Fréttablaðið - 14.12.2007, Síða 101
FÖSTUDAGUR 14. desember 2007 65
D-Sides er lokahnykkurinn á
útgáfunni sem tengist Gorillaz-
plötunni Demon Days. Þetta er
tvöföld plata sem inniheldur b-
hliðalög, demó-upptökur, rímix og
áður óútgefin lög sem tekin voru
upp þegar platan var gerð.
Á meðal efnis er lagið Hong
Kong sem Gorillaz gerði fyrir War
Child-samtökin, lagið Bill Murray
sem Gorillaz gerði með hljóm-
sveitinni The Bees og lagið Stop
the Dams sem Damon flutti með
Ghostigital á náttúruvina-
tónleikunum í Höllinni fyrir
tæpum tveimur árum.
Fyrri diskurinn hefur að geyma
fágæt lög og b-hliðalög, en á seinni
disknum eru rímixin. Fyrri disk-
urinn er mjög misjafn að gæðum.
Það eru nokkur fín lög þarna til
dæmis 68 State, People, We Are
Landfill og fyrrnefnt Hong Kong,
en svo er inni á milli uppfyllingar-
efni og hálfgert drasl. Stop the
Dams fer í seinni flokkinn. Þrátt
fyrir að í laginu spili fríður flokkur
íslenskra blásara, Damon, Curver,
DJ Magic og Einar Örn, þá er þetta
gjörsamlega vonlaust lag.
Damon er hins vegar ekkert að
klikka á kúlinu í rímixunum. DFA,
Stanton Warriors, Soulwax, Hot
Chip og Jamie T. eru á meðal
þeirra sem endurvinna smáskífu-
lögin Dare, Feel Good Inc. og Kids
With Guns og eins og við var að
búast eru mörg frábær mix þarna
þó að eitt eða tvö steindauð slæðist
með.
Á heildina ágætis pakki sem er
aðallega stílaður inn á hörðustu
aðdáendurna.
Trausti Júlíusson
Fyrir þá hörðustu
TÓNLIST
D-Sides
Gorillaz
★★★
Damon Albarn og félagar í Gorillaz
safna saman fágætum upptökum,
b-hliðarlögum og rímixum á misjafna
plötu sem er fyrst og fremst stíluð inn
á hörðustu aðdáendurna.
Bandarískur ljósmyndari hefur
höfðað einkamál gegn leikaranum
Pierce Brosnan vegna atviks sem
átti sér stað á bílastæði í Los
Angeles 26. október. Þá reyndi
ljósmyndarinn að smella myndum
af Brosnan með þeim afleiðingum
að leikarinn lamdi hann í brjóst-
kassann. Ljósmyndarinna segist
hafa orðið fyrir alvarlegum
tilfinningalegum skaða og
meiðslum, þar á meðal brákaði
hann rifbein.
Saksóknarar í Los Angeles
úrskurðuðu í síðasta mánuði að
ekki væru næg sönnunargögn til
að sakfella hinn 54 ára Brosnan og
því ákvað ljósmyndarinn að höfða
einkamál.
Ljósmyndari
höfðar mál
BROSNAN Ljósmyndari hefur höfðað
einkamál gegn fyrrverandi Bond-leikara.
Kvikmyndin There Will Be Blood
var kjörin besta myndin af
kvikmyndagagnrýnendum í Los
Angeles. Myndin, sem er byggð á
skáldsögunni Oil! eftir Upton
Sinclair, hlaut þrenn verðlaun til
viðbótar. Daniel Day-Lewis var
kjörinn besti leikarinn fyrir
hlutverk sitt sem olíubarón í
Kaliforníu sem lendir í deilum við
son sinn og predikara snemma á
síðustu öld. Auk þess var Paul
Thomas Anderson valinn besti
leikstjórinn og Jack Fisk fékk
verðlaun fyrir bestu hönnun.
Marion Cotillard var valin besta
leikkonan fyrir túlkun sína á Edith
Piaf í myndinni La Vie En Rose.
Day-Lewis
verðlaunaður
THERE WILL BE BLOOD Daniel Day-
Lewis fer með aðlhlutverkið í myndinni
There Will Be Blood.
Ný útgáfa af einu þekktasta
og mest spilaða lagi Bubba
Morthens fer bráðum í
spilun á útvarpsstöðvum.
Bubbi Morthens fór nýlega í hljóð-
ver með stórsveit Reykjavíkur og
tók upp Ísbjarnarblús í stórsveitar-
útsetningu. Þeir eru ófáir sem
hafa sungið lagið um þorskana
þúsund sem þokast nær á færi-
bandinu í partíum með kassagítar-
inn einan að vopni en nú hefur
Bubbi bætti við lúðrum af öllum
stærðum og gerðum. „Þetta var
algjörlega geggjað,“ segir Bubbi í
samtali við Fréttablaðið en lagið
verður gefið út í tilefni af nýárs-
tónleikum hans í Laugardalshöll-
inni 4. og 5. janúar. „Lagið verður í
stíl við það sem menn voru að gera
í gamla daga,“ bætir hann við og
því má reikna með að aðdáendur
kappans leggi við hlustir þegar
þessi nýstárlega útgáfa fer í
spilun.
Og Bubbi er alla jafna mjög
áberandi yfir hátíðirnar og Þor-
láksmessutónleikarnir hans eru í
huga margra algjörlega ómissandi
þáttur í jólahaldinu. Bubbi segir
að þegar sé uppselt á tónleikana
og því ljóst að færri komast að en
vilja. „Við höfum tekið upp
tónleikana undanfarin ár og eigum
því orðið dágott safn af
heimildum,“ segir Bubbi og því
skyldi enginn útiloka að þær yrðu
gefnar út á næstu árum. Að auki
fer Bubbi að sjálfsögðu í sína
árlegu ferð á Litla-Hraun en þetta
verður 24. árið í röð sem Bubbi
spilar fyrir fangana þar.
freyrgigja@frettabladid.is
Nýr Ísbjarnarblús Bubba
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Í NÝRRI ÚTGÁFU Bubbi fór nýlega í
upptökuver og tók upp nýja útgáfu af
Ísbjarnarblúsnum góðkunna.