Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 22. desember 2007 29
SUNNUDAGUR, 16. DESEMBER.
Vörn við yfirgripsmikilli
fáfræði
Mikið snilldarverk er bókin „A
Short History of Nearly Every-
thing“ eftir Bill Bryson og frá-
bært að þessi bók skuli loksins
vera komin út á íslensku.
Karl Emil Gunnarsson hefur
unnið það afreksverk að þýða
þetta stórvirki og íslenska heitið
er: „Stiklað á stóru um næstum
allt“.
Það er réttnefni því að
bókin inniheldur alls
konar fróðleik um hug-
myndir og hluti sem
mann langar loksins
til að fræðast um
þegar búið er að
útskrifa mann úr
skólum og það
rennur upp fyrir
manni hvað maður
veit lítið eftir alla þessa skóla-
göngu.
Í formálanum segir Bryson:
„Og selta sjávar var ekki nema
brot af yfirgripsmikilli fáfræði
minni. Ég vissi ekki hvað róteind
var eða rótfætla, þekkti ekki
muninn á kvarka og kvasa, skildi
ekki hvernig jarðfræðingar gátu
ráðið aldur bergs í gljúfurvegg
með því einu að horfa á það –
vissi bara ekki neitt.“
Það tók Bryson þrjú ár að
skrifa bókina. Með hennar hjálp
fær maður að vita meira í dag en
í gær.
ÞRIÐJUDAGUR, 18. DESEMBER.
Hrossastand og eyðing
Indíalanda
Las í nótt magnaða bók sem heit-
ir „Örstutt frásögn af eyðingu
Indíalanda“ eftir Barolomé de
Las Casas í þýðingu Sigurðar
Hjartarsonar sagnfræðings.
Bartólómeus (1484-1566) var
spænskur munkur sem starfaði
áratugum saman í nýlendum
Spánar í Nýja heiminum, Amer-
íku, og blöskraði þjóðarmorð
landa sinna á frumbyggjum
hinnar nýfundnu heimsálfu.
Þetta er bók sem allir verða að
lesa sem hafa snefil af áhuga á
sögu mannkynsins.
Í dag fórum við austur í Bol-
holt með Fanneyju og Finni og
sóttum hross til að taka á hús.
Fagurt veður og meira að segja
engin rigning fyrr en á heimleið-
inni.
Hrossin voru, aldrei þessu
vant, fremur stygg svo að það
tók soldinn tíma að handsama
þau og koma þeim á kerru. Þau
voru feit og falleg og laus við
hnjóska.
Nú vonar maður bara að það
viðri til útreiða um hátíðarnar.
FIMMTUDAGUR, 20. DESEMBER.
Nepótismi og íslenskt
stjórnarfar
Frétt dagsins:
„Árni M. Mathiesen, settur
dómsmálaráðherra, skipaði í dag
Þorstein Davíðsson, aðstoðar-
saksóknara og deildarstjóra við
embætti lögreglustjórans á
höfuð borgarsvæðinu, héraðs-
dómara frá og með 1. janúar
2008.“
Á Wikipedíu er fjallað ítarlega
um pólitíska spillingu og ýmis
afbrigði hennar í vanþróuðum
löndum sem ekki hafa náð tökum
á lýðræðislegum stjórnarháttum.
„Nepótismi“ er það kallað
þegar ættingjum valdhafa er
hyglað eða potað í embætti með
einum eða öðrum hætti og „crony-
ism“ er hið alþjóðlega heiti á
hugtaki sem svipar til „einka-
vinavæðingar“ á okkar máli.
Mikið er gott að íslenskir
stjórnmálamenn skuli vera
hjartahreinir og frábitnir allri
spillingu.
Í dag var tvíheilagt hjá mér.
Í fyrsta lagi er bókin mín á
báðum metsölulistunum, þeim
frá Eymundsson og þeim frá
Mogga/Félagsvísindastofnun. Þá
er þungu fargi af mér létt því að
ekki á útgefandi minn það skilið
af mér að ég valdi honum
búsifjum.
Í öðru lagi var síðasti upplest-
urinn á jólavertíðinni í kvöld – á
bókakaffinu á Selfossi hjá Bjarna
ritstjóra, útgefanda, bóksala og
alþingismanni. Við vorum þrír
sem lásum. Með mér voru Valur
Gunnarsson sem las úr sinni
fyrstu skáldsögu og Pétur Gunn-
arsson sem las úr verki sínu um
Þórberg Þórðarson sem gerir
stormandi lukku. Við Valur skipt-
umst á bókum og ég hlakka til að
lesa söguna hans. Þetta var nota-
leg kvöldstund með góðu fólki.
Góður endir á skemmtilegri jóla-
vertíð.
Nú get ég loksins snúið mér að
því að skreyta piparkökur með
Andra og litlu Sól. Í friði og
spekt. Laus við jólakvíða.