Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 100

Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 100
68 22. desember 2007 LAUGARDAGUR Í hvernig fötum líður þér best? Bara þægilegum fötum. Botnaðu: Ef ég fengi að velja mínu hinstu mál- tíð, yrði hún … Hlaupbúðingur. Hvaða kæki ertu með? Þarf alltaf að taka tvö skref afturábak þegar ég er búinn að taka þrjú skref áfram. Getur verið mjög pirrandi, sérstaklega þegar ég er orðinn of seinn. Botnaðu: Þegar eldri sem ég verð því … kynngimagnaðri hestur þessi tilvera er Kringl- an. Hvaða frasa ofnotar þú? Þar hefur Gunnur nú aldeilis rétt fyrir sér. Eftirlætisbragð? Bylta. Fallegasta húsið í Reykjavík er … Gamla Borgarbókasafnið niðri í bæ. Ef þú ættir að velja þér haus einhverrar frægrar manneskju til að setja á búkinn þinn – hvaða haus yrði fyrir valinu? Haus Ben Afflecks. Hvernig heilsarðu? Sæll og blessaður. Hverju tekurðu fyrst eftir í fari fólks? Látbragðinu. Hver fer mest í taugarnar á þér? Þori ekki að segja það, en get gefið vísbending- ar. Karlmaður, rúmlega fertugur, alltaf að blaðra um hluti sem hann veit ekkert um. Látum það nægja. Ef þú yrðir að eyða 20.000 krónum næsta hálf- tímann – hvernig myndirðu eyða peningnum? Koma á heimsfriði. Hvað gerir þig dapran? Minningargreinar, gamalt fólk sem haltrar, dauðinn. Fleira í þessum dúr. Hvað ætti Grýla grænmetisæta að gera við óþekku börnin? Borða þau. Hvaða lag geturðu hlustað á aftur og aftur? Allt með Chet Baker. Hvað myndi sjálfsævisaga þín heita? Óttar M. Norðfjörð – Viðkvæmt blóm í eyði- mörk hafsins. Ef þú uppgötvaðir nýja plánetu í sólkerfi okkar – hvað myndirðu nefna hana? Gústaf Jarl. Hver er frægasti ættinginn þinn? Jón forseti og Fjalla-Eyvindur, held ég. Ef þú ættir tímavél, á hvaða sögulega tímabili myndir þú stilla hana? Væri til í að sjá heiminn eftir svona 200 ár. Þú færð þér karakter úr kvikmynd til búa með – hvaða persóna yrði það og af hverju yrði hún fyrir valinu? Hannibal Lecter hefur nú alltaf virkað mjög viðkunnanlega á mig. Hvaða bók getur þú lesið aftur og aftur? Enga, get ekki lesið hluti aftur og aftur. Finnst það tímaeyðsla. Hver er kynþokkafyllsti klæðnaður sem kona getur klæðst? Sjálflýsandi kraftgalli. Nei, ég meinti gegnsær kraftgalli. Gegnsær. Hvaða ljóð ætti að lesa upp í jarðarförinni þinni og af hverju? „Jæja, þá er partíið búið“. Óskrifað ljóð eftir einhvern. amb@frettabladid.is ÞRIÐJA GRÁÐAN FULLT NAFN: Óttar Martin Norðfjörð FÆÐINGARÁR: 1980 Á HUNDAVAÐI: Vann bróður minn í skák þegar ég var 13 ára, entist þrjá mánuði á djúsfæribandi í Sól hf., fann upp pitsu með kartöflum ásamt Hlyni vini mínum þegar við unnum á Eldsmiðjunni, útskrifaðist úr skóla, skrifaði mína fyrstu ljóðabók, tókst að svara þessum skrítnu spurningum. ■ Á uppleið Farfuglarnir komnir Barferðir yfir allra heilögustu hátíðardagana ættu að vera sigurstranglegar því nú eru farfuglarnir komnir heim um jól. LA-gæjarnir og NY-píurnar eru lent og því hefur úrvalið a.m.k. fjórfaldast á götum borgarinnar. Friðargangan á Þorláksmessu Rölt niður Laugaveginn með kerti í hönd og frið í hjarta er lífsnauðsyn á Þorláksmessu. Óvæntar uppákomur Gefðu ástinni þinni gjöf á Þorláksmessu. Komdu henni á óvart með litlum sætum pakka ofan á ryksugunni eða á bak við Ajaxið. Heimatónleikar Finnið jólafrið í hjarta með því að syngja saman jólasálmana á aðfangadagskvöld. Enn betra ef þið eigið eitt stykki píanó, fiðlu eða gítar. ■ Á niðurleið Snjórinn. Útlit fyrir óveður og rigningu yfir hátíðarnar. Dragið bara gluggatjöldin fyrir. Fyllirí á Þorláksmessu Það vill enginn vakna á aðfangadag með fullan poka af geisladiskum með drengjunum í Lúxor eða gjafakort hjá Geira á Goldfinger. Haldið áfengis- neyslu í lágmarki þessa síðustu metra fyrir jólin. Kvíðir barnið þitt jólunum? Sjónvarp Prófið að kveikja ekkert á sjónvarpinu heldur hlustið þess í stað á huggulega jólatónlist þessi síðustu kvöld fram að jólum. Hugljúfir tónar á grammófóninum slá út Kastljósstefið eða Hagkaupsauglýsinguna. Fyllirí á aðfangadag Segir sig sjálft. MÆLISTIKAN ÓTTAR MARTIN NORÐFJÖRÐ, RITHÖFUNDUR „Ég get ekki lesið hluti aftur og aftur, mér finnst það tímaeyðsla.“ Myndi vilja búa með Hannibal Lecter Rithöfundurinn ungi Óttar Martin Norðfjörð hefur fengið afbragðsgóða dóma fyrir bók sína, Hnífur Abrahams, og í kjölfarið keypti kvikmyndafyrirtækið ZikZak réttinn að henni. Óttari hefur hingað til verið mjög umhugað um framtíð miðbæjarins en hver veit nema hann endi í borg englanna. Frétta- blaðið tók hann í þriðju gráðu viðtal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.