Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 6
6 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR LÖGREGLUMÁL Þrjár konur um tvítugt voru handteknar í íbúð í miðborginni á laugardagskvöld. Þar innandyra fannst talsvert af ætluðum fíkniefnum sem talið er að séu hass og e-töflur. Í íbúðinni fannst einnig nokkuð af fjármunum sem taldir eru ágóði af fíkniefnasölu. Um svipað leyti voru tveir karlar á þrítugsaldri handteknir skammt frá íbúðinni en þeir eru sömu- leiðis grunaðir um fíkniefnamisferli. Á öðrum stað í miðborginni hafði lögreglan afskipti af hálfþrítugum karli sem var með ætluð fíkniefni í fórum sínum. Þá voru þrír karlmenn handteknir á laugardags- kvöld eftir að lögreglan fann ætluð fíkniefni í bíl í húsakynnum fyrirtækis í Árbæ. Mennirnir eru um þrítugt og fertugt. Einum þeirra var sleppt fljótlega eftir að komið var á lögreglustöð. Fíkniefnin voru falin í hanskahólfi og farangurs- geymslu bílsins. Talið er að um sé að ræða amfetamín, hass og marijúana. Á laugardag var sömuleiðis annar karl um fertugt tekinn í sama hverfi en hann var einnig með ætluð fíkniefni í fórum sínum. - jss FÍKNIEFNI Lögregla lagði hald á margar tegundir fíkniefna um helgina. Góður árangur fíkniefnalögreglu á höfuðborgarsvæðinu um helgina: Tóku tíu manns og fíkniefni STJÓRNSÝSLA Þróunarfélag Kefla- víkurflugvallar hefur náð betri árangri en nokkur þorði að vona, segir Magnús Gunnarsson, stjórnar- formaður félagsins. Bandarísk stjórnvöld mátu eignir sem félagið fékk í hendur á ellefu milljarða króna í byrjun árs, en þær eru taldar um tuttugu milljarða virði í dag. Styrr hefur staðið um sölu Þró- unarfélagsins á eignum á fyrrum varnarsvæði, og hafa ásakanir gengið á víxl undanfarna daga og vikur. Boðað var til fjölmiðla fundar með stjórn félagsins og fram- kvæmdastjóra á svæðinu umdeilda í gær til að kynna starfsemina. „Ég hafna öllum dylgjum um að hér hafi eitthvað óeðli- legt farið fram,“ sagði Stefán Þór- arinsson, einn þriggja stjórnar- manna í Þróunar- félaginu. Hann segir ógeðfellt þegar vegið sé að mannorði stjórnar- manna og starfsmanna með dylgj- um og óheiðarlegum vinnubrögð- um. Slíkt eigi ekki heima í þessari umræðu. Stefán segir að þegar hafi skap- ast um 300 ný störf í stað þeirra 900 sem tapast hafi þegar varnar- liðið hafi horfið á brott. Að með- töldum afleiddum störfum hafi því um 450 störf orðið til tengd varnar- svæðinu fyrrverandi. Lagðar voru fram upplýsingar um tilboð sem borist hafa í eignir á svæðinu á fundi Þróunarfélagsins í gær. Þar kemur fram að í 96 pró- sentum tilvika hafi hæsta tilboði verið tekið. Magnús segir að í undan tekningartilvikum hafi hærri tilboðum verið hafnað, fyrir því liggi málefnalegar ástæður. Þrír fjórðu hlutar húsa á svæðinu eru þegar seldir, 135 byggingar, sam- tals 194 þúsund fermetrar. Selt var á 15,8 milljarða króna. Eftir eru 36 skrifstofu- og þjónustubyggingar, 342 íbúðir og mikið land til þróun- ar, segir Magnús. Hann segir það ekki sérstakt áhyggjuefni að það verð sem fékkst fyrir eignirnar sé lægra en fram kemur í verðmati sem unnið var fyrir félagið. Félagið sé einfald- lega að átta sig á því hvað sé markaðs verð. Takmörk séu á nýt- ingu eignanna, og ráðast þurfi í endurbætur. Það verð sem fáist sé markaðsverð í dag. Enn fremur skipti miklu fyrir ríkið að selja eignirnar sem fyrst, eignirnar þurfi viðhald fyrir 1.200 til 1.300 milljónir króna á ári. Auk þess rýrni verðmæti þeirra með tímanum. Því verði að meta á móti verðinu þann tíma sem taki að selja eignirnar. brjann@frettabladid.is Bandarísk stjórnvöld vanmátu verðmætið Áætlun á verðmæti fasteigna á fyrrum varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli hefur nær tvöfaldast á árinu. Stjórn Þróunarfélags hafnar dylgjum um störf félagsins. Stjórnarmaður sakar andstæðinga um að beita óheiðarlegum vinnubrögðum. STEFÁN ÞÓRARINSSON SPILIN Á BORÐIÐ Magnús Gunnarsson (til hægri) ræddi við fjölmiðlafólk um árangur Þróunarfélagsins. Með á myndinni eru þeir Árni Sigfússon, stjórnarmaður í Þróunar- félaginu, og Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR SAMÞYKKT SALA Kaupandi Fjöldi bygginga Fermetrar Verðmæti Base 22 46.230 715 milljónir Háskólavellir 96 155.707 14.000 milljónir Keilir 2 6.632 320 milljónir Þjóðkirkjan 2 1.476 155 milljónir Atlantic Film Studios 13 13.810 575 milljónir SAMTALS 135 193.855 15.765 milljónir STJÓRNSÝSLA Til stendur að fyrstu skrefin í því að hreinsa upp meng- un á fyrrum varnarsvæði á Mið- nesheiði verði tekin á næsta ári. Magnús Gunnarsson, stjórnarfor- maður Þróunarfélags Keflavíkur, segir að fyrstu verkin verði lík- lega boðin út á komandi ári. Upphafleg kostnaðaráætlun við hreinsun svæðisins hljóðaði upp á um fjóra milljarða króna, segir Kjartan Eiríksson, framkvæmda- stjóri Þróunarfélagsins. Hann segir að ekki sé hægt að segja nánar til um hver kostnaðurinn við hreinsunina verði, hann muni í öllu falli hlaupa á einhverjum milljörðum króna. Eitt af hlutverkum Þróunar- félagsins er að hreinsa alla meng- un úr jörðu. Við það verður meðal annars byggt á skýrslu varnarliðs- ins á umfangi mengurinnar, auk gagna frá Heilbrigðiseftirliti Suður nesja, segir Kjartan. Í dag er verið að skoða þau svæði sem talin eru menguðust, taka sýni og gera rannsóknir. Að þessum rannsóknum er meðal annarra unnið í Umhverfisstofnun og hjá Heilbrigðiseftirlitinu. „Út frá þessari vinnu kemur í ljós hvar þetta er, hversu mikið að umfangi, og til hvaða aðgerða þarf að grípa til að hreinsa þetta, eða hvernig þarf að bregðast við,“ segir Kjartan. Í framhaldi af því verði hægt að meta kostnað við hreinsunarstarfið. - bj Mikil vinna fram undan við hreinsun á fyrrum varnarsvæði á Miðnesheiði: Fyrstu útboðin á næsta ári VARNARSVÆÐI Líf er farið að færast yfir varnarsvæðið á nýjan leik. Þessi börn léku sér í snjónum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR                 Bætt kennsla skilar sér Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar á Ísafirði, sagði á bæjarstjórnarfundi að bætt kennsla væri ástæða þess að grunnskólabörn á Vestfjörðum kæmu einna best út á Íslandi í nýrri Pisa-könnun. Sagði Birna vestfirskum réttindakennurum hafa fjölgað úr 61 prósent í 77 prósent milli áranna 2003 og 2007. VESTFFIRÐIR Saknar þú friðarsúlunnar? Já 43,3% Nei 56,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Telur þú að það sé of auðvelt að falsa lyfseðla? Segðu þína skoðun á visir.is Græða á hærra útsvari Meirihluti Sjálfstæðisflokks í hrepps- nefnd Rangárþings ytra segir að með því að hækka útsvar úr 12,99 prósent í 13,03 prósent fáist verulegar viðbótar- tekjur úr jöfnunarsjóði sveitafélaga. Framsóknarmenn, sem eru í minni- hluta í hreppsnefnd, segja ekkert haldbært liggja fyrir varðandi auknar tekjur úr jöfnunar sjóði og þeir hafni því hækkun útsvarsprósentunnar. Sjálfstæðismenn segjast byggja á bestu fáanlegum upplýsingum. RANGÁRÞING YTRA PÓLLAND, AP Pólsk stjórnvöld hafa látið af andstöðu sinni gegn því að halda árlegan Evrópudag gegn dauðarefsingum. Mánuðum saman hafði pólska stjórnin neitað að slást í hóp hinna 26 aðildarríkja sambandsins í herferð gegn dauðarefsingum og þar með staðið í vegi fyrir herferðinni. Þessi afstöðubreyting kom degi eftir að nýr forsætisráðherra, Donald Tusk, heimsótti höfuð- stöðvar ESB í Brussel í tilraun til að bæta tengslin við sambandið. Hin íhalds- og þjóðernissinnaða fyrri ríkisstjórn hafði átt í margs konar erjum við ESB sem Tusk vill binda enda á. - sdg Stefnubreyting Póllandsstjórnar: ESB loks gegn dauðarefsingu DONALD TUSK STRÆTÓ Kópavogsbær stefnir enn á að fella niður öll fargjöld í strætisvagna, þótt hann hafi nýverið fallist á tillögu stjórnar Strætós um að fresta því. Fulltrúar nágrannasveitar- félaganna í stjórninni vilja bíða til vors, en þá lýkur tilraun um ókeypis ferðir fyrir framhalds- og háskólanema. „Farið var fram á að verkefnið yrði klárað fyrst og það síðan metið í ljósi reynslunnar,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, stjórnar- formaður Strætós. Hin sveitar- félögin muni þá gera upp hug sinn um hvort þau fylgi Kópa- vogsbæ að máli eða ekki. - kóþ Kópavogsbær ekki hættur við: Stefnir enn á ókeypis strætó KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.