Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 11. desember, 345. dagur ársins. 11.08 13.21 15.33 11.21 13.05 14.49 Svikahrappar og lygalaupar eru skemmtileg fyrirbrigði. Bók- menntir heimsins eru fullar af skemmtilegum platsögum, enda er sú saga sem aðeins segir frá grand- vörum góðmennum leiðinleg saga. Hleypur fjölmiðlafólk því oftast til við fregnir af gáskafullum ósann- indamönnum. Fólk hefur svo gaman af brellum og brögðum. FORELDRAR mínir ólu okkur systurnar upp í aðdáun á hrekkja- lómum. Því voru sögupersónur Astridar Lindgren í hávegum á mínu heimili, sem og Ugluspegill, ævintýraverur Grimms-ævintýra og ill skeyttir kappar Íslendinga- sagna. Bærust okkur bækur á borð við hið drepleiðinlega Lyklabarn, sem hefði getað haft mannbætandi áhrif á okkur, pökkuðum við þeim inn í gjafapappír og gáfum öðrum. ALLIR skemmtu sér vel yfir klækj- um hins knáa Vífils Atlasonar, sem vann sér það til frægðar að reyna að gera símaat í Bush. Næstum jafnmargir hlógu þegar hann sendi félaga sinn í viðtal á Stöð 2. Við- brögð fréttamannsins eru þó skiljan leg, enda ekki vani að rengja menn sem segja til nafns. Viðbrögð hæstráðanda fréttastofunnar voru þó broslegasti þáttur atburðarásar- innar enda skondið að sjá frétta- menn vífilengjast. EINAR Ben skipar stóran sess í hjörtum þjóðarinnar. Ég man vel þegar pabbi sagði mér frá þessum merkismanni, fór með kvæði eftir hann og tilkynnti mér svo með stolti að þessi maður hefði reynt að selja Dönum norðurljósin. Hlógum við mikið að heimsku Dana og græsku þessa merka Íslendings. KONUNGUR brellumeistaranna held ég þó að sé Jónas Hallgríms- son, bjargvættur íslenskrar skáld- skaparlistar sem orti þó megnið af sínum skáldskap undir ítölskum bragarhætti og rægði rímur. Þennan mann vildu Íslendingar ekki láta liggja í danskri moldu og var danskur iðnaðarmaður því grafinn á Þingvöllum. Jónas á mína aðdáun óskipta fyrir blekkingar- leikinn sem og skáldskap sinn. GOTT grín gerir gæfumuninn og það sést á Gamla testamentinu. Hver man ekki eftir því þegar Guð gabbaði Abraham og sagði honum að drepa son sinn? Allt í plati sagði hann og Ísak slapp með skrekkinn. Eða þegar Satan og Guð voru að spauga í Job. Ég vil ekki að neitt barn alist upp án slíkra skemmti- sagna og finn til með nemendum samtímans sem missa af því að lesa bráðskemmtilegar og blóðug- ar Biblíusögur en þurfa í staðinn að lesa skelfilega leiðinlegan boð- skap um að allir eigi að vera vinir. Vífilengjur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.