Fréttablaðið - 14.12.2007, Qupperneq 34
34 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
Svissneski bankinn UBS
mælir í nýrri greiningu
með kaupum á Kaupþings-
bréfum en sölu á bréfum
Glitnis. Þetta er fyrsta
greining UBS á bönkunum.
Í nýlegri greiningu mælir sviss-
neski bankinn UBS með kaupum á
hlutabréfum Kaupþings en með
sölu á bréfum Glitnis. Markgengi
á bréf Kaupþings er sagt 960 krón-
ur á hlut og þau sögð henta fjár-
festum sem viljugri séu til að taka
smááhættu, en 20 krónur á bréf
Glitnis. Greiningin er sú fyrsta
sem Glitnir fær frá erlendum
banka og um leið fyrstar greining
UBS á bæði Glitni og Kaupþingi.
Þá kemur fram að bankinn ætli
sér einnig að greina Landsbank-
ann, en geti það ekki að þessu sinni
vegna ráðgjafarhlutverks UBS við
Close Brothers.
Greining UBS þykir bera þess
nokkur merki að sérfræðingur
bankans sé enn að setja sig inn í
aðstæður íslensku bankanna.
Þannig er hann mjög jákvæður í
garð Kaupþings, en um leið frem-
ur svartsýnn fyrir hönd Glitnis.
Þar á bæ er hins vegar afstaðan sú
að mjög jákvætt sé fyrir bankann
að fá greiningu erlends banka,
þótt í henni sé gert ráð fyrir litlum
vexti hagnaðar bankans á næstu
árum og ekki litið til vaxtartæki-
færa sem bíði bankans, til dæmis í
orkuiðnaði og sjávarútvegi. „Þó
verðið sé nokkuð undir því sem
innlendir aðilar hafa sett fram á
Glitni þá erum ánægð með þann
áhuga sem bankanum er sýndur
og við hlökkum til að halda áfram
að vinna með þessum greinanda
og kynna betur stefnu og sýn
bankans,“ segir Vala Pálsdóttir,
forstöðumaður fjárfestatengsla
Glitnis.
Í greiningu UBS er einnig litið
til íslenska bankakerfisins í heild
og það sagt einstakt í heiminum.
Þannig hafi á norrænum banka-
markaði verið ráðandi miðlungs-
stórir viðskipta- og fjárfestinga-
bankar sem tilhneigingu hafi til að
forðast áhættu í útlánum. Íslensku
bankarnir eru sagðir víkja frá
þessari uppbyggingu í því að hafa
komið sér upp víðtækara við-
skiptaneti yfir Evrópu þar sem
stór hluti hagnaðar komi frá fjár-
festingabankastarfsemi og úr við-
skiptum með hlutabréf. Hagnaður
íslensku bankanna eigi nú að stór-
um hluta uppruna sinn í Bretlandi,
Írlandi og Hollandi.
Hermann M. Þórisson, sérfræð-
ingur greiningardeildar Lands-
bankans, segir liggja í hlutarins
eðli að uppbygging íslensku bank-
anna þurfi að vera önnur. „Heima-
markaður bankanna hér er nátt-
úrulega miklu minni og því eðlilegt
að þeir leiti út á við til vaxtar,“
segir hann. Þá sé rétt að gengis-
hagnaður hafi skipað stærri sess í
rekstri bankanna hér en almennt
gerist í norrænum bönkum, enda
hafi þeir verið tilbúnir til að fjár-
festa meira í hlutabréfum. „Svo
hafa íslensku bankarnir líka í
meira mæli tekið þátt í verkefnum
með sínum viðskiptavinum og er
það náttúrulega bæði gert til að
auka arðsemi bankans og styðja
við viðskiptavininn.“
olikr@frettabladid.is
Bankakerfið
hér einstakt
VIÐ HÖFUÐSTÖÐVAR UBS Í ZÜRICH Í SVISS Risabankinn UBS hefur tekið að greina
íslensku viðskiptabankana. Í síðustu viku sendi bankinn frá sér sitt fyrsta mat á verðþróun
bréfa Kaupþings og Glitnis. Landsbankinn bætist síðar í hópinn. MARKAÐURINN/AFP
Don McCarthy, stjórnarmaður í
Baugi, hefur tekið við stjórnarfor-
mennsku í Aurum Holdings, dóttur-
félagi Baugs í Bretlandi sem held-
ur utan um eignahluti í
skartgripakeðjunum Goldsmiths,
Watches of Switzerland og Mappin
& Webb. Hann tekur við stólnum
af Jurek Piasecki, stofnanda og
fyrrum forstjóra Goldsmiths.
Í tilkynningu frá Baugi kemur
fram að McCarthy búi yfir rúm-
lega þrjátíu ára reynslu í smásölu-
geiranum en hann átti hlut að
stofnun Shoe Studio, sem nú heyr-
ir undir Mosaic Fashions.
Breska dagblaðið Financial
Times segir ósætti hafa komið upp
á milli stjórnar Goldsmiths og
Piasecki með þeim afleiðingum að
hann tók poka sinn. Hann mun þó
enn vera ráðgjafi hjá félaginu.
McCarthy er jafnframt stjórnar-
formaður House of Fraser og
stjórnarmaður í Moss Bros, sem
Baugur á tæpan 29 prósenta hlut í
í gegnum Unity Investments
ásamt FL Group og breska fjár-
festinum Kevin Stanford. Þá situr
hann sömuleiðis í stjórn verslana
Magasin du Nord og Illum í Dan-
mörku. - jab
STJÓRNARMAÐURINN Don McCarthy,
stjórnarformaður Aurum Holdings. Hann
situr í stjórnum Baugs og nokkurra
verslanakeðja félagsins.
McCarthy í fleiri
stjórnir hjá Baugi
Kaupþing hefur selt fjórðungshlut
í breska fyrirtækinu New Britain
Palm Oil. Félagið verður skráð á
aðallista kauphallarinnar í Lund-
únum hinn 17. þessa mánaðar.
Þetta er fyrsta frumútboðið sem
Kaupþing í Bretlandi sér um á
aðallistann.
Fram kemur í tilkynningu frá
Kaupþingi að mikil eftirspurn hafi
verið eftir bréfum í félaginu, bæði
frá fagfjárfestum á Bretlandseyj-
um og einnig héðan frá landi.
Umframeftirspurn hafi verið
veruleg.
Hlutir fyrir 90 milljónir punda,
eða sem nemur rúmum ellefu
milljörðum krón, hafi verið seldir.
Verð á hlut hafi verið 2,5 pund.
Markaðsverðmæti félagsins nemi
360 milljónum punda. - ikh
Mikil áhugi á
fjórðungseign
UMFRAMEFTIRSPURN EFTIR HLUTA-
BRÉFUM Í NEW BRITAIN PALM OIL
Frá einni pálmaekru félagsins í Papúa
Nýju Gíenu.
Rétt tæp tíu prósent fengust
greidd af lýstum kröfum upp á
tæplega 172,5 milljónir króna í
þrotabú Sindrabergs á Ísafirði.
Búið var tekið til gjaldþrota-
skipta 23. ágúst 2005, en
skiptum lauk í nóvem-
berlok síðastliðin.
Sindraberg var
nýsköpunar-
fyrirtæki, stofn-
að árið 1999 um
framleiðslu á
frosnum
sushi-réttum.
Afurðir voru
markaðssettar
í Bretlandi og
Þýskalandi en
róðurinn reyndist
erfiður.
Veðkröfur í búið
námu tæplega 133,7
milljónum, en þar af greidd-
ust 15,6 milljónir, eða rúm 16 pró-
sent. Upp í samþykktar forgangs-
kröfur að upphæð tæplega 20,6
milljónir króna fengust tæplega
1,6 milljónir króna, 11,23 prósent
krafna. Aðrar almennar kröfur í
búið námu rúmum 18,2
milljónum króna.
Stærstu hlut-
hafar Sindra-
bergs voru
Ný sköp-
unar-
sjóður
atvinnu-
lífsins,
Byggða-
stofnun og
Hvetjandi hf.
fjárfestingar sjóður í
eigu Ísafjarðarbæjar,
Byggðastofnunar, Súðavíkur-
hrepps, Lífeyrissjóðs Vestfirð-
inga og Sparisjóðs Vestfirðinga.
Flestir urðu starfsmenn Sindra-
bergs rúmlega 30 talsins. - óká
Tíund krafna greidd
Skiptum lokið á sushi-verksmiðjunni Sindrabergi.
Vextir á lánum Íbúðalánasjóðs
hækka um 20 til 25 prósentustig.
Þeir eru nú 5,75 prósent á almenn-
um lánum og 5,50 prósent á lánum
með ákvæði um sérstaka upp-
greiðsluþóknun. Vaxtahækkunin
kemur í kjölfar útboðs íbúðabréfa
sjóðsins.
Vextir sjóðsins voru áður 5,50
prósent af almennum lánum og
5,30 prósent af lánum með upp-
greiðslugjaldi, eftir vaxtahækkun
um miðjan síðasta mánuð.
Vextir sjóðsins eru engu síður
heldur undir því sem bankarnir
bjóða um þessar mundir. Almenn
jafngreiðsluíbúðalán Landsbank-
ans bera nú 6,3 prósenta vexti,
6,35 prósent hjá Glitni og 6,4 pró-
sent hjá Kaupþingi. - óká
Vextir Íbúðalánasjóðs hækka
Stofnfjáraukning hjá Byr sparisjóði.
Útboðinu lýkur föstudaginn
14. desember kl. 16.00
Nú stendur yfir aukning stofnfjár um kr. 23.726.114.700 með útboði þar sem
stofnfjáreigendum er boðið að skrá sig fyrir nýju stofnfé. Nafnverð nýs stofnfjár í
útboðinu er kr. 12.200.000.000 og er verð hvers stofnfjárhlutar kr. 1,94476350.
Útboðslýsing er aðgengileg á vef sparisjóðsins, www.byr.is, og í útibúum
sparisjóðsins.
Áskriftartímabilinu lýkur föstudaginn 14. desember 2007 kl. 16.00.
Stofnfjáreigendur eiga kost á að skrá sig rafrænt fyrir nýju stofnfé, á vef spari-
sjóðsins undir slóðinni www.byr.is. Stofnfjáreigendum gefst einnig kostur á að skrá
sig fyrir nýju stofnfé með því að fylla út áskriftarblað og skila því undirrituðu í útibú
Byrs áður en áskriftartímabilinu lýkur, kl. 16.00 föstudaginn 14. desember 2007.
Áskriftir sem sendar verða til Byrs í pósti verða ekki teknar gildar í útboðinu.
Ef stofnfjáreigandi nýtir að engu leyti rétt sinn til kaupa á nýju stofnfé í útboðinu
mun eignarhlutur hans í sparisjóðnum þynnast um 86,20% að því gefnu að allt
stofnfé sem boðið er til sölu í útboðinu seljist. Eindagi áskrifta er 21. desember 2007.