Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 99
LAUGARDAGUR 22. desember 2007 67
1941
Sá sem hefur kofortið mitt í
geymslu, skili því á Grettisgötu 7.
G. H.
1942
Stálhjálmar
Þeir, sem eiga eftir að sækja stál-
hjálma sína til Loftvarnanefndar,
ættu að gera það sem fyrst.
LOFTVARNANEFND REYKJAVÍKUR
1942
Aðvörun til farmanna
Kynsjúkdómalæknir ríkisins hefir
vakið athygli á því, að reynsla
meðal íslenskra framanna bendi
til, að smithætta af sárasótt
(sýfilis) í breskum hafnarbæjum
sje nú meiri en dæmi eru til áður,
en það er að vísu alkunnugt að á
ófriðartímum eykst hætta þessi
stórkostlega fyrir aukinn lausung-
arlifnað og erfiðleika á að koma
við því heilbrigðiseftirliti, sem
tíðkast á friðartímum. Fyrir því
eru íslenskir farmenn hjer með
alvarlega varaðir við þessari auknu
hætti. Mega þeir gera ráð fyrir,
að vændiskonur hafnarbæjanna
séu nálega undantekningarlaus
sjúkar og afskifti af þeim leiði til
sýkingar. Engar varúðarráðstafanir
öruggar.
Skipstjórar á öllum íslenskum
skipum, er sigla til útlanda, láta
skipshöfnum sínum í tje Leið-
beiningar um kynsjúkdóma, sem
gefnar hafa verið út á vegum
heilbrigðisstofunarinnar. Eru
skipverjar hvattir til að kynna sjer
þær leiðbeingar nákvæmlega áður
en þeir ganga á land í erlendum
höfnum.
Landlæknirinn
Reykjavík, 10. júlí 1942.
Vilmundur Jónsson
1943
Alþingismaður óskar eftir 1-2
herbergjum með aðgangi að eld-
húsi og síma frá 1. sept. í haust.
Upplýsingar í síma 5499.
1949
Óska eftir að kynnast konu, 25-45
ára, sem á eða hefur ráð á íbúð.
Þær sem vildu sinna þessu, leggi
nafn og heimilisfang á afgr. Mbl.
Merkt: „Þagmælska – 205“.
1951
Sýning og keppni í frjálsum fang-
brögðum
fer fram í Hátíðasal Barnaskóla
Laugarness mánudaginn 2. apríl
kl. 8,30 síðdegis.
Finnski meistarinn ERKKI JOHANS-
SON sýnir og keppir ásamt 20
nemendum sínum.
Aðgöngumiðar á kr. 15.00 og 5.00
kr. fyrir börn, seldir allan mánu-
daginn í Bókabúð Lárusar Blöndal
og við innganginn, ef eitthvað
verður eftir
Glímufjelagið Ármann.
1952
„Slank“- belti nýkomin.
Lífstykkjabúðin h/f, Hafnarstræti
11.
1958
Silfurtunglið
Dansað í síðdegiskaffitímanum
Hljómsveit Riba leikur.
Rock-sýning Lóa og Sæmi.
Einkasamkvæmi í kvöld.
Silfurtunglið
1959
Peningalán
Útvega hagkvæm peningalán til
3ja og 6 mánaða, gegn öruggum
tryggingum. Uppl. kl. 11-12 f.h og
8-9 e.h.
Margeir J. Magnússon
Stýrimannastíg 9. Sími 15385
1959
Karlmenn athugið
(Félagsskapur) Fimm stúlkur
um þrítugt óska eftir félögum.
Aldurstakmark ekkert. Tilboð með
mynd sendist Morgunblaðinu
merkt: „Bráðlátar – 1497“ fyrir 12.
september.
1959
Þvottakvennafélagið
„Freyja“
Framhaldsaðalfundur félagsins
verður haldinn mánudaginn 6. júlí
í Tjarnargötu 29 kl. 8 1/2 . Mjög
aðkallandi mál á dagskrá auk
aðalfurndarstarfa
Mætið stundvíslega STJÓRNIN
1961
Karlmenn athugið
Geri við og breyti karlmanna-
fötum. Geri tvíhneppta jakka
einhneppta. Hækka einnig hornin
á einhnepptum og geri fleiri
hnappagöt. Mjókka buxur og tek
uppslögin af. Kúnststoppa.
Sigurður Guðmundsson
Laugavegi 11. Sími 15982.
AUGLÝSINGARNAR ÞÁ Þótt Royal-búð-
ingurinn sé enn seldur víðast hvar er
ólíklegt að hann sé auglýstur á þennan
heimilislega hátt í dag.