Fréttablaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 28
28 22. desember 2007 LAUGARDAGUR
FÖSTUDAGUR, 14. DESEMBER.
Gestaþrautir eða hús-
gögn?
Fórum í Habitat þar sem frú Sól-
veig hafði séð út skrifborð handa
mér og snotran skáp undir pappír-
ana mína.
Gamla skrifborðið mitt getur
hæglega enst í nokkur hundruð ár
til viðbótar, en það hefur þann
ókost að ég get ekki setið við það
og skrifað á tölvu. Það er samt
ekki hægt að tala um hönnunar-
galla á borðinu því að það er frá
fyrstu árum síðustu aldar þegar
amerískir lindarpenn-
ar frá Waterman
voru nýjasta
atvinnutæki skrif-
andi manna – og
engum hafði dott-
ið í hug að tölvu-
bylting væri á
næsta leiti.
Ég er búinn
að humma
það fram af
mér í
fimmtán ár
að fá mér
hent-
ugra
skrif-
borð og reiðubúinn að fresta mál-
inu í fimmtán ár til viðbótar en
þegar frú Sólveig fer á stjá er mér
ekki til setunnar boðið.
Mér er bölvanlega við nýtísku
húsgögn, einkum þau sem maður
kaupir ósamsett. Ég hef eytt fleiri
klukkustundum en ég kæri mig
um að rifja upp með sexkant í ann-
arri hendi og leiðarvísi í hinni sem
virðist einna helst innihalda óljósa
útskýringu á afstæðiskenning-
unni.
Það kann vel að vera að þetta sé
gert í sparnaðarskyni en ekki
dettur bílaumboðunum í hug að
selja nýja bíla ósamsetta og láta
leiðarvísi og skrúflykil fylgja.
Ekki er sparnaðurinn í heilbrigðis-
kerfinu orðinn svo mikill að sjúk-
lingum séu afhentir hnífar, brýni
og bók um mannslíkamann og sagt
að skera sig upp sjálfir.
Þess vegna er mér hulin ráðgáta
af hverju sumir húsgagnafram-
leiðendur bjóða viðskiptavinum
sínum upp á gestaþrautir í stað
húsgagna.
Borðið frá Habitat hefur þann
kost með sér að vera einföld smíð.
Jafnvel ég á að geta sett það saman
á tíu mínútum. Eða það fullyrti
Jón Arnar verslunarstjóri og ég
ákvað að trúa honum af því að
hann sagðist vera að norðan.
Skápurinn kemur samsettur.
LAUGARDAGUR, 15. DESEMBER.
Öryggisleysi í ríkis-
stjórninni
Las vægast sagt mjög brjóst-
umkennanlega skýrslu á vef-
síðu dómsmálaráðherrans
um hvað verið er að
aðhafast eða í ráði er
að aðhafast í „örygg-
ismálum þjóðar-
innar“.
Þótt Rússa-
grýlan hafi gef-
ist upp á ról-
unum virðist
ríkisstjórn-
in þjást af
ótta og
öryggis-
leysi. Sem
er dáldið
undarlegt
með tilliti
til þess hversu mikil áhersla er
lögð á að Ísland þurfi að komast í
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
þrátt fyrir öryggisleysið.
Dómsmálaráðherranum fyrir
hönd eigin ráðuneytis og annarra
og ríkisstjórnarinnar í heild virð-
ist standa jafnmikill stuggur af
svonefndum hryðjuverkamönnum
og betri borgurum af venjulegum
verkamönnum hérna í eina tíð. Og
ekki er nóg með það heldur óttast
yfirvöldin líka bæði flugræningja
og sjóræningja til viðbótar.
Stundum þegar ég hef verið
strekktur á taugum og áhyggju-
fullur hefur mér gefist vel að fara
á Náttúrulækningahælið í Hvera-
gerði og dvelja þar í nokkrar
vikur og drekka mikið af grasa-
seyði.
Áður en við förum út í að stofna
þrjú hundruð manna her með
rafmagnsvopn, hjálma og skildi
og brynvarða bíla væri ódýrara
að senda á Náttúrulækningahælið
dómsmálaráðherrann og/eða aðra
ráðherra sem þjást af öryggis-
leysi eða „tindátalosta“ eins og
snilldarbloggarinn Andrés Jóns-
son kallar hermennskumaníuna.
Eftir mánuð í Hveragerði og
jurtaseyði í lítravís gæti ríkis-
stjórnin örugglega einbeitt sér að
einhverju öðru en óhugnanlegum
martraðardraumum um hryðju-
verkamenn, njósnara, landráða-
menn og sjóræningja.
Sjálfur held ég að þjóðinni stafi
meiri hætta af eiturlyfjum en
erlendum sjóræningjum.
Jurtaseyði gegn tindátalosta
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um sexkant og afstæðiskenningu; grasate og tindátalosta; róteindir, rótfætlur og stór-
merkilega bók. Einnig er talað um jólakvíða, bókakaffi á Selfossi, nepótisma í öðrum löndum og hjartahreina stjórnmálamenn.
KÆRA DAGBÓK
Þráinn Bertelsson skrifar