Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 110
78 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Skipulag er auðvitað bráðnauðsynlegt á hverjum jólum. Að passa að
jólakjóllinn sé kominn úr hreinsun, skyrturnar straujaðar og að allur
jólamaturinn sé kominn í ísskápinn. Það er ekkert hátíðlegt við það að
vera stressaður yfir steikinni á síðustu stundu og eyðileggja stemn-
inguna með því að pakka inn pökkum þegar messan er að hefjast. Ég
er samt því miður ekki sérlega skipulögð kona. Þegar fyrstu rjúpna-
lausu jólin skullu á var mér sett það verkefni í stórfjölskyldunni að
panta íslenskt hreindýrakjöt með góðum fyrirvara. Ég vaknaði upp
skelfingu lostin daginn fyrir Þorláksmessu og mundi allt í einu eftir
árans hreindýrinu. Eftir klukkustund í símanum komst ég að því að
allt íslenskt hreindýrakjöt var uppselt í stórmörkuðunum og brá á
það örþrifaráð að hringja í vinkonu mína fyrir austan. Hún fann að
lokum veiðigaur sem átti eitt stykki hreindýrabóg eftir og gat sent
hann með vini sínum í flugvél suður næsta dag. Á Þorláksmessu sendi
ég svo bróður minn niður á flugvöll og fékk paníska símhringingu í
vinnuna sem hljómaði svona: „Ertu orðin algjörlega geðveik? Þetta er
eins og stór gítar! Þetta kemst varla í bílinn, hvað þá í ísskápinn.“
Þegar ég fékk pakkann í hendurnar féll mér allur ketill í eld. Þetta
var bógur í orðsins víðustu merkingu því að ég hélt á níðþungum,
risavöxnum og alheilum fótlegg hreindýrs, með klauf, feld og öllu. Ég
fékk móðursýkislegt hláturskast þegar ég reyndi í huganum að finna
lausnir á málinu. Sá fyrir mér fótlegg Rúdolfs í baðkarinu og eitt
stykki sög og sú mynd varð fljótlega að einhvers konar Texas
Chainsaw Massacre í höfðinu á mér. Leggurinn fékk að dúsa úti á
svölum á meðan ég svaf á vandamálinu um nóttina. Næsta dag tiplaði
ég í vetrarkápunni á háum hælum niður snævi þakinn Skólavörðu-
stíginn. Og með hvað annað undir hendinni en fótlegginn á Rúdolf
vini mínum. Gekk hnarreist inn i Ostabúðina þar sem ég spurði
kurteislega hvort einhver gæti mögulega verið svo sætur að búa til
jólasteik úr þessum Hammer House of Horrors hryllingi. Af eintómri
meðaumkun urðu þeir að bón minni enda örugglega fullvissir um að
þarna væri kona á ferð sem hefði algerlega tapað sér í jólastressinu.
Og heim fór ég með eitt stykki snyrtilegan og fallegan innpakkaðan
hreindýrabóg sem rann ljúflega niður um kvöldið. Söguna af Rúdolf
þorði ég hinsvegar ekki að segja fyrr en í janúar.
Rúdolf í ógöngum
Stelpur, stórar sem smáar, klæðast gjarnan rauðum
kjólum á jólunum. Ekkert gæti verið jólalegra, en
hvers vegna skyldi rauður vera litur þessarar
hátíðar? Jú, í kirkjunnar augum er rauður litur tákn
fyrir blóð Krists og er eins konar áminning til okkar
um hvað við erum eiginlega að halda upp á. Rautt er
einnig litur konunga, litur hjartans og litur ástar-
innar. Allt þetta er að sjálfsögðu tengt hinni helgu
hátíð. Hins vegar hefur rautt líka ýmsar neikvæðar
merkingar og var til dæmis talinn „illur“ litur af
forn Egyptum sem tengdist guðinum Set og
undirheimum. Rauður er líka litur hættunnar og
litur stríðsins. Konur í rauðum fötum fyrr á tíð voru
svo oft stimplaðar sem vændiskonur.
Hvað sem rauði liturinn táknar fyrir
manni sjálfum þá er sjálfgefið að sú
kona sem klæðist rauðu er ávallt
mjög áberandi og því kallar
liturinn á ákveðið hugrekki.
Hönnuðir hafa lengi verið mjög
hrifnir af þessum lit og eins og
sjá má hér voru margir með
eldrauðan fatnað á tískupöllun-
um. Þær sem leggja
ekki í eldrautt frá
toppi til táar geta
til dæmis verið
í rauðu við
svart og
skellt á sig
eldrauðu
naglalakki
eða varalit.
- amb
LITUR ÁSTARINNAR, BLÓÐSINS
OG HÆTTUNNAR Á HÁTÍÐUNUM
RAUÐ JÓL
RAUTT OG SVART Fallegur
ballerínukjóll og svartar
sokkabuxur undir flottum
eldrauðum jakka frá Luellu
Bartley fyrir haust/vetur 2007.
SKÆRRAUTT
Áberandi
og ótrúlega
flottur kjóll
frá Oscar
de la Renta
fyrir vor og
sumar 2008.
JÓLAPAKKI
Guðdómlegur
satínkjóll frá
tískuhúsinu
Valentino fyrir
haust/ vetur,
en hönnuður-
inn er frægur
fyrir aðdáun
sína á rauðu.
STELPULEGT
Fallega sniðinn
kjóll með víðu
pilsi og matrósa-
kraga frá Narciso
Rodriguez fyrir
vor/sumar 2008.
Geggjuð rauð taska
eftir Hrafnhildi, fæst í
Trilogiu, Laugavegi. Falleg rauð svanapeysa frá
Liborius, Laugavegi.
TÖFF OG
BRESKT
Æðislegar
rauðar
hnébuxur
við svartan
flauelsjakka
frá Luellu
Bartley fyrir
haust/vetur
2008.
FÓSTBRÆÐUR
Á DVD
FÓSTBRÆÐUR
Loksins á DVD!
Tryggðu þér allar
5 seríurnar!
Pæjulega hælaskó
með opinni tá og
slaufu frá Soniu
Rykiel. Fást í Kron-
Kron.
Dásamlegan
„cape“-kjól í
fölgylltu með
svörtum brydd-
ingum. Fæst í
KronKron.
> TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR
Á BAK VIÐ TJÖLDIN Hefur þú einhvern tímann velt fyrir
þér hvað er uppáhaldsbókabúð Lagerfelds, eða hvar
Dita Von Teese drekkur kokkteila? Nú er Blackberry
komið með nýja vefsíðu sem það kallar The B List
og þar ljóstra stjörnurnar upp
leyndarmálum eins og uppá-
haldshótelunum, veitinga-
stöðunum, næturklúbbum
og verslunum. Skoðaðum
www.the-b-list.com
OKKUR
LANGAR Í
…
Gullfallegan
svartan
pallíettukjól
fyrir hátíð-
arnar. Fæst í
KronKron.
hjá Þráni skóara á
Grettisgötu.