Fréttablaðið - 14.12.2007, Side 12
12 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
ÞÝSKALAND, AP Hinn nýi Evrópu-
samvinnusinnaði forsætisráð-
herra Póllands, Donald Tusk, og
þýski kanslarinn Angela Merkel
tóku á þriðjudag saman fyrstu
skrefin að því bæta samskipta
grannríkjanna tveggja. Samskipt-
in höfðu stirðnað mjög í valdatíð
síðustu ríkisstjórnar í Varsjá, sem
lét harða þjóðernisstefnu bitna á
tengslunum.
Þrátt fyrir hlýleg orð í sinni
fyrstu opinberu heimsókn til
Berlín miðaði lítið í samkomulags-
átt í nokkrum þeim málum sem
mestur ágreiningur hefur verið
um. Svo sem um áformað safn um
örlög þeirra milljóna Þjóðverja
sem flæmdar voru frá þeim hér-
uðum sem gefin voru Póllandi
eftir stríð, eða um áformaða lagn-
ingu gasleiðslu frá Rússlandi til
Þýskalands eftir botni Eystrasalts,
framhjá Póllandi. - aa
Donald Tusk fundar með Angelu Merkel í Berlín:
Ætla að bæta tengsl
VINIR Grannþjóðaleiðtogarnir báru lof á
vináttuna milli þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÁTTÚRA Sérfræðingar Veður-
stofunnar fylgjast grannt með
skjálftahrinu við Upptyppinga,
um 20 kílómetrum austan við
Öskju, en hrinan hefur staðið frá
síðastliðnum föstudegi. Þar til
skjálftarnir verða grynnra í jarð-
skorpunni og sterkari er ekki talin
mikil hætta á eldgosi á svæðinu.
Hundruð skjálfta hafa orðið í
hrinunni, og nálgast óðfluga þús-
undið, segir Sigþrúður Ármanns-
dóttir, landfræðingur hjá Veður-
stofu Íslands. Skjálftarnir eru
taldir tengjast kvikuhreyfingum
undir yfirborðinu. Í gær hafði held-
ur dregið úr skjálftunum en óvíst
hvort það er tímabundið ástand.
Flestir skjálftarnir hafa orðið á
13 til 15 kílómetra dýpi, og segir
Sigþrúður að hætta á eldgosi muni
aukast ef upptök þeirra verði innan
10 kílómetra frá yfirborði.
Svæðið norðan Vatnajökuls er
eldvirkt, en ekki hefur orðið gos við
Upptyppinga síðasta árþúsundið,
segir Magnús Tumi Guðmundsson,
prófessor í jarðeðlis fræði við
Háskóla Íslands. Þó hafa orðið gos
annars staðar á svæðinu, til dæmis
í Öskju frá því land byggðist.
„Við vitum ekkert um það hvort
þetta er einhver vísbending um að
þarna muni gjósa í náinni framtíð.
Menn segja hins vegar að ekki sé
heldur hægt að útiloka það,“ segir
Magnús Tumi.
Jarðfræðingar hafa því engar
upplýsingar um það hvernig
skjálftavirkni var síðast þegar
gaus, sem þýðir að afar erfitt er
að spá fyrir um framhaldið, hvort
stefni í eldgos eða ekki.
Magnús Tumi segir líklegast að
ákveðnir fyrirboðar muni sjást
áður en eldgos við Upptyppinga
hefst þegar skjálftar færist ofar í
jarðskorpuna. Þó að talsvert sé
um ferðamenn á svæðinu yfir
sumartímann búi enginn í
nágrenni við Upptyppinga, og því
ættu ekki að þurfa að verða nein
skakkaföll af eldgosi á þessum
slóðum. Þó sé mikilvægt að vakta
svæðið vel.
brjann@frettabladid.is
Ekki gos síðan
land byggðist
Jörð skelfur enn við Upptyppinga og hefur skjálfta-
hrina staðið í viku. Ekki er útilokað að eldgos verði
þar á næstunni en jarðeðlisfræðingur segir líklegt
að frekari fyrirboðar sjáist áður en gos hefst.
ASKJA Í DYNGJUFJÖLLUM Ekki hefur orðið eldgos við Upptyppinga síðasta árþúsund-
ið, en nokkrum sinnum hefur gosið í Öskju í Dyngjufjöllum og nágrenni frá því land
byggðist. MYND/SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
SJÁVARÚTVEGUR Afli erlendra ríkja
við Ísland minnkaði úr 114 þús-
und tonnum 2005 í rúmlega 54
þúsund tonn 2006. Uppistaða
aflans var sem fyrr loðna. Fær-
eyingar veiddu mest erlendra
þjóða hér við land 2006 en Norð-
menn árið 2005. Þetta kemur
fram í ritinu Afli erlendra ríkja
við Ísland 2006 og heimsaflinn
2005.
Heimsaflinn var 93 milljónir
tonna árið 2005 og minnkaði um
1,1 milljón frá árinu 2004. Kyrra-
hafið gaf mestan afla og stærsta
einstaka fisktegundin var Perú-
ansjósa. Kínverjar veiddu mest
árið 2005 en Íslendingar voru í
14. sæti listans, í öðru sæti fisk-
veiðiþjóða á Norðaustur-Atlants-
hafi og í áttunda sæti veiðiþjóða
á Norðvestur-Atlantshafi. - shá
Afli erlendra ríkja minnkandi á Íslandsmiðum:
Færeyingar veiddu
mest erlendra þjóða