Fréttablaðið - 14.12.2007, Side 58
14. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR
Múltí Kúltí er miðstöð sjálf-
boðaliða í Ingólfsstræti 8 þar
sem seldar eru svokallaðar
„fair trade“-vörur frá Afríku-
löndum og rennur ágóðinn í
hjálparstarf.
Í Múltí Kúltí hafa félögin Vinir
Indlands, Vinir Kenía og Vinir
Georgíu athvarf. Múltí Kúltí-
miðstöðin er í litlu en notalegu
rými þar sem haldnir eru fundir
og námskeið. Félögin vinna með
sjálfboðaliðum í þessum löndum,
selja vörur sem þurfandi fólk býr
til í höndunum og vinna að upp-
byggingarstarfi.
„Við erum í nánu samstarfi við
innfædda sem eru með einhverja
hjálparstarfsemi fyrir,“ segir
Þórir Gunnarsson, einn af for-
sprökkum miðstöðvarinnar. „Síðan
komum við að hjálparstarfinu
með fjárframlögum. Það er ekki
þannig að við komum bara með
pening heldur förum við fram á að
heimamenn leggi helming á móti
í vinnuframlagi eða peningum eða
hvernig sem það er.“
Múltí Kúltí er til dæmis með
verkefni í gangi núna í sam-
starfi við heimavistarskóla í
Migori í Kenía sem er rekinn af
litlum efnum. Svefnskáli drengj-
anna hrundi nýlega og er verið
að endurbyggja hann með fjár-
framlögum frá Íslandi. Börnin
hafa hins vegar náð góðum ein-
kunnum í skólanum miðað við
aðra skóla í sýslunni. Einnig er
Múltí Kúltí að byggja nýjan skóla
í miðju fátækrahverfinu í Nairó-
bí, þar sem verið er að skipta út
hriplekum bárujárns- og moldar-
húsum sem eru að hruni komin.
„Síðan erum við að selja vörur
frá þessum löndum í miðstöð-
inni okkar. Flestar eru vörurnar
framleiddar af fólki sem á bágt,
af eyðnismituðum mæðrum eða
öryrkjum. Framleiðendurnir fá
enga ölmusu frá okkur heldur er
þetta „fair trade“. Verðið sem þau
fá fyrir vinnu sína er gott og sann-
gjarnt,“ segir Þórir.
Allt sem selt er í Múltí Kúltí
er handgert. Þar má kaupa
margt forvitnilegt og fallegt. Til
dæmis leikföng, sjöl úr bómull og
kasmírull, rúmteppi, töskur, bast-
körfur og útskorna muni ýmsa.
Blaðamaður heillaðist sérstak-
lega af svörtum dúkkum og má
með sanni segja að þarna geti fólk
keypt jólagjafirnar, sérstaklega ef
það leitar að einhverju sérstöku.
Múltí Kúltí
Þórir Gunnarsson, einn af umsjónarmönnum miðstöðvarinnar, situr þar sem gestir
geta komið og drukkið kaffi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rúmteppi þessi voru handsaumuð af
einstæðum mæðrum með eyðni. Með
því að stunda viðskipti við þær er öllum
greiði gerður; kaupanda og seljanda.
Vörurnar eru allar handgerðar og marg-
ar hverjar mjög litríkar og skemmtilegar.
H
rin
gb
ro
t
Gjafabréf Perlunnar