Fréttablaðið - 14.12.2007, Side 102
66 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Haukar og HK mætast í sannkölluðum toppslag í N1-deild
karla í Digranesi í kvöld kl. 19.15. Haukar eru efstir í
deildinni með 21 stig og HK fylgir fast á eftir með 17 stig
en á einn leik til góða. Haukar hafa verið á miklu flugi
í deildinni í vetur undir stjórn Arons Kristjánssonar
og komið skemmtilega á óvart eftir dapurt gengi
liðsins í deildinni í fyrra. Aron segir markmiðið
hins vegar alltaf hafa verið að berjast í topp-
baráttunni.
„Maður vill náttúrulega alltaf stefna eins
hátt og mögulegt er og helst hærra, þannig að
þegar ég kom inn í þetta hjá Haukum þá sáum
við strax ákveðna möguleika í stöðunni. Þetta
er sem betur fer búið að ganga eins vel og við
höfðum vonað. Við erum náttúrulega að hefja
mikla uppbyggingu hjá liðinu og það er ánægju-
legt að það gangi strax jafn vel og raun ber vitni,“
sagði Aron sem býst við jöfnum leik gegn HK í
kvöld.
„Við náðum að vinna HK á Ásvöllum í mjög jöfnum leik um
daginn og ég veit fullvel hversu öflugt liðið er og staða liðsins
í deildinni lýgur engu. Við eigum 50 prósent möguleika á sigri
að mínu mati og ég tel að við verðum að eiga toppleik til þess
að vinna. Það er mjög mikilvægt að við náum að stoppa þessa
hröðu leikmenn sem spila fyrir utan hjá HK og ég tel möguleika
okkar fyrst og fremst liggja í öguðum sóknarleik og öflugum
varnarleik gegn hröðu spili HK liðsins,“ sagði Aron sem hefur
ekki orðið fyrir vonbrigðum með íslensku deildina eftir heim-
komuna frá Danmörku.
„Deildin er mjög sterk og jöfn og það er mikið af ungum og
efnilegum leikmönnum sem eru að stíga sín fyrstu skref, þó
svo að það væri vissulega skemmtilegt að sjá fleiri stórskyttur
koma fram í sviðsljósið. En það er bara eins og það er. Helsti
galli deildarinnar er kannski hversu fá lið eru í henni og
þá hversu lítil fjölbreytni í andstæðingum. Það getur verið
dálítið þreytandi, en á móti kemur auðvitað að deildin er
mjög jöfn og spennandi,“ sagði Aron.
ARON KRISTJÁNSSON, ÞJÁLFARI HAUKA: HEFUR GERT FRÁBÆRA HLUTI MEÐ HAUKALIÐIÐ Í N1-DEILDINNI Í VETUR
Búið að ganga eins vel og við höfðum vonað
FÓTBOLTI Í gær var tilkynnt á opin-
berri heimasíðu Íslendingafélags-
ins West Ham United að Eggert
Magnússon hefði ákveðið að víkja
úr sæti stjórnarformanns og selja
sömuleiðis fimm prósenta hlut
sinn í liðinu til Björgólfs Guð-
mundssonar. Björgólfur á því
orðið hundrað prósent í West Ham
United og mun að sama skapi
gegna hlutverki stjórn-
arformanns.
Sögusagnir síð-
ustu daga þess
efnis að Eggert
Magnússon væri til-
búinn að yfirgefa West
Ham og snúa sér að
öðrum verkefnum voru
staðfestar á opinberri
heimasíðu félagsins í gær.
Eggert segir þar sjálfur í
yfirlýsingu að hann hafi
notið tíma síns sem stjórn-
arformaður en hann láti nú
þegar af öllum störfum sínum
hjá félaginu.
„Þetta er búinn að vera góður
tími og það hefur verið sönn
ánægja og mikill heiður að taka
þátt í þessu verkefni. Nú ætla ég
að snúa mér að öðrum viðskipta-
hagsmunum mínum og ég held að
þetta sé rétti tíminn fyrir mig til
þess að hætta hjá West Ham,“
sagði Eggert, sem var mörgum
þakklátur fyrir tíma sinn hjá
félaginu.
„Ég vil nota tilefnið og færa
stuðningsmönnum West Ham sér-
stakar þakkir fyrir að styðja vel
við bakið á mér og liðinu og þeir
hafa sannað það að mínu mati und-
anfarin ár að þeir eru bestu stuðn-
ingsmenn á Englandi. Ég vil líka
þakka öllum þeim samstarfsmönn-
um sem ég hef unnið með á tíma
mínum hjá félaginu. Ég vona að
West Ham eigi bjarta framtíð
fyrir sér og ég mun mæta og
styðja liðið við hvert tækifæri
sem gefst,“ sagði Eggert.
Björgólfur Guðmundsson, nýr
stjórnarformaður liðsins, fór fögr-
um orðum um Eggert á heimasíðu
West Ham og þakkaði honum vel
unnin störf.
„Eggert hefur skilað frábærri
vinnu fyrir West Ham, oft við
mjög erfiðar aðstæður, og við
óskum honum að sjálfsögðu vel-
farnaðar í komandi verkefnum
hans í framtíðinni,“ sagði Björ-
gólfur og bætti við:
„Ég ætla mér að halda áfram
þeirri góðu vinnu sem Eggert
skilaði og búa félagið undir
næsta skref. Við höldum áfram
að styrkja stoðir
þessa sögu-
fræga
klúbbs
til
þess að búa hann undir bjarta
framtíð,“ sagði Björgólfur og
ítrekaði að ný stjórn væri þegar
komin á fullt.
„Það er fagnaðarefni að geta til-
kynnt að ný stjórn hefur nú loks
tekið fyrsta skrefið að byggingu á
nýjum 60.000 sæta leikvangi fyrir
West Ham sem ber merki um fram-
tíðaráætlanir félagsins og metn-
að,“ sagði Björgólfur í tilkynning-
unni. Við kaup hans á hlut
Eggerts lagði hann
einnig 30,5 milljónir
punda eða um 4
milljarða króna, inn
í eignarhlutafélag
West Ham til þess að
styrkja stoðir þess
enn frekar.
omar@frettabladid.is
Eggert yfirgefur herbúðir West Ham
Eggert Magnússon seldi hlut sinn í West Ham og lét af stjórnarformennsku hjá liðinu í gær. Björgólfur Guð-
mundsson keypti hlut hans og tók við sem stjórnarformaður félagsins. Hann hefur enn fremur lagt um fjóra
milljarða til viðbótar í eignarhlutafélag West Ham og hyggur á byggingu glæsilegs 60.000 sæta leikvangs.
NÝIR TÍMAR Eggert sagði bless við
West Ham í gær, seldi fimm prósenta
eignarhlut sinn og lét af störfum sem
stjórnarformaður félagsins. Björgólfur
Guðmundsson heilsar sem
nýr stjórnarformaður
ásamt því að eiga
félagið að fullu.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Birgir Leifur byrjaði illa
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hóf keppni á Suður-
Afríkumótinu í golfi í gær. Honum gekk ekki vel á fyrsta
hring en hann kom í hús á 79 höggum eða 7 höggum yfir
pari. Hann er í 89. sæti en á samt þokka-
lega möguleika á að komast í gegnum
niðurskurðinn í dag. Mótið er liður í
Evrópumótaröðinni og í því taka þátt
stórstjörnur á borð við Ernie Els, Retief
Goosen og Greg Norman.
FÓTBOLTI Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi
Víði Sigurðssyni, höfundi bókarinnar Íslensk
knattspyrna, og KSÍ bréf í gær þar sem deild-
in fordæmir þau vinnubrögð Víðis að
viðurkenna ekki eitt marka Blikans
Magnúsar Páls Gunnarssonar í
bókinni.
Vilja Blikar fá opinbera afsök-
unarbeiðni frá Víði. Neiti Víðir
að biðjast afsökunar fara Blikar
fram á að KSÍ endurskoði þá
ákvörðun sína að vera í samvinnu
við höfundinn.
Bréf Blika er svohljóðandi:
„Knattspyrnudeild
Breiðabliks telur það
stórlega ámælisvert
að í bókinni Íslensk
knattspyrna 2007 er
Magnús Páll Gunn-
arsson leikmaður
Breiðabliks ekki
sagður þriðji marka-
hæsti leikmaðurinn í
Landsbankadeild
karla árið 2007. KSÍ
hafði áður veitt honum
viðurkenningu fyrir að vera þriðji
markahæsti leikmaður deildarinnar.
Bókin Íslensk knattspyrna hefur verið
gefin út í 27 ár, er ætlað að vera annáll
íslenskrar knattspyrnu og öllum ljóst
að það er í henni sem í framtíðinni er
leitað upplýsinga um íslenska
knattspyrnu árið 2007, ekki á vef-
síðu KSÍ.
Þar af leiðandi hefur Víðir
Sigurðsson sama og svipt Magn-
ús Pál titlinum þriðji marka-
hæsti leikmaður ársins 2007.
Knattspyrnudeild
Breiðabliks lítur
svo á að þar sem
bókin Íslensk
knattspyrna
hefur slíka
yfirburða-
stöðu sem
sagnfræði-
leg heimild
um knatt-
spyrnu á
Íslandi sé
það með öllu
óeðlilegt að höfundur hennar taki sér
ritfrelsi til að dæma mark af Magnúsi
Páli þar sem KSÍ hefur dæmt það
gott og gilt.
Deildin fordæmir því harð-
lega vinnubrögð höfundar og
fer fram á opinbera afsökun-
arbeiðni hans. Að öðrum
kosti fer deildin fram á það
við Knattspyrnusamband
Íslands að það endurskoði
samvinnu sína við höfund-
inn um gerð bókarinnar
líkt og verið hefur.
Sambandið, sem knatt-
spyrnudeild Breiðabliks er aðili að, getur
ekki verið þekkt fyrir að samþykkja slík
vinnubrögð þar sem samþykktar leikskýrsl-
ur þess eru virtar að vettugi.“
- hbg
Knattspyrnudeild Breiðabliks ekki sátt við höfund bókarinnar Íslensk knattspyrna:
Blikar vilja að Víðir biðjist afsökunar
VÍÐIR OG MAGNÚS PÁLL
Meint mark Magnúsar
Páls gegn FH er að verða
eitt umdeildasta mark
síðari tíma á Íslandi.
FÓTBOLTI Fastlega er búist við því
að tilkynnt verði í dag að Ítalinn
Fabio Capello sé búinn að skrifa
undir samning við enska knatt-
spyrnusambandið og muni þar
með taka við enska landsliðinu af
Steve McClaren sem var rekinn á
dögunum.
Enska knattspyrnusambandið
staðfesti í gær að það hefði náð
samkomulagi í meginhlutum við
Capello en verið væri að ganga
frá smáatriðum í samningnum.
„Stjórnin hefur samþykkt að
ráða Capello en eftir er að ganga
frá samningum. Samningaviðræð-
ur ganga vel. Það eru engin
vandamál og við erum bjartsýnir
á að ná saman,“ sagði talsmaður
enska knattspyrnusambandsins.
Talið er að Capello fái um 500
milljónir króna í árslaun, sem er
það mesta sem landsliðsþjálfari
Englands hefur fengið í laun. - hbg
Enska landsliðið:
Capello tekur
við landsliðinu
FABIO CAPELLO Verður næsti landsliðs-
þjálfari enska landsliðsins.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES