Fréttablaðið - 14.12.2007, Page 39
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ JÓLIN KOMA O.FL.
Signý Hreinsdóttir tvinnar mataráhuga sinn
saman við önnur störf.
„Ég hef alltaf haft gaman af því að lesa uppskriftir og
spá í mat,“ segir Signý Hreinsdóttir, deildarstjóri
vöru og markaðar hjá Mílu. Þegar ég vann hjá Síman-
um um árið gaf ég út tvær matreiðslubækur í þeim
tilgangi að gefa viðskiptavinum í jólagjafir. Þetta
voru einfaldar og aðgengilegar uppskriftir úr ýmsum
áttum,“ segir hún. Þá hefur Signý töluvert fengist við
að skrifa uppskriftir í blöð.
„Fyrir þessi jól datt mér í hug að leggja áherslu á
mataruppskriftir í fréttabréfi Mílu enda eru margir
að stússast í eldhúsinu á þessum árstíma,“ segir
Signý. Hún ákvað að kynna ýmsar leiðir til að nota
svokallaða bechamel-sósu sem er til dæmis grunnur
að gamla góða uppstúfinu. „Það má segja að þessi
sósa sé táknræn fyrir starfsemi Mílu þar sem Míla
er undirstaða að fjarskiptum á Íslandi.“
Bechamel-sósa er til dæmis grunnur að ostasósu í
lasagna og að frönsku mornay-sósunni sem má nota
með fiski og grænmeti. Kjarninn í sósunni er hveiti,
olía, mjólk og salt og bendir Signý á ýmsar nýstár-
legar aðferðir til að nota hana. Það má til dæmis
bæta í hana osti og lauk og smyrja á tortillakökur. Þá
er hún tilvalin sem fylling í sveppi og sem undir-
staða í frauð (souffle).
vera@frettabladid.is
Undirstaðan skiptir öllu
Signý fyllir sveppi með bechamel-sósu, sólþurrkuðum tómötum og osti. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
JÓLASTEMNING
Í Elliðaárdal er haldinn
jólamarkaður þar sem má
kaupa allt mögulegt tengt
jólunum, fella jólatré og
drekka kakó.
JÓL 3
BÓNDAKÖKUR
Elísabet Pétursdóttir, bóndi á
Sæbóli II á Ingjalds-
sandi, bakar
alltaf fyrir
jólin.
JÓL 2
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
Verðdæmi:
Leðursófasett áður 239,000 kr
Nú 119,900 kr
Hornsófar tau áður 198,000 kr
Nú 103,000 kr
Hornsófar leður áður 249,000 kr
Nú frá 159,000 kr
• Leðursófasett
• Hornsófasett
• Sófasett með innbyggðum skemli
• Borðstofuborð og stólar
• Sófaborð
• Eldhúsborð
• Rúmgafl ar
Húsgagna
Lagersala
Nýjar vö
rur
Opnunartími til Jóla
Mán - Föstudagar 09 - 18
Laugardaga 11 - 16
Sunnudag 13 - 17