Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 90
54 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
Hvítt silkibindi í
uppáhaldi
Ragnar Bjarnason stór-
söngvari notar alltaf tvö-
faldan hnút en þegar hann
lærði af föður sínum að
binda hnút var hann ein-
faldur og þá segir hann að
hann hafi mikið þurft að
passa upp á að bindið næði
ekki niður á mitt brjóst. „Þú
verður að gera þér grein
fyrir því að ég hef verið
með bindi alla ævi. Þetta
var svo stór hluti af kúlt-
urnum hér þegar ég var að
alast upp og þá keypti
maður og gekk með bindi
með hesthausum, stúlkum í
bikiníi og var í gulum sokk-
um við!“ Í dag eru bindin
öllu hefðbundnari og þar er
hvítt silkibindi í uppáhaldi
sem og annað blátt og hvítt
röndótt. „Ætli ég eigi ekki
um einhver 25 stykki en ég
er svo mikill gikkur að ég
nota kannski bara einhver
tvö. Ég er líka þannig að ef
ég á einhverja skó sem eru
góðir, er ég í þeim þar til
konan kippir mér úr þeim.
Og hún hjálpar mér líka að
velja bindin svo þetta sé
allt í stíl.“
Hefur notað sama
hnútinn í 20 ár
Páll Magnússon útvarps-
stjóri notar í dag hnút sem
Sævar Karl kenndi honum
að binda árið 1986 en ein-
hver sagði honum að þetta
væri tvöfaldur Windsor-
hnútur. Fram að því hafði
hann notað einfaldan ferm-
ingarbarnahnút. „Ég á gríð-
arlega mörg bindi og stund-
um gef ég þau í stórum
skömmtum. Gamli frétta-
stjórinn minn, Leifur
Björnsson heitinn, lagði mér
eina lífsreglu en hann sagði
við mig að vera alltaf með
bindi – „því það trúir engum
neinum manni sem er ekki
með bindi“. Þegar ég hef
sérstaka þörf fyrir að láta
trúa mér set ég því upp
bindi.“ Páll segir það fara
eftir aðstæðum og skapi
hvernig bindi hann setur
upp en hann kaupir þau nán-
ast öll hjá læriföður sínum,
Sævari Karli. „Ég kom mér
einhvern tímann upp einni
viðmiðun, að ef ég ætla að
vera með sterk og áberandi
bindi er ég frekar með þau
við einlita skyrtu og jakka-
föt. Ég hef átt nokkur svaka-
leg bindi en það versta er
nærbuxnableikt bindi sem
ég notaði einu sinni áður en
ég komst að því hvernig ég
leit út með það. Það er í hópi
þeirra sem verða næst gefin
þótt ég geti ekki ímyndað
mér að nokkur lifandi maður
vilji eiga það. Það stendur
allavega til boða.“
Bindið er hluti af mér
Skjöldur Sigurjónsson kaup-
maður segir að það hafi verið
faðir sinn sem kenndi honum
upphaflega að hnýta einfald-
an bindishnút. „í dag nota ég
yfirleitt tvöfaldan Windsor en
þó kemur fyrir að ég bregði
upp einföldum. Ég set á mig
alls kyns bindi, í öllum litum
og gerðum, allt eftir skapi, en
í uppáhaldi er samt þetta
klassíska svarta og ég er mjög
mikið með það. Ætli ég eigi
ekki um 40 bindi – ef frá eru
talin bindin í búðinni minni.“
Skjöldur segir að í jólamán-
uðinum finnist honum mjög
gaman að vera með rauðleit
bindi og hann segist svo vanur
að ganga með bindi að hann
finni ekkert fyrir því – það sé
bara hluti af hans kúltúr.
„Bindi eru engin auka þyngsl
fyrir mér eins og þau eru
fyrir svo mörgum. Ég vel
bindið eins og áður sagði út
frá tilefni en það þýðir samt
ekki að í gleði velji ég endi-
lega skærleitt bindi, þau
dökku ganga líka þá. Ljótustu
bindin, sem ég vil alls ekki
láta sjá mig með, eru pastel-
lituð bindi, þau eru hrikaleg.“
Konurnar kenna mér
og leiðbeina
Snorri Helgason, söngvari
Sprengjuhallarinnar, segir
að það hafi verið konur sem
kenndu honum að hnýta
bindishnúta. „Það var ann-
aðhvort systir mín Heiða
eða Silla, sem var kærastan
mín þegar ég var 15 ára.
Þetta var að minnsta kosti
ekkert „Hallmark-dæmi“,
þar sem pabbi tók mig afsíð-
is og sagði við mig að nú
væri ég orðinn maður. Ég
nota þennan hnút enn þá,
sem er hefðbundinn einfald-
ur. Ég hef nokkrum sinnum
reynt að læra þennan tvö-
falda en aldrei náð því.“
Snorri segist eiga um tíu
bindi en hann hrífst einkum
af skáröndóttum bindum og
á eitt grænt uppáhalds. „Ég
vil alls ekki hafa þau glans-
andi heldur mött og þau
mega vera í frekar hefð-
bundnum litum, rauð eða
græn. Ég kaupi bindin yfir-
leitt í „second-hand“ búðum
og reyni að gera góð kaup.“
Einn einfaldan
eða tvöfaldan
Hátíðin nálgast og jafnvel þeir sem fúlsa við bindum allan árs-
ins hring bregða einu um hálsinn í tilefni jólagleði og áramóta.
Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti fjóra karlmenn, hvern af
sinni kynslóð, sem sögðu henni frá litum, hnútum og leyndar-
dómum hálsbinda sinna.
BINDIN KLASSÍSKARI EN ÁÐUR Raggi Bjarna hefur gengið með hálsbindi í marga áratugi og segir þau mun
hógværari en áður þegar hann var með þau skærlit og sokka í stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
BLEIKT BINDI FÆST GEFINS Páll Magnússon útvarpsstjóri þykist viss
um að enginn vilji eiga ljótasta bindið í skápnum sínum en það
standi samt til boða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVART OG HEFÐBUNDIÐ
Bindin sem eru í uppáhaldi hjá
Skildi Sigurjónssyni kaupmanni
eru svört og klassísk. Hann notar
jafnan tvöfaldan Windsor-hnút til
að binda þau. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
YNGSTA KYNSLÓÐIN Á ÁTTA
BINDI Snorri Helgason, söngvari
Sprengjuhallarinnar, vill engin
„bankastrákabindi“ og hefur
reynt að læra tvöfaldan Windsor-
hnút í lengri tíma með litlum
árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjórir algengustu bindishnútarnir kallast Wind-
sor-hnútur, tvöfaldur Windsor-hnútur, „four in
hand“-hnúturinn og svo er það slaufuhnútur.
Four in hand-hnúturinn er fremur mjór og
látlaus og er gott að nota þegar bindin eru
efnismikil og breið en sértu með efnislítið
bindi getur hnúturinn líka gert þau bindi
breiðari.
Windsor-hnúturinn er þríhyrndur og
veglegur og hafirðu hann tvöfaldan ertu
enn meiri á velli. Góður bankastjóra-
hnútur.
Slaufuhnútur er fyrir þá sem kjósa
gömlu góðu slaufuna og kunna að
bregða á leik með bindið.
Fyrir þá sem vilja ná valdi
á þessum bindishnútum og
fleiri fyrir hátíðina má benda á
nokkrar handhægar vefsíður með
nákvæmum leiðbeiningum og
skýringarmyndum:
http://www.tie-a-tie.net/
http://www.totieatie.com/
http://www.scoutdb.org/h2tat/
FJÓRIR GRUNNHNÚTAR