Fréttablaðið - 17.11.2007, Page 94
62 17. nóvember 2007 LAUGARDAGUR
Stærsta brúðkaup ársins fer fram
í Fríkirkjunni í dag þegar Jón
Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg
Pálmadóttir verða gefin saman í
hjónaband af sr. Hirti Magna
Jóhannssyni. Fréttablaðið hefur
fyrir því staðfestar heimildir að
það verði enginn annar en Garðar
Thor Cortes sem syngi fyrir gesti
í kirkjuathöfninni en Jón Ásgeir
er einn af velgjörðarmönnum ten-
órsins og hefur stutt dyggilega
við bakið á honum undanfarin ár.
Hvergi er til sparað í undirbún-
ingi brúðkaupsins. Mikil leynd
hefur hvílt yfir umgjörð þess og
allir sem að því koma eru þögulir
sem gröfin. Þó hefur komið fram í
Fréttablaðinu að hljómsveitirnar
Nýdönsk og GusGus muni sjá um
tónlistina í veislunni. Hljóðkerfið
er leigt hjá Exton og hefur nánast
allur mannafli fyrirtækisins unnið
við undirbúning brúðkaupsins frá
því í vikubyrjun. Leigan á kerfinu
kostar að sögn kunnugra
ekki undir tveimur millj-
ónum króna. Auk þessa
hefur stórt tjaldhýsi
verið reist aftan við
Hafnarhúsið og
leigðu brúðhjónin
öll þau tuttugu bíla-
stæði sem það
þekur í tvær
vikur, fyrir tæpar
400 þúsund krón-
ur.
Öll skipulagning er í höndum
breska viðburðafyrirtækisins Élan,
sem meðal annars hefur skipulagt
viðburði fyrir Christian Dior, Bar-
bie, Topshop og Baug Group. Starfs-
fólk Élan mun flytja ýmislegt inn í
tilefni af brúðkaupinu, allt frá
blómaskreytingum til kokka. Sam-
kvæmt Vísi.is eru kokkarnir frá
japönsku veitingastaðakeðjunni
Nobu en eigandi þess er einn af
frumkvöðlum „fusion“ -matar-
gerðar. Vísir.is hefur einnig greint
frá því að Baltasar Kormákur muni
sjá um veislustjórn en hann er sem
kunnugt er kvæntur Lilju Pálma-
dóttur, systur Ingibjargar. Sömu-
leiðis að brúðurin muni fara óhefð-
bundnar leiðir í kjólavali og klæðast
svörtum kjól eftir sjálfan Karl
Lagerfeld en hönnuðurinn er ein-
mitt nágranni hennar og Jóns
Ásgeirs í New York. Hárgreiðslu-
maðurinn Simbi hjá Jóa og félögum
hefur yfirumsjón með brúðar-
greiðslunni.
Sirkus greindi frá því í gær að
Jón Ásgeir og Ingibjörg hefðu
ákveðið að afþakka brúðargjafir. Í
stað þess hafa þau beðið gesti um
framlög í Sólarsjóðinn, góð-
gerðasjóð sem hefur þann til-
gang að létta undir með lang-
veikum börnum og aðstandendum
þeirra. Í bréfi til gesta sögðust þau
hafa látið sér detta í hug að nota
það sem safnast til þess að kaupa
íbúðir í London eða Reykjavík, þar
sem fjölskylda barnsins gæti búið
meðan á meðferð stæði. Jón Ásgeir
og Ingibjörg munu sjálf leggja til
stofnframlag. sigrunosk@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. stynja 6. kyrrð 8. háttur 9.
heyskaparamboð 11. í röð 12. kál 14.
gimsteinn 16. golf áhald 17. angan
18. tunna 20. ætíð 21. kvenflík.
LÓÐRÉTT 1. smæl 3. málmur 4. alls 5.
beita 7. eilífð 10. skordýr 13. spendýr
15. tilbúningur 16. fjör 19. bor.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mása, 6. ró, 8. lag, 9. orf,
11. mn, 12. salat, 14. tópas, 16. tí, 17.
ilm, 18. áma, 20. sí, 21. pils.
LÓÐRÉTT: 1. bros, 3. ál, 4. samtals,
5. agn, 7. óratími, 10. fló, 13. api, 15.
smíð, 16. táp, 19. al.
Fitnessmeistarinn Arnar Grant mun birtast á
forsíðu næsta tölublaðs Fitness-frétta sem nú
er í prentun. Þar verður hann í gervi ofur-
hetjunnar Súperman en búningurinn var mál-
aður á kappann. „Það voru tvær konur í nærri
þrjá klukkutíma að mála mig með litlum
penslum. Lalli Sig ljósmyndari stóð fyrir
tökunni. Hann hefur verið að gera svona öðru-
vísi ljósmyndaverkefni og spurði mig hvort
ég væri ekki til í að vera hinn íslenski Súper-
man. Hann vissi ekki um neinn á landinu sem
er jafn flottur og ég,“ segir Arnar og hlær.
Takan fór fram í vor, á sama tíma og Risessan
lagði leið sína hingað til lands og lagði höfuð-
borgina „í rúst“. „Við notuðum tækifærið og
mynduðum í grennd við verk Risessunnar
svo það liti út fyrir að Súperman hefði átt
þarna hlut að máli.“
Annars er það af Arnari að frétta að hann
undirbýr sig af kappi fyrir fitness-mót á
vegum IFBB sem fram fer í Austurbæ
laugardaginn 24. nóvember. Þetta er hans
fyrsta mót í þrjú ár. „Ég var búinn að vinna
allt sem hægt er að vinna í fitness á Íslandi og
fannst bara komið nóg. En ég fékk svo margar
áskoranir um að vera með að ég ákvað að slá
til,“ segir Arnar og bætir því við að hann
borði sex sinnum á dag. Mataræðið sam-
anstendur að mestu af hafragraut, My
Smoothie, grænmeti, fiski, kjúklingi og popp-
kexi með laxi eða kotasælu. „Maður reynir að
halda þessu fjölbreyttu. Svo drekk ég upp
undir þrjá lítra á dag af Bergtoppi.“ - sók
Arnar Grant er hinn íslenski Súperman
Bloggdrottningin nafnlausa „Meng-
ella Berg“, sem vann sér meðal
annars til frægðar ævilangt bann á
Barnalandi, hefur verið afhjúpuð
og það af sjálfri sér á slóðinni
mengella.blogspot.com. Það reynist
vera Ólafur Sindri Ólafsson, 24 ára
einhleypur og barnlaus Akureyr-
ingur, sem stendur að baki síðunni
umdeildu. Upphafið að endinum
var sú ákvörðun 24 stunda að bjóða
vegleg verðlaun þeim til handa er
gæti upplýst um raunverulegt nafn
Mengellu. Fréttablaðið upplýsti
hins vegar 3. ágúst síðastliðinn að
Ólafur væri á bak við Mengellu.
Ólafur vildi ekki tjá sig um málið
þegar Fréttablaðið leitaði eftir því
í gær.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er Ólafur töluvert dagfars-
prúðari en Mengella og framúr-
skarandi námsmaður. Aðeins 17
ára gamall gaf hann út bókina
Svartiskóli ásamt bróður sínum.
Hann lærði tölvunarfræði við
Háskólann í Reykjavík og fékk þar
verðlaun fyrir námsárangur í
fyrravor. Þrátt fyrir það kláraði
hann ekki námið og skráði sig í
heimspekinám við Háskóla Íslands.
Sagan segir að nú hyggist hann á
nám á sviði lista.
Mengella hefur einkum vakið
athygli fyrir vel skrifaðan texta og
árásir á ákveðna einstaklinga og
hópa, til dæmis Ágúst Borgþór
Sverrisson, Eyvind Karlsson,
Suðurnesjamenn, Barnalands konur
og vélhjólamenn. Samkvæmt
„afhjúpunarfærslu“ Ólafs tók
Mengella að myndast eftir að „hún“
svaraði spurningu á Barnalandi um
rækt gullfiska í heimahúsum: „Þú
sprautar bara úr kavíartúpu í
ylvolgt fiskabúr,“ ritaði Mengella.
„100 g af kavíar ættu að geta af sér
svona 30 heilbrigða fiska á mánuði.
Passaðu bara að kaupa góða tegund,
fólk hefur lent í slæmum hlutum
með svona ódýrum Bónus-kavíar.“
Að sögn Ólafs uppskar þessi
þekking Mengellu nokkra aðdáun
lesenda. - sók
Mengella er afburða námsmaður
ARNAR GRANT Þessi mynd af fitness-
kappanum í gervi Súpermans verður á
forsíðu næsta tölublaðs Fitness-frétta.
MYND/LALLI SIG
ÓLAFUR SINDRI Þekktasti nafnleysingi
bloggheima er kominn fram í dagsljósið
og heitir Ólafur Sindri Ólafsson.
JÓN ÁSGEIR OG INGIBJÖRG: GARÐAR THOR SYNGUR Í FRÍKIRKJUNNI
Brúðkaup ársins í dag
AFÞAKKA GJAFIR Jón Ásgeir og Ingibjörg
hafa verið ötul við að styðja góð mál-
efni. Fram kom í Sirkus í gær að þau
hefðu afþakkað brúðargjafir og bæðu í
staðinn gesti um framlög í góðgerðasjóð
sinn.
KEMUR FRÁ LONDON Garðar
Thor Cortes kemur til landsins frá
London til að syngja í brúðkaupi
aldarinnar í dag.
Stefanía Sigurðardóttir
Aldur: 28 ára
Starf: Nemi og
verkefnastjóri hjá
Innovit, nýsköp-
unar- og frum-
kvöðlasetri fyrir
háskólanema.
Fjölskylda: Er
í sambúð með
Sveini Kristjáns-
syni, 23 ára, og á von á barni.
Foreldrar: Sigurður Viggóson, fram-
kvæmdastjóri Odda á Patreksfirði,
og Anna Jensdóttir, tryggingaráðgjafi
hjá VÍS.
Búseta: Í Breiðholti, flytur á Akra-
nes í desember.
Stjörnumerki: Steingeit
Stefanía birti opið bréf til viðskiptaráð-
herra í Fréttablaðinu í vikunni, þar sem
hún mæltist til þess að stimpilgjöld yrðu
afnumin.
Íþróttafréttamaðurinn og marka-
kóngurinn Hjörtur Hjartarson festi
nýverið kaup á íbúð við
Rauðalæk í Laugardalnum.
Það væri ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær
sakir að annar marka-
kóngur sem einnig er
frá Akranesi, aðstoð-
arlandsliðsþjálfarinn
Pétur Pétursson,
býr beint á móti honum. Þetta ku
vera tilviljun og ekki tilkomið vegna
þess að Hjörtur hyggist minna á sig
sem mögulegt landsliðsefni eftir að
hafa verið markakóngur annarrar
deildarinnar í sumar.
Bloggdrottningin Katrín Atladóttir
sem heldur úti síðunni katrín.is varð
Íslandsmeistari í tvíliðaleik í badmin-
ton ásamt Rögnu Ingólfsdóttur
um helgina. Á bloggsíðu
sinni segist hún hafa
fengið peningaverðlaun,
en þar sem verðlaun í
„badmintonbransan-
um“ séu því miður
ekkert í líkingu við
þau sem tennisstjörn-
ur fá í sinn hlut hafi hún ákveðið að
kaupa sér eitthvað fallegt í stað þess
að eyða aurunum í hversdagslega
hluti. Lokaniðurstaðan varð kjóll í
versluninni Trílógíu.
Og eins og Fréttablaðið hefur greint
frá bauð útvarpsþátturinn A-J, með
leikurunum Atla Þór Albertssyni og
Jóhanni G. Jóhannssyni innanborðs,
gítar Bubba Morthens upp til styrkt-
ar unglingadeild SÁÁ. Gripurinn fór
ásamt gullplötu úr safni kóngsins á
230 þúsund krónur, sem vafalítið
eiga eftir að nýtast vel á góðum
stað. En sögunni lýkur
ekki þar því samkvæmt
heimildum Fréttablaðs-
ins þykir ekki ólíklegt
að Bubbi ætli sér
að gefa annan
gítar til styrktar
sama málefni enda munu nokkrir
fjársterkir aðilar hafa mikinn áhuga
á hljóðfærum goðsins og vera reiðu-
búnir að greiða háar summur fyrir
sex strengja hljóðfæri úr herbúðum
kóngsins. - fgg/sók
FRÉTTIR AF FÓLKI
STJÖRNUBJART Á BRÚÐKAUPSNÓTTINNI
„Mér finnst nú eins og þau
hafi pantað þetta veður,“
segir Sigurður Þ. Ragn-
arsson veðurfræðingur
um veðrið á brúðkaups-
dag Jóns Ásgeirs og
Ingibjargar. „Í
kortunum er
smá kuldi og
það gætu
blásið kaldir
vindar um brúðarhjónin þegar líða
tekur á kvöldið. Hins vegar lítur
allt út fyrir að það rofi til, gæti
verið hálfskýjað en svo gæti líka
orðið stjörnubjart og ástarstjarn-
an Venus því blasað við þeim
þegar þau ganga út úr
kirkjunni. En fólkið
verður að klæða sig
vel, það er alveg víst,“
bætir hann við.
SMS
LEIKUR
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð
.
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
aal
in
d
av
in
d
. K
ó
p
av
Sendu SMS skeytið BTC ATE á
númerið 1900 og þú gætir unnið!
Vinningar: Harry Potter, Pirates, Desperate Houswifes,
Friends, Jungle Book, Hara, Bloodgroup, Mugison, I-pod,
Ferða DVD, Heimabíó, Árskort í Smárabíó, 42"Plasmatæki.
9
HVERVINNUR!
Auglýsingasími
– Mest lesið