveggja í lok níunda og byrjun tíunda áratugarins þegar Sovétríkin höfðu liðast í sundur og íbúar í Nagorno-Karabakh höfðu samþykkt í atkvæðagreiðslu að segja skilið við Aserbaídsjan. Stríð braust út á árunum 1992-1994. Um 800 þúsund Aserar urðu að yfirgefa heimili sín og 30 þúsund menn létu lífið í átökunum. Þá er talið að hátt í ein milljón flótta- manna sé í Aserbaídsjan í dag, mestmegnis Aserar frá hernumdu svæðunum en einnig flóttamenn frá Tsjetsjeníu og Tyrklandi. Flóttamannabúðirnar eyðilagðar Stefnt er að því að eyðileggja sem flestar flóttamannabúðir, sem hafa verið yfirgefnar fyrir betra húsnæði, í lok þessa árs. „Með hjálp alþjóðasamtaka og ríkisstjórnarinnar er gert átak til að bæta lifnaðarhætti þessa fólks,“ segir Gurban Sadigov, deildarstjóri í aserska stjórnarráðinu, og bætir við að fjárframlag í verkefni til hagsbóta fyrir flóttamenn aukist verulega á þessu ári. Hver fjölskylda fái 10,5 dollara, eða rúmlega 600 krónur, og átta kíló af mat til að lifa af á mánuði frá ríkinu en það sé ekki nóg. Ef forsetinn taki ákvörðun um það verði sú upphæð hækkuð. „Fólk hefur ekki vinnu, ekkert húsnæði, engin föt og það getur ekki lifað af tíu dollur- um. Það er ekki einu sinni nóg fyrir einn dag,“ segir hann. Stjórnvöld í Aserbaídsjan hafa byggt sérstök hverfi fyrir flóttamennina þar sem hver fjöl- skylda fær sitt eigið hús. Í hverfinu eru skólar, heilsugæsla, sjúkrahús, menningarmiðstöðvar, bænahús og jafnvel lystigarðar. Samkvæmt áætlun forsetans frá 2004 fær hver fjölskylda 0,12 hektara garð og land til að yrkja jörðina. „Við reynum líka að hjálpa fólkinu að finna vinnu,“ segir Sadigov en ekki virðist mikla vinnu að hafa úti um landið, í þessum hverfum er það helst í skólunum eða heilsugæslustöð- inni því ekki er um neinn iðnað að ræða eða atvinnuskapandi starfsemi aðra en landbúnað. Aserar byggja efnahag sinn einkum á olíunni og fer sú starfsemi mestmegnis fram á Kaspía- hafi eða við Kaspíahafsströndina. Olían er síðan flutt með olíuleiðslu í gegnum Georgíu til Tyrklands. ➜ EKKERT ÞOKAST Í SAMNINGAVIÐRÆÐUM GURBAN SADIGOV Deildarstjóri í aserska stjórnarráðinu. Í SKÓLANUM Í FLÓTTAMANNAÞORPI Þessi börn eru í hópi þeirra heppnu, þau búa í nýju flóttamannahverfi og ganga í skóla. Staðsetning: Í Kákasus. Um fimmt- ungur, 16 prósent, landsins er undir stjórn Armena í Nagorno-Karabakh. Höfuðborg: Bakú. Íbúar: 8,5 milljónir. Forseti: Ilham Alijev. Ilham Alijev tók við af föður sínum, Heydar Alijev, árið 2003. Ilham Alijev var þá þegar forsæt- isráðherra landsins. Stjórnarandstaðan og vestrænir stjórnmálaskýrendur hafa miklar efasemdir um áhuga Ilhams Alijev á lýðræði, mannréttindum og mál- og prentfrelsi. Armenar styðja Armena í Nagorno-Karabakh og hafa hersetið hátt í fimmtung af Aserbaídsjan frá því um miðjan tíunda áratuginn. Hátt í milljón Asera hraktist frá heimilum sínum á hernumda svæðinu og um 230 þúsund Armenar voru reknir frá Aserbaídjsan. Aserbaídsjan lýsti yfir sjálfstæði sínu frá Rússlandi eftir byltinguna 1918 en Rauði herinn sigraði Asera árið 1920 og varð Aserbaídsjan hluti af Sovét- ríkjunum en lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum í ágúst 1991. Útflutningsvörur: Olía, gas og eldsneyti. Efnahagur: Aserar hafa notið fjárfestinga erlendra olíufyrirtækja og efnast vel síðustu árin. Mikill munur er á efnahagi fólks, ríkidæmi er hjá fáum í Bakú en örbirgð úti á landi. Forsetinn er talinn hafa efnast vel síðustu árin. ➜ ASERBAÍDSJAN RÚSSL.GEORGÍA TYRKL. ÍRAN ASERBAÍDSJAN ARMENÍA KASPÍAHAF Baku Stepanakert Nagorno- Karabakh Jebrayil Imishly
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.