Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 44
36 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
>VILL VAXTARLAG
SVELTANDI BARNA
Söngkonan Mariah Carey hefur
hjartað á réttum stað og segist ekki
geta annað en grátið þegar hún
sér sveltandi börn þriðja heims-
ins í fréttum. „Ég væri alveg til í
að vera jafn grönn og þau en ekki
með allar flugurnar og dauðann og
það allt,“ bætir hún reyndar við.
Hljómsveitin Sprengju-
höllin hélt ferna tónleika á
heldur óvenjulegum stöðum
í Reykjavík í gær. Áfanga-
staðirnir voru leikskóli,
barnaskóli, barnaspítali og
elliheimili og voru mót-
tökurnar mjög góðar þrátt
fyrir að áheyrendur hafi
verið á ólíkum aldri.
Sprengjuhöllin hóf fyrst leik í leik-
skólanum Sólhlíð í Engihlíð. Eftir
það tók Hlíðaskóli við og því næst
var röðin komin að barnaspítala
Hringsins, þar sem liðsmenn
sveitarinnar gáfu börnunum jóla-
gjafir. Lauk yfirreiðinni með tón-
leikum á elliheimilinu Grund þar
sem sumir dönsuðu við lagið Keyr-
um yfir Ísland.
„Þetta gekk frábærlega og
okkur tókst að gleðja fólk á öllum
aldri. Þetta var ótrúlega skemmti-
legt og okkur var vel tekið hvar
sem við komum,“ segir Atli Bolla-
son úr Sprengjuhöllinni. Hann
vonast til að þessi tónleikaröð
verði að árlegum viðburði. „Ætli
þetta verði ekki jólagjöf Sprengju-
hallarinnar til landsmanna um
ókomin ár.“
freyr@frettabladid.is
Glöddu fólk
á öllum aldri
MIKIÐ STUÐ Hljómsveitin Sprengjuhöllin spilaði lög af sinni nýjustu plötu í Hlíða-
skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁHUGASAMIR NEMENDUR Nemendur
Hlíðaskóla hlustuðu með athygli á
tónlist Sprengjuhallarinnar. ATLI OG BERGUR Atli Bollason og Bergur Ebbi náðu vel saman á tónleikunum.
Á ELLIHEIMILINU Meðlimir Sprengju-
hallarinnar slógu í gegn á elliheimilinu
Grund.
Kryddpían Victoria Beckham
segist hafa átt erfiða æsku og lent
í slæmu einelti í barnaskóla. „Öll
skólaganga mín var skelfileg. Ég var
alltaf ein og átti
enga vini. Hinir
krakkarnir
fleygðu drullu
í mig, hrintu
mér, eltu mig
og hótuðu
að berja
mig eftir
skóla. Ég
reyndi að
eignast vini
en passaði
hvergi
inn,“ segir
Victoria.
Britney Spears fagnaði á dögun-
um 26 ára afmælinu sínu og vildi
óð og uppvæg að fyrrverandi eigin-
maður hennar, Kevin Federline,
mætti í teitið. Meðan veislan stóð
sem hæst hringdi hún í hann úr
farsíma Parisar Hilton og grátbað
hann að koma. Hún
skellti hins vegar
móðguð á barns-
föður sinn þegar
hann minnti hana á
syni þeirra og
sagði
einhvern
þurfa vera
heima hjá
þeim.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Vífill Atlason, frægasti hrekkja-
lómur Íslands, verður í Gettu
betur-liði Fjölbrautaskólans á
Vesturlandi sem sendir lið eftir
árs fjarveru.
„Já, það er víst rétt,“ segir Víf-
ill, sem komst í fréttirnar í síðustu
viku þegar honum tókst næstum
því að fá símafund hjá George W.
Bush Bandaríkjaforseta eftir að
hafa kynnt sig sem Ólaf Ragnar
Grímsson. Og gerði gott betur
þegar hann sendi vin sinn í viðtal á
Stöð 2 og mætti síðan sjálfur í
Kastljósið.
Vífill telur sig ekki hafa neitt
eitt sérsvið innan Gettu betur-
fagsins, nema kannski hvert sé
símanúmerið í Hvíta húsinu. „Ég
er eiginlega góður í öllu nema
náttúrufræði. Annars verður
maður bara að hafa gaman af
þessu,“ bætir hann við. Fjölbrauta-
skólinn á Vesturlandi hefur reynd-
ar ekki riðið feitum hesti frá þess-
ari sívinsælu spurningakeppni
framhaldsskólanna, hefur örsjald-
an komist í sjónvarpið en yfirleitt
fallið út rétt áður. Vífill segir liðið
vera búið undir að gera enn betur
og vonast til að geta gert sitt til að
fleyta því áfram í keppninni.
En það er ekki bara spurninga-
keppnin sem á hug Vífils allan um
þessar mundir því erlendir fjöl-
miðlar hafa sýnt honum mikinn
áhuga og vilja ólmir fá hann í
spjall hjá sér. Útvarpsstöðvar í
Portúgal og Bandaríkjunum höfðu
þegar haft samband við hann og
vefmiðlar höfðu fjallað ítarlega
um málið enda ekki á hverjum
degi sem sjálfur Bandaríkjafor-
seti verður fórnarlamb síma-
hrekks. Danska fríblaðið Nyheds-
avisen birti frétt um málið á
forsíðu sinni í gær og á vef blaðs-
ins var Vífill og hrekkurinn í efsta
sæti yfir mest lesnu fréttirnar.
Vífill gefur lítið fyrir þær kenn-
ingar að þetta fár og símahrekkur-
inn sé í raun allt eitt stórt plat. Og
honum þykir leitt að hafa valdið
Guðjóni Helgasyni, fréttamannin-
um knáa á Stöð 2, svona miklum
vandræðum. „Ég hringdi í hann
þegar það fréttist að hann vildi
segja upp og útskýrði þetta fyrir
honum. Ég bað hann afsökunar á
þessu og hann tók henni,“ segir
Vífill og Guðjón staðfesti það í
samtali við Fréttablaðið. „Ég gerði
honum grein fyrir því að við litum
þetta mjög alvarlegum augum,“
segir Guðjón, sem var þó óðum að
ná sér eftir tvífarahrekkinn.
- fgg
Vífill í Gettu betur
KLÁR HREKKJALÓMUR Vífill keppir í
Gettu betur fyrir hönd Fjölbrautaskólans
á Vesturlandi.
Tónlistarmaðurinn Mugison á langbestu
íslensku plötu ársins, Mugi boogie,
samkvæmt árslista sem var unninn upp
úr svörum lesenda heimasíðu Dr.
Gunna. Besta erlenda platan var kjörin
Neon Bible með Arcade Fire.
Gunni segir að stórsigur Mugison hafi
komið dálítið á óvart. „Það voru margar
sterkar plötur á listanum. Tvær með
Megasi og plata með Sprengjuhöllinni
sem hefur verið látið mikið með. Síðan
er þarna fín plata frá Björk og gott
byrjandaverk frá Ólöfu Arnalds. Þetta
er kannski vísbending um það sem
koma skal á Íslensku
tónlistar verðlaununum,“
segir Gunni, sem hefur
ekki
verið
áður
með árslistakosningu á síðunni sinni.
„Ég er að fara að sjá um uppgjörsþátt
fyrir erlenda músík á Rás 2 á nýársdag
og mér datt í hug að tékka á hvað
almenningur hefur til málanna að
leggja.“ Gunni lagði til fimmtán
íslenskar plötur fyrir listann sem fólk
gat valið úr. „Það var ekkert erfitt að
finna fimmtán íslenskar plötur. Ég
myndi segja að þetta væri frekar
gott ár á Íslandi.“
Hvað varðar erlendu deildina
segist hann ekkert vera sérlega
hrifinn af plötu Arcade Fire.
„Mér finnst til dæmis Of Montr-
eal-platan miklu skemmtilegri en
hún varð í þriðja sæti. Þetta
sýnir að það eru ekkert nema
gáfumannapopparar að lesa
þesa síðu. Radiohead og
Arcade Fire er gáfumannapopp eins og
Prefab Sprout og Lloyd Cole and the
Commotions. Þetta er fólk sem endar
eins og Skúli Helgason og Dagur B.
Eggertsson.“ -fb
Sigur Mugison kemur á óvart
DR. GUNNI Gunni segir að stórsigur Mugison
hafi komið sér á óvart.
MUGISON Platan Mugi-
boogie trónir á toppnum
á árslista Dr. Gunna.