Fréttablaðið - 17.11.2007, Qupperneq 74
17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
Mér finnst Þorsteinn
J. fínn sjónvarps-
maður og nýi þátt-
urinn hans 07/08
góður (að nafngift-
inni frátalinni).
Hins vegar horfði
ég á þáttinn á
fimmtudag og fannst
Þorsteinn gera vafasama
athugasemd við fjölmiðlapistla í
dagblöðum. Í stuttu „Andy
Rooney“ innslagi mátti sjá hvar
Þorsteinn sat í sófa og blaðaði í
Morgunblaðinu þar sem einhver
blaðamaður hafði lýst þeirri
skoðun sinni að Edduverðlauna-
afhendingin væri dapurlegt sjón-
varpsefni undir fyrirsögninni
„Edduhnoð“.
Þorsteini mislíkaði þetta greini-
lega og sagði að það hefði verið
við því að búast að kollegar hans
kveiktu á „röflinu strax eftir
helgina“ enda hefðu „blaðamenn
verið á móti Eddunni frá því að
land byggðist“. Gott og vel.
Þorsteini má alveg finnast þessi
gagnrýni vera röfl. En hann hélt
áfram og sagðist aldrei hafa skilið
af hverju blaðamenn væru „alltaf“
að segja skoðun sína á sjónvarpi
og útvarpi. Að sér fyndist það
jafngilda því að pípulagninga-
menn gerðu úttekt á peningamark-
aðnum eða að gjaldkeri væri
beðinn að mála hús. „Fínt fagfólk,
en bara á sínu sviði sjáiði til,“
sagði Þorsteinn og klykkti út með:
„Hér eru nýjar tölur: Ég held að
landsmenn geti vel lifað án
ljósvakans í Mogganum.“
Þetta síðastnefnda er líklega rétt
hjá honum. Ég efast um að nokkur
maður myndi geispa golunni þótt
fjölmiðlapistlar yrðu þurrkaðir út
af síðum blaðanna. En hver eða
hverjir eiga þá, að mati Þorsteins,
að gagnrýna sjónvarp? Sjónvarps-
menn? Sérþjálfaðir sjónvarps-
gláparar? Kvikmyndafræðingar?
Ég? Má ég, sem blaðamaður, gagn-
rýna sjónvarp sökum fyrri starfa
minna á þeim vettvangi? Eða er
sjónvarpsefni kannski bara yfir
gagnrýni hafið að hans mati?
Svo er nú viss þversögn í því að
gagnrýna blaðaefni í sjónvarpi
fyrir að gagnrýna sjónvarpsefni í
blððum.
STUÐ MILLI STRÍÐA Skrítin athugasemd Þorsteins J.
SIGRÚNU ÓSK KRISTJÁNSDÓTTUR ER VONANDI LEYFILEGT AÐ GAGNRÝNA SJÓNVARPSEFNI
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ef sósan er ekki farin að þykkna
eftir 10 mínútur, helltu innihald-
inu aftur í krukkuna og bíddu
eftir að konan þín komi heim.
Smá upplýsingar! Ég hef
ákveðið að sleppa næsta
skólaári!
Heilinn minn er fullur!
Ég hef lært það sem ég
þarf að vita og sé því
ekki tilganginn með öðru
skólaári!
Ég vildi bara láta
ykkur vita... svo að
þið vitið af hverju ég
hangi hérna heima
yfir daginn!
Þau tóku þessu
mun betur en ég
bjóst við!
Já, heldur
betur! Ég
heyri þau
hlæja!
Palli, pabbi þinn og ég ætlum
að horfa á Castaway...
Viltu horfa
með
okkur?
Gjarnan
kannski það fer eftir
því hvað gerist
áður en hún
byrjar.
Hann er að
setja diskinn í
núna. Ég vil halda öllum
möguleikum
opnum.
Púfr! Ég
held ég sé
veikur...
En nefið
á þér er
ennþá
kalt.
Ég þarf aðra
útskýringu en
það.
Þá það,
þú ert
andfúll.
Ooooooo! Hún
er svo lík þér!
Hún er með munn-
inn og augun hans
Lárusar, en nefið þitt!
...Guði sé
lof!
ÉG HEYRÐI
ÞETTA!
www.skjaldborg.is
Fróðleikur fyrir
lestrarhesta
Risaeðlur
Þetta er án efa ein
allra glæsilegasta
bók um risaeðlur
sem út hefur komið.
Frábærar flettiglærur
og gagnvirkur
geisladiskur skila
lesendum inn í heim
furðulegustu dýra sem gengið hafa hér á jörð.
Fritz Már Jörgensson hefur gefið út tvær spennusögur sem
hafa slegið nýjan tón í íslenskri glæpasagnahefð.
Grunnar grafir
Ung og falleg kona finnst
látin, allsnakin, bundin á
höndum og fótum og ber
merki um ofbeldi.
Lögreglan á í dauðans
kapphlaupi við morðingjann
sem stiklar á mörkunum milli
heima skynsemi og brjálæðis.
Nýr tónn
í íslenskri
glæpasagnahefð
Alþjóðlegur
metsöluhöfundur
Bláklæddu
stúlkurnar tvær
Tvíburunum Kathy og Kelly,
er rænt á þriggja ára
afmælisdeginum þeirra og
foreldrar þeirra krafin um
átta milljón dala lausnargjald.
Orðið er við öllum skilmálum ræningjans en samt finnst
aðeins Kelly og talið líklegt að Kathy hafi verið myrt. Meðan
netið þrengist um ræningjann hangir líf Kathyar á bláþræði.
Um allan heim bíða lesendur í ofvæni eftir hverri nýrri bók
metsöluhöfundarins Mary Higgins Clark. Sem fyrr fer þessi
vinsæli höfundur á kostum og má fullyrða að nýja bókin
hennar Bláklæddu stúlkurnar tvær gefur fyrri bókum
hennar ekkert eftir.
Drifhvítur dauði
Ung kona gerist kennari í litlu
þorpi skammt frá Hamborg en
kemst fljótt á snoðir um myrk
leyndarmál íbúanna. Þegar
ákveðið lag hljómar verða
brúðkaup ungra kvenna þeim
lífshættuleg.
Óvenjuleg
og spennandi
skáldsaga um glæp
Bækur þýska rithöfundarins og tónlistarmannsins
Alexöndru Kui eiga sér tryggan og sífellt stærri hóp
aðdáenda, enda tekst henni að byggja upp dulmagnaða
spennu án þess að fara troðnar slóðir.