Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 40
32 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR menning@frettabladid.is ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is 12 - 24V “booster” Frábært verð. Start- og hleðslutæki Áfram heldur upplestrarkvöldum í Súfistanum á Laugavegi í Reykjavík yfir Bókabúð Máls og menningar. Í kvöld er það Bókaútgáfan Salka em býður upp á lestur kl. 20. Þar verða matreiðslu- bókin Eldaðu maður, og bækurnar Talað út um lífið og tilveruna og Maður gengur með kynntar. Eldaðu maður, eftir Thomas Möller, er bráð skemmtileg matreiðslubók sem kemur karlmönnunum að eldavélinni. Thomas kennir réttu handtökin við að heilla hvern sem er upp úr skónum. Í Talað út um lífið og tilveruna fjallar Jónína Leósdóttir í léttum dúr um ýmsar hliðar mann- legra samskipta. Jónína segir hispurslaust frá eigin reynslu og kryddar með hárbeittum húmor. Maður gengur með, eftir Darra Johansen, segir frá níu mikilvægum mánuðum. Þetta er sagan af meðgöngu barns séð með augum verðandi föður. Þessar þrjár bækur skoða mannlífið með öðrum brögðum en skáldskaparins þótt höfund- arnir beiti brögðum frásagnrlistarinnar til að fjalla um þætti mannlífsins sem flestallir hafa bein kynni af. Súfistakvöld með Sölkuhöfundum BÓKMENNTIR Jónína Leósdóttir les upp á Súfistan- um í kvöld. kl. 20.30 á rás 1 Ríkisútvarpsins eru síðustu forvöð að heyra þá félaga Eirík G. Stephensen og Hjörleif Hjartarson í Hundinum fræga flytja nokkur ódauðleg lög í íslenska lagabankan- um með sínum einstaka hætti. > Ekki missa af endursýningum á öllum þáttum Næturvaktarinnar sem hófust í gær á Stöð 2. Þar verða þættirnir daglega á dagskrá kl. 19.50 en þeir eru þrettán talsins og tólf eftir. Sjálfseignarstofnunin Gásakaupstaður var stofn- uð á fimmtudag í síðustu viku við hátíðlega athöfn á Minjasafninu á Akureyri. Að stofnuninni standa Akureyrarbær, Dalvíkur- byggð, Eyjafjarðarsveit, Gásafélagið, Grýtubakka- hreppur, Hörgárbyggð, Minjasafnið á Akureyri, Svalbarðsstrandarhreppur og Laufáshópurinn (Gása- hópurinn). Við þetta merka tækifæri veittu bæði fjárfestingarbankinn Saga Capital og KEA svf. stofn- uninni styrk sem mun fara í uppbyggingu þjónustu á Gásum strax á næsta ári. Gásakaupstaður, sem eru friðlýst- ar fornleifar í umsjá Fornleifa- verndar ríkisins, er 11 km norðan við Akureyri. Hvergi á Íslandi eru varðveittar jafnmiklar mannvistar- leifar frá verslunarstað frá mið- öldum eins og á Gásum, en Gása- kaupstaður var helsti verslunarstaður á Norðurlandi um tíma. Á árunum 2001-2006 stóð yfir viðamikil fornleifarannsókn sem gaf margar forvitnilegar niður stöður sem ýttu enn frekar undir hugmyndavinnu varðandi uppbyggingu þjónustu á svæðinu. Hugmyndirnar að uppbygging- unni eru mótaðar til þess að vernda fornleifarnar og miðla með skemmtilegum og fróðlegum hætti sögu og náttúru staðarins á fagleg- an hátt. Hugmyndirnar felast meðal annars í því að gera mið- aldakaupstaðinn á Gásum lifandi á ný þar sem handverksfólk verður að störfum og leik. Áherslan verð- ur á miðaldir: verslun, viðskipti, handverk og iðnað. Gásir verður um leið afþreyingargarður með menningarlegu ívafi sem byggist á fornleifum, sögu og náttúru stað- arins. Byggja á upp spennandi og einstakt leiksvæði í miðaldastíl, reisa þjónustubyggingu, sem hýsa mun framúrskarandi sýningu þar sem skemmtimennt er höfð að leiðarljósi, en hún myndi einnig hýsa minjagripaverslun, veitinga- sölu, fjölnota sal og síðast en ekki síst veita fræðimönnum á ýmsum sviðum afdrep til rannsókna. Á næsta ári er ætlunin að setja upp fræðsluskilti og stíga auk þess sem unnið verður að því í sam- vinnu við Fornleifavernd ríkisins að ganga frá búðartóftunum sem grafið hefur verið í síðustu árin. Í síðustu viku úthlutaði þjóðhátíðar- sjóður veglegum styrk til þess að vinna að frágangi og varðveislu á búðartóftunum. Menningarráð Eyþings hefur styrkt stofnunina til þess að skrifa barnabók um Gásir og hefur Bryn- hildur Þórarinsdóttir, margverð- launaður barnabókarithöfundur og bæjarlistamaður Akureyrar 2006, tekið það spennandi verk- efni að sér. Stefnt er að því að bókin verði tilbúin til útgáfu árið 2009. Næsta sumar, nánar tiltekið 19. og 20. júlí, mun miðaldakaup- staðurinn lifna við eins og undan- farin ár þegar innlent og erlent handverksfólk kynnir gestum og gangandi lífið á miðöldum. Það eru því margir spennandi hlutir sem ný sjálfseignarstofnun sér fram á að vinna með á komandi árum. pbb@frettabladid.is Uppbygging hafin á Gásum FORNELIFAR Uppgröftur á Gásum í Eyjafirði. Grunnur kirkju frá um 1300. MYND/ORRI VÉSTEINSSON – FORNLEIFASTOFNUN ÍSLANDS Á aðventu hefur Langholtskirkjukórinn haldið þeim sið að efna til tónleika helgaða jólatónlist og verður þeim sið haldið áfram í vikunni í þrítugasta sinn. Fyrstu jólasöngvarnir fóru fram í Landakots- kirkju 1978 og voru þá nýmæli hérlendis. Þessi siður hefur nú öðlast miklar vinsældir og ótöluleg- ur fjöldi jólasöngva fer nú fram um allt land. Í þetta skipti eru tvennir tónleikar á föstudegi líkt og verið hefur á laugardögum allmörg undanfarin ár, hinn 14. desember kl. 20 og 23, og 15. desember kl. 20 og 23. Sterk hefð hefur myndast á efnisskránni. Kórarnir flytja jólalög hvor fyrir sig og einnig saman, bæði hátíðleg lög og með léttri sveiflu. Áheyrendur taka virkan þátt í almennum söng. Hljóðfæraleikarnir Hallfríður Ólafsdóttir og Arna Kristín Einarsdóttir leika á flautur, Monika Abendroth á hörpu og Lára Bryndís Eggertsdóttir á orgel. Um létta djasssveiflu sjá Kjartan Valde- marsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á trommur. Einsöngvarar að þessu sinni eru þau Bragi Bergþórsson og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einnig syngja sex kórfélagar einsöng. Nýmæli á þessum tónleikum er jólalag sem byggt er á stefi úr 6. sinfóníu Tsjaíkovskíj og Glenn Miller gerði vinsælt á sínum tíma. Jón Stefánsson útsetti fyrir kórinn en Björn Ingiberg Jónsson gerði íslenskan jólatexta og syngur jafnframt einsöng. - pbb Jólasöngvar í Langholtskirkju TÓNLIST Langholtskirkjukórinn flytur jólasöngvadagskrá í vikunni þrítugasta árið í röð. Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.