Fréttablaðið - 14.12.2007, Side 88
14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
Valur Gunnarsson er frumlegur
náungi. Og hans fyrsta skáldsaga
er frumleg. Sögusviðið er Hels-
inki dagsins í dag og norðurhluti
Finnlands. Söguhetjan er Ilkka
Hampurilainen; ólánlegur, lura-
legur og þurfandi Finni á fertugs-
aldri, þunglyndur ekki síst vegna
þess að fáar konur vilja þýðast
hann. Kvenmannsleysið leggst
þungt á okkar mann:
„Fljótt á litið hafði Ilkka því
gengið í gegnum um 1000 hafnanir
á 10 ára tímabili. Af þeim hafði
hann ekkert lært, ekkert varð auð-
veldara með árunum. Það eina
breyttist að allir urðu ófríðari,
bæði hann sjálfur og konurnar
sem reynt var við.“ (Bls. 102)
Ilkka er þannig hin dæmigerða
andhetja. Starf hans er niðurdrep-
andi eða þrif á ferjum sem ganga
um Eystrasalt. Ilkka ákveður dag
nokkurn að sturta sig fullan og
fara með einni ferjunni yfir sund-
ið til Svíþjóðar. Og þá tekur við
atburðarás sem Ilkka fær litlu um
ráðið og teymir hann á norðurslóð-
ir.
Samhliða því sem lesendur
fylgjast með Ilkka er sögð saga
Lofts sem er uppi á 6. öld eftir
Krists burð. Loftur er bragðaref-
ur en að öðru leyti á hann sam-
svörun í Ilkka: Ófríður og illa vax-
inn, graður og ófullnægður. Valur
stillir sögusvið Lofts þannig af að
goðheimar eru lifandi veruleiki og
fléttast við sögu Lofts. Vanir og
æsir auk annarra goðafræðilegra
persóna koma við sögu. Líkt og
geta má nærri fléttast svo saga
Ilkka og Lofts saman með ævin-
týralegum hætti.
Frásagnarmátinn, að víxla
stöðugt milli þeirra Ilkka og Lofts,
býður upp á að skilja lesandann
eftir í spennu og draga hann
þannig áfram. Og oft tekst það. En
hættan er sú að frásögnin verði
höktandi. Þegar höfundur kemst á
flug með Ilkka eða Loft krefst
bygging bókarinnar þess að sjón-
arhornum sé víxlað. Sem getur
reynt á þolinmæði lesandans. Þá
bindur þessi frásagnarmáti hend-
ur Vals þannig að þegar hann legg-
ur lykkju á leið sína til að segja frá
einhverjum atriðum sem þó tengj-
ast sögunni með óbeinum hætti
kann lesandi höfundi litlar þakkir.
Og frasinn: „Gat ekki lagt bókina
frá mér“ er ekki brúklegur þegar
Konungur norðursins er undir.
Valur hefur verið lengi með bók-
ina í vinnslu. Hann leggur mikið
undir því sögulok verða að ganga
upp svo allt hrynji ekki til grunna.
Þegar heimum Ilkka og Lofts
lýstur saman fyrir alvöru verður
frásögnin nánast súrrealistísk en
einhvern veginn tekst Val þó að
halda um alla þræði. Og sleppur
vel fyrir horn ekki síst með því að
vera vel vakandi fyrir kómískum
aðstæðum sögupersóna sinna. Því
má með sanni segja að bókin sé
glæsilegt fyrsta verk höfundar. Þá
má og nefna að Valur hefur lengi
starfað sem blaðamaður og er vel
pennafær. Stíll bókarinnar ein-
kennist af oft snjöllu líkingamáli.
Eins og þegar Illka stillir upp salt-
stauk og sítrónum sem tindátum,
hann er að leggja til atlögu við erf-
iða þynnku, og líður eins og Napól-
eóni sem virðir fyrir sér óvinaher-
sveitir við Waterloo. „Þetta myndi
ekki fara vel, en best að drífa það
af samt.“ (Bls. 20) Á tímabili leit
út fyrir að Valur væri að ofnota
líkingamálið en þegar upp er stað-
ið rímar það stílbragð ágætlega
við söguheim bókarinnar.
Glæsilegt fyrsta verk höfundar
sem sagt en til að Valur eigi eitt-
hvað inni við næstu skáldsögu (og
væri meira krefjandi fyrir höfund
gagnvart íslenskum lesendum ef
sögusviðið væri kunnuglegra),
plús áðurnefndir annmarkar,
hljóta mörkin að liggja við þrjár
stjörnur – hvað sem líður almennri
stjörnugleði gagnrýnenda.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Graður og fullur
Finni í kröppum dansi
BÓKMENNTIR
Konungur norðursins
Valur Gunnarsson
★★★
Glæsilegt fyrsta verk höfundar
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
eftir Anton Tsjekhov
Leikstjórn og leikgerð: Baltasar Kormákur
Jólafrumsýning 26. desember
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
ÍVANOV
Gjafakort Þjóðleikhússins
fæst á www.leikhusid.is
og í miðasölu á Hverfisgötu
Gefum
góðar stundir
7. og 8. des uppselt
30. des