Fréttablaðið - 14.12.2007, Qupperneq 32
32 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 266
6.542 -1,00% Velta: 11.685 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,08 +0,80% ... Bakkavör
59,60 +0,17% ... Eimskipafélagið 36,55 +0,00% ... Exista 22,90 -
1,72% ... FL Group 15,45 +0,00% ... Glitnir 22,80 -1,94% ... Icelandair
26,75 -2,19% ... Kaupþing 889,00 -1,22% ... Landsbankinn 37,00
+0,14% ... Straumur-Burðarás 15,30 -2,24% ... Össur 99,00 +0,00%
... Teymi 5,98 +0,00%
MESTA HÆKKUN
ATORKA 0,80%
BAKKAVÖR 0,17%
LANDSBANKINN 0,14%
MESTA LÆKKUN
EIK BANKI 2,80%
STRAUMUR-BURÐA. 2,24%
ICELANDAIR 2,19%
„Bankarnir spila þarna stóra rullu.
Þeir hafa dregið verulega úr lán-
veitingum til kaupa á aflaheimild-
um,“ segir Þórir Matthíasson, for-
stöðumaður sjávarútvegssviðs
Viðskiptahússins. Hann segir lítil
sem engin viðskipti hafa verið með
kvóta frá því að tilkynnt var um
verulegan niðurskurð aflaheimilda
í sumar. Friðbjörn Ásbjörnsson,
hjá Fiskmarkaði Íslands tekur
undir þetta. „Menn eiga erfitt með
að fjármagna kvótakaup.“
„Við höfum heyrt í mönnum sem
hafa orðið varir við meiri tregðu
hjá bönkunum en áður,“ segir
Arthur Bogason, formaður Lands-
sambands smábátaeigenda.
„Það er samt fyrst og fremst niður-
skurðurinn í þorskinum sem skýrir
þetta,“ segir Arthur. Menn myndu
til dæmis ekki vilja selja 100 tonn
núna sem kannski yrðu 150 tonn
þegar kvótinn verður aukinn.
Viðskipti með aflaheimildir voru
nokkur framan af árinu en nú hafa
þau alveg dottið niður í varanleg-
um heimildum og lítil viðskipti eru
með leigukvóta. „Það hefur engin
verðmyndun átt sér stað,“ segir
Þórir. Friðbjörn nefnir að í króka-
kerfinu gæti óveitt kíló af þorski
farið á um 3.500 krónur en í stærra
kerfinu kosti það á bilinu 3.800 til
4.000 krónur.
„Verð á aflaheimildum er of hátt
um þessar mundir, miðað við vænt-
an afrakstur,“ segir Magnús Karls-
son, viðskiptastjóri á fyrirtækja-
sviði Landsbankans. Hann bendir
á að almennt haldi bankar að sér
höndum í útlánum, vegna lausa-
fjárskorts á heimsvísu. „Það á við
lán til kvótakaupa eins og annað.“
Hver og ein beiðni sé tekin fyrir.
„Við höfum raunar ekki fengið
margar beiðnir upp á síðkastið,
svo við erum þannig séð ekki að
neita mörgum um lán,“ segir
Magnús.
Magnús Arnar Arngrímsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækja-
sviðs Glitnis, tekur í sama streng.
Beiðnir séu fáar. Hver og ein sé
hins vegar tekin fyrir og greiðslu-
hæfið kannað. ingimar@frettabladid.is
Kvótaviðskipti
sjaldan minni
Lítil sem engin viðskipti hafa verið með fiskveiðikvóta
á síðari hluta ársins. Aflaheimildir hafa verið skornar
niður og bankar halda að sér höndum í lánveitingum.
SÁ GULI Þorskur selst ekki óveiddur um þessar mundir. Skýringin er rakin til niður-
skurðar á aflaheimildum og þess að bankar halda að sér höndum í lánveitingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Adam Applegarth, forstjóri breska
bankans Northern Rock, lét af
störfum í gær, tveimur mánuðum
fyrr en hann ætlaði sér. Á sama
tíma greindi bankinn frá því að
hann hefði tapað 281 milljón
punda, jafnvirði 35 milljarða
íslenskra króna, á ýmsum lána-
vöndlum sem hafa fallið mjög í
verði. Stjórn bankans útilokar
ekki frekara tap. Andy Kuipers,
yfirmaður sölu- og markaðsmála,
hefur tekið við starfi hans.
Nokkrir sterkir fjárfestar hafa
gert tilboð í hlutabréf bankans og
hafði einn þeirra, breska félagið
Olivant, þrýst á um að bankinn
gerði hreint fyrir sínum dyrum
fyrir jól ellegar draga tilboðið til
baka.
Northern Rock hefur fengið 25
milljarða punda, jafnvirði 3.100
milljarða íslenskra króna, í neyð-
arlán hjá Englandsbanka, seðla-
banka Bretlands, til að tryggja sig
gegn lausafjárþurrð. Heldur blés í
lántökuna þegar stjórnendur
bankans greindu frá því í haust að
þeir hefðu tryggt sér lánavilyrði í
september. Það olli taugatitringi í
röðum sparifjáreigenda sem fóru
í þúsundatali í bankann og tóku út
fé sitt.
Gengi bankans hefur hríðfallið
síðan þá og fór um tíma í gær í 94
pens á hlut. - jab
SPARIFÉÐ TEKIÐ ÚT Forstjóri Northern
Rock hefur tekið pokann sinn eftir mikið
tap hjá bankanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Forstjórinn farinn
„Það er ljóst að hagvöxtur er tölu-
vert meiri en menn höfðu reiknað
með,“ segir Jón Bjarki Bentsson,
sérfræðingur hjá greiningu Glitn-
is. Hagvöxtur mældist 4,3 prósent
á þriðja ársfjórðungi. Þar af 2,6
prósent á fyrstu níu mánuðum árs-
ins. Að baki liggur talsverð aukn-
ing í einkaneyslu, ötulum bíla-
kaupum landsmanna og
utanlandsferðum í sumar.
Þá var reiknað með allt að
tuttugu prósenta samdrætti í fjár-
festingum eftir mikinn vöxt í
fyrra. Raunin varð hins vegar sex
prósentum minni. Jón segir
nokkur atriði búa þar að baki, svo
sem mikla fjárfestingu atvinnu-
veganna. „Ég hef verið með til-
gátu um að hluti af þessu sé vegna
dráttar á verklokum Kárahnjúka-
virkjunar. Það er ekki ókeypis
enda þýðir það að heildarfjárfest-
ing í mannvirkjum verður umfram
áætlanir,“ segir hann.
Greining Glitnis hafði spáð
óbreyttu stýrivaxtastigi á næsta
vaxtaákvörðunarfundi Seðlabank-
ans í næstu viku. Jón segir
bankann ekki hafa breytt spá sinni
en bætir við að hagtölurnar nú
auki líkurnar á því að vextir
hækki. „Við erum að skoða spána,“
segir hann. - jab
FRAMKVÆMDIR Sérfræðingur hjá grein-
ingu Glitnis segir fjárfestingu atvinnu-
veganna hafa dregist minna saman en
spáð var á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hærri stýrivöxtum spáð
Tvær breskar fjölskyldur, sem
samtals eiga tæp 27 prósent í
Moss Bros, þykja líklegar til að
vera andvígar hugsanlegu yfir-
tökutilboði Baugs í félagið.
Baugur á tæp 29 prósent í félag-
inu gegnum eignarhaldsfélagið
Unity Investments.
Verðmiðinn á herrafataversl-
uninni hefur lækkað hratt á
árinu samhliða sölusamdrætti.
Greinendur reikna með að
rekstrarhagnaður ársins dragist
saman um fjórðung á milli ára.
Financial Times segir verð-
miðann á herrafataversluninni
lágan um þessar mundir og fjöl-
skyldurnar telji hann ekki end-
urspegla raunverulegt verðmæti
félagsins. Þær eru sagðar þrýsta
á Keith Hamill, stjórnarformann
Moss Bros, að standa sem fastast
gegn yfirtökutilburðum Baugs.
- jab
Fjölskyldur á
móti yfirtöku
MARKAÐSPUNKTAR
Neyslugleði landsmanna virðist í
fullum gangi ef marka má greiðslu-
kortaveltu í nóvember. Heildarvelta
greiðslukorta nam um 79 milljörðum
króna í mánuðinum. Þetta er 7,3 pró-
senta aukning frá sama tíma í fyrra,
samkvæmt greiningardeild Glitnis.
Gengi hlutabréfavísitalna lækkaði
nokkuð víða um heim í gær þrátt fyrir
aðgerðir fimm seðlabanka til að létta
á lausafjárkrísunni. Greiningardeild
Landsbankans segir þær svartsýnis-
raddir heyrast að aðgerðirnar hafi
verið viðbrögð við verri lausafjárstöðu
bankanna en vitað var um.
Atvinnuleysi í Bretlandi mældist 2,5
prósent í síðasta mánuði. Það hefur
ekki verið með minna móti síðan árið
1975, samkvæmt greiningu Kaup-
þings.
GJAFABRÉF – TILVALIN JÓLAGJÖF
MÁLMUR STEINN TRÉ ÍHLUTIR
SILFUR
KVEIKING
NÁMSKEIÐ
SÖGUN
BORUN
SLÍPUN
ÚTSKURÐUR
VÉLAR
RENNIBEKKIR
SKRÚFUR
KLUKKUR
FESTINGAR
Handverkshúsið Bolholti 4, 105 Rvk. Sími: 555 1212 Vefverslun: handverkshusid.is
Námskeið - vélar - verkfæri - bækur
Jó
la
ti
lb
oð
á
ha
nd
ve
rk
sh
ús
ið
.is
(áður Hjá Gylfa, Hafnarfirði)
Hringdu og við sendum
Tilboð
Opið lau - sun 10 –16 • opið 17. – 23. desember 10 – 21
Silfurleirssett
4.950 kr.
20% afsl
Steinatromla
8.500 kr.
15% afsl
Útskurðarsett
11.750 kr.
15% afsl
Smáfræsari
6.950 kr.
20% afsl
Færeyingar í mínus
Gengi bréfa í Föroyabanka féll um 2,14 prósent
í Kauphöll Íslands í gær og fór í 183 dansk-
ar krónur á hlut. Þetta er sex krónum undir
útboðsgengi með bréfin áður en viðskipti
hófust með þau 21. júní síðastliðinn.
Gengið fór um tíma í 178,5 krónur á
hlut í gær og hafði aldrei verið lægra.
Gengi bréfanna stóð í 240 krónum
á fyrsta viðskiptadegi og hækkaði um
tæp 30 prósent innan dags. Hæst fór
það hins vegar í 260 krónur á hlut 3.
ágúst síðastliðinn. Í kjölfarið tók það
að lækka samhliða óróleika á alþjóð-
legum fjármálamörkuðum.
Miðað við lokagengið í gær hefur
gengi bréfa í Föroya banka lækkað um 3,1
prósent frá útboði en um tæp 30 prósent frá
því það stóð í hæstu hæðum.
Einn stendur upp úr
Sami krankleiki plagar hin færeysku
félögin sem skráðu sig hér á markað
á árinu, bæði Eik Banki og Atlantic
Airways, sem skráð var fyrir helgi,
eru komin undir fyrsta við-
skiptagengi. Gengi fyrsta fær-
eyska félagsins í Kauphöllina
hér sker sig hins vegar nokkuð
úr. Atlantic Petroleum er enn
með hækkun upp á tæp 228
prósent það sem af er ári,
þótt félagið hafi lækkað um
rúmt hálft prósent í gær. Þó
er Atlantic Petroleum líklega
eina félagið sem aldrei hefur
skilað hagnaði, þótt töluverð-
ar væntingar séu gerðar til
olíuvinnslu framtíðar.
Peningaskápurinn...