Fréttablaðið - 14.12.2007, Side 36
36 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
taekni@frettabladid.is
Vefurinn: Video Game Chartz
Fylgstu með hvernig uppáhaldsleikjatölvan
þín er að seljast. Notaðu tölurnar í næsta
rifrildi við vin þinn um hvaða tölva sé best.
www.vgchartz.com
Ruslpóstur á netinu er alls staðar. Sam-
kvæmt niðurstöðum árlegrar rannsókn-
ar tölvuöryggisfyrirtækisins Barracuda
Networks var ruslpóstur 95 prósent allra
tölvupóstssendinga á þessu ári. Í fyrra var
hlutfallið 90 prósent. Árið 2001 var það
fimm prósent.
Í rannsókninni var rúmlega milljarður
tölvupósta skoðaður, sem sendur var til yfir
fimmtíu þúsund manns um allan heim.
Helmingur þátttakenda fékk fimm eða færri
ruslpósta á degi hverjum, 65 prósent fengu
tíu eða færri og þrettán prósent þurftu
oftar en fimmtíu sinnum að sjá óvelkominn
ruslpóst í innboxinu sínu á dag.
Auk greiningar á magni ruslpósts á netinu
var hugur þátttakenda til ýmiss konar aug-
lýsinga- og söluaðferða kannaður. Meira en
helmingi þeirra þótti langverst að fá ruslpóst
á netinu, tæpum þriðjungi þótti
verst að fá ruslpóst í gegn-
um bréfalúguna og 13
prósent fannst símasala
verst.
Tilraunir til þess að
koma böndum á rusl-
póstinn hafa greinilega
engan árangur borið.
CAN-SPAM lögin, sem
tóku gildi í Banda-
ríkjunum árið 2004,
kveða á um refsingar
fyrir að senda mikið magn óumbeðins
tölvupósts en hafa lítil áhrif haft. Þegar lögin
tóku gildi var hlutfall ruslpósts á netinu um
70 prósent, en er 95 prósent nú.
Baráttan við þá sem ónáða milljónir
manns með ruslpósti á netinu verður síst
auðveldari með hverju
árinu því þeir eru fljótir
að tileinka sér nýjar
og betri aðferðir til að
komast í gegnum síur
notenda og inn í póst-
hólfið þeirra. Samkvæmt
rannsókn Barracuda bar
helst á aukinni notkun
viðhengja, eins og
PDF-skjala, í ruslpóst-
um þessa árs.
Sendendur ruslpósts eru
þar að auki farnir að líkja eftir markaðsað-
ferðum verslana, og sníða hann eftir árstíð-
um og hátíðum. Fyrir jólin fjölgar bréfum
sem ýta undir kaupæði neytenda og eftir
áramót mega lesendur eiga von á auglýsing-
um fyrir grenningarvörur og kort í ræktina.
SKÝRING: ÓVELKOMIN AUGLÝSINGASKILABOÐ Í TÖLVUPÓSTI
Ruslpóstur aldrei hærra hlutfall tölvupósts
Orð ársins: w00t
Orðabókin Merriam-Webster hefur
valið „w00t“ orð ársins. Orðið er
notað af tölvuleikjaspilurum til að
tjá ánægju eða hrósa sigri. Sam-
kvæmt John Morse, framkvæmda-
stjóra Merriam-Webster, var orðið
valið vegna þess að það sameinar
nýja tækni og duttlunga.
Fullhlaðið á
fimm mínútum
Japanska tæknifyrir-
tækið Toshiba hefur
þróað nýja rafhlöðu sem
nær níutíu prósenta hleðslu á fimm
mínútum. Rafhlaðan, sem fer í sölu
í mars á næsta ári, er fyrst og fremst
ætluð í lyftara og tól til bygging-
arvinnu. Til stendur að nota það í
tvinn- og rafmagnsbíla í framtíðinni.
Vilja grænni leikjatölvur
Greenpeace hefur beðið helstu
leikjatölvuframleiðendur heimsins,
Sony, Microsoft og Nintendo, að
gera leikjatölvur sínar umhverfis-
vænni. Fyrirtækin hafi ekki staðið
sig í að draga úr notkun eiturefna í
vörum sínum. Í sjónvarpsauglýsingu,
sem er hluti af herferð Greenpeace,
berjast þrjár vinsælar tölvuleikjaper-
sónur; Master Chief úr Halo-leikjun-
um, Mario úr samnefndum leikjum
og Kratos úr God of War-leikjunum,
um umhverfisvæna leikjatölvu.
Halo 3 hreinasta alsæla
Tímaritið Time hefur valið tíu bestu
tölvuleiki þessa árs, og varð skotleik-
urinn Halo 3 fyrir Xbox 360 í
fyrsta sæti. Í lýsingu
er hann sagður „hinn
fullkomni fyrstu
persónu
skotleikur,
hrein og
ómenguð alsæla“.
Í öðru sæti varð Half-Life 2: The
Orange Box, tónlistarleikurinn Rock
Band varð í þriðja sæti og Super
Mario Galaxy lenti í fjórða sætinu.
Hafísinn á norðurheim-
skautinu bráðnar hraðar
en vísindamenn höfðu gert
ráð fyrir. Áður en árið 2013
gengur í garð verður ísinn
gjörsamlega horfinn á
sumrin, segir í nýrri rann-
sókn.
Norðurpóllinn verður orðið íslaus á
sumrin innan fimm ára, samkvæmt
niðurstöðum rannsókna banda-
rískra vísindamanna sem kynntar
voru í fyrradag. Á ráðstefnu sam-
taka jarðeðlisfræðinga sagði Wies-
law Maslowski, prófessor sem fór
fyrir rannsóknarhópnum, að hraði
hafíssbráðnunar hefði verið stór-
lega vanmetinn í fyrri spám.
Í sumar var hafísinn í Norður-
Íshafinu minni en mælst hefur
áður, eða 4,13 milljónir ferkíló-
metra. Þetta lágmark sem og hið
fyrra sem náðist árið 2005 voru þó
ekki tekin með í rannsókninni. Í
henni voru notuð gögn um Norður-
Íshafið frá 1979 til 2004. Í viðtali
við fréttastofu BBC sagði Maslow-
ski að í ljósi þess mætti segja að
spá þeirra um bráðnun hafíssins
fyrir árið 2013 sé jafnvel of var-
færin.
Rannsóknarhópurinn er meðal
annars skipaður starfsmönnum
bandarísku geimvísindastofnunar-
innar, NASA, og pólsku vísindaaka-
demíunnar. Hann er þekktur fyrir
að birta oft nákvæmari spár en
aðrir hópar vísindamanna, sem
hafa hingað til spáð því að hafísinn
hverfi á sumrin á árunum 2040 til
2100.
Maslowski sagði þessar rann-
sóknir vanmeta stórlega hvernig
ísinn bráðni í raun, og þurfi að lýsa
betur hvernig heitt vatn færist úr
Kyrra- og Atlantshafi yfir í Norður-
skautsvatnasvæðið.
Trausti Valsson skipulagsfræðing-
ur, sem skrifaði bókina „How the
World will Change — with Global
Warming“ segir útilokað að segja
nákvæmlega fyrir um hvaða áhrif
þessi bráðnun heimskautaíssins hafi
á okkur. Þó megi búast við að sigl-
ingaleiðir opnist sem hafa verið lok-
aðar hingað til og hitastigið á Íslandi
hækki meira en sunnar á hnettinum
vegna bráðnunar íssins. Ekki sé
langt í að svipað loftslag verði á
Íslandi og er nú á Bretlandseyjum.
„Eftir því sem tímamörkin færast
nær og nær verður þetta raunveru-
legra; áður var bráðnun hafíssins í
blámóðu fjarskans,“ segir hann.
„Þegar ísinn hverfur fara straumar
að breytast þannig að hlýir straumar
eiga betra aðgengi á ákveðin svæði,
en köldu straumarnir halda sínu
striki.“ salvar@frettabladid.is
Hafísinn brátt horfinn
úr norðurheimskautinu
Vísindamenn við Harvard-
háskólann í Bandaríkjunum hafa
leyst ráðgátuna um það hvers
vegna ófrískar konur detta ekki
fram fyrir sig. Hryggur þeirra er
öðruvísi uppbyggður en hryggur
karla, sem gerir þeim kleift að
laga stellingu sína eftir þyngd
fóstursins. Þetta kemur fram á
vef tímaritsins New Scientist.
Þetta vandamál er þekkt meðal
tvífætlinga í dýraríkinu, eins og
til dæmis hjá simpönsum, þar
sem þyngdarpunktur móðurinnar
færist fram og gerir henni
erfiðara að halda jafnvægi.
Hryggur kvenna er hins vegar
búinn undir þessar aðstæður. - sþs
Gömul ráðgáta leyst:
Konur með betri
hrygg en karlar
Þó að afritun á tölvuleikjum í
gegnum netið sé langvinsælasta
leiðin til að nálgast leiki án þess
að borga fyrir þá eru enn til
þeir sem reiða sig á gamal-
reyndar aðferðir til þess.
Tölvuleikjaframleiðandinn
Electronic Arts (EA) fékk að
kenna á því þegar vopnaðir
ræningjar stöðvuðu
sendibíl á vegum
fyrirtækisins á hrað-
braut í Kaliforníu og
hirtu þúsund eintök af
tónlistarleiknum Rock
Band.
Í leiknum eru
spilarar í hlutverki rokkstjarna í
hljómsveit, og sjá um gítarspil,
trommuleik eða söng. Talsmaður
EA sagðist vona að ræningjarnir
stofnuðu rokkhljómsveit í fangels-
inu þegar þeir næðust. - sþs
Óþreyjufullir leikjaaðdáendur:
Rændu þúsund
tölvuleikjum
ÍSBRJÓTUR Norðurskautið verður
hulið ís á veturna um ókomin ár,
en miðað við niðurstöður nýrrar
rannsóknar hverfur ísinn á sumrin
fyrir árið 2013.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
A
FPTÆKNIHEIMURINN
ÞÚ ÁTT BÍLSKÚR
Í BÆNUM
Bílastæðasjóður
Aðeins 80 kr. fyrsti
klukkutíminn, síðan 50 kr.
eftir það hver klukkutími.
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 7
2
5
2
6
Vitatorg
Kolaportið
Bergstaðir
Ráðhús Reykjavíkur
Vesturgata 7
Traðarkot
Frítt í bílastæðahúsin
á laugardögum!
Njóttu þess að koma í hlýjan bílinn
í bílastæðahúsum borgarinnar.
Bílastæðahúsin á Laugavegi og Hverfisgötu
eru opin 2 klst. lengur en verslanir í desember.
Frá 14. til 23. desember er opið til miðnættis
og til kl. 13 á aðfangadag.
Stjörnuport
NÝTT