Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 2
2 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR YACOUBIAN BYGGINGIN EFTIR ALAA AL-ASWANY INNILEG, GRÍPANDI OG SKEMMTILEG Hrífandi og beinskeytt mynd af fjölbreyttu mannlífi í Kaíró „HEILLANDI OG SLÁANDI BLANDA AF ÆRSLASÖGU OG SAMFÉLAGSGREININGU, BRJÁLAÐRI SKEMMTUN OG FÚLUSTU ALVÖRU.“ – JYLLANDS-POSTEN „BESTA BÓK ÁRSI NS“ – THE GU ARDIAN D Y N A M O R E Y K JA V ÍK RÚSSLAND, AP Garrí Kasparov greindi frá því í gær að stjórnvöld hefðu komið í veg fyrir framboð hans til forseta með því að hindra stuðningsmenn hans í að halda fund til að tilnefna hann. Talsmenn Annars Rúss- lands, flokka- bandalagsins sem Kasparov er í forystu fyrir, segja að þeir hafi ekki getað fengið leigðan sal í Moskvu, sem þeir verða að gera til að geta greitt lögformlega atkvæði til að tilnefna frambjóðanda. Frestur til að tilkynna kjörstjórn um slíkan fund rann út í gær. - aa Forsetakosningar í Rússlandi: Framboð Kasp- arovs hindrað GARRÍ KASPAROV UTANRÍKISMÁL Caron Van Voorst, sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi, hefur haft samband við stjórnvöld í Bandaríkjunum vegna meðferðar á íslenskri konu við komu hennar til landsins. Þarlend stjórnvöld munu rannsaka málið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sendiráðinu sem send var fjölmiðlum í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundaði með Van Voorst í utanríkisráðuneytinu í gær. Ingibjörg segir að fjölmargir hafa sett sig í samband við utanríkisráðuneytið og lýst erfiðum samskiptum við innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna eftir að greint var frá hremmingum íslenskrar konu í New York. Fundur með Van Voorst í utanríkisráðuneytinu hafði verið ákveðinn áður en málið kom upp, en Ingibjörg segir að hún hafi ákveðið að nota tækifærið og ræða þetta mál við sendiherrann. „Ég kom á framfæri áhyggjum okkar af þessu máli, og að við litum það alvarlegum augum,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Þó að það sé hægt að fallast á að hún hafi ekki verið með rétta vegabréfsáritun var meðferðin á henni í engu samræmi við þá yfirsjón. Þarna hljóta að hafa átt sér stað alvarleg mistök hjá bandarískum yfirvöldum, og eðlilegt að eftir að búið er að skoða málið þá biðjist þau afsökunar á því.“ Ingibjörg segir að Van Voorst hafi einnig sagst líta málið alvarlegum augum, og að hún muni vera í sam- bandi við ráðuneytið þegar hún hafi fengið svör frá bandarískum stjórnvöldum. - bj Margar sögur um samskipti við innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna borist ráðuneyti: Stjórnvöld biðjist afsökunar CAROL VAN VOORSTINGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR ALÞINGI Fjárlög fyrir árið 2008 voru samþykkt á lokadegi Alþingis fyrir jólafrí í dag. Loka- atkvæðagreiðsla um frumvarpið tók á þriðja tíma. Geir H. Haarde forsætisráð- herra lofaði fjárlögin og benti á að afgangur af þeim væri tæpir 40 milljarðar króna. Þeir bætast við 82 milljarða afgang af fjár- aukalögum. „Þessar tölur sýna það svart á hvítu að ríkisstjórnin er að auka aðhald í efnahagsmál- um,“ sagði Geir. Framsóknar- menn deildu hins vegar á ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar fyrir eyðslusemi. „Ríkisstjórnin er að gefa í verð- bólgueldinn á meðan allar eftir- litsstofnanir erlendis vara við þeirri þróun,“ sagði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar- flokksins. Guðni kallaði fjárlögin þenslu- fjárlög. „Horfurnar á harðri lend- ingu í efnahagslífinu verða meiri eftir að þessi fjárlög verða sam- þykkt. Þessi ríkisstjórn er því miður ábyrgðarlaus og það mun bitna á ungu skuldugu fólki og fyrirtækjum með hærri vöxtum,“ sagði Guðni. Þingmenn Vinstri grænna lögðu fram fjölda breytingartil- lagna, meðal annars hækkun fjár- magnstekjuskatts með frítekju- marki, hærri framlög í heilbrigðismál og niðurfellingu allra útgjalda til varnarmála. Til- lögurnar hefðu kostað rúma þrjá milljarða. „Hin nýja áhersla ríkisstjórn- arinnar er herstofnun sem varið er til á þriðja milljarð króna,“ sagði Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna. „Heilbrigðis- þjónustunni er haldið í fjárhags- legri úlfakreppu.“ Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður Frjálslynda flokksins benti á að verðbólga væri yfir viðmiðunarmörkum fimmta árið í röð. „Það verður mikið átak að ná verðbólgunni niður á það stig sem ásættanlegt er. Ofan á þessa stöðu koma boðaðar skattalækk- anir forsætisráðherra sem olía á eld,“ sagði Kristinn. steindor@frettabladid.is Minnihlutinn gagn- rýnir eyðslu og nísku Fjárlög voru afgreidd á lokadegi Alþingis fyrir jólafrí í gær. Fjárlögin sýna aukið aðhald í efnahagsmálum, segir forsætisráðherra. „Þenslufjárlög,“ segir formað- ur Framsóknarflokksins. Breytingartillögur VG um aukin útgjöld voru felldar. Guðmundur, er andrúmsloftið á Landspítalanum rafmagn- að? „Framkvæmdastjóri tæknisviðs er að minnsta kosti í hörkustuði.“ Nær allir rafvirkjar á Landspítalanum hafa sagt upp störfum vegna óánægju með laun. Guðmundur Gunnarsson er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. LÖGREGLUMÁL „Við fengum vitneskju um þetta hér innan- lands og óskuðum eftir því að lögreglan á Akranesi kannaði málið þar sem símanúmerið sem hringt var úr var þaðan,“ segir Jón Bjartmarz hjá ríkislögreglu- stjóra um aðkomu embættisins að því þegar lögreglan á Akranesi heimsótti Vífil Atlason vegna símahrekks hans í Hvíta húsinu. Hann kynnti sig sem Ólaf Ragnar Grímsson forseta og munaði minnstu að hann fengi að tala við George W. Bush Banda- ríkjaforseta. Jón vildi ekki upplýsa hvaðan ábendingin hafði komið. - mh Símahrekkur Vífils Atlasonar: Ábending barst innan Íslands MENNTAMÁL „Ég hef ekki heyrt þennan fyrirlestur en eins og Gísli lýsir honum þá finnst mér hann groddafenginn og ekki falla að þeirri siðfræði sem að ég tel að þurfi að vera í kringum svona fræðslu og samskipti kynjanna og sé þetta svona þá þykir mér þetta siðlaust,“ segir Guðni Ágústsson um kvörtun Gísla Óskarssonar yfir því sem hann telur óviðeig- andi forvarnafræðslu Alnæmis- samtaka Íslands í grunnskóla Vestmannaeyja. Gísli sendi Árna Johnsen þing- manni og Guðna Ágústssyni, auk landlæknisembættinu athuga- semdir vegna málsins. „Ég átta mig ekki á því hvað ég get gert. En eðlilegt er að mennta- málayfirvöld fari yfir þetta því fræðsla um kynlíf og annað því tengdu verður að fara fram með siðrænum hætti en ekki með dóna- skap. Yfirvöld ættu að taka þetta upp,“ segir Guðni. Sigurður Guðmundsson land- læknir hafði ekki séð athuga- semdir Gísla. „Það er ekki hægt að gera öllum til hæfis, allra síst í málum sem eru erfið umfjöllunar eins og þetta. Ég veit þó að umfjöllun Alnæmissamtakanna hefur hingað til verið vönduð,“ segir Sigurður. Birna Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri fræðsluverkefnis- ins, var viðstödd fundina og segist hún ánægð með fræðslufulltrúann og viðbrögðin sem fundurinn fékk frá kennurum og nemendum. - eb Formaður Framsóknar vill að yfirvöld skoði forvarnafræðslu Alnæmissamtakanna: Guðni segir fræðslu siðlausa GUÐNI ÁGÚSTSSON Telur að mennta- málayfirvöld eigi að fara yfir málið. VIÐSKIPTI Lítil sem engin viðskipti hafa verið með fiskveiðikvóta á seinni hluta þessa árs. „Bankarnir spila þarna stóra rullu. Þeir hafa dregið verulega úr lánveitingum til kaupa á aflaheim- ildum,“ segir Þórir Matthíasson, forstöðumaður sjávarútvegssviðs Viðskiptahússins. Þórir segir lítil sem engin viðskipti hafa verið með kvóta frá því að tilkynnt var um verulegan niðurskurð aflaheimilda í sumar. - ikh/óká / sjá síðu 32 Bankarnir draga úr lánum: Kvótaviðskipti eru í lágmarki BRETLAND, AP Það er eftir sem áður nauðsynlegt að beita Írana þvingunarað- gerðum, þrátt fyrir að komist sé að þeirri niðurstöðu í bandarískri leyniþjónustu- skýrslu að þeir hafi hætt við áætlun sína um að koma sér upp kjarnorkuvopn- um. Þetta sagði Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, meðal annars er hann sat fyrir svörum á þingi í gær. Brown, sem vill að alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn Íran verði hertar þannig að þær bitni á olíu- og gasútflutningsiðnaðinum, sagði klerkastjórnina ekki enn hafa gefið fullnægjandi skýring- ar á því hvers vegna hún haldi áfram að auðga úran af kappi. - aa Gordon Brown fyrir svörum: Þörf á aðgerð- um gegn Íran GORDON BROWN HVALFJÖRÐUR Unnið er að tillögum um að strætisvagnar, sem keyra nú þegar gegnum Hvalfjörðinn, stoppi fyrir Hvalfirðingum og hleypi þeim upp í bílinn. „Kostnaðurinn við að stoppa er náttúrulega enginn, en Akranes vill að við borgum fyrir það,“ segir Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri Hvalfirðinga. Önnur gjá í veginum sé skortur á strætóskýlum. Kostn- aður við þau mun vera um 400.000 krónur fyrir hvert og eitt. Einar útilokar þó ekki að Hvalfirðingar smíði sín eigin skýli. Óvíst er hvað hvert stopp strætós kostar sveitarfélagið. - kóþ Almenningssamgöngur: Strætó stoppi í Hvalfirðinum Grímseyjarferjan siglir Nýja Grímseyjarferjan fór í reynslusigl- ingu í gær. Til stendur að taka hana í notkun eftir áramót. Miklar tafir hafa orðið á afhendingu skipsins og hafa endurbætur reynst tímafrekari og dýrari en stefnt var að. Enn á eftir að gera smávægilegar úrbætur á ferjunni. SAMGÖNGUMÁL FORSÆTISRÁÐHERRA Í RÆÐUSTÓL Geir H. Haarde segir að fjálögin sýni það svart á hvítu að ríkisstjórnin sé að auka aðhald í efnahagsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Heilbrigðisþjónustunni er haldið í fjárhagslegri úlfakreppu.“ JÓN BJARNASON ÞINGMAÐUR VG SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.