Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 46
38 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 7 16 10 12 7 14 12 16 14 DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6 - 8 RUN FATBOY RUN kl. 8 - 10 HITMAN kl. 6 - 10 7 16 16 16 14 14 SAW 4 kl.6 - 8 - 10 BUTTERFLY ON A WHEEL kl.5.45 - 8 - 10.15 DAN IN REAL LIFE kl.5.45- 8 - 10.15 LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl. 8 - 10.40 ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ 6.-12. DESEMBER UNO SU DUE kl. 6 DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 4 - 6 - 8 - 10 DUGGHOLUFÓLKIÐLÚXUS kl. 4 - 6 BEE MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6 - 8 HITMAN kl. 5.50 - 8 - 10.10 HITMANLÚXUS kl. 8 - 10.10 DAN IN REAL LIFE kl. 8 - 10.15 WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4 THE HEARTBREAK KID kl. 10 DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6 - 8 - 10 BUTTERFLY ON A WHEEL kl. 5.45 - 8 - 10.15 ACROSS THE UNIVERSE kl. 5.20 - 8 - 10.40 RENDITION kl. 8 -10.30 VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu NÝTT Í BÍÓ! FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM! 5% 5% 5% Hvað myndir þú gera til að vernda fjölskyldu þína? Pierce Brosnan heldur hjónunum Gerald Butler og Maria Bello í heljargreipum! En ekki er allt sem sýnist í þessari mögnuðu spennumynd! Kalli er sendur á afskekktan sveitabæ til pabba síns þar sem hann villist, lendir í snjóbyl og hittir fyrir bæði ísbjörn og dularfullar verur ofl! Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum frábæru tölvuleikjum! 5% - bara lúxus Sími: 553 2075 SAW IV kl. 8 og 10 16 BEE MOVIE - ENSKT TAL kl. 6 og 8 L BEE MOVIE - ÍSLENSKT TAL kl. 6 L HITMAN kl. 8 og 10 16 MR. WOODCOCK kl. 10 L LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR Miðasala á tónleika rokksveitar- innar Jet Black Joe í Laugardals- höll hinn 16. maí á næsta ári hefst í dag klukkan 10 á midi.is, Skífunni og BT úti á landi. Á tónleikunum spilar Jet Black Joe með félögum úr Gospelkór Reykjavíkur undir stjórn Óskars Einarssonar, auk fjölda söngvara og hljóðfæraleik- ara. Á meðal laga sem flutt verða eru Rain, Higher and Higher, I Know og Oh Happy Day. Miðaverð er 6.900 og 5.900 krónur. Miðar seldir á Jet Black Hljómsveitinni Hraun tókst ekki að bera sigur úr býtum í hljómsveitakeppni breska ríkisútvarpsins, BBC, sem var haldin á sunnudag. Alls komust fimm sveitir í úrslitin þar sem Hraun söng lag sitt Ástarsaga úr fjöllunum. „Þetta gekk rosalega vel. Við unnum ekki en vorum kjörnir vin- sælasta stúlkan. Loftur var kjörinn baðfatamódelið og Hjalti Oroblu- strákurinn,“ segir söngvarinn Svavar Knútur, sem má ekki greina frá sigursveitinni. Verður hún til- greind á stórum tónleikum næst- komandi laugardag sem verða haldnir í tilefni af 75 ára afmæli BBC. Alls kepptu fimm hljómsveitir í úrslitunum. Auk Hrauns voru þar sveitir frá Frakklandi, Kenýa, Sam- einuðu arabísku furstadæmunum og Serbíu. „Við náðum rosalega góðum tengslum við kenýsku hljómsveitina, Yunasi. Við gerðum saman ódauðlega útgáfu af Á Sprengisandi með afrískum tromm- um. Við djömmuðum saman og bjuggum til blöndu af afrískum og íslenskum þjóðlögum,“ segir Svavar, sem vill endilega fá sveit- ina á næsta Vorblót. Allir fengu Ástarsögu Hraun kom færandi hendi til Bret- lands því eftir keppnina fékk dóm- nefndin, hinir keppendurnir og allt starfsfólk BBC sem vann við keppn- ina afhenta bók Guðrúnar Helga- dóttur, Ástarsaga úr fjöllunum. Kunni fólkið þeim vitaskuld bestu þakkir fyrir. Hljómsveitin spilaði einnig óvænt á tónleikum í miðborg London á föstudagskvöldið. „Við vöktum mikla lukku á meðal áhorf- enda. Ég held við höfum gert góða hluti enda dönsuðum við og öskruð- um.“ Svavar sér ekki eftir því að taka- þátt í keppninni. „Það var gaman að kynnast öllu þessu fólki. Þetta sner- ist ekkert um að vinna heldur var þetta bara virkilega skemmtilegt tækifæri og við nýttum það til hins ítrasta. Okkur stendur til boða að fara til Nairobi, Parísar, Dubai, London og Kanada, þannig að við erum alveg góðir. Vonandi verður Reykjavík Loftbrú dugleg að hjálpa okkur.“ freyr@frettabladid.is Snerist ekki um að vinna HRAUN Loftur Loftsson (til vinstri) og Svavar Knútur úr hljómsveitinni Hraun sem náði ekki að vinna hljómsveitakeppni breska ríkisútvarpsins, BBC. Medal of Honor Airborne er nýjasti fyrstu persónu skotleikurinn frá Electronic Arts í seinni heimsstyrj- aldar seríu þeirra. Þú stígur í spor Boyds Travers, nýs meðlims 82 Air- borne-deildarinnar, og ferð með henni í gegnum orrustur um víða Evrópu allt frá Sikiley, Hollandi og til loka stríðsins í Þýskalandi. Hvert verkefni byrjar með grípandi fall- hlífarstökki sem þú stjórnar sjálf- ur aftur fyrir varnarlínur óvin- anna. Eftir nokkra misgóða leiki hefur EA ákveðið að gera breytingar á seríunni sinni. Hvernig tókst það svo? Leikurinn lítur mjög vel út að mestu og skartar Unreal 3 grafík- vélinni, þeirri sömu og t.d. Gears of War og Unreal Tournament 3 nota. Borðin eru fjölbreytt, allt frá ströndum Normandí, brúa og borga í Hollandi og auðvitað stríðshrjáðu Þýskalandi. Leikurinn kemur með margar nýjar hugmyndir til leiks eins og t.d. frjálsar leiðir til að klára borðin eftir þeirri röð sem maður velur. Önnur er að geta valið sér lendingarstað þar sem orrustan hefst. Að geta uppfært vopnin sín eftir því hversu mikið þau eru notuð er enn einn möguleikinn. Það eru nokkrir hlutir sem draga þennan leik niður, sérstaklega gervigreind óvinanna sem eiga það stundum til að standa og láta skjóta sig, og algert gagnsleysi liðsfélaga þinna. Þú velur þér leið í borðinu, en það skiptir litlu máli hvaða leið þú ferð. Það skortir afleiðingar af verkum þínum. Loforð leiksins um að geta uppfært vopnin virkar illa útfært. Þú getur staðið fyrir ofan óvininn og hreinsað skothylki í hann og hann fær ekki einu sinni blóðnasir. Það er ekki fyrr en undir lok leiksins sem vopnin byrja að hafa eitthvað að segja, og þá verða sum þeirra of öflug. Þegar upp er staðið er MoH: Air- borne samansafn af góðum hug- myndum sem hefðu getað orðið að frábærum leik, en í staðinn endar þetta sem miðlungsleikur sem er best geymdur fyrir harða aðdáend- ur seinni heimstyrjaldarinnar sem fá aldrei nóg að því að ganga frá hinum illu nasistum. Sveinn A. Gunnarsson Barist í Seinni heimsstyrjöld TÖLVULEIKIR Medal of Honor: Airborne Pc og X-Box 360 og er væntanlegur á Ps3 ★★★ Airborne er ágætis leikur sem því miður er svikinn af göllum og slakri gervi- greind. Karl Hákonarson, fyrrverandi liðsmaður Tenderfoot, var fyrir skömmu með lag í sjónvarps- þættinum Criminal Minds, eða Glæpahneigð, sem er sýndur í Ríkissjónvarpinu á mánudags- kvöldum. Um er að ræða lagið River of Darkness sem er á fyrstu sóló- plötu Kalla, While the City Sleeps, sem kom út hérlendis í fyrra. Hún er einnig komin út í Bandaríkjunum og í Englandi á vegum útgáfufyrirtækisins One Little Indian. Næstu tónleikar Kalla verða á tónlistarhátíð í Bremen í Þýska- landi 22. desember þar sem My Summer as a Salvation Soldier kemur einnig fram. Með lag í Glæpahneigð KARL HÁKONARSON Fyrrverandi söngvari Tenderfoot á lag í sjónvarpsþættinum Criminal Minds.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.