Fréttablaðið - 14.12.2007, Síða 4
4 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Það er alltaf erfitt
að liggja á göngunum og auðvitað
myndum við óska þess að svo væri
ekki,“ segir Björn Zoëga, fram-
kvæmdastjóri lækninga á Landspít-
alanum, um ástand á hjartadeild.
Björn segir að á þessu ári hafi um
20 prósent fleiri sjúklingar farið í
hjartaþræðingu en árið á undan.
Þrátt fyrir mikil afköst hafi mynd-
ast langur bið-
listi með haust-
inu, en þegar
mest var biðu
um 300 manns,
og því hafi verið
farið í átak á
deildinni. Nú
bíða rúmlega
200 manns eftir
að komast í
þræðingu. Þá
bíða 50 manns
eftir að komast í
hjartaaðgerð
sem oft er nauð-
synleg eftir
hjartaþræðingu.
Um tíu þeirra
eru á hjartadeild
því þeir eru of
veikir til að komast heim en komast
þó ekki í hjartaaðgerð þar sem gjör-
gæsludeildin getur ekki tekið við
þeim eftir aðgerðina vegna
þrengsla. Gestur Þorgeirsson, yfir-
læknir á hjartadeild, segir nær
ómögulegt að halda uppi átaki í
hjartaþræðingum ef sjúklingar
komist ekki í þær aðgerðir sem
reynast nauðsynlegar á eftir. Þá
hefur Bjarni Torfason, yfirlæknir
hjarta- og lungnaskurðdeildar, bent
á að tafir á hjartaaðgerðum séu
mjög alvarlegt mál þar sem líf og
heilsa fólks sé í veði.
Ásgeir Þór Árnason, fram-
kvæmdastjóri Hjartaheilla, segir
ástandið skelfilegt. „Það er ólíðandi
að fólk sé látið liggja á göngum og
hvað þá að það sé látið bíða eftir
lífsnauðsynlegri aðgerð,“ segir
hann.
Ásgeir segist ítrekað hafa reynt
að fá fund með Guðlaugi Þór Þórð-
arsyni, frá því hann tók við embætti
heilbrigðisráðherra í vor, en án
árangurs.
„Það er mikill urgur í hjartasjúk-
lingum vegna þessa,“ segir Ásgeir.
Hann bætir því næst við að einna
verst sé þetta þó fyrir starfsfólk
deildarinnar sem standi sig með
miklum sóma við erfið skilyrði.
„Fólk brotnar oft niður þegar það
heyrir að það komist ekki í aðgerð,“
segir Inga Björnsdóttir, aðstoðar-
deildarstjóri hjartadeildar 14 E, um
þá erfiðleika sem tafirnar valda
fólki. Þessa dagana er óvenju mikið
álag á deildinni og vegna aðstöðu-
leysis hefur þurft að senda sjúk-
linga á sjúkrahúsin í Keflavík og
Akranesi.
„Við reynum að vinna eins vel og
við getum að hag sjúklinganna, og
setjum aðeins það fólk sem er
minnst veikt á gangana,“ segir
Björn Zoëga að lokum.
karen@frettabladid.is
„Það er ólíðandi að fólk sé
látið liggja á göngum og
hvað þá að það sé látið bíða eftir
lífsnauðsynlegri aðgerð.“
ÁSGEIR ÞÓR ÁRNASON
BEÐIÐ Á HJARTADEILD „Við reynum að vinna eins vel og við getum að hag sjúkling-
anna, og setjum aðeins það fólk sem er minnst veikt á gangana,“ segir Björn Zoëga,
framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BJÖRN ZOËGA
ÁSGEIR ÞÓR
ÁRNASON
Hjartasjúklingar bíða á
göngum Landspítalans
Hjartaaðgerðum hefur ítrekað þurft að fresta þar sem gjörgæsludeild getur ekki tekið á móti nægilega mörg-
um sjúklingum. Á hjartadeild hefur verið unnið ötullega við að stytta þann biðlista sem hefur myndast. Um
200 bíða eftir að komast í hjartaþræðingu og 50 eftir að komast í hjartaaðgerð þar af tíu á spítalanum.
Fyrir nokkrum dögum fór Óskar
Tryggvason, 57 ára vörubílstjóri, að
kenna sér meins. „Ég hélt að þetta
væri bara flensa og reyndi að harka
af mér. Ég tók mér þó frí frá vinnu
til að komast til læknis fyrir um níu
dögum og þá uppgötvaðist þetta,“
segir Óskar. Hann er einn þeirra
sjúklinga sem eru of veikir til að
geta verið heima hjá sér og þarf
nauðsynlega að komast í hjartaað-
gerð sem allra fyrst.
„Það er veik von að hægt verði að
skera fyrir jól,“ segir hann og brosir
þegar hann hugsar til þeirra jóla
sem fram undan eru hjá honum og
fjölskyldu hans en eftir aðgerðina
þarf hann svo að dvelja á gjör-
gæsludeild.
„Ég skil ekki hvernig hægt er að
hafa þetta svona. Fólki er hrúgað
á gangana og aðstöðuleysið reynir
mjög á starfsfólk,“ segir hann en
ítrekar að starfsfólk hjartadeildar
hafi sýnt sér afar hlýlegt viðmót og
geri allt til að gera dvöl hans léttari.
- kdk
Beðið eftir hjartaaðgerð
ÓSKAR TRYGGVASON
VIÐSKIPTI Jón Karl Ólafsson lætur
af störfum bæði sem forstjóri Ice-
landair Group og dótturfélagsins
Icelandair.
Við starfi forstjóra Icelandair
Group tekur, samkvæmt heimild-
um blaðsins, Björgólfur Jóhanns-
son, en hann hefur til þessa gegnt
starfi forstjóra matvælafyrirtæk-
isins Icelandic Group sem starfar í
sjávarútvegi. Áður gegndi Björ-
gólfur starfi forstjóra Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað, auk þess sem
hann er stjórnarformaður Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna
(LÍÚ). Ekki hefur verið ráðið í starf
forstjóra dótturfélagsins Ice-
landair.
Ástæða starfsloka Jóns Karls er
rakin til ákvörðunar sem tekin var
hjá félaginu í sumar um að skipta
forstjórastarfinu í tvennt, þar sem
einn væri settur yfir móðurfélagið
og annar yfir dótturfélagið Ice-
landair. Þannig hafi Jón Karl leitt
félagið í gegn um umbreytinga- og
vaxtaferli, en nú hafi menn orðið
ásáttir um að leiðir skildu. Á þessu
ári hafa verið nokkrar hræringar í
eignarhaldi Icelandair Group, en
rétt tæpt ár er síðan félagið var
skráð á markað í Kauphöll Íslands.
Forsvarsmenn Icelandair vildu í
gær ekki tjá sig um þróun mála. Þá
náðist ekki í Jón Karl, sem sagður
er vera í útlöndum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
var í gær unnið að gerð tilkynninga
til Kauphallar um mannabreyting-
ar bæði hjá Icelandair Group og
Icelandic Group. - óká
FORSTJÓRAR Í TÉKKLANDI Jón Karl
Ólafsson, fráfarandi forstjóri Icelandair og
Icelandair Group, ásamt forstjóra Travel
Service í Tékklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Jón Karl Ólafsson hættir og Björgólfur Jóhannsson frá Icelandic Group tekur við:
Skipt um forstjóra Icelandair
HÆSTIRÉTTUR Árni Kolbeinsson
hæstaréttardómari var kosinn
forseti réttarins í gær. Varafor-
seti Hæstaréttar var kjörin
Ingibjörg Benediktsdóttir.
Gunnlaugur Claessen lætur af
starfi forseta Hæstaréttar um
áramótin.
Samkvæmt lögum um dómstóla
fer forseti með yfirstjórn
Hæstaréttar, stýrir þeirri
starfsemi réttarins sem er ekki
hluti af meðferð máls fyrir dómi,
skiptir verkum milli dómara og
annarra starfsmanna og fer með
agavald yfir þeim. Árni og
Ingibjörg sinna störfum sínum til
loka árs 2009. - sþs
Gunnlaugur lætur af störfum:
Árni forseti
Hæstaréttar
ALSÍR, AP Það voru maður á
sextugsaldri og þrítugur fyrrver-
andi fangi sem frömdu sjálfs-
morðs-bílsprengjutilræðin tvö í
Algeirsborg á þriðjudag, sem
urðu minnst 31 manni að bana.
Dagblöðin L‘Expression og El
Watan höfðu þetta eftir ónafn-
greindum heimildarmönnum í
lögreglunni. Öfgasamtök, sem
kenna sig við Norður-Afríkudeild
al-Kaída, lýstu ábyrgð á tilræðun-
um á hendur sér og birtu myndir
af tilræðismönnunum á netinu.
Eldri maðurinn, „einn elsti
hryðjuverkamaðurinn“ í röðum
íslamskra öfgamanna í landinu að
sögn El Watan, var sá sem
sprengdi sig við skrifstofur SÞ.
- aa
Tilræðin í Algeirsborg:
Sprengjumaður
á sjötugsaldri
Í RÚST Slökkviliðsmenn á vettvangi í
rústum SÞ-byggingarinnar í Algeirsborg.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Umboðsmaður endurkjörinn
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður
Alþingis, var endurkjörinn í embættið
til næstu fjögurra ára á þingfundi í
gær. Kosningin var leynileg og óbind-
andi, en Tryggvi fékk öll 55 atkvæðin
sem greidd voru.
ALÞINGI
Áréttað er að tilvitnuð orð sýslu-
mannsins á Selfossi, Ólafs Helga
Kjartanssonar, í frétt í blaðinu
síðastliðinn föstudag voru úr bréfi
sýslumannsins til bæjaryfirvalda í
Hveragerði. Fréttin varðaði svokallaða
Tívolílóð í Hveragerði.
ÁRÉTTING
GENGIÐ 13.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
117,8893
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
60,69 60,97
123,94 124,54
89,13 89,63
11,945 12,015
11,225 11,291
9,44 9,496
0,5426 0,5458
96,03 96,61
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR