Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 50
42 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR FÓTBOLTI Í kvöld verður síðasta umferðin leikin í riðlum A, B og C í riðlakeppni Meistaradeildar Evr- ópu. Sex af tólf liðum komast svo áfram í sextán liða úrslit keppn- innar, en Chelsea er eina liðið af þessum tólf sem hefur þegar tryggt sig áfram. Spennan er gríðarleg í A-riðli þar sem aðeins tvö stig skilja að topplið riðilsins, Porto, og botnlið þess, Besiktas, en liðin mætast einmitt í Portúgal í lokaumferð- inni. Marseille og Liverpool eru svo jöfn aðeins einu stigi á eftir Porto, en franska liðið stendur örlítið betur að vígi fyrir leik liðanna í Frakklandi. Hvort liðið um sig, Mars- eille og Liverpool, kemst áfram með sigri, en Mars- eille nægir jafntefli gegn Liverpool ef Porto vinnur eða gerir jafntefli gegn Besiktas. Margir möguleikar í stöðunni Vinni Besiktas aftur á móti Porto og Mars- eille og Liverpool gera jafntefli, kemur upp sérstök staða. Tyrkirnir enda þá á toppi riðilsins með níu stig, en Porto, Marseille og Liverpool verða jöfn með átta stig, og þar sem Liverpool stendur best að vígi úr innbyrðisviðureignum liðanna þriggja kemst það áfram. Í B-riðli mætast einnig topplið- ið, Chelsea, og botnliðið, Valencia, í lokaumferðinni, en munurinn er sá að enska liðið er þegar búið að tryggja sig áfram og spænska liðið á ekki möguleika á að komast áfram. Það er því úrslitaleikur á milli Schalke og Rosenborg um það hvort liðið fylgir Chelsea. Norska liðið stendur betur að vígi og nægir jafntefli en leikurinn fer hins vegar fram í Þýskalandi. Tölfræðilega séð eiga öll liðin í C-riðli möguleika á því að komast áfram, en Real Madrid og Olympiakos standa best að vígi og eru jöfn með níu stig fyrir lokaumferðina og eiga enn fremur bæði heimaleik í loka- umferðinni. Real Madrid nægir jafntefli Toppliði Real Madrid nægir því jafntefli á móti Lazio, sem er neðst með fimm stig og verður að vinna á Spáni til þess að eiga möguleika á áframhaldandi þátttöku í keppn- inni. Líkurnar eru hins vegar ekki Rómarliðinu í hag þar sem Real Madrid hefur aðeins tapað einum af síðustu 24 heimaleikjum sínum í keppninni. Olympiakos nægir að sama skapi jafntefli gegn Werder Bremen, en ef þýska liðið vinnur kemst það örugglega áfram. Sú staða gæti komið upp að ef Bremen vinnur Olympiakos og Lazio vinnur Real Madrid verður Bremen efst með níu stig og hin þrjú liðin verða jöfn með átta stig. Vinni Lazio leik sinn við Real Madrid með aðeins einu marki fer spænska liðið áfram en ítalska liðið fer aftur á móti áfram á besta innbyrðisárangrinum ef liðið vinnur með tveimur mörkum eða meira á Spáni. - óþ Mikil spenna fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokaumferðin hefst: Allt eða ekkert hjá Liverpool LYKILMAÐUR HJÁ LIVERPOOL Það er mikil pressa á Steven Gerrard í kvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES NBA Jamaal Tinsley, leikmaður Indiana Pacers, er iðinn við að koma sér í vandræði þessa dag- ana. Hann mátti þakka fyrir að sleppa lifandi úr skotárás um helg- ina. Þetta var í þriðja sinn síðan í október sem Tinsley lendir í vand- ræðum utan vallar. Enginn lést í árásinni en einn maður slasaðist en hann er liðs- stjóri hjá Pacers. Hann fékk skot í olbogana en er kominn af sjúkra- húsi. Tinsley hafði fyrr um kvöldið farið á næturklúbb ásamt félögum sínum. Þeir mættu á svæðið í þrem af glæsikerrum Tinsleys – Benz, Rolls Royce og Dodge Charger. Fjöldi fólks kom að bílunum fyrir utan staðinn og sá ástæðu til þess að tjá sig um ríki- dæmi Tinsleys og bílana. Þegar félagarnir héldu heim á leið tóku þeir eftir því að þeim var veitt eftirför. Þeir keyrðu því inn að anddyri lúxushótels á Rolls Royce- bifreiðinni og þegar bílinn stöðvaðist hófst skothríð- in. Þrátt fyrir að einn maður lægi í valnum eltu Tinsley og félagar byssumenn- ina og svöruðu fyrir sig með því að skjóta á eftir þeim en þar fór fremstur í flokki bróðir Jamaals, James. Tinsley fundaði með forseta og þjálfara Pacers í gær en hann hefur leikið einstaklega vel í vetur og er með tæplega 15 stig að meðal- tali í leik og tæplega 9 fráköst. - hbg Leikmaður Indiana Pacers í vandræðum: Jamaal Tinsley slapp lifandi frá skotárás ALLTAF Í VANDRÆÐUM Jamaal Tinsley er búinn að lenda í óheppilegum atvikum í þrígang síðan í október. Hann má þakka fyrir að halda lífi eftir uppákomu helgarinnar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI David Healy, framherji norður-írska landsliðsins, verður að öllum líkindum heiðraður sérstaklega af UEFA fyrir að skora þrettán mörk í undan- keppni Evrópumótsins og setja nýtt markamet. „Michel Platini, forseti UEFA, hefur gefið grænt ljós á að Healy verði heiðraður og hann ítrekaði jafnframt að afrek Healys væri frábært fyrir leikmann frá jafn fámennri þjóð,“ sagði Raymond Kennedy, formaður knattspyrnu- sambands Norður-Írlands. - óþ Michel Platini, forseti UEFA: Healy hrósað KÖRFUBOLTI Pat Riley, þjálfari Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta, vann sinn 1200. leik á ferlinum þegar Miami Heat batt enda á fimm leikja taphrinu sína með 100-94 sigri gegn LA Clippers. Riley er aðeins þriðji þjálfarinn í sögu NBA til þess að vinna 1.200 leiki, en hann þurfti aðeins 1.842 leiki til þess að ná afrekinu á 24 leiktímabilum. Riley stýrði LA Lakers frá árinu 1981 til ársins 1990 og vann NBA-titilinn fjórum sinnum. Eftir það stýrði hann New York Knicks á árunum 1991- 1995, áður en hann tók við Miami Heat árið 1995 og er á sinni elleftu leiktíð með liðið. Miami Heat vann NBA- titilinn undir stjórn Rileys tímabilið 2005-2006. - óþ NBA-deildin í körfubolta: Pat Riley vann sinn 1200. leik FÓTBOLTI Sam Allardyce, stjóri Newcastle, svaraði gagnrýnend- um leikstíls liðs síns fullum hálsi í nýlegu viðtali við breska dagblaðið Daily Telegraph. „Það er búið að stimpla mig sem knattspyrnustjóra fyrir að láta lið mín spila á ákveðinn hátt, með löngum sendingum fram völlinn. En ég held að þetta sé bara einhver öfund og minni- máttar kennd í öðrum stjórum í deildinni sem hafa tapað fyrir liðum undir minni stjórn og þegar ég var hjá Bolton fengum við alltaf að heyra gagnrýni eftir að hafa unnið stórlið eins og Chelsea og Liverpool. Ég get hins vegar ekki séð að Newcastle spili á annan hátt en til dæmis Liverpool eða Arsenal. Öll lið þurfa að beita löngum sendingum til þess að komast inn fyrir varnir andstæð- inganna og Arsenal gerir til að mynda meira af því núna en áður og liðið er því orðið betra og hættulegra fyrir vikið.“ - óþ Enska úrvalsdeildin: Stóri Sam svar- ar gagnrýninni ÁKVEÐINN Allardyce vísar gagnrýni á bug og segir öll lið þurfa að spila með löngum sendingum. NORDICPHOTOS/GETTY LEIKIR KVÖLDSINS: Marseille-Liverpool Sýn kl. 19.45 Porto-Besiktas kl. 19.45 Chelsea-Valencia kl. 19.45 Schalke-Rosenborg kl. 19.45 Real Madrid-Lazio Sýn Extra kl. 19.45 Olympiak.-Bremen Sýn Extra 2. 19.45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.