Fréttablaðið - 14.12.2007, Page 60
14. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● miðbærinn
Rithöfundurinn Auður Har-
aldsdóttir hefur búið í mið-
borg Reykjavíkur í rúmlega
hálfa öld ef frá eru talin átta
ár sem hún átti heima á Ítalíu.
Á þeim tíma hefur hún orðið
vitni að ýmsum breytingum
á borginni, sem falla þessari
ákveðnu og lífsglöðu konu
misvel í geð, þótt hún vilji
helst hvergi annars staðar
búa nema kannski í Úganda.
Aðspurð í hverju aðdráttar-
afl miðborgarinnar sé fólgið er
Auður ekki lengi að hugsa sig um.
„Ég er náttúrlega fótgangandi og
held að það sé því ómögulegt að
búa annars staðar,“ svarar rit-
höfundurinn, sem fer allra sinna
ferða annað hvort gangandi eða
þeysist um göturnar á eldrauðu
reiðhjóli sem er skemmtilega í
stíl við hárið.
Hún tekur þó fram að gang-
stéttirnar séu oft þéttsetnar af
bifreiðum en lætur það ekki aftra
sér. „Við sem búum hérna vitum
alveg hvernig þetta virkar. Bíl-
arnir eru á gangstéttinni og við
sem erum fótgangandi eða hjól-
um notum bara akbrautina,“
bendir hún á.
Auður hefur þó fulla samúð
með bifreiðaeigendum í miðborg-
inni, sérstaklega þeim sem eiga
í vandræðum með að finna bíla-
stæði heima hjá sér. „Ég fékk
einu sinni þau svör hjá Bíla-
stæðasjóði að bílastæðin við
húsin í miðbænum væru hvort
eð er ætluð gestum úr Árbæ eða
utan af landi. Mér var hins vegar
ekki sagt hvort við ættum þá bíla-
stæðin í Árbænum. En finnst þér
ekki tímabært að við býttum við
Árbæinga, fáum okkar bílastæði
niður eftir en sendum þeirra upp
eftir?“ spyr hún og hlær.
Umferðarmenning er þó að-
eins ein þeirra mörgu breytinga
á miðborginni sem Auður hefur
orðið áskynja og er auðheyrilega
ekki par ánægð með þær allar.
„Öll þjónusta er horfin úr bænum
og það er orðið erfitt að fá ýmis-
legt,“ segir hún. „En svo þegar
allt fór versnandi tók verslunin
Brynja upp á því að selja fullt af
vörum sem vantaði, er til dæmis
með fjölbreytt úrval af ljósaper-
um á meðan Bónus og Hagkaup
seldu bara venjulegar 40 og 60
kerta perur. Brynja er stórfeng-
legt fyrirtæki.“
Margt í miðborginni er þó Auði
að skapi, þar á meðal það fjöl-
menningarsamfélag sem hefur
skapast hér á síðustu árum. „Al-
stærsti kosturinn, sem er ekki
fáan legur í nýrri hverfum, er
fjölbreytileikinn undir augað,
sem er líkama og sál hollur. Þá
á ég við mismunandi hús, mis-
munandi garða og mismunandi
fólk, en reyndar eru drykkju-
búllugluggarnir svipaðir. Þegar
ég kom heim að utan saknaði ég
þess að sjá fólk af fleiri kynþátt-
um á götunum, en ástandið hefur
lagast. Nú sjást allir litir, sem er
bara af hinu góða.“
Og á meðan margir kvíða öng-
þveitinu sem skapast í miðborg-
inni um jólin lætur Auður það
ekki slá sig út af laginu og segir
umgengnina að minnsta kosti hót-
inu skárri en á menningarnótt
og 17. júní. Auður segist annars
vera lítið jólabarn í sér. Í mesta
lagi fari ein sería út í glugga nái
hún að klöngrast yfir byggingar-
draslið heima og ekki ætlar hún
að skreyta húsið af því tilefni.
„Nei, væni minn, þér verður hlíft
við því,“ segir hún ákveðin og
hlær.
- rve
Fjölbreytileiki undir augað
Rithöfundurinn Auður Haralds
fer allra sinna ferða annað-
hvort fótgangandi eða á hjóli
og lætur það ekki aftra sér
að götur og gangstéttir séu
þéttsetnar af bílum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
North Ice Winter: Úlpa, buxur „superdry“ nærföt,
flís millilag, húfa, lúffur og trefill kr. 19.500.