Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 113
LAUGARDAGUR 22. desember 2007 81
Breski rithöfundurinn Terry
Pratchett hefur greint frá því að
hann sé haldinn sjaldgæfu formi
Alzheimer-sjúkdómsins. Í bréfi
sem birtist á vefsíðu listamanns-
ins Paul Kidby skrifaði rithöfund-
urinn að sjúkdómurinn væri
ástæða heilablóðfalls sem hann
fékk fyrr í ár. Pratchett segir að
tilkynninguna eigi að túlka sem
svo að hann sé enn á lífi, og hafi
tekið fréttunum „heimspekilega“
og „mögulega með dálítilli bjart-
sýni“.
Terry Pratchett skrifar ævin-
týrakenndar vísindaskáldsögur og
hefur selt yfir 55 milljónir bóka á
heimsvísu. Frá því að fyrsta skáld-
saga hans kom út árið 1971, hefur
hann skrifað að meðaltali tvær
bækur á ári, og telst því ansi
afkastamikill sem rithöfundur.
Pratchett segir í bréfinu að hann
hefði gjarnan viljað halda fréttun-
um fyrir sjálfan sig í einhvern
tíma, en að hann sæi sig knúinn til
að greina frá sjúkdómnum í ljósi
skuldbindinga sinna við
útgefendur og aðra. Pratchett seg-
ist telja að það sé „tími fyrir að
minnsta kosti nokkrar bækur í
viðbót“ og hvetur aðdáendur til að
taka fréttunum með ró. „Ég mun,
auðvitað, deyja einhvern tíma í
framtíðinni, eins og allir aðrir. Það
gæti verið lengra í það en þið
haldið,“ skrifar Pratchett.
Pratchett þjáist af Alzheimer
TEKUR FRÉTTUNUM MEÐ RÓ
Terry Pratchett segist hafa tekið
þeim fréttum að hann sé haldinn
Alzheimer með ró, og hvetur aðdá-
endur sína til að gera slíkt hið sama.
NORDICPHOTOS/GETTY
Dave Grohl, forsprakki Foo
Fighters, segist eiga erfitt með að
hlusta á lög með fyrrum sveit
sinni Nirvana vegna dauða söngv-
arans Kurt Cobain.
Um leið og hann heyrir lög með
sveitinni í útvarpinu fyllist hann
af endurminningum frá þeim
tíma þegar þeir félagar voru í
hljóðveri.
„Ég minnist þess strax hvernig
það var daginn sem við tókum
upp lagið. Hvernig maturinn var
eða hvort það hafi verið hríð úti.
Þetta er eins og að opna albúm
fullt af gömlum ljósmyndum og
mér finnst ekki gaman að gera
það of oft,“ sagði Grohl.
Fram undan hjá Foo Fighters
eru tónleikar á Wembley á næsta
ári sem aðdáendur sveitarinnar
bíða með mikilli eftirvæntingu.
Hlustar ekki á Nirvana
NIRVANA Dave Grohl, fyrrverandi
trommari Nirvana, á erfitt með að hlusta
á lög með sinni gömlu sveit.
Natalie Portman var
útnefnd best klædda
kona ársins af tímarit-
inu In Style. Tíma-
ritið segir Portman
bera af, þar sem
hún sýni „óbil-
andi trú á snið og
gæði glæsilegs
kjóls.“ Á hæla
Portman fylgdi
Drew Barrymore,
þá Cameron Diaz,
Penelope Cruz og
Jennifer Lopez.
Jessica Alba og
Cash Warren
hafa fallið frá
áformum um
að gifta sig á
næsta ári, þar
sem Alba vill
ekki vera ólétt
í brúðkaupinu.
Alba og Warren
hættu saman í
júlí síðastliðnum,
en byrjuðu aftur
saman í ágúst, og
heyrðist því þá fleygt
að ástæðan væri
hik Warrens við
að festa ráð sitt.
Hann fær þó að
hika nokkuð
enn, því Alba
vill bíða þar
til barnið
er komið í
heiminn.
Það mun
gerast í
byrjun
sumars á
næsta ári.
Kvikmynd sem
byggð verður
á sögu Sue
Monk Kidd,
Leyndardómur
býflugnanna, lítur
út fyrir að verða
stjörnum prýdd.
Jennifer Hud-
son fer með eitt
hlutverkanna,
en auk hennar
hafa Queen
Latifah og
Sophie
Okonedo
tekið að sér
hlutverk í mynd-
inni. Dakota
Fanning kemur til
greina í aðalhlut-
verkið, og svo gæti
farið að Alicia Keys
tæki einnig þátt í
myndinni. Leyndar-
dómur býflugnanna
kom út árið 2003 og
hefur notið mikilla
vinsælda bæði ytra
og hér á landi.
FRÉTTIR AF FÓLKI
GJAFAKORT
KAFFIVÉLAR - MATVINNSLUVÉLAR - POTTAR & PÖNNUR - SAFAPRESSUR - ELDHÚSÁHÖLD
fást í Eirvík
JÓLAGJAFIRNAR
EIRVÍK REYKJAVÍK:
Laugardag 22. des kl. 11-18
Sunnudag, Þorláksmessu kl. 13-17
Aðfangadag 24. des kl. 10-12
Þriðja í jólum, 27. des LOKAÐ
OPNUNARTÍMAR UM JÓLIN:
EIRVÍK AKUREYRI:
Laugardag 22. des kl. 11-15
Sunnudag, Þorláksmessu LOKAÐ
Aðfangadag 24. des LOKAÐ
Þriðja í jólum, 27. des 10-18