Fréttablaðið - 14.12.2007, Page 91
FÖSTUDAGUR 14. desember 2007 55
Knáar konur sem gefa út bækur á
vegum bókaútgáfunnar Sölku
kynna bækur sínar í kvöld kl. 20 í
kaffihúsi Skrúðgarðs á Akranesi.
Freyja Haraldsdóttir og Alma
Guðmundsdóttir lesa upp úr bók
sinni Postulín. Þegar Freyja
fæddist var henni ekki hugað líf
en í dag hefur hún afrekað meira
en margir jafnaldrar hennar.
Guðrún Hannesdóttir er
mörgum kunn fyrir barnabækur
sínar auk þess að hafa safnað
gömlum vísum fyrir börn. Hér
kemur hún með fyrstu ljóðabók
sína, Fléttur, og hefur fengið
feikigóð viðbrögð.
Lóa Pind Aldísardóttir les úr
Sautjándanum. Um er að ræða
eldfima skáldsögu um Ylfu sem
fer í gæsaferð með vinkonum
sínum og lendir í atburðarás sem
bókstaflega umturnar lífi hennar.
Auður Ólafsdóttir les úr bók
sinni Afleggjarinn sem er
gullfalleg saga um ungan mann
sem yfirgefur ástvini sína og
leggur af stað í ferð sem verður
honum afdrifarík. - vþ
Konur
lesa upp
LÓA PIND ALDÍSARDÓTTIR Les upp úr
sinni fyrstu skáldsögu á Akranesi í kvöld.
Í bók sinni, Hefurðu séð huldu-
fólk?, gerir Unnur Jökulsdóttir
víðreist um landið og leitar uppi
staði og sögur sem tengjast huldu-
fólki. Verkefnið er mjög athyglis-
vert – að kanna hvernig huldu-
fólkssögur lifa enn með
landsmönnum og hvernig þær
„birtast“ okkur í dag. Þetta er
vandmeðfarið efni því það tengist
trú manna ekki síður en sagna-
mennskunni því líkt og
Unnur sýnir með bók
sinni lifa margir í
henni.
Deila má um hvort
trú á huldufólk flokkist
sem sérviska eða liður
í náttúrutrú en líklegt
má teljast að trú þessi
hafi orðið meira áber-
andi á nýliðnum árum
– ekki síst vegna auk-
innar ferðamennsku og
útgáfu á efni fyrir þann
markhóp. Minnug fyrri
lestra á þjóðsögum og
sagnaþáttum finnst
mér þó þrettándinn þunnur í frá-
sögnum þessarar bókar. Ég er ekki
viss um hvort það er aldur minn
eða ástand heimsins
sem hefur slævt áhrifa-
mátt huldufólkssagn-
anna í mínum huga en
ég varð sannast sagna
fyrir nokkrum von-
brigðum.
Flestar frásagnanna
snúast um samskipti
sem eru fjarri æsileg-
um viðburðum þjóð-
sagnanna þegar þessu
fólki annars heims
voru lögð orð í munn
og afskiptasemi þeirra
virtist meiri. Sögu-
menn þeir og konur
sem Unnur greinir frá leggja mis-
mikinn trúnað á huldufólkssögur,
sum hafa haft bein samskipti við
huldufólk á meðan aðrir viðmæl-
endur fara hálfgildings undan í
flæmingi. Þetta er falleg bók,
hana prýða laglegar ljósmyndir
og frágangur hennar er til fyrir-
myndar. Bókinni er skipt upp
milli landshluta en ég saknaði
þess að hafa kort af landsvæðum
og þá til dæmis merkingar um þá
staði sem höfundur tengir sér-
staklega við huldufólk. Frásagnir
af ferðum höfundarins og sam-
ferðafólks fundust mér óþarflega
umfangsmiklar – hugleiðingar
Unnar um huldufólkstrú og ein-
kunnir þær sem hún gefur við-
mælendum sínum verða fljótt
fyrirsjáanlegar og er lítill stíg-
andi í þessari sögu. Í bókarlok er
höfundurinn kominn í hring og
aftur á huldufólksslóðir í Gríms-
nesi en þar hyggst hún með leið-
sögn skyggnrar konu leita huldu-
fólks í nágrenninu. Lýsingar þess
eru mögulega til marks um
undarlegt samlífi mannfólks og
huldufólks því í þeirri frásögn
skarast ólíkir heimar – „heim-
sóknin“ í hulduheimana er trufluð
þegar bláum golfbíl er hreinlega
ekið inn í frásögnina.
Það er gott og gilt að safna
saman huldufólkssögum á okkar
dögum og Unnur vísar til
nokkurra fyrri safnrita í bók sinni
sem einnig er fróðlegt að kynna
sér ef fólk hefur mikinn áhuga á
efninu. Bók þessi verður vafalítið
ágætis heimild um huldufólkstrú
í framtíðinni. Kristrún Heiða Hauksdóttir
Huldufólk í nútímanum
UNNUR JÖKULSDÓTTIR
BÓKMENNTIR
Hefurðu séð huldufólk?
Unnur Jökulsdóttir
★★
Óvenjuleg en heldur þunn ferðasaga
LAUGARNESKIRKJA Hýsir jólatónleika
Bjarkar Jónsdóttur.
Söngkonan Björk Jónsdóttir
kemur fram á jólatónleikum í
Laugarneskirkju á sunnudag kl.
17. Á efnisskránni eru kirkjulög,
aríur og jólalög. Undirleikari með
söng Bjarkar er Bjarni Jónatans-
son.
Auk Bjarkar og Bjarna kemur
kvennakórinn Heklurnar í
heimsókn og flytur vel valin
jólalög.
Aðgangseyrir að tónleikunum
er 1.000 krónur en aðgangur er
ókeypis fyrir börn. - vþ
Jólatónleikar í
Laugarneskirkju