Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 2
2 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
REYKJAVÍK Hluti af svæði Háskóla
Íslands fylgdi með í kaupunum
þegar viljayfirlýsing var undir-
rituð í maí um 11.000 fermetra lóð í
Vatnsmýrinni til handa Listahá-
skóla Íslands.
Hvorki skipulagssvið borgar-
innar né forsvarsmenn Háskóla
Íslands (HÍ) munu hafa gert sér
grein fyrir þessu á sínum tíma.
Minnisblað frá skipulagssviði til
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, þáver-
andi borgarstjóra, segir landið
borgarland.
Ragnar Ingimarsson prófessor
vék að þessu í ræðu sem hann flutti
á hátíðarsamkomu stúdenta 1.
desember. Ragnar, sem hefur
komið að byggingamálum HÍ um
árabil minnti á að reiturinn er frá-
tekinn fyrir náttúrugripasafn.
„Byggingarreitur G er einungis
hugsaður fyrir náttúrufræðasafn
og tengda starfsemi Náttúrufræði-
stofnunar,“ segir í deiliskipulagi
Reykjavíkur, sem enn er í gildi.
Því þarf að breyta deiliskipulagi
til að Samson Properties, byggingar-
félag Björgólfsfeðga, geti byggt
þar annað en náttúrugripasafn.
Björgólfsfeðgar eignuðust lóð- ina nýverið, í makaskiptum við
LHÍ, gegn lóð við Frakkastígsreit.
Við undirritun viljayfirlýsingar-
innar kom fram að LHÍ mætti
skipta lóðinni út fyrir aðra lóð.
Rektor LHÍ lýsti þeirri skoðun
sinni þá að hann gæti betur hugsað
sér skólann í miðbænum.
Spurð um hvort Háskólinn hafi
farið fram á bætur vegna þessa,
segir rektor HÍ, Kristín Ingólfs-
dóttir að þegar skólinn láti eftir
lóðir sé komið til móts við hann
með lóðum annars staðar. Þetta sé
„allt í góðu“ og henni hugnist vel
ríkur samstarfsvilji borgarstjóra
og Samson Properties.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri hefur lýst því við Fréttablað-
ið að reitur G verði skipulagður í
nánu samstarfi við HÍ. Þar verði
háskólatengd starfsemi.
Mikið er að gerast í lóða- og
byggingamálum skólans, segir
rektorinn. Ekki hafi verið ákveðið
hvað skólinn vilji helst að Björg ólfs-
feðgar byggi á lóðinni.
klemens@frettabladid.is
Sigmundur, er svona mikið
kvalræði að búa í Grafarvogi?
„Grafarvogur er paradís fyrir lifendur
og dauða. Hvalinn hefur langað í
kirkjugarðinn okkar, en ekki komist
lengra.“
Höfrungur sást á sundi í Grafarvogi í síð-
ustu viku en fannst dauður í flæðarmál-
inu á laugardag. Sigmundur Ernir Rúnars-
son fjölmiðlamaður býr í Grafarvogi og er
stundum kallaður Grafarvogsskáldið.
NÝ LJÓÐABÓK EFTIR
GALDRAMEISTARANN
Eins og forskrift að skáld-
skaparfræðum nýrrar aldar.
– Sigurður Hróarsson, Fréttabl.
Tilnefning 2007 D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
Borgarstjóri gaf
eignir Háskólans
Lóð í Vatnsmýri sem var gefin Listaháskóla er skilgreind „einungis fyrir náttúru-
fræðisafn“ og tilheyrir að hluta Háskóla Íslands. Hvorki HÍ né skipulagssvið
borgarinnar gerðu sér grein fyrir því. Listaháskóli hefði ekki komist á reitinn.
SKÝR LANDAMÆRI Ofan línu er landsvæði HÍ en borgarland fyrir neðan. Reitur G er
á mörkunum, rauður. Náttúrugripasafn átti að rísa á gula reitnum. Svarta svæðið átti
að vera bílastæði. Þau verða líklega neðanjarðar, í takt við breytta tíma. Byggingar-
magn gæti því aukist mikið frá ríkjandi deiliskipulagi. FRÉTTABLAÐIÐ/LOFTMYNDIR.IS
DÝRALÍF Aðventan er sá tími árs
þegar náungakærleikurinn svífur
yfir vötnum. Þá er einnig
mikilvægt að gleyma ekki þeim
fáu þröstum sem ákveða að
þrauka með okkur veturinn en
frostharkan undanfarnar vikur
hefur eflaust fengið þá til að
öfunda hina fjölmörgu bræður
sína sem hurfu á hlýrri slóðir.
„Það er gott að gefa þeim epli
eða eitthvert kjötmeti,“ segir
Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðing-
ur. Þessi heppni þröstur sem varð
á vegi ljósmyndara Fréttablaðs-
ins á Laugaveginum varð aldeilis
ekki útundan í þenslunni sem vill
verða í meira lagi fyrir jólin.
Meðan mannfólkið vappaði milli
verslana gæddi sá vængjaði sér á
epli sem væntanlega dugði honum
þann daginn enda á stærð við
hans eigin búk. - jse
Erfitt tíðarfar fyrir þresti:
Þröstur í góð-
um málum
VEISLA VIÐ LAUGAVEGINN Þessi þröstur
hugsar eflaust hlýlega til vegfarandans
sem henti þessu epli en það er heldur
hart í ári hjá þeim litlu vængjuðu í
þessu tíðarfari. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Olíuleki í Ártúnsbrekku
Engan sakaði þegar þrír bílar lentu í
árekstri í Ártúnsbrekku á Vesturlands-
vegi um hádegisbilið í gær. Nokkurt
magn af olíu lak af einum bílanna og
kallaði lögreglan til Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins til þess að hreinsa
olíuna af götunni.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögregl-
unnar á Suðurnesjum á banaslys-
inu á Vesturgötu í Reykjanesbæ
stendur enn. Fjögurra ára drengur
lést í slysinu.
Niðurstöður samanburðarrann-
sókna á fatnaði drengsins og
trefjum sem fundust á bíl hins
grunaða eru væntanlegar í dag. Í
kjölfarið verður ákveðið hvort
farið verður fram á framlengingu
gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir
hinum grunaða en gæsluvarðhald
yfir honum rennur út í dag. Hann
neitar sök í málinu. - þo
Banaslysið í Reykjanesbæ:
Niðurstöðurnar
væntanlegar
SLYS Einn var fluttur slasaður
með sjúkrabíl til Reykjavíkur
eftir umferðaróhapp við Hvera-
dalabrekku á Hellisheiði um
níuleytið í gærkvöld.
Hinn slasaði var ökumaður
fólksbíls sem hafði runnið í veg
fyrir jeppling sem kom úr
gagnstæðri átt. Ökumaður
jepplingsins hlaut minniháttar
meiðsli.
Afar slæmt veður var þegar
slysið varð; illfært og lélegt
skyggni. Loka þurfti veginum
eftir slysið og voru bílarnir fluttir
brott með kranabíl.
Víða var illfært á vegum vegna
veðurs í gærkvöld. - þo
Umferðaróhapp á Hellisheiði:
Einn slasaðist í
árekstri í hálku
BRUNI Rannsókn lögreglunnar á
Suðurnesjum á eldsvoðanum í
Vogum á Vatnsleysuströnd þar sem
tíu glæsibílar og einn bátur brunnu
til kaldra kola um liðna helgi er enn
á frumstigi. Líklegt þykir að kveikt
hafi verið í en ekki hefur verið úti-
lokað að eldurinn hafi kviknað með
öðrum hætti.
Í gær var farið yfir vísbendingar
og meðal annars voru skoðaðar
upptökur úr öryggismyndavélum
sem staðsettar voru í grenndinni.
Sjónarvottur sem gaf sig fram
við lögreglu sagðist hafa séð tvo
pilta hlaupa af vettvangi auk þess
sem bíl sást ekið frá skemmunni
sem bílarnir stóðu við skömmu
áður en eldsins varð vart. Jóhannes
Jensson aðstoðaryfirlögregluþjónn
segir að enginn hafi verið yfir-
heyrður vegna málsins. Bílarnir
voru í vörslu Annþórs Karlssonar,
sem hlotið hefur dóma fyrir ýmis
brot. Eigandi bílanna, Ragnar
Magnússon, segir ekkert grunsam-
legt við veru bílanna í portinu.
„Mér sárnar orðrómurinn sem er á
kreiki um að ég hafi haft eitthvað
með þennan bruna að gera. Það er
hreinlega búið að sverta mannorð
mitt,“ segir Ragnar.
Bílarnir, sem Ragnar hugðist
selja, voru tryggðir hjá Sjóvá
almennum og TM. Tjónið nemur
rúmum sjötíu milljónum króna en
bílarnir voru kaskótryggðir svo
Ragnar vonar að fjárhagslegt tjón
hans verði ekki mikið. - þo
Rannsakað hvort kveikt hafi verið í bílunum sem brunnu í Vogum:
Eigandanum gremst umtalið
ALLT BRUNNIÐ Í portinu var meðal
annars einn Hummer, þrír bílar af gerð-
inni BMW og tveir Mercedes Benz auk
Dodge Prowler og Dodge Charger sem
voru hálfgerðir safngripir. MYND/VÍKURFRÉTTIR
NOREGUR, AP „Það sem er að er við
sjálf, og það erum við sem
verðum að lagfæra það,“ sagði Al
Gore, fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna, í gær þegar hann
tók á móti friðarverðlaunum
Nóbels í Ósló ásamt Rajendra
Pachauri, formanni milliríkja-
nefndar Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsmál.
Gore og milliríkjanefndin deila
með sér þessum verðlaunum í ár
fyrir að „efla og útbreiða
þekkingu um loftslagsbreytingar
af mannavöldum, og fyrir að
leggja grunn að þeim ráðstöfun-
um sem grípa þarf til í því skyni
að vinna á móti slíkum breyting-
um,“ eins og segir í rökstuðningi
Nóbelsnefndarinnar. - gb
Friðarverðlaun Nóbels afhent:
Gore hvetur til
frekari dáða
AL GORE OG RAJENDRA PACHAURI Tóku
við Friðarverðlaununum í gær.
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþingis vill að stjórn-
endum ríkisstofnana sé gerð grein fyrir þeirri
afstöðu fjármálaráðuneytisins að forstöðumenn
megi ekki gera starfslokasamninga við starfsfólk
nema hafa til þess sérstakar lagaheimildir.
Í fyrra gerði utanríkisráðuneytið tvo starfsmenn
að sendiherrum gegn því að þeir létu síðan af
störfum, annars vegar fimm árum og hins vegar sjö
árum áður en þeir hefðu að óbreyttu farið á eftir-
laun. Með þessu fengu starfsmennirnir verulega
hærri eftirlaun. Kona sem hætti störfum í utanríks-
ráðuneytinu á svipuðum tíma leitaði til Umboðs-
manns þar sem henni voru boðin miklu lakari kjör
en mönnum tveimur við starfslok. Umboðsmaður
ákvað af þessu tilefni að skoða starfslokasamninga
hjá ríkinu almennt.
Fjármálaráðuneytið kvaðst í svarbréfi til umboðs-
manns telja að forstöðumönnum væri ekki heimilt
að taka ákvörðun um gerð starfslokasamninga.
Umboðsmaður segir í áliti sínu að dæmi séu um
gagnstæð viðhorf hjá stjórnendum ríkisstofnana.
Brýnt sé að farið sé að reglum stjórnsýsluréttar:
„Það að leiða starfslok ríkisstarfsmanna til lykta
með samningi í stað þess að taka um þau ákvarðanir
að loknum undirbúningi í samræmi við lög og reglur
stjórnsýsluréttarins víkur frá því réttaröryggi sem
þessum reglum er ætlað að tryggja,“ segir umboðs-
maður og bætir við:
„Þessum reglum er líka ætlað að koma í veg fyrir
að ákvarðanir um starfslok ríkisstarfsmanna ráðist
af duttlungum eða persónulegum sjónarmiðum
viðkomandi forstöðumanns.“ - gar
Umboðsmaður Alþingis vill að starfslokasamningar séu óháðir duttlungum:
Vill reglu á starfslokasamninga
TRYGGVI GUNNARSSON
Umboðsmaður Alþingis
kallar eftir skýrum
reglum um starfsloka-
samninga hjá ríkinu.
Askja náttúru-
fræðihús
Náttúrufræðisafn
(Listaháskóli)
Íslensk
erfðagreining
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
Þáverandi borgar-
stjóri undirritaði
viljayfirlýsingu
ásamt mennta-
málaráðherra í maí
um lóð fyrir Listahá-
skólann.
SPURNING DAGSINS