Fréttablaðið - 14.12.2007, Síða 22
22 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Hlaup en engin kaup
„Þetta átti bara að vera smá
verslunarferð fyrir jólin.“
ERLA ÓSK ARNARDÓTTIR LILLI-
ENDAHL, SEM FLAUG TIL NEW
YORK OG LENTI Í MIÐJU STRÍÐI
GEGN HRYÐJUVERKUM OG VIÐ
TOLLVERÐI.
Fréttablaðið 13. desember
Hvaða málstað þá?
„Alþingi hefur aldrei brugð-
ist hinum kristna málstað.“
BJÖRN BJARNASON, DÓMS- OG
KIRKJUMÁLARÁÐHERRA, SEGIR
VÁ FYRIR DYRUM, SLITNI TENGSL
KRISTNI OG GRUNNSKÓLA.
Fréttablaðið 13. desember
Útlendingar eru áberandi
í þjónustustörfum hér á
landi. Oft eru viðskipta-
vinir spurðir hvað þeim
finnst um þá þróun en
Frétta blaðið fór á stúfana
og spurði erlent afgreiðslu-
fólk hvað þeim þætti um
íslensku viðskiptavinina.
„Íslendingar eru bara jákvæðir og
kurteisir,“ segir Pawel Kozycz
afgreiðslumaður í Krónunni. „Ég
er búinn að vera á Íslandi í tvö ár
og tók þá ákvörðun strax að læra
íslensku og til að flýta fyrir
íslenskunáminu neita ég alveg að
tala ensku og fólk kann að meta
það. Reyndar hafa nokkrir pólskir
viðskiptavinir móðgast nokkuð því
ég tala íslensku við þá líka. Ég hef
nefnilega gagnrýnt nokkra landa
mína fyrir að koma hérna eins og
nýlenduherrar í staðinn fyrir að
læra tungumálið og aðlagast
íslenskri menningu og hefðum.
Það sem ég kann virkilega að meta
við Íslendinga er kímnigáfan en
þar standa þeir löndum mínum
framar, þess vegna er ég óspar á
grínið og það fellur í góðan jarð-
veg. Til dæmis kom hérna maður
með barn og þegar ég var búinn að
renna öllum vörunum í gegnum
skannarann sagði ég, „já, svo ertu
með tvo poka og eitt barn,“ þessu
gríni var vel tekið,“ segir hann og
skellir upp úr.
„Einu kvartanirnar sem ég fæ
frá viðskiptavinunum er þegar
sumum þeirra finnst ég vera full
fljótur við að renna vörunum í
gegn og þeir hafa ekki við að setja
þær í pokana. Og ef ég er farinn að
renna vörum annars kúnna í gegn
þá verða sumir óánægðir ef þeir
eru enn að tína í pokann sinn.
Íslendingar vilja fá sitt pláss.“
Aðspurður hvort Íslendingar séu
kaupóðir segir hann: „það held ég
ekki, ekkert frekar en Pólverjar.
Reyndar hef ég heyrt marga tala
um þetta íslenska kaupæði svo
eflaust er eitthvað til í því, fólk
hefur heldur ekkert annað að gera
í þessari veðri,“ segir hann og
skellir upp úr.
Carolyn Linda Jeans og Ulrika
Pétursdóttir eru hálfíslenskar og
starfa í IKEA í Garðabæ. Carolyn
ólst upp í Bandaríkjunum en flutti
hingað árið 1982 en Ulrika, sem er
uppalin í Svíþjóð, kom hingað fyrir
tveimur árum. „Íslendingar eru
afskaplega óþolinmóðir, það á allt
að gerast núna strax,“ segir Ulrika.
Carolyn tekur undir þetta. „Það er
alveg rétt og ef allt er ekki eins og
þeir vilja geta þeir brugðist illa
við, til dæmis hafa nokkrir sagt
við okkur að við séum búnar að
skemma jólin því að hitt eða þetta
er ekki til,“ segir hún og hlær við.
„En almennt eru þeir kurteisir,“
bætir Carolyn við, „til dæmis eru
fastakúnnarnir sérlega góðir enda
eru Íslendingar yfirleitt mjög
skemmtilegir þegar maður er
farinn að kynnast þeim.“
Fyrst þegar Ulrika byrjaði í
IKEA var hún ekki altalandi á
íslensku. „Þá þurfti ég stundum að
grípa til enskunnar og flestir tóku
því bara af skilningi. Nú, svo eru
fjölmargir Íslendingar sem kunna
sænsku og margir þeirra hafa
gaman af því að dusta rykið af
sænskukunnáttu sinni þegar ég
segi þeim hvaðan ég er.“
En sænskukunnátta Íslendinga
getur líka komið starfsfólkinu í
bobba. „Við erum nokkur hér sem
tölum sænsku þar á meðal er ein
finnsk stúlka og einu sinni þegar
hún hafði lent í vandræðum með
einn kúnnann blótaði hún á sænsku
þegar kúnninn var að fara. Hann
snéri við á punktinum og hellti sér
yfir hana enda skildi hann allt
saman.“
Í IKEA starfa fjölmargir
erlendir starfsmenn og segja þær
stöllur að flestir þeirra tali saman
á íslensku enda bjóði IKEA upp á
íslenskunám.
Sylwia Bogdan er pólsk og vinn-
ur í Bónus í Garðabæ. Hún hefur
búið hér í tvo mánuði svo íslensku-
kunnáttan er af skornum skammti.
„Stundum fæ ég skammir í hattinn
fyrir að tala ekki nógu mikla
íslensku en sumir eru afar ánægð-
ir með það að ég skuli allavega
reyna. Ég get sagt það mikilvæg-
asta en ef eitthvað óvænt ber á
góma verð ég að hringja eftir
hjálp. Svo eru sumir mjög gjarnir
á að kenna mér og ég hef bara
gaman af því.“ jse@frettabladid.is
Grínið gefst vel á landann
PAWEL Á KASSANUM Hann hikar ekki við að slá á létta strengi við viðskiptavinina
enda kann hann vel að meta íslenska húmorinn. Landar hans eru hins vegar ekki
jafn kátir þegar hann talar aðeins við þá á íslensku. JÓN SIGURÐUR
CAROLYN OG ULRIKA Þær stöllur
verða að vera snarar í snúningum og
helst hafa allt til, annars getur fokið í
óþolinmóða Íslendinga. Sumir hafa sagt
þær skemma jólin með því að eiga ekki
vöruna til sem þeir ætluðu að kaupa.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
SYLWIA Í BÓNUS Sumir taka því illa að Sylwia tali ekki næga íslensku þótt hún hafi
aðeins búið hér í tvo mánuði. Aðrir hafa gaman af því að bæta íslenskukunnáttu
hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
■ Manneken
Pis er eitt af
höfuðkenni-
leitum Brussel,
höfuðborgar
Belgíu. Hann er
lítil bronsstytta
í gosbrunni í
hliðargötu frá aðaltorgi gömlu
miðborgarinnar, skammt fyrir
aftan ráðhúsið. Styttan sem þar
stendur nú var gerð árið 1619 en
hún átti sér nokkra fyrirrennara
úr steini. Sú fyrsta var sett upp
jafnvel svo snemma sem árið
1388. Nokkrar þjóðsögur eru til
um Manneken Pis. Ein segir frá
dreng sem slökkti í kveikjuþræði
sprengju sem komið hafði verið
fyrir við borgarmúrana með því
að kasta af sér vatni á hann.
MANNEKEN PIS:
KENNILEITI BRUSSEL
„Ég er bara nokkuð ánægð,“ segir Elísabet
Jökulsdóttir rithöfundur. „Bókin mín, Heilræði
lásasmiðsins, var að koma út, ég var einmitt
að lesa hana í nótt og hún er bara mjög
góð,“ segir hún og hlær við.
„Svo er ég að koma mér fyrir í íbúðinni
minni eftir Írlandsdvölina þar sem ég var
að læra um leikrit og skrif í sama
skóla og James Joyce. Þar var ég
líka að reyna að rata um sjálfa mig
rétt eins og ég þurfti að rata um
Dublin.“
En fleiri systkini Elísabetar gefa
út bók fyrir þessi jól. Bók Hrafns
er í öðru sæti á metsölulist-
anum og Unnur og Illugi gefa
einnig út fyrir jólin. Því var hún
spurð hvort samkeppnin kæmi
niður á samskiptum þeirra. „Já, við
tölumst ekki við núna,“ segir hún og er augljós-
lega að grínast. „Reyndar erum við öll að
skrifa hvert um sitt efnið svo þetta er
kannski ekki bein samkeppni. Til dæmis
er Unnur systir að skrifa um huldufólk
og ég um kynlíf meðal annars þannig
að þetta er ekkert mál. Hins vegar ef
hún tæki sig til og færi að skrifa um kynlíf
huldufólks þá værum við komin í bullandi
samkeppni.“
En hvernig er það að koma heim í
miðjum jólaönnum? „Það er fínt, ég er
enga stund að því að stressast upp og
verða vitlaus í jólabrjálæðinu. En hins
vegar var ég að velta því fyrir mér að
„chilla“ fyrir þessi jól en það er eitthvað
sem dóttir mín er að kenna mér. Svo
verður nóg um að vera eftir jól, það er von
á mínu fimmta barnabarni í febrúar.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Ef systir mín skrifaði um kynlíf huldufólks
„Það er í sjálfu sér ánægjulegt að vörur til að gleðja börn
þyki spennandi viðskiptakostur og að fyrirtæki keppist
við að gera vel í verði og án efa í gæðum líka. Hins
vegar megum við ekki gleyma því að það þarf ekki alltaf
verðmiða og verðstríð til að gleðja börn,“ segir Margrét
Pála Ólafsdóttir, skólastjóri og höfundur Hjallastefn-
unnar. Margrét segir að einmitt núna á aðventunni sé
ekki síður mikilvægt að gefa börnum dýrmæti sem ekki
fáist í búðum. „Hið nýja gull Vesturlanda er tími. Við
eigum að gefa börnunum af þessu gulli með auknum
samverustundum fjölskyldunnar. Piparkökubakstur við
kertaljós, fjölskylduboð eða leikhúsferð með pabba eru
jafn dýrmætar gjafir og þær sem eru með verðmiðanum
í leikfangaversluninni,“ segir Margrét sem sér þó lítið
athugavert við að verðstríð geisi á markaði sem er
helgaður börnum. „Markaður sem sinnir börnum á
ekki að vera neitt öðruvísi í eðli sínu en aðrir markaðir svo lengi sem góðir
viðskiptahættir eru í heiðri hafðir. Það er skinhelgi að setja út á auglýsingar
og markaðssetningu sem beinist að börnum en láta það óátalið að þau horfi
á fullorðinsauglýsingar með kynferðislegum skírskotunum og ofbeldi,“ segir
Margrét.
SJÓNARHÓLL
VERÐSTRÍÐ Á LEIKFANGAMARKAÐI
Fleira sem gleður
MARGRÉT PÁLA
ÓLAFSDÓTTIR
Höfundur Hjalla-
stefnunnar.