Fréttablaðið - 14.12.2007, Síða 110
74 14. desember 2007 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. horfðu 6. í röð 8. mas 9. illæri 11.
belti 12. óbundið mál 14. strita 16.
sjó 17. tunnu 18. ennþá 20. stöðug
hreyfing 21. afli.
LÓÐRÉTT
1. rauf 3. ryk 4. trúarbrögð 5. hár 7.
biðja ákaft 10. sefa 13. hallandi 15.
eyðimörk 16. gras 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. litu, 6. rs, 8. mal, 9. óár,
11. ól, 12. prósi, 14. baksa, 16. sæ, 17.
ámu, 18. enn, 20. ið, 21. fang.
LÓÐRÉTT: 1. gróp, 3. im, 4. taóismi,
5. ull, 7. sárbæna, 10. róa, 13. ská, 15.
auðn, 16. sef, 19. nn.
„Stjórn FÍH hefur fjallað um málið
og niðurstaðan sú að samningar
kveði skýrt á um að ef félagar í FÍH
koma fram í Ríkisútvarpinu ber að
greiða fyrir það. Krafa okkar er að
farið sé eftir samningum og að
lögum,“ segir Sigurgeir Sigmunds-
son, gjaldkeri hjá FÍH, hagsmuna-
og fagfélagi atvinnuhljómlistar-
manna á Íslandi.
Fréttablaðið greindi frá
því í gær, sem hér eftir
verður kallað Stóra-
Klaufamálið, að kántrí-
sveitin Klaufar og
aðstoðarmenn standi nú í
stappi við Ríkisútvarpið að
fá greidda reikninga frá því
Rás 2 sendi út frá dansleik
þeirra á Ásvöllum 3.
nóvember síðastliðinn. Heildarupp-
hæð reikninga er um 400 þúsund.
Ólafur Páll Gunnarsson útvarps-
maður sá um útsendinguna af hálfu
RÚV og sagði í gær að hann liti svo
á að RÚV væri búið að borga Klauf-
um og vel það í formi ókeypis aug-
lýsinga. Honum finnst galið að
greiða níu tónlistarmönnum á FÍH-
taxta vegna útsendingarinnar.
„Klaufar eru klaufar í þessu máli,”
segir Óli Palli.
Sigurgeir segir að stjórn FÍH
hafi sent útvarpsstjóra bréf fyrir
um mánuði vegna málsins en ekk-
ert bóli á svari. Samningur
milli FÍH og Ríkisútvarps-
ins er skýr og viðamikill. „Þess
vegna undrast ég að Óli Palli virð-
ist halda að hann sé í hálfgerðri
pílagrímsferð fyrir íslenska tón-
listarmenn. Að þetta sé eins konar
greiðastarfsemi af hans hálfu.
Hann á allt gott skilið en hann er
bara starfsmaður Ríkisútvarpsins
og honum ber að fara eftir
samningum.”
Sigrún Stefánsdóttur er yfir dag-
skrá Útvarpsins og hún segir að
verið sé að fara í saumana á málinu
innan dyra hjá Ríkisútvarpinu. FÍH
megi fljótlega vænta svars. „Þetta
er dæmigert mál þar sem orð stend-
ur á móti orði. Meira hef ég ekki
um málið að segja í bili. Enda lít ég
svo á að við eigum ekki að reka það
í fjölmiðlum.” - jbg
Stóra Klaufamálið enn í hnút
SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR
Dæmigert mál þar sem
orð stendur á móti orði.
SIGURGEIR SIGMUNDSSON FÍH krefst
þess að reikningar Klaufa verði greiddir.
„Ég vinn ekki bara á ein-
um stað, svo það er svolítið
fjölbreytt. Á verkstæðinu er
venjulega kveikt á Rás 1 og á
Bylgjunni í öðru, svo það verður
svona samsuða af því. Þessa
dagana hlusta ég svo á jólalög
þegar ég er í bílnum á leið á
milli staða.“
Vala Þórólfsdóttir stoðtækjafræðingur.
Friðrik Weisshappel fagnaði fertugsafmæli
sínu um síðustu helgi með opnu húsi á
heimili sínu í Kaupmannahöfn. „Þetta var
frábær dagur og hingað kom ofboðslega
mikið af fólki,“ segir Friðrik en um 180
manns var boðið í afmælið. Eins og fram
kom í Fréttablaðinu í síðustu viku fékk
Friðrik aukahlutverk í kvikmyndinni Good
Heart í afmælisgjöf frá Degi Kára og Þóri
Snæ Sigurjónssyni. Ástæðan var sú að
leikur í kvikmynd er á lista yfir hluti sem
Friðrik ætlar sér að gera áður en hann
deyr. Fleiri virðast hafa kíkt á þann lista
því tengdaforeldrarnir gáfu honum
loftbelgsflug yfir Danmörku í afmælisgjöf.
„Mig hefur alltaf langað til þess að fljúga í
loftbelg, allt frá því að ég las Undraeyjuna
eftir Jules Verne – það er eitthvað ævin-
týralegt við það. Ég fékk svakalega mikið af fínum
gjöfum þótt stærsta gjöfin væri sá hlýhugur sem fólk
sýndi mér með því að mæta hingað í
afmælið mitt. Ef ég verð stúrinn get ég
bara lesið gestabókina.“
Friðrik lætur sér ekki nægja að þiggja
gjafir því hann hefur ákveðið að kaupa
vagnhlass af fótboltum og fara með þá til
Afríku. „Forsagan er sú að ég fór til Afríku
ásamt vini mínum, Bjarna Ármannssyni, í
september og var þar í ellefu daga. Við
heimsóttum meðal annars Tógó, Senegal og
Gíneu-Bissá. Krakkarnir þarna elska að
spila fótbolta en það eru ekki til peningar
til að kaupa bolta. Þess vegna ákvað ég að
kaupa 2.500 fótbolta á næstu þremur árum
og gefa grunnskólum í Gíneu-Bissá,“ segir
Friðrik en hann ætlar sjálfur að fljúga til
Afríku og færa skólunum boltana. „Stefán
Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri
Unicef, er mér til aðstoðar. Þetta er mín leið til að
leggja eitthvað af mörkum.“ - sók
Gefur 2.500 fótbolta til Afríku
LEGGUR SITT AF MÖRK-
UM Friðrik Weisshappel
ætlar að fara til Gíneu-
Bissá með töskurnar
fullar af fótboltum.
Viðar Eggertsson hefur verið
ráðinn sem leikhússtjóri hins ágæta
Útvarpsleikhúss en það þýðir þó ekki
að hann sé hættur að blogga eins
og svo margir gera þegar þeir hreppa
virðulegan titil. Þannig lætur Viðar til
sín taka í máli Erlu Óskar Arnar-
dóttur Lilliendahl sem mjög hefur
verið til umfjöllunar upp á síðkastið
vegna harðræðis sem hún var beitt
á Kennedy-flugvelli í New York. Viðar
birtir á síðu sinni, eggmann.blog.is,
enska þýðingu á bloggi Erlu
sem kom öllu af stað. Og
skorar á menn að dreifa
um hinn enskumælandi
heim einkum til
Bandaríkjamanna
sjálfra. Sá sem þýðir
er hins vegar Gunnar
Tómasson, löggiltur
skjalaþýðandi.
Egill Helgason sjónvarpsstjarna aflar
sér nú vina víða. Þannig er Jónas
Kristjánsson orðinn einn helsti
aðdáandi Egils og vill hann sem rit-
stjóra Moggans. Femínistar hafa tekið
Egil í sátt og vel það eftir að hafa
óáreittar fengið að koma sjónarmið-
um sínum á framfæri í
Silfrinu og við síðasta
pistli hins guðhrædda
Egils á síðu hans kveða
nú við fagnaðaróp úr
ranni Vantrúar. En
Egill vill aðskilnað
ríkis og kirkju og
engar refjar.
Þótt hljómsveitin Klaufar frá Selfossi
hafi einkum verið í fréttum vegna
þrefs um ógreidda reikninga hjá
RÚV fer því fjarri að hljómsveitin
sýsli aðeins við skrifræðið. Hún er að
undirbúa upptökur annarrar plötu
sinnar, en „Hamingjan er björt”, tekin
í Nashville, seldist í fimm þúsund
eintökum og fór í gull. Birgir Niel-
sen trymbill vinnur að því að gera
Selfoss og Nashville að sérstökum
vinabæjum en til Nasville halda þeir
Klaufar nú á nýjan leik
fljótlega á næsta ári. Og
prúðbúnir en í síðustu
ferð til USA eyddu þeir
samtals milljón krónum
í kúrekafatnað, hatta
og stígvél.
-jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ætli Baltasar taki ekki bara sínar
Grímur og ég fái alla aðsóknina.
Og við sjáum svo bara til hvor
okkar verður á flottari jeppa eftir
áramót,“ segir Björn Hlynur
Haraldsson, leikstjóri Jesus Christ
Superstar sem verður jólasýning
Borgarleikhússins í ár. Björn og
Baltasar Kormákur eru eftir nokk-
uð farsælt samstarf undanfarin ár
í harðri samkeppni um hylli gesti
leikhúsanna um þessi jól því í Þjóð-
leikhúsinu er Baltasar að setja upp
Ívanoff eftir Tsjekov.
Félagarnir unnu saman að gerð
einnar vinsælustu kvikmyndar
Íslands, Mýrinnar, þar sem Baltasar
sat í leikstjórastólnum og Björn
Hlynur lék Sigurð Óla. Þeir bættu
síðan um betur þegar Baltasar
stýrði Birni sem Pétri Gaut en sú
sýning var sýnd fyrir fullu húsi í
Þjóðleikhúsinu og sópaði að sér
Grímunum á árlegri uppskeruhátíð
leikhússfólksins fyrir ári.
En í dag er öldin önnur og það er
hart barist á öllum vígstöðvum.
Björn Hlynur er þó sannfærður
um hvor sýningin fær meiri aðsókn.
„Andrew Lloyd Webber á móti
Tjekov í miðasölu, það verður að
teljast frekar ójafn leikur,“ segir
Björn og hlær.
„Hann er bara orðinn eitthvað
hræddur, strákurinn,“ svarar Balt-
asar að bragði og efast ekki eina
sekúndu um ágæti og úthald rúss-
neska leikskáldsins. „Þótt Tsjekov
sé gamall þá ætlar hann ekkert að
gefa eftir í baráttunni við Webber,“
bætir Baltasar við og segir að hann
þurfi lítið á nýjum jeppa að halda,
hann eigi hvort eð er svo flottan.
„Björn má bara kaupa minn ef
hann vill.“ Baltasar vonast þó til að
Birni gangi allt í haginn með písl-
argöngu Jesú. „Við skulum bara
rétt vona að hann græði sem mest
á þessum iðnaðarnjósnum sem
hann stundaði í Pétri Gaut.“
freyrgigja@frettabladid.is
BALTASAR OG BJÖRN HLYNUR: HÖRÐ SAMKEPPNI UM AÐSÓKN
Baltasar tekur Grímuna,
Björn Hlynur aðsóknina
JÓLA-BARDAGI Björn Hlynur og Baltasar berjast um hylli áhorfenda í leikhúsunum um jólin. SAMSETT MYND/KRISTINN
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.