Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 34
26 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is AUÐUR HARALDS RITHÖFUNDUR ER SEXTUG Í DAG. „Venjulegast kyssa konur prinsa sem breytast í froska.“ Auður Haralds hefur skrifað barna- og unglingabækur, smá- sögur, leikrit og skáldsögur. Hún hefur auk þess verið með útvarps- þætti og þykir einkar hnyttin og orðheppin. MERKISATBURÐIR 1917 Kvikmyndin Voðastökk er frumsýnd í Reykjavík með íslenskum texta. 1930 Verkfall hefst í Garna- hreinsunarstöð Sam- bandsins í Reykjavík og kom til ryskinga. Rætt var um garnaslaginn. 1941 Þýskaland og Ítalía lýsa Bandaríkjunum stríð á hendur í seinni heims- styrjöldinni. 1981 El Mozote-fjöldamorðin, vopnaðar hersveitir í El Salvador myrða um 900 óbreytta borgara í her- ferð gegn skæruhernaði í borgarastyrjöldinni sem þar geisaði. 1994 Boris Jeltsin sendir rúss- neskar hersveitir til Tsjet- sjeníu. Fyrir 22 árum sigldi breski dráttar- báturinn Lloydsman tvívegis á varðskipið Þór í mynni Seyðis- fjarðar og gerðist það innan við tvær sjómílur frá landi. Þetta voru alvarlegustu átökin í land- helgisdeilunni og kærðu Íslend- ingar Breta fyrir öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna í kjölfarið. Árið 1948 voru landgrunns- lögin sett á Íslandi. Fiskveiðilög- saga Íslendinga var síðan færð úr þremur mílum í 200 mílur á grundvelli þessara laga. Útfærslan fór fram í nokkrum skrefum. Fyrst var farið úr þremur mílum í fjórar úti fyrir Norðurlandi árið 1950 og tveimur árum síðar tók sú útfærsla gildi umhverfis allt landið. Breytingin var að mestu í samræmi við óljós alþjóðalög þess tíma en Bret- ar ákváðu engu síður að mótmæla henni og settu togaraeigendur í Bretlandi löndunarbann á íslenskan ís- fisk. Því banni var ekki aflétt fyrr en árið 1956. Árið 1958 var fisk- veiðilögsagan færð út í 12 mílur og þá sendu Bretar herskip á Ís- landsmið til að vernda togara sína gegn löggæsluaðgerðum ís- lenskra varðskipa og var það í raun fyrsta þorskastríðið. Árið 1961 létu Bretar hins vegar undan og viðurkenndu 12 mílurnar. Á árunum 1972-73 og 1975-76 var lögsagan fyrst stækkuð í 50 mílur og svo í 200 mílur. Í bæði skiptin var breski sjóherinn sendur á vettvang auk dráttar- báta og annarra verndarskipa. Þá höfðu Íslend- ingar tekið í notkun togvíraklippur en harðir árekstrar urðu milli skipanna. Bretar urðu loks að láta undan og fallast á vilja Íslendinga. ÞETTA GERÐIST: 11. DESEMBER 1975 Bretar vega að Íslendingum Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur, oftast kallaður BÍKR, var stofnaður árið 1977 og fagnar því þrjátíu ára af- mæli um þessar mundir. Klúbburinn hefur hefur staðið fyrir ýmiskonar starfsemmi í gegnum tíðina og má þar nefna aksturskeppni á borð við torfærur, kart-aksturskeppnir, rall- íkross og rallakstur. Í dag er þó klúbb- urinn eingöngu með rallakstur. Vinsældir rallsins hafa aukist þó- nokkuð síðustu ár. Það er um 30-40 pró- senta aukning á síðustu tveimur árum sem er til komið vegna reglubreyt- inga sem gerir þetta ódýrara,“ segir Jóhannes V. Gunnarsson, formaður BÍKR, en breytingarnar fólust í því að dýrustu tækin voru bönnuð. „Áherslun- um var breytt til að halda niðri kostn- aði og jafna keppnina og koma þannig í veg fyrir fákeppni,“ útskýrir Jóhannes og bætir við: „Fyrir tveimur til þremur árum voru kannski tveir bílar á ráslínu sem gátu unnið en nú eru þeir yfir tíu og fólk eygir möguleikann á sigri.“ Síðastliðin ár hefur klúbburinn verið með samning við Max 1 og Pirelli. „Brimborg hefur stutt okkur dyggi- lega og Skeljungur hefur líka komið þar að. Við fjármögnum okkur með því að selja auglýsingar á keppnirnar en klúbburinn náttúrlega þrífst og dafnar af sjálfboðastarfi,“ segir Jóhannes. Afmælishóf var haldið á dögunum í félagsheimili Gusts en það var meðal annars haldið til að hvetja gamla félaga til að láta sjá sig. „Það vantar svolít- ið af gömlum reynsluboltum í sportið. Þetta er mikið til nýtt fólk í dag,“ segir Jóhannes en fagnar þó ætíð nýjum fé- lögum. „Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig í klúbbinn geta gert það á heima- síðu okkar, www.bikr.is.“ Haldnar eru sex keppnir á ári og hafa þær stækkað mjög mikið síðast- liðin ár. „Við erum farin að keyra meira inn á að halda mótin í byggðarkjörnun- um. Það eru þrjú mót haldin í Reykja- vík og eitt í Reykjanesbæ. Á næsta ári verður eitt mót haldið á Snæfellsnesi og annað á Sauðárkróki og við eigum þann valkost að komast kannski á einn eða tvo staði í viðbót,“ segir Jóhannes áhugasamur. Til að halda mót þarf mikið af sjálf- boðaliðum og langan undirbúning. „Það eru margar hendur sem koma að hverju móti og þarfnast þau margra mánaða undirbúnings. Við erum þó íþróttagrein án aðstöðu. Við borg- um okkar bensín- og vegatoll eins og aðrir en gamlir malarvegir eru okkar íþróttamannvirki,“ segir Jóhannes og bætir við að eitt af helstu baráttumál- um BÍKR sé að fá að nota malarvegina meira. „Það er alltaf verið að malbika og eyðileggja vegina,“ segir Jóhannes kíminn. Undir lok níunda áratugarins náði íþróttin ákveðnum toppi og þá var mikil gróska í starfi BÍKR. „Það gerðist aftur í kringum 2000 og núna virðumst við vera að ná áður óþekktum hæðum, alla vega hvað félagatal varðar. Efnahagur- inn í þjóðfélaginu stýrir þátttöku tölu- vert þar sem tækjabúnaðurinn er dýr,“ útskýrir Jóhannes. En hvað stendur upp úr? „Það sem stendur upp úr er líklega bara hvað framtíðin er björt í sportinu,“ segir Jóhannes ánægður. hrefna@frettabladid.is JÓHANNES V. GUNNARSSON, FORMAÐUR BÍKR: 30 ÁRA AFMÆLI FÉLAGSINS Rallið orðið mun vinsælla AFMÆLISBÖRN Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfundur er 67 ára í dag. Aleksander Solzhenitsyn, rússneskur rit- höfundur og sagnfræðing- ur, er 89 ára í dag. Guðmundur Jónsson arki- tekt er 54 ára í dag. Guðrún Bjarna dóttir, fyrrverandi alheims fegurðar - drottning, er 65 ára í dag. VÆRI GOTT AÐ FÁ NOKKRA BJÖRG ÓLFA Jóhannes segir að gott væri að fá góða bakhjarla til að styrkja akstursíþróttina. Nýbúadeild við Grunda- skóla á Akranesi tók ný- lega til starfa. Í deildinni stunda nú fimmtán pólsk- ir nemendur nám og von er á fleiri nýjum Íslendingum á grunnskólaaldri til Akra- ness um áramót. Deildin þjónar öllu Akra- nesi og tekur því á móti öllum nýjum Íslending- um á svæðinu. Reiknað er með að nýir Íslending- ar á grunnskólaaldri verði að jafnaði tvö ár í deild- inni áður en þeir fara inn í bekkinn sinn. Markmið- ið er að standa vel að mót- töku þeirra og koma með markvissum hætti til móts við bæði nemendur og for- eldra. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Sigurveig Kristjánsdótt- ir grunnskólakennari veit- ir deildinni faglega for- ystu en auk hennar starfar þar Krystyna Jabluszew- ska sem stuðningsfulltrúi. www.akranes.is Nýbúadeild í Grundaskóla Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ástráður Valdimarsson Hraunsholtsvegi 2, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Garðakirkju, fimmtudaginn 13. desember kl. 13.00. Kristjana Margrét Guðmundsdóttir Guðrún Ástráðsdóttir Már Þorvaldsson Hjördís Ástráðsdóttir Peter Tompkins Brynja Ástráðsdóttir Pétur Bjarnason og afabörn. Elsku hjartans eiginmaður minn, pabbi okkar, sonur, bróðir og tengdasonur, Jón Gunnar Grjetarsson Brunnstíg 4, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardag- inn 8. desember. Jarðarförin fer fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 17. desember kl. 15.00. Anna Borg Harðardóttir Andri Jónsson Sandra Jónsdóttir Tinna Jónsdóttir Grétar Þorsteinsson Sandra Jóhannsdóttir Nína Karen, Hjörtur Þór og Selma Björk Grétarsbörn Hörður S. Óskarsson Anna Margrét Friðbjarnardóttir Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, Stefanía Stefánsdóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að morgni laugardagsins 8. desember. Dóra Skúladóttir Þorvarður Brynjólfsson Bergþóra Skúladóttir Sigurður Guðmundsson Magnús Skúlason Ingunn Jónsdóttir Jóhanna Skúladóttir Sigurður Pálsson Sigríður Þyri Skúladóttir Úlfar Hróarsson Árný Skúladóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðný Kristrún Níelsdóttir áður til heimilis á Stýrimannastíg 14, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 4. desember verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. janúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á KRAFT, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra, s: 540 1990. Páll Stefánsson Halldóra Viktorsdóttir Soffía Stefánsdóttir Georg Ólafsson Hildur Stefánsdóttir Sigurgeir Kjartansson börn og barnabörn. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.