Fréttablaðið - 14.12.2007, Page 86
50 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Listasafn Íslands býður
upp á leiðsögn Aðalsteins
Ingólfssonar listfræðings
um sýningu á verkum úr
safni Markúsar Ívarsson-
ar á sunnudag kl. 14.
Aðalsteinn hefur skrif-
að fjölmargar bækur um
myndlist auk greina og
listdóma. Aðalsteinn
skrifaði meðal annars
ítarlega grein um átök
meðal myndlistarmanna á
fjórða áratugnum en það
var á þeim tíma sem
Markús Ívarsson var að
kaupa myndlist. Í spjalli
sínu á sunnudag mun
Aðalsteinn fjalla um safn-
ið í heild og sérstöðu þess
sem einkasafns með hlið-
sjón af persónu Markúsar
og tíðaranda.
- vþ
Í haust komst upp um stórtæka
breska listmunafalsara sem höfðu
árum saman blekkt hvern sérfræð-
inginn á fætur öðrum. Falsararnir
þóttu markverðir fyrir vandvirkni
sína, en ekki síður fyrir að um var
að ræða hálfgert fjölskyldufyrir-
tæki. Falsarinn Shaun Greenhalgh
og aldraðir foreldrar hans unnu
saman að því að blekkja listheim-
inn og græða peninga á athæfinu.
Nýverið kom í ljós að stytta í eigu
listasafnsins Art Institute í Chicago í Bandaríkjun-
um er höfundarverk falsaranna, en hún var áður
talin vera eftir myndlistarmanninn Paul Gauguin.
Safnið hafði keypt styttuna fyrir tíu árum og
þá greitt fyrir hana rúmlega sjö og hálf milljón
íslenskra króna. Styttan hafði síðan skipað
sérlega heiðursstöðu á meðal gripa safnsins þar
sem hún þótti vera með merkilegri kaupum þess
í áraraðir.
Styttan sýnir goðsagnaveru sem
nefnist skógarpúki og er hálfur
maður og hálf geit. Höggmynda-
og styttusérfræðingur safnins sagði
að styttan væri ákaflega mikilvæg-
ur þáttur í höfundarverki Gauguins
og sýndi hvernig sjálfsmynd hans
var tvískipt á milli siðmenntunnar
og villimennsku.
En staðreyndin er að styttan var
ekki sköpuð af Gauguin á Tahítí
eins og áður var talið, heldur var
hún mótuð af svikahrappnum Shaun Green-
halgh í bílskúr í breska bænum Bolton. Green-
halgh og aldraðir foreldrar hans hafa öll hlotið
dóma vegna afbrota sinna, en jafnframt hafa þau
hlotið nokkra viðurkenningu fyrir falsanir sínar.
Listsérfræðingar segja falsanirnar hafa verið svo
vandaðar og vel úr garði gerðar að mesta furða
sé að komist hafi upp um fjölskylduna.
- vþ
Sigurður Gísli Pálmason kaup-
sýslumaður er orðinn hluthafi í
fyrirtæki þeirra mæðgina, Eddu
Jónsdóttur og Barkar Árnasonar,
Gallerí i8. Bætist þar við ein stoðin
undir rekstur gallería í miðborg
Reykjavíkur, en Sindri Sindrason,
sá eldri og yngri, eru hluthafar í
Gallerí Turpentine og Ingibjörg
Pálmadóttir, systir Sigurðar er
aðaleigandi Gallerí 101.
Samkvæmt fréttum hefur inn-
koma Sigurðar í rekstur Gallerís
i8 átt sér nokkurn aðdraganda, en
galleríið er með fjölda merkra
myndlistarmanna á sínum snær-
um. Sigurður sat um hríð í Lista-
verkasjóði Pennans sem Gunnar
Dungal stofnaði og hefur setið í
safnráði Listasafns Reykjavíkur
sem mun nú missa af starfskröftum
hans.
Kaupsýslumenn eiga víða um
lönd virkan hlut í galleríum: Leo
Castelli, einn virtasti galleristi
New York á sínum tíma var úr fjöl-
skyldu iðnrekanda og eiginkona
hans um hríð, Ilona Sonnabend,
var líka af kaupsýslufólki komin.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu fyrr á árinu er Gallerí i8 í
þröngu húsnæði og þarf að koma
sér í rýmra og hagstæðara hús-
rými. Er ekki hægt að líta á inn-
komu Sigurðar sem þátt í þeirri
sókn en hann hefur á síðustu miss-
erum komið að ýmsu menningar-
starfi: rekur bókaútgáfu á Íslandi
og Bretlandi, framleiðir heimild-
armyndir og er annar eigenda
Eiða. Nú er hann kominn í mynd-
listarbransann enn frekar, en á
árum áður hafði hann afskipti af
leikhúsrekstri.
Sigurður í i8
Listasafn Árnesinga býður
upp á skemmtilega jóla-
dagskrá á morgun þegar
Tilraunaeldhúsið treður þar
upp með uppákomu sem ber
yfirskriftina Jólamess.
Í þetta skipti verða það þrír lista-
menn sem koma fram á vegum
Tilraunaeldhússins; þau Kristín
Björk Kristjánsdóttir listamaður,
Oddný Eir Ævarsdóttir safna-
heimspekingur úr útgáfufélaginu
Apaflösu og Kippi Kaninus, sem
einnig er þekktur sem Guðmund-
ur Vignir Karlsson, jarðarfara-
söngvari, raftónlistarmaður og
guðfræðingur.
„Þegar við hófum að sjóða
þessa jóladagskrá saman urðum
við umsvifalaust dálítið háfleyg
og hátíðleg, þó við hefðum reynd-
ar sameinast um ansi gráglettinn
undirtón. Við unnum verkin sitt í
hvoru lagi en þau tengjast þó á
margvíslegan hátt. Við Guðmundur
Vignir notumst bæði við orgel í
okkar verkum, ég spila lítinn jóla-
stúf á ferða pumpuorgel og sýni
súper 8 verkið Fótstignir reim-
leikar en Vignir setur upp inn-
setningu úr kirkjuorgelpípum
sem hann spilar á með fótfetlum.
Svo hefur Oddný skrifað sína
texta dálítið út frá því sem við
Guðmundur Vignir gerum,
þannig að verkin okkar fléttast
öll saman og mynda einhvers
konar heilaga jólaveröld með til-
heyrandi piparkökufnyk,” segir
Kristín Björk.
Forsprakkar Tilraunaeldhúss-
ins eru nýkomnir heim úr tón-
leikaferð um Kína á vegum raf-
listahátíðarinnar Notch. Þau
Kristín Björk, Jóhann Jóhanns-
son og Hilmar Jensson komu
fram í borgunum Shanghaí,
Guongzhou og Peking og léku
þar bæði í stórum og virðulegum
tónleikasölum og í trylltum
næturklúbbum. „Það var alveg
ótrúleg lífsreynsla að leika á
hátíðinni í Kína. Sums staðar
voru áhorfendur afskaplega
rólegir og annars staðar var
komið fram við okkur eins og
rokkstjörnur. Mér leið stundum
eins og Mick Jagger, sérstaklega
þegar ég var beðin um að árita
stuttermaboli,“ segir Kristín
Björk og hlær.
En leiðin er löng frá Kína til
Hveragerðis og Kristín á tæp-
lega von á að sama rokkstjörnu-
dýrkunin brjótist út í Listasafni
Árnesinga og hún upplifði í Kína.
„Það er þó aldrei að vita hvað
gerist á þessu jólamessi. Ég er í
það minnsta ávallt til í að árita
stuttermaboli.“
Listaáhugafólk ætti ekki að
láta jólamess Tilraunaeldhússins
fram hjá sér fara. Að auki gefst
safngestum tækifæri til að sjá
sýninguna Stefnumót við saf-
neign, en á henni má sjá úrval
listaverka í eigu safnsins eftir
meistara síðustu aldar.
Jólamess Tilraunaeldhússins
fer fram í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði á morgun á milli kl.
17 og 18. Aðgangur að viðburðin-
um er ókeypis og öllum opinn.
Benda skal á að þetta er síðasta
tækifærið að heimsækja safnið
fyrir jól, því sýningahlé verður
frá 16. desember til 16. janúar.
vigdis@frettabladid.is
Fótstigin uppákoma
Leiðrétting
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að
tónleikar kvennakóra undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur færu fram
í Hallgrímskirkju á morgun,
laugardag. Hið rétta er að
tónleikarnir fara fram í kvöld kl.
20.30. Hlutaðeigandi aðilar eru hér
með beðnir velvirðingar á
mistökunum.
> Ekki missa af...
Fagnaði á vegum tónlistar-
mannanna Tómasar R. Einars-
sonar og President Bongo í
tilefni af útkomu geisladisksins
Rommtommtechno. Diskur-
inn inniheldur endurhljóð-
blandanir á tónlist Tómasar
og er afskaplega dansvænn.
Fagnaðurinn fer fram í kvöld
á skemmtistaðnum Sirkus við
Klapparstíg og hefst kl. 22.
ORGELÁHUGAFÓLK Oddný, Kristín og Guðmundur í hátíðarskapi.
Látlaus og heilhuga ljóðabók, ein-
lægur en hvorki frumlegur né
fjölþátta skáldskapur. Ljóð sem
treysta á tafarlaus hughrif og til-
finningalega upplifun andartaks-
ins fremur en „torræð tákn og
glímu við gátur“ – eins og segir
berum orðum í Ljóðlist bls. 34 –
ljóð sem svara oftast eigin spurn-
um og létta öllu sem þau byrgja
inni. Gagnorð tunga, fallegur tónn
og heilsteypt erindi en ósjálfstæð
rödd. Ljóð sem bjóða skáldskapn-
um fang fremur en fangbrögð,
hafa hvorki vit né vilja til að leggja
hann að velli. Listin er að stíga,
ekki bregða. Kvenleg ljóð, klið-
mjúkt hljóðfall.
Bókin upplýsir að skáldkonan
býr í fjarlægu flötu landi og hefur
nýverið reynt þann harm að missa
tvær systur sínar á Íslandi sem ill-
vígur sjúkdómur felldi í blóma
lífsins. Ólust þær upp í níu syst-
kina hópi undir bröttu fjalli við
djúpan fjörð. Setur það vísvitandi
mark á bókina frá upphafi til enda,
en yrkisefnið er ofið úr fjórum
meginþáttum: (1) Feigð, dauði,
tími, eilífð, guð, (2) sorg, söknuð-
ur, heimþrá, eftirsjá, fortíðar-
hyggja, minni, (3) feigðarboð og
frjómáttur lifandi náttúru –
maður:náttúra, óðagot:aðgát, karl-
eðli:kveneðli, tortíming:sköpun,
og (4) ljóð, orð, skáld. Fyrsti, þriðji
og fjórði strengur binda saman og
bæta upp persónulegt viðmið fín-
gerðasta þáttarins – (2) sem er
„rauði“ þráðurinn, slagæð bókar-
innar – og þar er hugarflugið
djarfara, myndefnið lesandanum
nærtækara og áreitið því
sterkara.
Víða vaka og vakna ferskar hug-
myndir, t.d. í ljóði á bls. 18 sem
fjallar um tímaleysi minninga og
minnis þar sem minnið er kyrr-
stætt ómælisdjúp í óbreytanlegri
hringrás tímans og geymir í
speglasal hugans minningar sínar
sem rödd sálarinnar getur komið á
hreyfingu og endurvarpað úr
fylgsnum sínum undir rós. Forspil
að ljóðinu er að finna í næsta ljóði
á undan (17, sem er upphafsljóð
meginkafla bókarinnar) og endur-
varp í lokaljóði kaflans (59) þar
sem hvert spor lífsleiðar er greypt
í hug ljóðmælandans og þakkar
vistina með ljóði sem þannig
„tendrast af eigin ljósi“ (44). Þá er
ferskur blær í ljóði á bls. 40-41 og
því næsta á eftir (42). Í því fyrra
stekkur alsköpuð ókind náttúrunn-
ar útúr organdi þögn og heyr ein-
vígi við andstæð öfl sín, líknar-
máttinn, sem hefur betur og
sigurlaunin eru sjálf mannkindin.
Í ljóðinu á bls. 42 birtist önnur kvk
náttúruvera sem í senn er ímynd
náttúrunnar og konunnar og tví-
eðli hennar er útmálað með and-
stæðum (mjúkt/hart kalt/heitt
seta/staða) og tvíeinni birtingar-
mynd; tvær konur í einni, önnur
áberandi hin falin. Samómur er
hér og hvar, t.d. í prósa á bls. 66
þar sem tvíeðlið birtist í „skamm-
lausri lóu“ er syngur blásaklaust
tví tvú í bland við villtan dans. En
prósarnir (frásagnarljóðin) í loka-
hlutanum eru víða vekjandi, ekki
síst „máttur álfanna“ (71) þótt
sjálfur stakkurinn sé þar svolítið
skáldaður og muni glæstari tíð.
Form og efni í ljóði verður aldrei
aðskilið, slíkt er alltaf einföldun;
gott ljóð er smíðað úr efni sínu og
fjallar um eigið form, án þess
greint verði þar á milli; búningur
og boðorð samstæður hluti af
„meðferð“ skáldsins. Sambúðin –
andar sem unnast innan ljóðsins,
eða ekki – ræður úrslitum um
ágæti skáldskaparins og yndi les-
andans. En sambúðin er fljót að
koma uppum sig ef hún er ekki í
jafnvægi og þar er fólginn helsti
annmarki þessarar bókar; búning-
urinn stenst boðorðinu ekki snún-
ing. Vissulega falleg lýrík og full-
stöndugur skáldskapur inná
millum, ekki síst ljóðin um ljóðið,
en stíllinn víða svolítið brokkgeng-
ur og fátt sem kemur á óvart eða
þokar skáldlistinni áleiðis.
Engu síður; ærleg bók.
Sigurður Hróarsson
Aðgát gegn óðagoti
BÓKMENNTIR
Án spora
Stefanía G. Gísladóttir
★★
Fátt kemur á óvart
MYNDLIST Sigurður Gísli Pálmason
kaupsýslumaður.
TAHÍTÍKONUR Raunverulegt
málverk eftir meistarann
Paul Gauguin.
Fjölskyldan sem falsaði Gauguin
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Leiðsögn um
safn Markúsar