Fréttablaðið - 14.12.2007, Qupperneq 18
14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
LISSABON, AP Leiðtogar Evrópusam-
bandsríkjanna 27 söfnuðust saman
í Lissabon, höfuðborg Portúgals, í
gær til að undirrita formlega
endanlega útgáfu umbótasáttmál-
ans svonefnda, sem hér eftir verður
kenndur við Lissabon. Að sögn leið-
toganna gerir nýi sáttmálinn þeim
meðal annars kleift að bregðast
með skilvirkari hætti fyrir hönd
sambandsins við heimsmálunum.
Leiðtogarnir komu sér saman
um nýja sáttmálann fyrir tveimur
mánuðum, en með honum vonast
þeir til að binda enda á þá
„stjórnarskrárkreppu“ sem höfnun
kjósenda í Frakklandi og Hollandi
snemmsumars 2005 á stjórnar-
skrársáttmálanum svonefnda
steypti sambandinu í. Lissabon-
sáttmálinn mun taka gildi er öll
aðildarríkin hafa lokið við að full-
gilda hann, en stefnt er að því að
því verði lokið snemma á árinu
2009 svo að hann geti tekið gildi
fyrir næstu kosningar til Evrópu-
þingsins, sem að öllu óbreyttu eiga
að fara fram í júní 2009.
Það spillti þó lítið eitt fyrir hátíð-
legu andrúmsloftinu við undirritun-
arathöfnina í gær að uppi eru mis-
háværar kröfur um að sáttmálinn
verði borinn undir þjóðar atkvæði í
fleiri löndum, en að óbreyttu er
aðeins áformað að gera það á
Írlandi. Umhverfisverndar sinnar
gagnrýndu leiðtogana ennfremur
fyrir að fljúga sérstaklega til Lissa-
bon til að taka þar þátt í tveggja
tíma undirritunarathöfn. Þeir munu
síðan halda hinn eiginlega misseris-
lokafund sinn í Brussel í dag.
Nýja sáttmálanum má lýsa sem
metnaðarminni útgáfu af stjórnar-
skrársáttmálanum. Nokkur af
umdeildustu atriðum hins síðar-
nefnda hafa verið skorin frá og
nýjar málamiðlunarlausnir
fundnar. Sáttmálinn breytir ákvarð-
anatökukerfi sambandsins. Hér
eftir verða langflestar ákvarðanir
teknar með vegnum meirihluta,
það er þeim sviðum fækkað enn
þar sem þarf samhljóða samþykki.
Þá breytist líka atkvæðavægi hvers
aðildarríkis, þannig að meira tillit
verður tekið til íbúafjölda þeirra.
Hin mikla fjölgun aðildarríkja
kallaði á þessar breytingar.
Þá á leiðtogaráð sambandsins að
fá varanlegan forseta, sem stýrir
fundum þess. Hann er kjörinn til
tveggja og hálfs árs í senn. Með
þessu á að afleggja þann sið, að
aðildarríkin skiptist á um að gegna
ESB-formennskunni í hálft ár í
senn. Þá á að fækka meðlimum
framkvæmdastjórnar ESB úr 27 í
17. Loks fær Evrópuþingið völd sín
aukin enn, auk þess sem þjóðþing
aðildarríkjanna fá virkara hlutverk
í ESB-kerfinu.
„Sambandið var lamað og vissi
ekki hvernig það ætti að komast út
úr kreppunni; við fundum lausnina
með þessum sáttmála,“ sagði Jose
Socrates, forsætisráðherra Portú-
gals og gestgjafi athafnarinnar.
„Með því að leysa stofnanamál sín
er Evrópa [les: Evrópusambandið]
að búa sig í stakk til að takast á við
vandamál heimsins,“ sagði José
Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB.
audunn@frettabladid.is
DANIR MEÐ Anders Fogh Rasmussen
forsætisráðherra og Per Stig Møller,
utanríkisráðherra Danmerkur, takast í
hendur eftir að hafa skráð nöfn sín á
sáttmálaskjalið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Lissabon-sáttmálinn
leysir úr kreppu ESB
Leiðtogar Evrópusambandsins flugu til Lissabon í gær til að undirrita nýja upp-
færslu stofnsáttmálans, sem kemur í stað stjórnarskrársáttmálans strandaða.
Sáttmálinn á að taka gildi árið 2009, án þjóðaratkvæðagreiðslu nema á Írlandi.
© GRAPHIC NEWS
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
39
98
6
12
/0
7
Brettapakkar
20% afsláttur