Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 2
2 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
Frábær jólagjöf!
Við minnum á rafrænu gjafakortin okkar.
Opið til 22:00 Þorláksmessa 12:00-18:00 www.IKEA.is
LÖGREGLUMÁL Ákært var í rúmlega
fjórðungi þeirra kynferðisbrota-
mála gegn fullveðja einstakling-
um sem lögregla og saksóknarar
fjölluðu um á síðasta ári. Til saman-
burðar var ákært í 92 prósentum
líkamsárásarmála.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
Ríkissaksóknara fyrir árið 2006.
Alls voru 69 kynferðisbrot gegn
fullveðja einstaklingum afgreidd
frá saksóknurum á árinu. Af þeim
voru 50 felld niður, en ákært í 18
tilvikum, 26 prósentum tilvika.
Hutfallið er breytilegt milli ára,
í fyrra var ákært í 37 prósentum
mála, en árið áður í 26 prósentum.
Á síðasta ári afgreiddu saksókn-
arar 59 kynferðisbrotamál sem
sneru að börnum. Af þeim voru 34
felld niður, en ákært í 23, eða 39
prósentum brota. Þetta er heldur
lægra hlutfall en undanfarin ár. Í
fyrra var ákært í 46 prósentum til-
vika, og vegna 50 prósenta brota
árið 2004.
„Auðvitað er þetta ekki í lagi og
við ekki sáttar við þetta,“ segir
Þórunn Þórarinsdóttir, starfskona
Stígamóta. Hún segir að gjarnan
sé talað um að dómar þurfi að
þyngjast, en hún vilji einnig sjá
þeim fjölga í þessum brotum.
„Auðvitað eru mörg af þeim
málum sem til okkar koma fyrnd,
en það er líka fullt af okkar fólki
sem vill ekki kæra því það hefur
ekki trú á dómskerfinu,“ segir
Þórunn. - bj
Mun ólíklegra að ákært sé vegna kynferðisbrota og barnaníðs en líkamsárása:
Þarf fleiri og þyngri dóma
NAUÐGUN Af 59 kynferðisbrotamálum
gegn fullorðnum einstaklingum sem
afgreidd voru hjá saksóknurum á
árinu voru 34 felld niður en ákært í 23
tilvikum.
NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra
hefur ákveðið að gjörgæsla
Landspítalans við Hringbraut
verði stækkuð eins fljótt og verða
má. Landspítalinn fær sérstaka
fjárveitingu á árinu 2008 til
verksins og hækkar greiðslu-
áætlun spítalans til samræmis við
það. Kostnaður við viðbygging-
una mun nema um 35 milljónum
króna.
Bæði Landspítalinn og nefnd
sem vinnur að tillögum um
framtíðarskipulag fasteigna hafa
hvatt til og dregið fram kostina
við að stækka gjörgæsluna. - kdk
Betri aðstaða á Landspítala:
Gjörgæsludeild
verður stækkuð
HJARTADEILD Víða eru mikil þrengsli á
LSH. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VERSLUN Tölvukerfi Reiknistofu
bankanna bilaði um klukkan
fjögur í gær með þeim afleiðing-
um að margir áttu erfitt með að
greiða með debetkorti í verslun-
um. Bilunin hafði einnig áhrif á
hraðbanka og heimabanka.
Kerfið var aftur komið í lag um
klukkan sex.
„Það mynduðust miklar raðir
hjá okkur þegar kerfið bilaði,
enda þurftum við að reyna nokkr-
um sinnum að renna hverju korti
í gegn til að ná sambandi,“ segir
Árni Þór Árnason, verslunar-
stjóri hjá Elko Smáratorgi. „Þetta
hefur nú gerst áður, það er svo
gífurlegt álag á kerfið rétt fyrir
jólin. Raðirnar voru samt fljótar
að tæmast eftir að þetta komst í
lag.“
Bjarni Ólafsson, framkvæmda-
stjóri vinnslusviðs Reiknistofu
bankanna, segir eitt kerfa stof-
unnar hafa hegðað sér á annan
hátt en til var ætlast með fyrr-
greindum afleiðingum. Bilunin
hafi því í raun ekkert haft með
álag að gera.
„Við lögðumst strax í
greiningar vinnu til að finna
nákvæmlega hvað það var sem
var í ólagi, og einangra það.
Öllum vandræðunum var síðan
lokið um klukkan sex.“
- sþs
Tölvukerfi Reiknistofu bankanna var bilað milli klukkan fjögur og sex í gær:
Þurftu að renna kortinu oft í gegn
Í RÖÐ Raðir mynduðust víða þar sem
bilunin í tölvukerfi Reiknistofu bankanna
hafði áhrif. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
FANGELSISMÁL „Stór hluti fanga
hefur ekki efni á því að gefa fjöl-
skyldu sinni gjafir, en úr því
bættu bókaútgefendur með stór-
glæsilegum hætti,“ segir Magnús
Einarsson, stjórnarmaður í
Afstöðu, félagi fanga. Ástæðan
fyrir orðum hans er framtak
Félags íslenskra bókaútgefenda,
sem í ár sendi föngum fjölda
nýrra bóka svo þeir gætu gefið
ástvinum sínum jólagjafir.
Hugmyndina að bókagjöfinni
átti Elías Baldursson, fangavörður
á Litla-Hrauni, sem fann til með
þeim föngum sem hann vissi að
ekki höfðu getað gefið börnum
sínum og öðrum ástvinum gjafir í
langan tíma. Hann greindi Mar-
gréti Frímannsdóttur, fyrrver-
andi þingkonu sem nú starfar á
Litla-Hrauni, frá hugmynd sinni.
Margrét setti sig því næst í sam-
band við Félag íslenskra bóka-
útgefenda sem brást skjótt við
bóninni og sendi lista til fanga
þar sem þeir gátu skráð hvers
konar bókum þeir óskuðu eftir.
Margrét segist ekki hafa orðið
vör við að einhver einn titill hafi
vakið meiri lukku en annar,
barnabækur hafi þó verið stór
hluti þeirra 120 bóka sem bárust
á Litla-Hraun. „Fangarnir pökk-
uðu gjöfunum svo sjálfir inn og
sendu áfram,“ segir hún og bætir
við að mikillar vandvirkni hafi
gætt við innpökkun margra
þeirra. „Það er erfitt fyrir fólk að
vera fjarri fjölskyldum sínum
um jólin en ég vona að þetta geri
fjarveruna léttbærari,“ bætir
hún við.
Að sögn Magnúsar ríkir mikil
ánægja og þakklæti meðal fanga
vegna framtaksins. Öll afbrigði
bókaflórunnar hafi mátt finna í
sendingunni og því hafi fangar
getað valið ævisagnarit við hæfi í
pakkann fyrir ömmu og skemmti-
lega barnabók fyrir börnin.
„Sjálfur hef ég efni á að gefa
börnum mínum gjafir en það eru
margir hér sem hafa það ekki.
Það er föngum alveg jafn mikil-
vægt og öðru fólki að geta glatt
börnin sín og gott að vita að fólk
er tilbúið að hjálpa til við það,“
segir Magnús.
karen@frettabladid.is
Fangar gleðja ást-
vini með bókum
Bókaútgefendur brugðust skjótt við þegar þeir höfðu fregnir af því að fjöldi
fanga á Litla-Hrauni hefði ekki efni á að gefa fjölskyldum sínum gjafir. Magnús
Einarsson, fangi á Litla-Hrauni, segir fanga afar þakkláta bókaútgefendum.
BÓKUM PAKKAÐ INN Á LITLA-HRAUNI Augljósrar einbeitingar gætir í svip þessa unga
manns á Litla-Hrauni sem í gær gekk frá bókagjöfum til ástvina sinna í tilefni jólanna.
MYND/ELÍAS BALDURSSON
Það er föngum alveg jafn
mikilvægt og öðru fólki
að geta glatt börnin sín.
MAGNÚS EINARSSON
FANGI Á LITLA-HRAUNI
SAMFÉLAGSMÁL Líkt og fyrri ár
gerir Fréttablaðið upp árið með
erlendum sérfræðingum og
heimsþekktum aðilum, í samstarfi
við New York Times samsteypuna.
Meðal þeirra sem skrifa munu í
Fréttablaðið nú eru Nóbelsverð-
launahafinn James D. Watson og
Vicente Fox fyrrverandi forseti
Mexíkó.
Fyrsta greinin, sem birtist í dag,
er eftir Biöncu Jagger, formann
The World Future Council, en hún
segir nauðsynlegt að endurskoða
hagkerfi heims og stórauka aðstoð
við hin fátækari ríki.
Í blaðinu á morgun birtist svo
fyrsta greinin af innlendum
vendipunktum 2007 eftir lands-
kunna Íslendinga. Sjá síðu 16
Erlendir vendipunktar 2007:
Sérfræðingar
gera upp árið
Siggi, er úr þér allur vindur?
„Ja, sumir halda að ég sé alltaf fullur
af lofti.“
Sigurður „stormur“ Ragnarsson er orðinn
langþreyttur á slagviðrinu og segist
aldrei vera þreyttari en eftir að hafa spáð
óveðrum.
FRÆÐI Heimildarmyndin Zeitgeist
hefur vakið mikla athygli að
undanförnu. Netheimar loga og
milljónir manna hafa kynnt sér
boðskap hennar.
Í myndinni er spurt áleitinna
spurninga. Þar kemur fram að í
þúsundir ára hefur maðurinn
tilbeðið sólina og guðlegt vald
hennar. Maðurinn persónugerði
sólina og því er haldið fram að
frelsarinn Jesús Kristur sé arfur
þeirrar trúar. Hann hafi í raun
aldrei verið til. - shá / sjá síður 52 og 54
Er Jesús Kristur goðsögn?:
Heimildarmynd
vekur viðbrögð
LÖGREGLUMÁL Sakborningar í
Pólstjörnumálinu eru sex.
Rannsókn lögreglu á málinu lauk
í gær og var það sent ríkissak-
sóknara.
Niðurstaða rannsóknarinnar er
rökstuddur grunur um stórfelld
brot á lögum um ávana- og
fíkni efni og almennum hegningar-
lögum.
Um fjörutíu kíló af amfetamíni
fundust í skútu á Fáskrúðsfirði í
september síðastliðnum. Þrír
voru handteknir í og við skútuna,
og fleiri handteknir í framhald-
inu. Handtökurnar voru afrakstur
lögreglurannsóknar sem staðið
hafði yfir mánuðum saman. - sþs
Lagt til að sex verði ákærðir:
Pólstjörnumálið
til saksóknara
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
gefið út ákæru á hendur tveimur
Litháum, fyrir að nauðga
íslenskri konu í miðborg Reykja-
víkur í nóvember síðastliðnum.
Hæstiréttur staðfesti í gær
úrskurð Héraðsdóms Reykjavík-
ur um að mennirnir sæti áfram
gæsluvarðhaldi.
Héraðsdómur hafði úrskurðað
mennina í varðhald til 29. febrúar
næstkomandi, en verjendur
þeirra áfrýjuðu niðurstöðunni til
Hæstaréttar. Kröfðust þeir að
úrskurðurinn yrði felldur úr gildi
eða styttur. Hæstiréttur staðfesti
úrskurðinn, en stytti varðhaldið
til 31. janúar. - sþs
Hæstiréttur staðfestir úrskurð:
Litháar áfram í
gæsluvarðhaldi
Vilja meira fé í brennu
Starfsmannafélagið á Hólum í Skaga-
firði hefur óskað eftir hærri styrk frá
sveitarfélaginu vegna flugeldasýningar
og brennu um áramótin. Byggðaráð
vill að rætt verði um framkvæmd og
umsjón flugeldasýninga og áramóta-
brenna í sveitarfélaginu í viðræðum
sem eru framundan eru við björgun-
arsveitir í Skagafirði um styrkveitingar.
SKAGAFJÖRÐUR
SPURNING DAGSINS