Fréttablaðið - 14.12.2007, Side 94
58 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> FJÖLHÆF LILY
Breska söngkonan Lily Allen er vin-
sæl um þessar mundir. Á næsta
ári mun hún verða and-
lit nærfatamerkisins Agent
Provocateur, en hún hefur
einnig verið fengin í dóm-
nefnd sem útnefnir næsta
handhafa Orange Broadband-
verðlaunanna fyrir skáldsögu.
Britney Spears gat ekki verið
viðstödd vitnaleiðslur á mið-
vikudaginn sökum þess að
söngkonan þjáist af ofsa-
kvíða. Þetta segir vinkona
hennar, Sam Lafti, sem dans-
ar á tónleikum Spears. Söng-
konan átti að mæta til lög-
fræðings Kevins Federline,
Mark Kaplan, þar sem for-
ræðisdeila þeirra heldur
áfram en lét ekki sjá sig. Og
voru fjölmiðlar ekki lengi að
grípa það á lofti og snúa öllu á
versta veg.
En Lafti sendi People.com
tölvupóst þar sem hún
útskýrði ástand Spears. „Hún
er einfaldlega veik á líkama
og sál. Það er ekki auðvelt að
mæta þúsundum ljósmynd-
ara á hverjum degi og sér-
staklega þegar þú þarft að
takast á við svona erfitt mál,“
skrifaði Lafti. Samkvæmt
heimildarmanni The Sun er
Britney nú á barmi taugaáfalls
en hún hefur þó gefið sér
tíma til að kíkja yfir handrt
að kvikmyndinni Sweet Baby
Jesus þar sem henni hefur
verið boðið að leika sjálfa
Maríu mey.
Britney þjáist af ofsakvíða
OFSAKVÍÐI Britney Spears þjáist af
ofsakvíða og getur því ekki sinnt
forræðisdeilunni við Federline af
heilum hug.
Aðeins annar vinningshafinn
hefur gefið sig fram af þeim
tveimur sem voru með allar fimm
tölur réttar og fengu sexfaldan
vinning í Lottó síðastliðinn laugar-
dag. Um er að ræða ungt par með
tvö ung börn en þau fá 23 milljónir
króna í sinn hlut. Miðinn var
keyptur í Nammi.is í Smáralind.
„Þau voru bara stödd í Smáralind
þar sem við vorum með blöðrur og
svona stemningu í kringum Lottó-
ið og mundu þá eftir því að kaupa
miða,“ segir Guðbjörg Hólm hjá
Íslenskri getspá. „Það má segja að
blöðrurnar hafi gert þau rík! Þau
voru alveg ótrúlega róleg yfir
þessu og greinilega með báða
fætur á jörðunni.“
Hinn vinningsmiðinn var
keyptur í versluninni Úrval í Hrísa-
lundi á Akureyri en dularfulla
Úrvals-manneskjan hefur enn ekki
komið í leitirnar. Athygli vekur að
það var einnig Akureyringur sem
hreppti í byrjun október stærsta
lottóvinning sem greiddur hefur
verið út á Íslandi, 105 milljónir í
Víkingalottói. „Já, þeir eru ansi
drjúgir með sig þarna fyrir norðan,“
segir Guðbjörg og hlær en hvetur
um leið alla þá sem keyptu miða í
Úrvali til þess að fara vel yfir
seðlana sína. „Einhver á hér hjá
okkur rétt um 23 milljónir. Það má
nú nota það í eitthvað.“
Parið unga fær vinninginn
greiddan út þann 7. janúar, daginn
eftir þrettándann. Hið sama gildir
um Úrvals-manneskjuna að því
gefnu að hún gefi sig fram. „Þau
fá glaðning á nýju ári og geta
notað kreditkortið að vild með
góðri samvisku fyrir jólin.“
- sók
Lottóvinningshafi
enn ófundinn
AUGLÝSIR EFTIR AKUREYRINGI Guðbjörg
Hólm segir 23 milljóna lottóvinning
leynast á Akureyri.
Mál Ians Strachan er síður
en svo gleymt en hinn hálf-
íslenski, þrítugi glaumglosi
situr nú í Belmarsh, grunað-
ur um að hafa ætlað að kúga
fé út úr meðlim bresku kon-
ungsfjölskyldunnar.
Dómari í máli Pauls Ians Strachan
Adalsteinsson hafnaði kröfu lög-
fræðinga um láta hann lausan
gegn tryggingu þann 7. desember
síðastliðinn. Ian, sem á íslenskan
föður, var handtekinn 11. sept-
ember á þessu ári, grunaður um
að hafa ætlað að kúga fé út úr
meðlim bresku konungsfjölskyld-
unnar vegna myndbandsupptöku
á síma. Breskir fjölmiðlar mega
ekki greina frá hver umræddur
maður er en bandarískir vefmiðl-
ar hafa sagt þetta vera Viscount
Linley sem er tólfti í krúnuröðinni
og frændi Elísabetar drottningar.
Niðurstaða dómstólsins þýðir að
Ian og meintur vitorðsmaður hans,
Sean McGuigan, verða í haldi
fram til 20. desember í Belmarsh-
fangelsinu þar til mál þeirra
verður tekið fyrir í Old Baily. Lög-
fræðingar Ians halda fram sak-
leysi skjólstæðings síns og í sam-
tali við BBC-fréttavefinn segjast
þeir hafa nokkuð öruggt mál í
höndunum.
En þrátt fyrir að Ian sé haldið
bak við lás og slá virðist lögfræð-
ingur hans, Giovanni Di Stefano,
sannfærður um sakleysi hans og
heldur úti ansi öflugri My Space-
síðu á myspace.com/ianstra-
chandiary. Þar má finna frétta-
flutning af gangi mála auk þess
sem Di Stefano útskýrir það skýrt
og greinilega í myndbandi hversu
fáranlegt það sé í hans augum.
Einnig má þar sjá skrif Ians um
dvölina í Belmarsh og myndir af
honum við hin ýmsu tækifæri.
Giovanni segir á heimasíðunni að
hann hafi undir höndunum við-
kvæm skjöl sem eigi eftir að koma
illa við konungsfjölskylduna þegar
þau verða dregin fram í dagsljós-
ið. „Og ég ætla ekki að selja þau til
fjölmiðla þrátt fyrir tilboð upp á
himinháar upphæðir,“ skrifar Di
Stefano. Ian lætur þess síðan getið
að mönnum sé frjálst að skrifa
bréf til hans en heimsóknir í Belm-
arsh séu bundnar við fjölskyldu-
meðlimi.
En það eru ekki bara lagalegar
útskýringar lögfræðingsins
skrautlega og myndaalbúm sem
vekja athygli því meðal „vina“
Ians er lestarþjófurinn Ronnie
Biggs. Biggs er hálfgerð goðsögn í
Bretlandi eftir að hafa verið vit-
orðsmaður í lestaráninu mikla
árið 1963 en hann flúði til Brasilíu
skömmu síðar. Hann sneri aftur til
Bretlands árið 2001 og var þá
handtekinn af bresku lögreglunni
og færður í fangelsi. Svo
skemmtilega vill til að
Giovanni Di Stefano
var einnig verjandi
Biggs á sínum tíma.
freyrgigja@frettabladid.is
Krúnukúgari á MySpace
SKRAUTLEGUR Giovanni
Di Stefano heldur úti
MySpace-síðu til stuðn-
ings skjólstæðingi
sínum þar sem lesa
má um þróun mála.
Í STEININUM Ian Strachan þarf að dúsa
bak við lás og slá til 20. desember þegar
mál hans verður tekið fyrir í Old Baily.
BUCKINGHAMHÖLL Meint fjárkúgunartilraun Ians Strachan hefur valdið fjaðrafoki
innan bresku konungsfjölskyldunnar. NORDICPHOTOS/AP
KRINGLUNNI OG SMÁRALIND
pils
5.990
eyrnalokkar
2.790
sokkabuxur
2.490
kjóll
13.990
skór
4.990
hringur
1.090
veski
3.490
toppur
5.490